Morgunblaðið - 28.08.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. AGUST 1977
29
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Prentari
(letter press) óskar eftir að komast í nám i
offsetprentun, nú eða í náinni framtíð.
Upplýsingar í síma 73584.
W
Oskum að ráða
laghentan mann til viðhaldsstarfa. Uppl.
gefur Sigurður Sveinsson verkstjóri, ekki í
síma, Þverholti 22.
H. F. Ölgerðin Egill Ska/lagrímsson.
Skrifstofustarf
Stjórnunarfélag íslands óskar að ráða
starfskraft til skrifstofustarfa. Vélritunar-
kunnátta og nokkur bókhaldsþekking
nauðsynleg. Starfið er tiltölulega sjálf-
stætt. Góð laun í boði fyrir hæfan starfs-
kraft.
Umsóknir með upplýsingum um
menntun, aldur og fyrri störf óskast send-
ar í pósthólf 155 Reykjavík, fyrir 1.
september n.k.
Stjómunarfélag Islands
Skipholti 3 7, Reykjavík.
BSF
Byggung Kópavogi
Viljum ráða 3—4 menn í handlang hjá
múrurum og trésmiðum. Uppl. á mánu-
dag og þriðjudag á skrifstofu félagsins að
Engihjalla 3.
Stjórnin.
Bókasafns-
fræðingur
iw
(Tlenningar/tofnun
Bandarikjanno
Menningarstofnun Bandaríkjanna óskar
eftir að ráða yfirbókavörð í Ameríska
bókasafnið. Menntun í bókasafnsfræði
(M.L.S. eða sambærilegt próf) og góð
enskukunnátta áskilin. Æskilegt að við-
komandi hafi starfsreynslu.
Upplýsingar gefur Lynne Martin,
Menningarstofnun Bandaríkjanna, Nes-
haga 1 6, sími 1 9900.
umboðið óskar
eftir að ráða
1. Starfskraft á skrifstofu. Vélritunar og
enskukunnátta nauðsynleg.
2. Starfskraft við afgreiðslu í varahluta-
verslun. Þarf að hafa bílpróf. Upplýsingar
ekki gefnar í síma en þeir, sem hafa
áhuga fyrir þessum störfum, vinsam-
legast sendi bréflegar umsóknir til okkar
fyrir 2. Sept.
Bílaborg h. f.
Smiðshöfða 23.
Starfskraftur
óskast hluta úr degi til vinnu við þrif og
uppvask í eldhúsi.
Hólagarður
Breiðholti
Husvörður
óskast að fjölbýlishúsinu Espigerði 2.
Starfinu fylgir lítil íbúð. Tilboð er greini
aldur og fyrri störf, sendist afgreiðslu
Mbl. fyrir 5. sept. merkt: „T—4378."
Tollstjóraskrif-
stofan auglýsir
Skrifstofustarf við afgreiðslu tollskjala
laust til umsóknar nú þegar. Upplýsingar
gefur skrifstofustjóri.
Tollstjórinn / Reykjavík
Tryggvagötu 19
sími 18500.
Innflutningur —
Spedition
Fyrirtæki í Sundaborg óskar að ráða
starfsmann, sem getur tekið að sér yfir-
umsjón og endurskipulagningu á rekstri,
toll og bankaþjónustu fyrirtækisins
(Spedition þjónusta). Góð þekking á inn-
flutningi og þjálfun í gerð aðflutnings-
skjala er nauðsynleg. Hér er um ábyrgðar-
starf að ræða sem gefur mikla framtíðar-
möguleika og krefst stjórnunar og skipu-
lagshæfileika. Umsóknir er greini aldur,
menntun og fyrri störf sendist afgreiðslu
Mbl. fyrir 3. september n.k. merkt.
„Spedition — 4023". Með allar umsókn-
ir verður farið sem trúnaðarmál.
Lausar stöður
Lyflækningadeild
Hjúkrunarfræðingur óskast sem fyrst til
starfa á lyflækningadeildir Borgarspítal-
ans. Fastar næturvaktir og hlutavinna
kemur til greina. Barnaheimilispláss fyrir
hendi.
Hafnarbúðir
Stöður hjúkrunarfræðinga í Hafnarbúðum
eru lausar. Barnaheimilispláss fyrir hendi.
Arnarholt
Hjúkrunarfræðingar óskast á Geðdeild
Borgarspítalans að Arnarholti 1. okt. n.k.
íbúð á staðnum.
Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast á hinar ýmsu deildir
Borgarspítalans.
Upþlýsingar veittar á skrifstofu hjúkrunar-
forstjóra í síma 81 200.
25. ágúst 1977
Borgarspítalinn.
Hjúkrunar-
fræðingar
Viljum ráða hjúkrunarfræðing frá 1
september. Upplýsingar í síma 95-1 329.
Kjötverslun
Óskum eftir að ráða afgreiðslufólk (helst
vant) í kjötverslun. Gott kaup fyrir vant og
duglegt fólk. Upplýsingar í síma 42534.
Símavarsla
Óskum eftir að ráða reglusaman og
stundvísan starfsmann við símaskiptiborð
okkar nú þegar. Vélritunarkunnátta æski-
leg. Umsóknum ekki svarað í síma.
Skrifstofuvélar h. f.
Hverfisgötu 33.
VERKAMENN
ÓSKAST
Upplýsingar í olíustöð okkar við Skerja-
fjörð, sími 1 1 425. Mötuneyti á staðnum.
Olíufélagið Skeljungur h. f.
Óskum að ráða
starfskraft
allan daginn. Upþlýsingar í verzluninni á
mánudag kl. 6 — 7.
Skrifstofustörf
Óskum eftir að ráða starfsfólk í eftirtalin
störf:
1. Verðútreikninga og tollskýrslugerð.
2. Bókhaldsstörf.
Umsóknir sendist starfsmannastjóra, sem
gefur nánari upplýsingar.
Samband ísl. samvinnufélaga.
Skólastjóra
og kennara
vantar að Grunnskólanum Hólmavík. Gott
húsnæði í boði. Upplýsingar gefa Jón Kr.
Kristinsson sveitarstjóri í síma 95-3112
og Jón Alfreðsson í síma 95-315Ö og
95-3130.
Skólanefnd.
W
Iþróttaþjálfarar
athugið
Skíðadeild K.R. óskar eftir að ráða íþrótta-
þjálfara til að annast þrekþjálfun skíða-
fólks.
Umsóknir sendist til Morgunblaðsins,
ekki síðar en fimmtudaginn 1.
september, merkt: „Þjálfari — 4379."^
SKÍÐADEILD