Morgunblaðið - 28.08.1977, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 28.08.1977, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. AGUST 1977 — Ráðgátan um upptök Nílar Framhald af bls. 15 heimsfrægur á svipstundu. Hann gleymdi ekki að efna fyrirheit sitt við Livingstone og sendu honum 57 burðarmenn, sem komu til Tabora í ágúst 1872. Fáeinum dögum slðar hélt Livingstone af stað á nýjan leik Hann hafði nú fengið þá hugmynd að upptök Nílar væri á sem rynni í Bangweolovatn, sem hann hafði fundið fjórum árum áður. í april 1873 var hann staddur suður af vatninu í leit að einhverri ársprænu sem í það rynni og I gegnum það út í Lualbafljót, sem ef til vill rynni siðan í Alberts- vatn, sem Baker hafði fundið Að visu sóttu að honum þær efasemdir að hugsanlega væri Lualba ein af upphafsám Kongofljóts en hann varpaði þeim jafnóðum frá sér Landið þarna var heldur óskemmtilegt, að miklu leyti fen og aftur fen, og nærri þorpi einu þar sem höfðingi að nafni Chitambo ríkti var Livingstone orðinn svo veikburða að menn hans urðu að bera hann. Þar andaðist hann siðan árla dags hinn 1. mai 1873. Gátan um upptök Nílar var enn óráðin. Stanley snýr aftur Nú var komíð til kasta Stanleys Árið 1874 var hann með áætlun um nýjan leiðangur á prjónunum, sem á margan hátt átti eftir að verða merkilegastur þeirra, sem hann tók sér fyrir hendur. Hann las allt. sem hann komst yfir um miðhluta Afriku, og setti sér þrjú markmið: hann hugðist sigla með ströndum kringum Viktoriuvatn og ganga úr skugga um að vatnsflaumur Riponfossa væri einasta útrás þess og á sama hátt hugðist hann taka fyrir Tanganyikavatn og hrekja endanlega kenningu Burtons en að þvi búnu ætlaði hann að Ijúka fyrirætlan Livingstone, setja bát á flot á Lualba fljót og fylgja þvi til strandar Stanley réð þrjá harðsnúna Breta sem ferða- félaga og þeir héldu frá Zanzibar i átt að ströndinni í nóvember 1874 með 352 burðar- menn, átta tonn af vistum og þar á meðal fjörutiu feta trébát, sem þeir nefndu Lady Alice Þegar þeir náðu Viktoriuvatni þremur og hálfum mánuði síðar var einn af hinum hvitu samfylgdarmönnum Stanleys látinn og hann hafði einnig misst nærri 100 menn af völdum sjúkdóma, harðræðis og átaka við herskáa ættflokka Þeir komu að Viktoriuvatni sunnan til, nærri Mwanza, þar sem Speke hafði komið 16 árum áður og getið sér til að vatnsflæmið framundan væri upptök Nílar. Stanley lét sér ekki nægja getgátur heldur setti bát sinn á flot og hóf könnun Viktoriuvatns. Hafði hann með sér 1 1 ræðara en skildi báða Bretana og meirihluta burðarmannanna eftir. Þetta var i byrjun marz 1874 og rétt tæpum mánuði siðar gekk Stanley á fund Mutesa, konungs i Bug- anda. Miklar breytingar höfðu orðið á högum konungs frá þvi á dögum Speke Konungs- dæmið teygðí sig nú röska 200 km. eftir norðvesturhluta bakkans og ibúatalan var orð- in vel á þriðju milljón. Stanley fannst mikið til Mutesa koma, enda virðist hafa farið allvel á með þeim. Hvergi i skrifum sinum vikur Stan- ley að grimmd konungs, enda þótt vitað sé að Mutesa lét um þetta leyti slátra um 40 manns til að fagna senimanni landstjórans i Súdan, sem sótti hann heim meðan Stanley var þarna gestur. Stanley hvatti mjög Mutesa til að taka kristna trú og mun konungur ekki hafa tekið því fjarri. Stanley hélt siðan förinni áfram og 6 mai 1875 kom hann aftur til þess staðar, sem hann hafði lagt upp frá og gat þá staðfest að Viktoriuvatn var eitt stöðuvatn og Riponfossar eina útrás þess. Speke hafði haft rétt fyrir sér. Meðan hann var i burtu hafði annar samferða- manna hans frá Bretlandi látist en Stanley hélt ótrauður áfram og i júni 1876 setti hann bát sinn á flot i Ujiji á Tanganyikavatni. Eftir 2ja mánaða siglingu umhverfis vatnið gat Stanley einnig sýnt fram á. að þar var ekki neitt fljót að finna. sem rann úr vatninu og gat þannig verið upptök Nilar. eins og Burton hafði haldið fram I ágúst 1876 eða tveimur árum eftir að hann hafði lagt upp frá strönd Austur-Afríku var komið að þriðja áfanga leiðangursins Hann setti Lady Alice á flot á Lualaba-fljóti og þar með hófst siðasta og líklega ævintýralegasta ferð Stanleys Hann lenti i hinum mestu hrakn- ingum, bátur hans brotnaði. hann tapaði vist- um sinum og leiðangursmenn sultu, urðu fyrir árásum herskárra ættflokka og þriðji og siðasti ferðafélagi hans frá Bretlandi drukknaði Níu- hundruð niutíu og niu dögum eftir að leiðang- urinn hófst braust Stanley út úr frumskóginum við mynni Kongófljóts, þar sem fáeinir evrópskir kaupmenn voru fyrir og