Morgunblaðið - 28.08.1977, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1977
As0 GUiOra ‘Ascaeir%éá44ír
J J Jqára #
Hrauú^rQUÍ 3U ko pQ VoCJf
Þungur
fatnadur
Brynja er mjög glæsileg útlits. en
ekki er beint hægt að segja að auðvelt
hafi verið fyrir vesalings mennina að
hreyfa sig, þegar þeir voru iklæddir
skrúðanum. Riddarar og aðrir stríðs-
menn urðu að burðast með „fatnað",
sem vó 25—30 kg. Framleiðendur
brynjanna gerðu þó sitt ýtrasta til að
auðvelt væri að hreyfa sig í klæðunum.
Liðamót og hengsli hreyfðust mjög
lipurlega, þannig að riddarinn hafði
góða möguleika á hreyfingu.
Agnar-litli
Einu sinni var agnar-
lflill drrngur, scm átti
hcima í agnar-litlu húsi
við agnar-lftið vatn, og
þar veiddi hann agnar-
lítla fiska.
Dag einn fór agnar-
litli drengurinn með
agnar-litla veiðistöng
um borð í agnar-litla
bátinn sinn og reri með
agnar-litlum árum út á
agnar-litla vatnið.
Eftir agnar-litla
stund var hann búinn
að fylla agnar-litla fötu
af agnar-litlum fiskum.
Agnar-litli drengurinn
tók agnar-Iistu árarnar
og reri agnar-litla bátn-
um að landi. Hann tók
agnar-litlu fötuna með
agnar-litlu fiskunum og
gekk upp að agnar-litla
húsinu. Þar steikti
hann agnar-litlu fisk-
ana í agnar-lfti11i
steikarpönnu á agnar-
lítilli eldavél.
Á agnar-litla borðið í
agnar-litla húsinu lagði
agnar-litli drengurinn
agnar-lítinn disk og við
diskinn lagði hann
agnar-lítinn hníf og
agnar-lítinn gaffal og
ætlaði að fara að borða
agnar-litlu fiskana.
En ... þá stökk fram
risa-stór köttur og át
upp alla agnar-litlu
fiskana úr agnar-litlu
steikarapönnunni.
Agnar-litli drengur-
inn tók agnar-litlu
veiðistöngina og reri á
agnar-litla bátnum út á
agnar-litla vatnið til að
veiða fleiri agnar-litla
fiska.
Eftir agnar-litla
stund var agnar-litla
fatan orðin full af
agnar-litlum fiskum.
Agnar-litli drengurinn
fór heim í agnar-litla
húsið og steikti agnar-
litlu fiskana f agnar-
litlu steikarapönnunni
á agnar-litlu eldavél-
inni.
Hann tók fram agnar-
lítinn disk, agnar-lítinn
hníf og agnar-lítinn
gaffal, setti agnar-litlu
steikarapönnuna á
agnar-litla borðið og
ætlaði að borða.
En .. . þá stökk risa-
stóri kötturinn fram
aftur og át upp alla
agnar-litlu fiskana.
Nú var agnar-litli
drengurinn orðinn
mjög svangur, því að
agnar-litli maginn hans
drengiiriiui
var alveg tómur.
Agnar-litli drengur-
inn tók agnar-litlu ár-
arnar og reri út á agnar-
litla vatnið og veiddi
fulia agnar-litlu fötuna
af agnar-litlum fiskum.
Agnar-litli drengur-
inn reri heim og fór inn
f agnar-litla húsið, setti
agnar-Iitlu steikarpönn-
una á agnar-litlu elda-
vélina og steikti agnar-
litlu fiskana.
En ... þá tók agnar-
litli drengurinn upp
agnar-litla tólið á agnar-
litla sfmanum í agnar-
litla húsinu og hringdi
til agnar-lítillar stúlku.
Agnar-litla stúlka,
sagði hann, viltu koma
til agnar-litla drengsins
f agnar-litla húsinu við
agnar-litla vatnið og
borða agnar-litla fiska?
Já, sagði agnar-litla
stúlkan.
En þá verður þú að
taka með þér risa-stóra
hundinn þinn, sagði
agnar-litli drengurinn.
Eftir agnar-litla
stund kom agnar-litla
stúlkan í heimsókn í
agnar-litla húsið.
Risa-stóri hundurinn
lagðist á gólfið við agn-
ar-litla borðið, og agnar-
titla stúlkan settist á
agnar-lítinn stól.
Agnar-litli drengur-
inn lagði agnar-litla
diska. hnífa og gaffla á
agnar-litla borðið og
setti agnar-litlu pönn-
una með agnar-litlu
fiskunum þar Ifka.
En ... þá kom risa-
stóri kötturinn. Hann
stökk upp á borðið og
ætlaði að éta agnar-litlu
fiskana. En þá gelti
risa-stóri hundurinn.
Risa-stóri kötturinn
varð svo hræddur, að
hann stökk út um agn-
ar-litla gluggann yfir
agnar-litla borðinu. Sfð-
an klifraði risa-stóri
kötturinn upp í tré, og
risa-stóri hundurinn sat
undir trénu og gætti
þess að risa-stóri köttur-
inn kæmist ekki niður
aftur á meðan agnar-
iitla stúlkan og agnar-
litli drengurinn borð-
uðu agnar-litla hádegis-
verðinn sinn með agn-
ar-litlu hnífapörunum
við agnar-litla borðið í
agnar-litla húsinu.
Þýtt.
GAL-ofninn
Panelofn í sérflokki hvað
GÆÐI — VERÐ OG ÚTLIT
snertir
Stuttur afgreiðslufrestur.
Gerum tilboð
samdægurs.
HF. OFNASMIPJAN
Háteigsveg 7 — Sími 2-12-20
Grunnskólar
Hafnarfjarðar
(Lækjarskóli, Víðistaðaskóli og Öldutúnsskóli) hefjast í
byrjun september.
Nemendur 1., 2., 3. og 4. bekkjar komi í skólann
föstudaginn 2. september:
Nemendur 4. bekkjar (fæddir 1967) kl. 1 0 f.h.
Nemendur3 bekkjar (fæddir 1 968) kl. 11 f.h.
Nemendur 2. bekkjar (fæddir 1969) kl. 13.30
Nemendur 1. bekkjar (fæddir 1970) kl. 14.
Nemendur 5., 6., 7. og 8. bekkjar komi í skólann
mánudaginn 5. september:
Nemendur 5. bekkjar (fæddir 1966) kl. 10 f.h.
Nemendur 6 bekkjar (fæddir 1965) kl. 11 f.h.
Nemendur 7. bekkjar (fæddir 1964) kl. 13.30.
Nemendur 8. bekkjar (fæddir 1963) kl. 14.30.
6 ára nemendur (fæddir 1971) komi ! skólann föstudag-
inn 9. september kl. 14.
Kennarafundir verða i skólunum fimmtudaginn 1 .
september kl. 9 f.h. (einnig fyrir kennara gagnfræða-
stigs).
Fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar
HÚSBYGG E J NDUR-Einangrunarplast
Afgreiöum einangrunarplast á
Stdr-Reykjavíkursvæðið frá
mánudegi - föstudags.
Afhendum vöruna á byggingar-
stað, viðskiptamönnum
að kostnaðarlausu.
Hagkvæmt verð
og greiðsluskilmálar
við flestra hæfi
Borqqrt»ltt*t E >
93-7370
kvtfM •§ betyarsiæl 93-7335