Morgunblaðið - 28.08.1977, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 28.08.1977, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. AGÚST 1977 35 Norrænir gestir á jasskvöldi • JASSKJALLARINN að Frf- kirkjuvegi 11 hefur starfað með miklum blðma f allt sum- ar; þar hefur verið leikinn jass fyrir fullu húsi á hverju mánu- dagskvöldi, að undanskildum tveimur kvöldum, er salurinn var upptekinn undir aðra starf- semi. A jasskvöldinu annað kvöld leika Viðar Alfreðsson og félag- ar, en sérstakir gestir kvöldsins verða bassaleikarinn Arild Andersen frá Noregi og félagar hans, einn norskur, annar sænskur og sá þriðji finnskur. Kvartett þessi hlaut útnefn- ingu sem Nordjasshijómsveitin 1977 og er nú á hljómieikaferð um Norðurlöndin. Arild leikur á kontrabassa og þykir vera einn af be*tu bassateikurum Evrópu. Félagar hans eru þeir Juhani Aaltonen, finnskur saxófón- og flautuleikari, Lars Jansson, sænskur pfanóleikari, og Pál Thowsen, norskur trommuleikari. A þriðjudagskvöldið leika þeir á sjálfstæðum tónieikum i Norræna húsinu á vegum Nord- jassnefndarinnar. Ný plata Eikar: „Hríslan og straum- urinn 99 • HLJÓMSVEITIN Eik hef- ur leikið inn á stóra plötu sem er að koma á markað þessa dag- ana og ber nafnið „Hrfslan og Straumurinn“ (Straumurinn með stórum staf, þvf að þarna er verið að fjalla um þann stað, sem nefnist Straumur og er skammt sunnan Hafnarfjarð- ar.) Dregur platan nafn sitt af löngu verki eftir Lárus Gríms- son, hljómborðs- og fiautuleik- ara Eikar. Verk þetta fyllir nær aðra plötuhliðina, en önnur verk á plötunni eru mun styttri. Þrjú þcirra eru ein- göngu spiluð, tvö eftir Þorstein Magnússon gftarleikara og eitt eftir Harald Þorsteinsson bassaleikara. Asgeir Óskarsson trommuleikari og Tryggvi Hiibner gftarleikari eiga tvö Framhald á bls. 39. „í morg- unsárið” - ný plata Olafs Þórðarsonar • „1 morgunsárið“ heitir ný stór plata sem Fálkinn hf. er að scnda á inarkað. Þar er Ólafur Þórðarson, einn liðsmanna Ríó, í sviðsljósinu sem tónlistar- maður. Hann hefur samið flest lögin, þrjú þó i samvinnu við Magnús Einarsson, sem fyrrum var f Þokkabót. Þá hefur Ólafur stjórnað upptökum, anna/t flestar útsetningar, leikur á ýmis hljóðfæri og syngur öðr- um mönnum meira á plötunni. Alls tcljast verá ellefu lög á plötunni, en auk þess heyrast stundum stutt stef, „milli- þættir", eftir Ólaf. Textar eru allir nema einn eftir Halldór Gunnarsson í Þokkabót; þessi eini er gömul þjóðvfsa, „Karl- inn undir klöppunum". Tvö laganna eru eingöngu spiluð, ekki sungin. Ólafur hefur fengið fjöl- marga kunna hljómlistarmenn sér til aðstoðar við gerð plöt- unnar. Magnús Ingimarsson út- setti fyrir blásturshljóðfæri, enn um hljóðfæraleik og söng sáu, auk Ólafs, þeir Karl Sig- hvatsson, Ragnar Sigurjónsson, Magnús Einarsson, Reynir Sig- urðsson, Ingólfur Steinsson, Þórður Arnason, Helgi Guð- mundsson. Pálmi Gunnarsson, Guðmundur Benediktsson, Magnús Þór Sigmundsson, Jón Sigurðsson, Sæbjörn Jónsson, Hafsteinn Guðmundsson, Gunnar Ormslev, Vilhjálmur Guðjónsson, Kristján Þ. Step- hensen, Eggert Þorleifsson, Jó- sef Magnússon, Sigurður Snorrason og Sigurður Markús- son. Upptaka var gerð í Hljóð- rita hf. f Hafnarfirði og upp- tökumenn voru þeir Jón Þór Hannesson, Jónas R. Jónsson og Tony Cook. # Arum saman létu þeir sig hafa það, félagarnir í Dúmbó sextettinum — og svo auðvitað hann Steini — að aka Hval- fjörðinn eða sigla með Akra- borginni