tóku Stanley að sér Af 356 leiðangursmönnum i upphafi ferðarinnar voru aðeins 1 14 eftir. í millitiðinni hafði margt skýrzt um upptök Nilar. Foringjar i liði Gordons landstjóra i Súdan höfðu fylgt Nll frá Riponfossum allt að landamærum Súdan. Franskur könnuður hafði fylgt upptökunum allt að Karumafossum i miðri Uganda og italskur landkönnuður hafði kannað Albertsvatn og fylgt útfalli þess til norðurs allt að landamærunum við Dufilé. En Stanley hafði unnið mesta afrekið og svör höfðu fengizt við öllum helztu spurningunum Lualaba rann i Kongófljót, sem streymdi siðan um þvera Afriku og út i Atlantshaf Nil byrjaði I Viktorluvatni og rann um Albertsvatn til norð- urs til Egyptalands. Auðvitað má hártoga þessa skilgreiningu og halda þvi að fyrstu upptök Nilar séu fljótið Kagera, sem leggur Viktoriu- vatni til mesta vatnið Ef farvegi Kagerafljóts og siðan tveimur upphafsám þess, Niavarongo og Ruvuvu, er fylgt andstreymis nokkur hundr- uð kllómetra að upptökum þeirra kemur í Ijós að þessi upptök eru um 6 þúsund feta hæð i fjöllunum rétt norður af Tanganyikavatni, svo að Burton var þá ekki langt frá hinu rétta, þegar hann hélt að upptök Nilar væru á þessum slóðum En þá má lika halda hártogun skilgreiningarinnar áfram og segja að upptök Nilar séu i regni skýjanna á þessum slóðum! (b.v.s. tók saman og byggði á bókinni The White Nile eftir Alan Moorehead, og i hana eru einnig myndir og kort sótt.) Allt til skólans Þú parft ekki að leita vióar EYHUNDSSON Austurstræti 18 Sími 13135 Ritföngin Námsbækurnar VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK ÞL' ALGLÝSIR l M AI.LT LAND ÞEGAR Þl AIG- LÝSIR í MORGUXBLAÐINL ORÐ í EYRA Af skóla- nefndar- fundi Heill og sæll, Jakob minn. Sjálfsagt hefur þú fengið einhvern pata af ráðningu skólastjórans nýja. Hún hefur ekki farið það lágt enda er hann víst í sjöunda himni, manntötrið, eða vel það. Og sum sunnanblöðin hafa meira að segja birt viðtöl við hann. Með því þú ert allur f menn- ingunni má ég til með að segja þér frá skólanefndarfundin- um. Oddvitinn á nú að heita for- maður en hann er sem kunn- ugt er lítill mælskumaður og vitmaður enn minni. Við vorum búnir að auglýsa einum þrisvar sinnum en allt kom fyrir ekki. Það sótti eng- inn þó við byðum gull og græna skóga og alls konar fríð- indi, svo sem ókeypis kartöflur í heilan vetur og fleira. — Að vfsu er hér gamall kennari sem hefur bara gefist vel og krökkunum þýkir vænt um. En hann kom ekki til greina að áliti Okkar. — Þvf var það að Oddviti kom með tillögu um það á skólanefndarfundi að við fengjum þennan margfræga Stein til að taka að sér starfið. Sumir héldu þvf reyndar fram, sagði Oddviti, að svokallað mannorð hans væri ekki upp á það besta. Til að mynda kærðu þeir í Flóahreppi sig ekkert um að njóta starfa hans — þó svo hann væri skattþegn þar í byggð. A hinn bóginn væri hann bróðursonur tengdamóð- ur sinnar og aldeilis ágætur æskulýðsleiðtogi að eigin sögn og annarra. — — Að loknu máli Oddvita kvaddi ég mér hljóðs og mælt- ist vel að vanda. — Eg benti á að ekki kæmi það okkur við þó Flóhreppingar ættu í útistöð- um við Stein þenna. Vitnaði ég í Jón forföður minn Hregg- viðsson og sagði: „Hver hefur drepið mann og hver hefur ekki drepið mann? Hvenær drepur maður mann og hve- nær drepur maður ekki mann?“ — Og þó svo mann- auminginn hafi misséð sig á einhverjum smámunum, hélt ég áfram, hvurju skiptir það? Hann getur verið stórkostleg- ur leiðbeinandi æskunnar þar fyrir. Og þó svo gamli kennar- inn hafi svokölluð réttindi að landslögum pfpunf við bara á slfkt Hjarna. — Maður getur sko kunnað sfna hlutí og rúm- lega það þó hann hafi eldrei á sinni Iffsfæddri ævi opnað nokkra skruddu um uppeldis- fræði. Þetta sagði ég og svo sam- þykktum við ráðingu Steins með öllum greiddum atkvæð- um. Lftið um góðan kveðskap núna. Rætist úr seinna. Ævinlega blessaður, Filipus Vara-Oddviti. jazzBQLLeccskóLi Búnu líkoffl/mkl Dömur athugið ★ Fjögra vikna haustnámskeið hefst 5. september. ★ Likamsrækt og megrun fyrir dömur á öllum aldri. ir Morgun-, dag- og kvöldtimar. if Timar tvisvar eða fjórum sinnum I viku. if Sérstakir matarkúrar fyrir þær sem eru I megrun. if Sturtur — Sauna — Tæki — Ljós. if Ath. Sér tlmi fyrir þær dömur sem vilja rólegar og léttar likamsæfingar. ★ Nýtt. Nýtt. Nú er komið nýtt og fullkomið sólaríum. Hjá okkur skin sólin allan daginn. alla daga. if Innritun og upplýsingar i sima: 83730 alla næstu viku. jazzBaLLeccsköLi Búru

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.