Morgunblaðið - 28.08.1977, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. AGUST 1977
23
Ebenezer Ásgeirsson i sýningarbás Vörumarkaðarins. Ljósm. Mbl. Friðbiófur.
RÆTT VIÐ EBENEZER ÁSGEIRSSON í VÖRUMARKAÐNUM
„Stærri markaðir og
meiri fjölbreytni í mark-
aðsverði koma með
frjálsri álagningiT
Útkomudagur 29/8
Steinar hf. Dreifing
um Karnabæ s. 28155
Sé enn sömu hjónin
koma og þegar ég byrjaði
Þann 8 september n.k. verða 10
ár liðin frá því Ebenezer opnaði
Vörumarkaðinn. Fyrst var eingöngu
á boðstólum matvara í verzluninni
en síðar bættust við deildir með
heimilistækjum, húsgögnum, vefn-
aðarvöru og nú er Vörumarkaðurinn
að hefja sölu á tækjum fyrir mötu-
neyti og stórþvottahús í fjölbýlishús-
um. Þrátt fyrir að deildunum i Vöru-
markaðnum hafi fjölgað er matvaran
þó enn uppistaðan í rekstri fyrirtæk-
isins en alls vinna um 40 manns hjá
því. — Ég á ekki auðvelt að gera
upp á milli vörutegunda hjá mér
Allt er þetta í sjálfu sér jafn spenn-
andi en ef ég ætti að nefna eitthvað
þá eru það húsgögnin. Þar þarf
mestu útsjónarsemina í pöntunum
Mér hefur alltaf þótt gaman að fást
við matvöruna og fyrst var maður
stöðugt að reyna að sanna að hægt
væri að setja upp matvörumarkað
Nú erum við búin að sanna að það
er hægt. Ég er líka ánægður með að
enn kemur mikið af hjónafólki til
min í verzlunina, sem kom til mín
fyrst þegar ég var að byrja.
Flutningur í
Breiðholtið
strandaði á skipulaginu
— Hér á sýningunni sýni ég
bæði húsgögn og heimilistæki Ef
ég ætti að nefna nýjungar sem við
kynnum dettur mér i hug tæki frá
þýzka fyrirtækinu Bamix en við köll-
um það töfrasprotann Þetta er þeyt-
ari, sem má nota til að mala kaffi,
búa til flórsykur úr venjulegum sykri
og margt fleira Þá kynnum við hér
potta og pönnur með marvill-húð,
sem þýðir að það brennur ekki við
í sýningarbás Vörumarkaðarins getur að líta mikið úrval
húsgagna.
Réttara að heildsalar
séu færri og stærri
b — Ég fer ekki dult með þá skoðun
mína að það er ekki nógu mikið
samstarf hjá kaupmönnum sjálfum
og hjá þeim gagnvart heildsölum
Það mætti koma ýmsum málum bet-
ur fyrir ef þarna væri til staðar góð
samvinna Ég tel að heildsalar þurfi
alltaf að vera til en það gæti verið
réttara að þeir væri færri og stærri
Framhald á bls. 47
— Þegar ég hóf rekstur Vöru-
markaðarins fyrir tæpum 10 árum
voru ýmsar skæðar tungur á lofti
út I stórmarkaðina, en þessar
raddir hafa hjaðnað með árunum.
Ég hef líka mætt mikilli góðvild
hjá öllum heildsölum og hef reynt
að hafa góða samvinnu við þá.
Reynslan hefur kennt mér að stór-
markaðurmeð matvöru einni sam-
an getur ekki gengið til lengdar og
ég sé fyrir mér að stórmarkaðimir
geti enn fært úr kvlarnar. ef frelsi
verður gefið í álagningu. Þá kæmu
til stærri markaðir og meiri fjöl-
breytni I markaðsverði, sagði Ebe-
nezer Ásgeirsson, forstjóri Vöru-
markaðarins I Ármúla, þegar við
ræddum við hann I sýningarbás
fyrirtækisins ! Laugardalshöllinni.
Vörumarkaðurinn kynnir á sýning
unni tæki, sem nefnt er töfra-
sprotinn. Til að kynna þetta tæki
kom til landsins kona frá fram-
leiðendum þess og sést hún hér
sýna gestum sýningarinnar
hvernig töfrasprotinn er notaður.
og egg liggja laus ofan á pönnunni
án smjörs. Einnig erum við með
heimilistæki frá þýzka fyrirtækinu
Gaggeman en þetta eru einingar,
sem samanstanda af eldunarplötum,
grilli og ofni með blásara
Nei, stækkun hjá fyrirtækinu er
ekki á döfinni nema við fáum enn
stærra húsnæði en við höfum nú.
Ég ætlaði mér að flytja verzlunina í
Breiðholtshverfið en þar strandaði á
skipulaginu í því var gert ráð fyrir
að matvara yrði sér i húsi og aðrar
vörur einnig greindar niður Þetta
samrýmist ekki þörfum stórmarkaða
nú og ég er líka þeirrar skoðunar að
þetta sé rangt gegnvart fólkinu, sem
kemir til að verzla
Það hefur sýnt sig að fólk-vill hafa
vörur af hinum ýmsu flokkum á
einum og sama staðnum Ef þeir
sem skipuleggja íbúðarhverfi eins
og Breiðholtið ætla að halda þessu
til streitu þá verður það til þess eins
að lengja þá leið, sem fólkið þarf að
fara til að verzla.