Morgunblaðið - 28.08.1977, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. AGÚST 1977
7
Á fyrri hluta síðusta aldar
barst sértrúarstefna kristin,
baptisminn, til Danmerkur,
og til þess að veita viðnám
þessum „voða" vartil þeirra
úrræða gripið, að varpa for-
göngumönnum stefnunnarí
fangelsi. Þá reis upp maður,
sem enn er ekki metinn að
verðleikum fyrir ævilanga
baráttu hans fyrir trúfrelsi,
islenzki guðfræðingurinn
Magnús Eiríksson, ágætur
maður að lærdómi, mann-
kostum og trúaralvöru. Hann
greip pennann til að and-
mæla kröftuglega því, að
slikri kúgun í trúmálum væri
beitt i Danmörk og vitnaði til
orða Páls postula: „Til frelsis
frelsaði Kristur oss".
Barátta Magnúsar Eiríks-
sonarfann veikan hljóm-
grunn með Dönum, en meðal
þeirra lifði hann starfsævina
alla, og landar hans hér
heima gáfu orðum hans
næsta lítinn gaum.
Er svo skammt liðið síðan
menn töldu það úrræði í
gömlu menningarlandi að
beita slíkri kúgun, spyrja
menn? og ættu þó að vita að
víða um heim erslikri kúgun
beitt enn i dag. Ekki kaþólsk-
ir menn, mótmælendur, á
Spáni hafa sætt margskonar
ofsóknum fram til þessa, en
væntanlega verður þeirra
aðstaða betri þegar nýja
stjórnarskráin tekur þar gildi
Og einmitt baptistar hafa
orðið hvað harðast úti af
hendi valdhafanna í ráð-
stjórnarríkjum Rússlands og
þrásinnis sætt ofsóknum og
fangelsunum.
Baráttunni erekki lokið,
fjarri fer þvi. En hvernig nota
menn frelsið, þarsem frelsið
er fengið?
Menn fagna lausn úr fjötr-
um gamalla hleypidóma, en
sú lausn, þótt dýrmæt sé,
gerir engan mann frjálsan,
allra sízt að kristilegum skiln-
ingi. Það eitt, að þú segir
skilið við gamlar og úreltar
kennisetningar og hafnir
ýmsu því, sem fyrri kynslóðir
trúðu, gerir þig ekki frjálsan.
Ef þú ert ekki á valdi Krists, á
valdi hugsjóna hans, flytur
frjálsræðið þérenga blessun,
því að sú hollusta, sem fjötr-
ar þig sem frjálsan mann við
hugsjónir hans, gefur lífi
þinu gildi og gerir þig að
kristnum manni. Ef þú átt
ekki hugsjón, sem fellir á þig
þann fjötur að þú gefir henni
fúslega allt, ertu ekki frjáls.
Er sá fjötur ógæfa þín og
böl?
Þegar sú spurn vaknar,
kemur mér oft í hug kona,
sem ég jarðsöng fyrir þrem-
fjórum áratugum. Hún var á
tíræðisaldri. Hún var bónda-
dóttir á gömlu stórbýli norður
i Strandasýslu. Ung batzt
hún ástarböndum við mann i
fjarlægri sveit og fór að heim-
an til að finna hamingjuna
með unnusta sinum í heim-
kynnum hans. En þegar
þangað var komið, veiktist
hann og dó. Með sorg sína
að veganesti hélt hún aftur
heim á föðurleifð sína. Hún
batt ekki ástir við annan
mann en lifði eftir þetta í
nærfellt 70 ár á jörð föður
síns og bjó þar. Hún elskaði
svo þann stað og minningu
feðra og mæðra, að þaðan
gat hún ekki farið fyrr en hún
fluttist hingað til Reykjavíkur
til fósturdóttur sinnar og var
þá fyrir löngu orðin blind og
hrum. Þessa löngu ævi bjó
hún á sama blettinum, hélt
þar uppi heimili með virð-
ingu og sæmd, ól upp fóstur-
börn, bundin átthögum og
hugsjón, við frábæran dugn-
að og athafnalíf samfara gjaf-
mildi og greiðasemi við
marga á óvenjulega langri
lífsleið.