tvö og þrjú kvöld f viku til Reykjavíkur til að leika á dansleikjum. Kannski var það ferðaþreytan sem lagði hijómsveitina að velli, kannski eitthvað annað. En ■ sumar tóku þeir félagarnir aftur til óspilltra málanna að sigla með Akraborginni eða skrölta í bif- reið fyrir f jörðinn og aftur var haldið á Reykjavfkursvæðið til að spila. En þetta fór allt hljótt og var ekki auglýst f fjölmiðl- um. Dúmbó og Steini voru nefnilega að taka upp plötu. Fyrir skömmu hittust þeir félagar eftir enn eina sjóferð- ina af Skaganum og fengu i fyrsta sinn að heyra endanlegu hljóðritunina, eftir að hljóð- blöndun og frágangi var lokið. Lögin voru flest frá gullaldar- árum hljómsveitarinnar, en einnig nokkur ný innan um. „The Birds and the Bees“, „Simon says“, „True love ways“, „Yestreday man“, „Bus stop“ og fleiri gamlir slagarar frá útlandinu runnu út úr há- tölurunum með islenzkum text- um og gamla, góða Dúmbó- yfirbragðinu. Og þarna var líka frægasta Dúmbólagið, „Glataður" eða „Angelía", eins og felstir kalla það, en nú i nýjum búningi með strengja- sveitarskrauti. Og siðan fóru félagarnir að leysa frá minningaskjóðunni og rifja upp ferilinn. Eiginlega væri réttast að prenta þann hluta frásagnarinnar með rós- rauðum lit, því að nú, átta árum eftir að hljómsveitin hætti störfum, virtust allir erfiðleik- ar, basl og strit hafa verið smá- munir einir og hljómsveitarlif- ið nánast eintómur dans á rós- um... Hljómsveitin hóf feril sinn í gagnfræðaskólanum á Akra- nesi einhvern tímann í fyrnd- inni (’62—’63) og fór síðan að leika á dansleikjum á Akranesi og víðar. Mjög er þeim Dúmbó- mönnum farið að förlast minni um þessi fyrstu ár hljóm- sveitarinnar, eins og sjá má af þessari setningu, sem valt upp úr einum þeirra í áheyrn Slag- núna. Þá má geta þess, að hljómsveitinni bauðst tveggja ára samningur sem húshljóm- sveit á Hótel Sögu, eftir að hún hafði leikið þar einn mánuð i afleysingum. En þó fannst fof- ráðamönnum Sögu nafn hljóm- sveitarinnar ekki hæfa svo fín- um stað nógu vel og voru því að ýja að því við hljómsveitina að breyta þyrfti nafninu, ef af fastráðningunni yrði. Ætli „hljómsveit Ásgeirs Guðmunds- sonar og Sigursteinn” hefði orðið eins vinsæl hjá þjóðinni og Dúmbó og Steini? En til nafnbreytingarinnar kom ekki, þvi að piltarnir vildu ekki binda sig við einn stað i svo langan tima. Nýja platan er sú þriðja sem Dúbó á hlut að. Fyrsta piata hljómsveitarinnar kom út 1967 og var á henni fjögur lög. Var hún hljóðrituð í frekar frum- stæðu „bilskúrsstúdiói” í Lond- on og Dúmbófélagar voru ekki ánægðari með upptökuna en svo, að þeir lögðu bann við þvi, að önnur fjögur lög sem þeir hljóðrituðu í sömu ferð, yrðu gefin út á plötu óbreytt. Og hafa þau lög enn ekki komið út — og þó: A nýju plötunni verð- ur eitt þeirra í nýrri upptöku, Iag eftir Finnboga gítarleikara Gunnlaugsson. Þá er eitt lag af fyrri plötunni, „Glataður” eða „Angelía”, einnig á nýju plöt- unni, þvi að þeim félögum fannst þeir ekki geta skilið við það lag endanlega eins og það heyrðist á fyrstu plötunni. 