Morgunblaðið - 28.08.1977, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 28.08.1977, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. AGUST 1977 45 „ ai VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI H&JJéfa'vtvpí''ujx'v ir þekkingu sem flestir íslenzkir þjálfarar i þessum greinum hafa. Svo haldið sé áfram með erlend samskipti, þá er hægt að gera miklu meira af því að láta móta- haldara erlendis bjóða Islending- um til keppni sér að kostnaðar- lausu. Ef skipulögð er keppnisför t.d. 4—5 frjálsiþróttamanna á nokkur mót erlendis má beita af- reksmönnum á borð við Hrein Halldórsson sem „móðurskipi" til að koma hinum inn. Þannig myndi hver mótshaldari t.d. greiða 1 farmiða frá Islandi, auk uppihalds, svo að með nokkrum mótum fengist allur kostnaður greiddur. Annað vil ég nefna sem er afreksfólki í iþróttum þungur fjárhagslegur baggi, en það eru sérstakar kröfur um mikið og vandað mataræði. Má þar nefna neyzluvörur eins og kjöt, egg, undanrennu, vítamin, Tropicana o.fl., sem afreksfólk neytir í marg- falt meira magni en hinn almenni borgari. Þar sem um mikla of- framleiðslu er að ræða á dilka- kjöti og hinu margfræga undan- rennudufti, sem stundum er selt úr landi á 10 kr. kilóið, ætti stjórnvöldum ekki að verða skota- skuld úr því að gefa fslenzku afreksfólki hluta af offram- leiðslunni. Hverjum manni ætti að nægja svo sem 100 kg af undanrennudufti og 1500 egg á ári. Þar sem það er nú helzta umkvörtunarmál framsóknar- manna eins og alþjóð er kunnugt, að þjóðin sé ekki nægilega dugleg við að snæða landbúnaðarvörur, gæti afreksfólkið jafnvel goldið fyrir sig með því að auglýsa þessar vörur erlendis. Þá vil ég nefna eitt enn sem er mjög léleg þjónusta við afreks- fólk sem meiðist. Timinn er dýr- mætur og þvi mikilvægt að geta komizt undir hendur góðs sjúkra- þjálfara strax. Læknar skipta engu máli I þessu sambandi því þeir gera oft illt verra þegar iþróttameiðsli eiga í hlut. Oftast klóra þeir sér I hausnum og segja mönnum að hvíla sig því þetta jafni sig. Bezt væri ef hægt væri að nota hluta af fé Slysa- tryggingasjóðs iþróttamanna til þess að reka sjúkraþjálfunarstofu er eingöngu sinnti íþróttameiðsl- um og væri opin kvöld og helgar. Að lokum vildi ég nefna að upp- bygging íþróttamannvirkja hefur einkennzt allt of mikið af þörfum leikfimikennslu í skólum og „músarholusjónarmiðum" sveit- arfélaga. Flest iþróttahús eru al- veg eins, bara misstór. Það er ekkert fimleikahús til á landinu, ekkert lyftingahús og ekkert frjálsíþróttahús sem gagn er að. Varðandi músarholusjónarmið vil ég nefna, að á höfuðborgarsvæð- inu öllu eru 40—50 manns sem æfa hlaup af einhverri alvöru. Þar eru hvorki meira né minna en 5 hlaupabrautir, en nær hefði ver- ið að hafa bara eina eða tvær úr gerviefni. Það er á þessum sviðum sem ég held að afreksmannanefndir inn- an iþróttahreyfingarinnar ættu að starfa, auk baráttu fyrir aukn- um opinberum styrkjum. En það er að bera í bakkafullan lækinn að ræða slikt frekar. Velvakandi þakkar bréfritara, og öðrum bréfriturum sem brugð- ið hafa vel við áskorun um að leggja orð i belg um málefni af- reksíþrótta. Vonandi er að enn fleiri eigi eftir að