Morgunblaðið - 28.08.1977, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. AGUST 1977
21
— Jean-Paul
Sartre
Framhald af bls. 19
SARTRE: Já, yfirleitt. Þær
hafa ekki verið alltof ánægðar. Ég
hef aldrei verið neitt að látast
gagnvart þeim, ég hef alltaf sagt
hverri konu þegar í upphafi: Það
er ein kona til, og hún heitir
Simone de Beauvoir, hún er það,
sem mestu máli skiptir í minu lifi.
Þær hafa orðið að kyngja því.
— Hefur hið gagnstæða komið
fyrir, að þessar konur hafi litið á
yður sem „augnabliksást"?
SARTRE: Ekki á þeim tíma,
sem við erum að ræða um. Og hafi
það síðar gerzt, þá hafa þær ekki
sagt það við mig.
— Finnst yður þörfin á til-
breytingu algerlega sjálfsögð?
SARTRE: já, en jafnframt
fann ég enn betur til þess, hve
samband mitt væri mikilvægt —
við Simone de Beauvoir.
— Mikilvægt, en ekki nóg
samt?
SARTRE: Og þó, nærri því
alveg fullnægjandi.
— En hvers vegna þá?
SARTRE: — Sennilega vegna
þess að hið líkamlega samneyti út
af fyrir sig beinist að ýmsum kon-
um eða fleiri mönnum en einum*
Þér hafið kynferðisleg mök, gott,
ágætt, en við hvern eða hverja?
Við einn eða fimmtiu? Það er
ekkert í kynhvötinni sjálfri, sem
segir til um það. Og þess vegna
held ég, að þegar sambandið milli
manns og konu sé nokkurn veg-
inn fullkomið, verði það öðru
æðra. Það er sama, hver maður-
inn eða konan er. Og þar er sam-
band mitt við Simone de Beauvoir
er svo sterkt, algerlega einstakt,
hið mikilvægasta og nánasta, geta
jafnvel ekki náin kyni af neini
annarri konu haft nein áhrif á
það. Þegar samband tveggja
manneskja hefur náð slíkri festu,
að það hefur næstum þvi orðið að
nýjum einstaklingi — gert tvö
„þú“ að einu ,,við“ — þá er það
óhagganlegt. Þessu „við“ hef ég
náð nleð Simone de Beauvoir —
það hefur verið svo alla okkar tíð.
— En hefur verið eins auðvelt
fyrir Simone de Beauvoir eins og
yður að búa við það frelsi, sem
samið var um í upphafi sambúðar
ykkar? í bók sinni „Beztu árin“
spyr hún sjálfa sig óttaslegin,
hvort þið munið ekki fjarlægjast
hvort annað, ef þér heimsæktuð
„M“ í Ameríku?
SARTRE: Ég held, að þá hafi
verið um misskilning okkar á
milli að ræða. ,,M“ kom til Frakk-
lands til nokkurra mánaða dvalar,
en Simone de Beauvoir var farin
til Ameríku til að hitta þar aftur
Nelson Algren. Þegar hún kom til
baka, hittumst við í Kaupmanna-
höfn, vorum þar í hálfan mánuð
og fórum svo til Fontainebleau.
Þessi tvöfalda víxlun — hún, Nel-
son Algren, ég, „M“ — truflaði
svolítið samband okkar. En það
byggðist aðeins á misskilningi.
— Simone de Beauvoir var
hrædd en ekki þér?
SARTRE: Ég' var alls ósmeyk-
ur, því að mér fannst það allt
merkilegt, sem hún sagði mér. Ég
veit ekki, hvort það var ástæða til
ótta eða ekki. Ég veit það bara að
hún misskildi það, sem ég sagði.
Eitt kvöldið spurði hún: „Hvað
um „M“? Skiptir hún þig miklu
máli?“ Og það gerði hún í raun og
veru þá. Og ég svaraði: „Mjög
miklu, en ég er hjá þér, eða
hvað?“ En þessi setning, sem ég
verð að viðurkenna að ekki hafi
verið sérlega ástúðleg, var þó sér-
lega vel meint. Eg var að reyna að
segja: En hið eina sanna og eigin-
lega samband er samband okkar
tveggja.
— Þetta var ekki mjög skýrt?
SARTRE: Nei, það var það
ekki, en þó í fullri hreinskilni
mælt. En hún skildi það ekki.
Henni fannst svar mitt út i hött,
og um tíma, kannski í mánuð, var
hún fámál. Eg held, að það hafi
verið i eina skiptið, sem við höf-
um lenf í þrætu.
— „M“ skipti sem sagt ekki
eins litlu máli og hinar?
SARTRE: Hvað skal segja,
þetta byrjaði öðruvisi. .. þetta
var í Ameriku. Annars, skiljið
þér, anda þær konur, sem ég hitti,
að sér sama lofti og gamga á sömu
jörð og Simone de Beauvoir.