1 nýju útgáfunni er allur textinn notaður (Sigrún Hjálmtýsdótt- ir, Diddú í Spilverkinu, syngur þar með Steinaj og strengja- sveit hjálpar til við að færa lagið í búning sem Dúmbó vildi fá á það á fyrstu plötunni, en ekki tókst. — Næsta plata sem Dúbó kom við sögu á var svo- nefnd Popp festival-plata, þar sem fjölmargar hljómsveitir og söngvarar fluttu sitt lagið hver. Dúmbó flutti lag frá Blood, Sweat & Tears undir nafninu ',,Þú gafst mér svo mikla gleði“ og nú var Guðmundur Haukur orðinn söngvari hljómsveitar- innar. Steini og Trausti Her- varsson höfðu hætt spila- mennskunni haustið ’67 og Brynjar Sigurðsson tekið við bassaleiknum i stað Trausta, en V plata eftir 8ára hlé húsið fylltist og stemmningin var feikna góð. Upp úr þessu fóru fleiri dansstaðir að ráða hljómsveitir kvöld og kvöld í senn og sóttust þá helzt eftir bitlahljómsveitunum, en veldi „húshljómsveitanna” i sam- stæðum einkennisjökkum fór hnignandi. Hljómsveitin var mestallan feril sinn skipuð sjö mönnum, enda þótt fjögurra eða fimm manna hljómsveitir væru þá allsráðandi á vinsældalistunum erlendis og hérlendis. Alla tíð voru tveir saxófónleikarar í Dúmbó, en næsta fátítt var að ^ Hljómsveitin Dúmbó og Steini (frá vinstri): Ásgeir Guðmunds- son, hlómborðsleikari og hljóm- vseitarstjóri, Jón Trausti Hervars- son, saxófónleikari. Reynir Gunnarson, saxofónleikari. Ragn- ar Sigurjónsson. trommuleikari, Sigursteinn Hákonarson, söng- vari, Brynjar Sigurðsson, slðari bassaleikarinn, Finnbogi Gunn- laugsson, gltarleikari. og Trausti Finnsson, fyrri bassaleikarinn. brands: „Hvaða sumar var það nú aftur sem við spiluðum í Rein allan veturinn?” Dúmbó-sextett og Steini léku fyrst á dansleik í Reykjavík 1964 í Ingólfskaffi. Skömmu siðar lagði hljómsveitin sitt af mörkum til að gjörbreyta ráðn- ingum hljómsveita á dansstaði í Reykjavík. Fram til þess tima hafði verið nánast algild regla, að hver dansstaður réði sér fastahljómsveit, sem léki þar öll kvöld sem opið var. Þannig var sáralitil hreyfing á hljóm- sveitunum og tilbreytingin nær engin, nema á sumrin, en þá fóru sumar hljómsveitirnar á flakk og léku á sveitaböllum. En svo gerðist það, vegna dræmrar aðsóknar að Glaum- bæ, að strákarnir af Skaganum, Dúmbó og Steini, voru fegnir til að leika þar eitt eða tvö kvöld. Og nú brá svo við að hljómsveitir skörtuðu blásur- um á þessum árum og var Dúmbó þvi gjarnan kölluð „lúðrasveitin” af áheyrendum. Dúmbó naut mikillar hylli dansgesta i Glaumbæ og tvo vetur var verkefnaskráin í stór- um dráttum þannig, að á föstu- dögum og sunnudögum lék Dúmbó í Glaumbæ, á laugar- dögum á Akranesi eða í ná- grenni og svo oft á skólaböllum í Reykjavik i miðri viku. At- hyglisvert er, að hljómsveitin lét sig alltaf hafa það að aka upp á Skaga aftur eftir hvern dansleik. Á sumrin var hins vegar meira að gera á sveita- böllunum og á síldarárunum fór Dúmbó stundum austur á firði og lék þar i landlegunum. „Það má segja að þetta hafi verið vertíð fyrir sjómennina, verkafólkið, sprúttsalana og hljómsveitirnar,” segja þeir piltur úr Stykkishólmi annaðist sönginn um skeið og síðan var hljómsveitin án sérstaks söng- vara einn vetur, þar til Guð- mundur Haukur kom i spilið ’68. Eftir að hljómsveitin hætti störfum haustið ’69, héldu flest- ir liðsmenn hennar áfram hljóðfæraleik á öðrum vígstöð- um, gjarnan á dansleikjum á Skaganum, svo að litið bar á, og flestir voru þeir því í góðri þjálfun, þegar plötuupptakan hófst i sumar. Nú hefur komið til tals og satt að segja er það líklegt, að hljómsveitin kom saman á ný og leiki á nokkrum dansleikj- um eftir að nýja platan kemur út. Þau mál skýrast væntanlega fljótlega. Þegar hljómsvet eins og Dúmbó leysir frá minninga- skjóðunni, velta oft út skemmti- Framhald á bls. 39. asmm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.