kveða sér hljóðs, þvi málefnið er flókið og í mörg horn að líta. Fróðlegt væri að heyra viðbrögð forystumanna innan iþróttahreyfingarinnar, en I þeim bréfum sem birzt hafa hefur verið viða komið við. Senni- lega hefur íþróttahreyfingin til- efni til að efna til ráðstefnu um málefnið, þvi á slíkum samkom- um kemst meira fyrir heldur en i skoðanaskiptum í blöðum. Fróð- legt væri að heyra hvort Iþrótta- hreyfingin hafi efnt til slíkra um- ræðna um afreksiþróttir meðal iþróttafólksins, eða hvort slikt sé fyrirhugað. I>essir hringdu . . . takist vel, því þetta eru fyrstu kynnin sem börnin fá af leikhúsi. Jóni E. Guðmundssyni tókst mjög vel upp á ferð sinni um leikvell- ina, og veit ég til þess að hann hefur vakið upp eldmóð og áhuga meðal barnanna. Kunnu börnin vel að meta það að fá brúðuleik- hús Jóns i garðana og má því segja að honum hafi tekizt vel upp með að færa leikhúsið til barnanna, svo að ekki sé nefnt hversu þetta lífgar nú upp á starf- ið á leikvöllunum. Hvern krakka kvaddi hann með sérstakri tré- ristu af Pétri páfagauk, einu dýr- anna i brúðuleikhúsi hans. Eiga Jón E. Guðmundsson og leikvallanefnd Reykjavíkurborg- ar miklar þakkir skildar fyrir þetta merkilega menningarfram- tak og ég held ég tali fyrir hönd flestra húsmæðra nú, er ég læt i ljósi von um að framhald verði á þessu ingarstarfi næsta sumar og næstu sumur. % Merkilegt menn- ingarframtak Móðir I Barða- vogi hringdi: I sumar heimsótti Islenzka brúðuleikhús- ið leikvelli Reykjavíkurborgar á vegum leikvailan'efndar. Var þetta athyglisvert og lofsvert framtak, sem mér finnst orðið timabært að við mæðurnar þökk- um fyrir. Ég er mjög þakklát fyrir þetta merka menningarframtak, sem börnin á leikvellinum hér í Barðavogi a.m.k. kunnu vel að meta. Mikilvægt er að svona lagað SKAK Umsjón: Margeir Pétursson Á skákmóti i Sovétríkjunum i ár kom þessi staða upp í skák þeirra Bondarez, og Korsunskis, sem hafði svart og átti leik. ^---g- i i i H0GNI HREKKVISI a.l/ © 1977 " McNaught Synd., Inc. Hvað er að maður — Þetta er ekki hrossakjötj 53? SIG6A V/öGÁ £ A/LVEft4N Norsk gædavara AKARN fyrir hurðir 185—254 og 31 6—345 cm. á haeð Verðfrá kr 1 8 000 H slmi 51103 heimasfmi 52784 C Hafnarfirði. LYSTADÚN húsgagnasvampurinn. wmm m 4 ■■ r m m Efm til að spa i Svampurinn veitir nánast fulikomið hugmyndafrelsi í hönnun. Svampurinn er ódýrt efni. Skólafólk Skólafólk er nú aö koma sér fyrir til vetrarins. LYSTADÚN húsgagnasvampurinn getur verið á margan hátt nytsamur á því sviði. Komdu með hugmyndir þínar.Við bendum þér á hvernig hagkvæmast og ódýrast verður að útfæra þær hafir þú enga hugmynd þá komdu samt. Við höfum nokkrar sem gætu hentað þér. y-, 1 ~ \ [ *** -*■ J 1 ^ /f> . x pc [ifi ? . A LYSTADÚN húsgagnasvampur er efni til að spá í. LYSTADÖN 8 Áklæði bjóðum við líka, t.d. flauelsáklæði á sérlega hagstæðu verði. Þú getur svo saumað, eða við, alveg eins og þú óskar. LYSTADÚNVERKSMIÐJAN DUGGUVOGI 8 SlMI 84655 18 ... Rxb4!, 19. Rxd3 — Rxd3, 20. He2 — Rxc5+, 21. Ka3 — bð! 22. Rd2 (Hvítur var varnarlaus! T.d. 22. Bcl Rd3+ og meiri- hluti hvita liðsins fellur) Ra6+ 23. Kb3 — a4. Mát.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.