Morgunblaðið - 28.08.1977, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.08.1977, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. AGUST 1977 25 ATA-þing í Reykjavík - ATA-þing í Reykjavík — ATA-þing í Reykjavík Friður getur aðeins grundvall- azt á styrkleika „ÞIÐ ERUÐ mjög listrænir Islend ingar,” sagði James S. McDonn- ell, stjórnarformaður Mcdonnell og Douglas-fyrirtækisins í Banda- rfkjunum, sem m.a. er frægt af þvi að smfða Douglas-flugvélar þær, sem Loftleiðir hafa notað um all- mörg ár á leiðinni Luxemburg Keflavfk-New York. Um leið og hann sagði þetta benti hann á borðið, sem við settumst við í Kjarvalsstöðum, þar sem viðtalið fór fram og hann sagði: „Hverjum öðrum en listrænum mönnum dytti f hug að búa til slfkt borð?" Borðplatan var vissulega óvenju- leg og líktist einna helzt fjögurra laufa smára, en McDonnell hélt áfram að tala um listræna eigin- leika íslendinga. Hann sagði: — Ég er nýkominn frá Vest- mannaeyjum, þar sem menn hafa verið að byggja upp eftir náttúru- hamfarirnar Þar sá ég húsgafl. sem var allur málaður með fyrirmynd úr lífi Vestmannaeyinga. Mér var sagt að börn úr skólum bæjarins hefðu gert þessa mynd. Já, íslendingar eru listrænir — sagði þessi aldni maður, sem okkur lék talsverð for- vitni á að vita hver væri. Og við spurðum hann. — Líf mitt er ofur einfalt — sagði James S. McDonnell — það hefur allt snúizt um flug og geim- ferðir og ég hefi lifað á þessu alla mína ævi. Ég stundaði nám í eðlis- og verkfræði við Princeton- háskólann í Bandarikjunum og síðan hefur líf mitt snúizt um flug í 56 ár. Áhugi minn hefur ávallt beinzt að velferð mannfólksins og mér finnst ég hafa haft þá hugsjón að reyna að stuðla að friði og varanleik hans. Friður verður hins vegar ekki að veruleika, nema hann sé grundvall- aður á styrk og staðfestu. — í fyrirtæki mínu starfa 60 þús- und liðsmenn. Við köllum þá liðs- menn (teammates) en ekki launþega (employees), þar sem okkur geðjast fíætt við fíugvélaframleidandann James S. McDonneH\ stjórnarformann McDonnell-Douglas-verksmidjanna siður að þvi orði Sjálfsagt hefðum við kallað starfsmenn okkar félaga (comerates), ef Rússarnir hefðu ekki verið á undan okkur að eigna sér það heiti. Helmingur af framleiðslu fyrirtækisins beinist að framleiðslu flugvéla í friðsamlegum tillangi, þ e.a.s við framleiðum flugvélar fyr- ir almenning, sem gerir honum kleift að komast landa I milli, ferð- ast Nú eru i umferð á annað hundr- að DC8 þotur, fjölmargar DC-9 á vegum um 50 flugfélaga og 37 flugfélög vinna með DC-10 Hinn helmingurinn er framleiðsia orrustu- þotna til hernaðarlegra nota, sem við framleiðum fyrir landher, sjóher og flugher Bandarikjanna Við höf- um gert samning við Bandaríkja- stjörn um framleiðslu þessara þotna og seljum engum öðrum sllkar flug- vélar Þetta eru Fantom-þotur, F-19 og fleiri tegundir og vinir minir spyrja stundum: „Heyrðu McDonn- ell, gamli Þú segist vera friðarsinni, en samt framleiðir þú allan þennan urmul af orrustuþotum Hvernig má það vera?" Jú, ég er hvergi banginn við slik rök. Friðu'r verður aðeins tryggður með styrkleika og með honum einum er hann verndaður í sáttmála Sameinuðu þjóðanna er heimilað að þjóðir stofni með sér varnarbandalög. — Ég er fyrrverandi formaður i aðildarfélagi ATA i Bandarikjunum og ég hefi einnig verið i forystu i Atlantshafsráði Bandarikjanna Þetta er i fyrsta sinn, sem ég kem til íslands og raunar hef ég ekki tekið, þátt i störfum ATA að ráði siðan 1 964, að ég sat ársf und, sem þá var haldinn i Ottawa. Þegar ég frétti að ársfund 1977 ætti að halda á ís- landi — sagði ég við konu mina: „Nú förum við til íslands og hingað kom ég á þriðjudagskvöldið Við komum með DC-8 þotu Loftleiða og ég tók eftir að sætanýting i vélinni var um 90% Það er vel