Þegar ég fór til New York, var
það staður, þar sem Simone de
Beauvoir hafði aldrei verið —
I sem hún þekkti ekki einu sinni.
Fyrir mér var þetta endurfæðing.
Ég meina, það var eins og ég hefði
byrjað nýtt líf. I alveg nýjum
heimi, þar sem fólk talaði annað
mál, hafði aðrar hugmyndir og
litu á allt frá allt öðrum sjónar-
miðum. Alltaf siðan, þegar ég fór
til Ameriku og hitti „M“, varð ég
fyrir þessum sömu, sterku áhrif-
um. En „M“ í Frakklandi — það
hefði verið allt öðruvísi. Hið
venjulega, mætti segja. Og þar
hefur Simone de Beauvoir algjöra
yfirburði.
— Voruð þér aldrei afbryæði-
samur, þegar Simone de Beauvoir
fór að finna Nelson Algren?
SARTRE: Aldrei. Þvert á móti.
Eg hefði gjarna vilja hitta hann.
— Afbrýðisemi þekkið þér
ekki?
SARTRE: Yfirleitt ekki.
— En þó ekki laust við það?
SARTRE: Nú, jú, stundum var
ég víst ofurlitið afbrýðisamur. En
annars aldrei út i Simone de
Beauvoir. Samband okkar er svo
mikilvægt, að ævintýri hennar
með manni eins og Nelson Algren
fer ekki i taugarar á mér.
— Haldið þér, að slíkt samband
eins og það, sem þér hafið byggt
upp með Simone de Beauvoir,
geti einnig annað sambýlisfólk
haft sín á milli? Og hver væru þá
skilyrðin fyrir því?
SARTRE: Fyrst og fremst
menningarlegt jafnvægi þeirra.
Ef annað þeirra hefur yfirburð í
þeim efnum, gengur það ekki.
Þau verða að líta sömu augum á
umheiminn. Annað skilyrðið er,
að bæði geti verið örugg hvort um
annað, að þau viti, að þeirra sam-
band sé öllum öðrum hugsanleg-
um samböndum æðra. Það eru
hinir sérstöku eiginleikar Simone
de Beauvoir, sem leiddu til þess,
að hún skipaði þann sess í lifi
minu, sem engin manneskja önn-
ur getur gert. Og þó á ég hugljúf-
ar endurminningar frá ýmsum
„tækifærissamböndum" mínum,
á n þess að likja þeim nokkurn
tima saman við sambandið við
Simone de Beauvoir. Á engan
hátt. Það skapast ekki á einni
viku, heldur á þremur eða fjórum
árum. Við höfum skilið, hvers
virði við erum hvort öðru.
Þegar nú er komið að ævi-
kyöldi, og þér hugsið út í það, að
annað ykkar hljóti að deyja á und-
an, hvort væri verra fyrir yður?
SARTRE: £g veit það ekki. Ég
veit aðeins, að hún yrði mjög
óhamingjusöm án mín. Og eins ég
án hennar. Ég veit það einfald-
lega ekki.
— Ef þér væruð orðinn tvítug-
ur aftur — mynduð þér þá lifa
sama lífi enn einu sinni?
SARTRE: Hvers vegna ekki?
Jú, ég held það. Ég er ekki óham-
ingjusamur núna — og hef mjög
sjaldan verið það.
—svá
Efnalaugin Vesturgötu 53
Frá og með 29. ágúst hættum við að taka
fatnað til hreinsunar. Verðum eingöngu með
rúskinnshreinsun og fatalitun. Afgreiðslutími
frá 1. september, þriðjudaga og fimmtudaga
frá kl. 8 —18. Sendum í póstkröfu.
Þökkum viðskiptin.
Efnalaugin Vesturgötu 53.
Höfum fyrirliggjandi á iager
nú þegarl
V.
drifkeðjur
í eftirtöldum stærðum:
B.S. keðjur: (British standard).
135. 1 9.%,, á kr: 1 2.45 pr/m.
B.S. 25 1"á kr: 2235 pr/m.
B.S. 38. 11/2„ á kr: 6496 pr/m.
ANSI: keðjur (american standard).
, ANSI 140 13A á kr. 7.980 pr/m
' ANSI 100 1 ’A,. á kr. 4.463 pr/m.
% tonn strekkjara
Olíusíur
f i lt e r s Loftsíur í þungavinnuvélar
Smursíur
ÐPPTF
Sundaborg 25 — Reykjavík
Simi 36699
H
Stimpla
og slífar
Scania ÞS11.
Volvo TD 47
Volvo P50.
Volvo TP 70
Benson 314/352.
Pekins o.fl. o.fl.
Við bjóðum
af öllum pottablómum
í tilefni sýningarinnar
Ný deild í Blómaval þar
sem við bjóðum glæsilegt
úrval af pottablómum
Aðeins 200 metra
frá Laugardal
Verið velkomin í Blómaval
pon^uo