Var þessi kona frjáls?
Henni höfðu verið opnar auð-
veldari leiðir, en hún hafnaði
þeim og batt sig alla ævi
siðan í nálega 70 ár hugsjón,
sem hún vildi lifa fyrir unz
yfir lyki. Hún var á valdi
þeirrar hugsjónar að lifa þar
sem hún elskaði minningarn-
ar og landið norður á köldum
Ströndum við óblíð kjör.
Hver er raunverulega frjáls-
ari, kona þessi eða rótlaus
maður, sem er óháður öllu
nema eigin duttlungum, á
ekkert köllunarverk, ekkert
markmið, sem gefi lífinu inni-
hald?
Tökum dæmi, sem ekki
þarf lengi að leita að:
Sjáðu mann, sem lifað hef-
ur langan og oft þreytandi
starfsdag. Með sjálfum sér
hefur hann hugsað hlakkandi
til þeirrar stundar, er hann
fengi lausn frá störfum og
gæti unað ellinni í friði
áhyggjulaus og frjáls, loksins
raunverulega frjáls! Að því
kemur, en starfskrafta hefur
hann enn. Elliárin geta orðið
mörg, og hann hefur ekki
gætt þess, að búa sig undir
þau ár og eiga viðfangsefni
til að stytta sér langar stund-
ir. Verður þá ekki oft eins og
gleðina sé erfitt að finna og
vonin, sem hann batt við
frjálsræðið, frelsið reynist tál-
von? Hvers virði er mannin-
um nú frelsið, sem hann
hafði þráð á löngum starfs-
degi og stundum erfiðum?
Getur það ekki reynzt og
reynist það ekki oft hermdar-
gjöf?
Lífið er dularfullt. Það
verður í allri sinni marg-
breytni ekki afgreitt með
ódýrum orðum. Hver heil-
brigður maður þráir f relsi og
finnur að án þess vill hann
ekki lifa. En frelsið verður
okkur aldrei til blessunar fyrr
en okkur lærist að færa það
sem fórnargjöf á altari hug-
sjónar, sem við finnum frið
og gleði í að lifa fyrir.
„Til frelsis frelsaði Kristur
oss", sagði postulinn. Njót-
um þess. Þolum ekki að á
okkur séu felldir fjötrar, en
hamingju finnum við ekki
fyrr en okkur lærist að færa
frelsið af fúsum vilja sem
fórn á altari þeirra hugsjóna,
sem Kristur fæddist, lifði, dó
og reis upp til að boða. Þú
þekkir líf hans, kenningu
hans og þá fórn sem hann
færði alla leiðina frá jötunni
og á krossinn, — var hann
ekki frjáls?
Frjáls?
Skó-Útsalan
Gífurleg verðlækkun — Skór á alla fætur
Karlmannaskór — kvenskór — barnaskór — inniskór
Skóverzlun Péturs Andréssonar Laugavegi 74
Skóverzlunin Framnesvegi 2, Sími 17345.
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjódleikhúsinu
Givenchy III
komið aftur
ilmvötn, steinkvötn,
freyðibað, krem
eftir bað, sápur
■ Nýkomið fyrir herra—
Givenchy Gentleman
og Monsieur Givenchy
rakspíri, krem eftir rakstur,
fyrir viðkvæma húð, steink-
vötn, svitalyktareyðir, sápur.
Póstsendum
Hafnarstræti 17, Sími 11685.
Eigum fyrirliggjandi frá
i
DUALMATIC
r
í Bandaríkjunum
svört og hvít.
Verð frá
kr. 105.500.-
Einnig ýmsir aukahlutir
svo sem:
Blæjuhús á Willysjeppa,
Driflokur -— Stýrisdemparar — Varahjóls- og
bensínbrúsagrindur — Bensínbrúsar — Hettur
yfir varahjól og bensínbrúsa — Hjólbogahlífar
— Tilsniðin teppi á gólf.
Póstsendum.
VELVANGUR H/F
Hamraborg 7 — Kópavogi
Símar 42233 og 42257