af sér vikið hjá Loftleiðum og þeir standa sig vel — Já, en nú er vá fyrir dyrum hjá Loftleiðum, þar sem Laker- Airways er að hefja ferðir milli Lond- on og New York á langtum lægri fargjöldum en Loftleiðir ráða við? — Það er rétt, að Freddy Laker er að hefja „airbus" ferðir sinar yfir Atlantshaf, en hannn notar DC-10, sem er breiðþota Nú eiga Loftleiðir bara að fá sér slikar þotur og þá er ég sannfærður um að þeir standast samkeppnina við Laker — En fá þeir þá svo góða greiðsluskilmála á þotunum, að þeir geti keypt DC-10? — íslendingar eru þekktir fyrir að greiða fyrir það, sem þeir hafa keypt og það samkvæmt samningi. Þeir greiða sina reikninga og þeir krefjast ekki þjórfjár Þeir geta vissu- lega fengið Douglas-þotur á góðu verði — sagði þessi aldna kempa og hló við — En Douglas hefur ekki aðeins fengizt við flugvélasmiði. Þeir hafa einnig fengizt við gerð geimfara — Já, við smiðuðum fyrsta ein- mannaða geimfarið, sem fór út i geíminn.fyrir NASA. Við smíðuðum lika fyrsta tveggja sæta geimfarið. Gemini, sem bar John Glenn á spor- baug um jörðu Hann var þá foringi í flotanum Þetta var i febrúar 1962, en nú er hann senator fyrir Ohio og stendur sig með hinni mestu prýði — Annars eru Bandarikjamenn þannig lundaðir að ef þeir telja sér ógnað á einhvern hátt, þá standa þeir saman sem einn maður Þannig var það, þegar Kennedy fór fram á fjárframlög til þess að setja mann á tunglið Þá héldu menn að Sovétrík in hefðu þetta markmið og menn vildu verða fyrri til. Kennedy fékk 20 milljarða Bandaríkjadala til þess að framkvæma þetta Þetta er eins og ef einhver ógnaði Bandarikjunum og styrjöld yrði óumflýjanleg. þá standa Bandarikjamenn saman, rétt eins og þeir gerðu í siðari heims- styrjöldinni Þetta verða hinir sovézku vinir okkar að gera sér Ijóst og jafnframt að bandaríska þjóðin vill ekki strið Hún er i raun friðelsk- andi í Asiu sáu Bandarlkjamenn þó ekki tilganginn. þvl fór sem fór ATA er meiður af varnarbandalagi vest- rænna þjóða í þvi koma þátttökuriki bandalagsins fram og styrkur þeirra er þeirra bezta vörn Styrkleikinn er grundvöllur friðarins eins og ég hefi áður sagt Og þessi 78 ára gamli maður heldur áfram að tala um þotur og flugvélar, sem verið hafa allt hans Framhald á bls. 47 um sínum við þjóðfélagsfræði- deild Háskólans hefði mátt ætla, að andsvör þeirra við grein Hann- esar Gissurarsonar hefðu byggzt eingöngu á því að rekja stað- reyndir um námsefni og kennslu- gögn eins og þær koma þeim fyrir sjónir, sem við deildina starfa. En svo undarlega bregður við, að tónninn í svari kennaranna ein- kennist ekki síður af hávaða, brfgzlyrðum og pólitísku skít- kasti, en það eru einmitt þær ávirðingar, sem þeir lelja einna alvarlegastar i skrifum Hannesar Gissurarsonar. Þannig tala há- skólakennararnir um „níðblaða- mennsku", ,,rógskrif“, ,,rógsiðju“, „persónunið", „stílbrögð rógber- ans“, „aurkast", „æsiblaða- mennsku" og svo framvegis. Þá taka þessir heiðursmenn sér fyrir hendur að ásaka Morgunblaðið um að „dreifa rógskrifunum" og telja sig þess umkomna að setja sig á háan hest og komast að þeirri niðurstöðu, að birting á greinum Hannesar Gissurarsonar sé ekki „samboðin virðulegu og málefnalegu blaði sem Morgun- blaðið vill vera“. Ekki er ástæða til að nefna fleiri dæmi um þá tóntegund, sem einkennir þessi skrif háskóla- kennaranna. Um efnisatriði máls- ins verður ekki fjallað hér, enda er Hannes Gissurarson fullfær um að svara fyrir sig og meira en það, og gerir það í Morgunblaðinu í dag, laugardag. En aðeins skal á það bent, að með því að velja sér þennan tón í skrif sín hafa þeir Ólafur Ragnar Grimsson, Svanur Kristjánsson, Þorbjörn Broddason og Haraldur Ólafsson fallið í þá sömu gryfju og þeir ásaka Hannes Gissurarson um. I stað þess að hafa „háleit markmið fræðimennsku og visinda að leiðarljósi“ hafa „freistingar æsi- blaðamennsku orðið þeim að fótarkefli". Þetta sýnir, að kennarar við þjóðfélagsfræði- deild Háskólans eiga erfitt með að greina á milli starfa sinna við Háskóla íslands og stjórnmála- baráttunnar. Öðrum þræði eru það þrír Alþýðubandalagsmenn i pólitiskum ham, sem svara grein Hannesar Gissurarsonar i Morgunblaðinu. Úr þvi að þeim tekst ekki að greina þar á milli i einni blaðagrein, þar sem þeir svara gagnrýni á kennsluhætti við deild þeirra, hljóta þeir að skilja, að þeir sem fyrir utan standa velta því fyrir sér, hvort þeir geti greint á milli fræðimennsku og pólitíkur í kennslu sinni við Há- skólann og við val á kennslugögn- um. Þetta er kjarni þess vanda- máls, sem þessi unga og nýja háskóladeild stendur frammi fyr- ir. Þangað hafa valizt kennarar, sem fyrst og fremst tilheyra ein- um stjórnmálaflokki. Tortryggni ríkir í þeirra garð og þeim hefur ekki tekizt að draga úr henni, kannski fremur aukið á hana með þessum síðustu skrifum. Vilji þeir í raun og veru byggja upp háskóladeild, sem nýtur trausts út á við hljóta þeir að tileinka sér önnur vinnubrögð en þau að velja sem kennara í kommúnistiskum fræðum tvo kunna Alþýðubanda- lagsmenn, Svan Kristjánsson og Hjalta Kristgeirsson. Þeir hljóta að skilja, að breiddin í kennslu- kröftum verður að vera meiri i þessari deild, ef hún á að njóta þess trausts, sem þeir vafalaust telja að hún eigi tilkall til. • • Oldurnar lægir Heldur friðsamlegar horfir nú um þessa helgi i sambandi við vandamál frystihúsanna en útlit var fyrir um siðustu helgi, þegar forsvarsmenn fyrstihúsa á Suður- landi og Vesturlandi höfðu gefið opinberar yfirlýsingar um, að þeir mundu loka húsunum 29. ágúst, þ.e. á mánudag, ef ekki hefðu fyrir þann tima verið gerð- ar ráðstafanir til þess að tryggja frystiiðnaðinum rekstrargrund- völl. Nú er ljóst, að tiltölulega fá frystihús munu loka og þá fyrst og fremst þau, sem voru illa stæð fyrir. Sú ákvörðun frystihúsa- manna að halda rekstrinum áfram, þannig að riksistjórninni gefist nokkurt svigrúm til þess að fjalla um vanda frystiiðnaðarins eru fagnaðarefni og í þeim anda eiga menn auðvitað að vinna að lausn vandamála í okkar litla samfélagi. Frystihúsamenn áttu i vikunni viðræður við Geir Hallgrimsson, forsætisráðherra og i kjölfar þeirra viðræðna var tilkynnt, að afurðalánin hefðu verið hækkuð i sama hlutfall og þau voru fyrir fiskverðshækkunina hinn 1. júlí s.l. en lækkandi hlutfall afurða- lána hafði skapað mjög alvarleg greiðsluvandamál hjá frystihús- unum. Þótt hækkun afurðalána verði til þess að bæta greiðslu- stöðu frystihúsanna ber að hafa í huga, að það er engin lausn á hinum raunverulega rekstrar- vanda þeirra. Og einnig hitt, að innlánsbinding Seðlabankans dugar engan veginn til þess að fjármagna þessa hækkun, þannig að þar er óleystur vandi, sem ráða verður fram úr. Við tslendingar stöndum nú frammi fyrir þeirri einföldu stað- reynd á næstu mánuðum og miss- erum, að atvinnureksturinn getur ekki staðið undir þeim kaup- gjaldshækkunum, sem á hann voru lagðar með síðustu kjara- samningum. Rekstrarvanda frystihúsanna verður að leysa, því að þau eru grundvöllur alls ann- ars athafnalifs i þessu landi. Við skulum lika gera okkur grein fyrir þvi strax, að tiðar kaup- gjaldshækkanir, m.a. i formi vísi- töluuppbóta á næstu mánuðum munu hafa í för með sér tíðar verðlagshækkanir og þar með kostnaðarauka fyrir atvinnuveg- ina. Við erum enn i sama gamla vítahringnum og áður og kannski enn þrælslegar nú en fyrr. Þess vegna verður það vandasamt verk að halda á stjórn efnahagsmála á næstu misserum og miklu skiptir, að þar verði traust og sterk for- ysta, sem heldur um stjórnvölinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.