Morgunblaðið - 09.10.1977, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÖBER 1977
51
Það gusaöist talsvert úr
pollunum á Uxahryggj-
um þegar bilarnir rösk-
uðu ró þeirra. Hér aka
Árni Bjarnason og Sig-
björn Björnsson i Saab
‘99.
Staldrað við hjá timastöð-
inni á Þingvöllum, Garð-
ar Eyland og Gunnar
Gunnarsson fá hér kvitt-
að á kort sitt.
einnig nokkuð greitt í sandkafl-
ann en ekki virtist Escort þeirra
fara hann eins léttilega og
Simcan, en þeir misstu þó ekkí
niður neinn hraða. Þeím sem á
eftir komu gekk ekki eins vel og
fyrstu bílunum. Sumir skrensuðu
i sandinum og aðrir urðu að
skipta niður um nokkra gíra til að
hafa kaflann. Ekki fór illa hjá
1 hnapp niður Þingvalla-
veginn.
Lagt upp i afdrifarika ferð. Olafur Benediktsson og Þórólfur Halldórsson hefja hér keppni í
nætur-rallinu, en nokkrum klukkustundum síðar hafnaði bifreiðin ofan I ræsi austan við Hvolsvöll.
Sluppu báðir lítt meiddir, en bifreiðin er ónýt.
Skrensað inn á Uxahrvggina. Þórhallur Kristjánsson og Asgeir Þor-
steinsson á ferð.
neinum þótt auðvelt hefði verið
að snúa bifreiðunum í hringi
þarna i sandinum.
Eftir að hafa fylgst með viður-
eign nokkurra bifreiða í sandin-
um við S:ndkluftavötn lögðum
við á Uxahryggina og reyndum þá
að fylgja sumum eftir. En á krók-
óttum vegi varð okkar stóri jeppi
að gefa sig fyrir snaggaralegum
fólksbílunum. Þeir fóru
beygjurnar öllu betur en við,
töpuðum við fyrst og fremst fyrir
þeim þar. Við tókum því á það ráð
að beygja til vinstri yfir Hestháls-
inn og þaðan á Dragann þegar
niður Lundarreykjadalinn kom
svo við gætum beðið í Kjósar-
skarðinu meðan rallbifreiðarnar
óku fram og aftur um Borgar-
fjörðinn.
Við ókum rólega í gegnum
fagurt Kjósarskarðið og undir lok
þess urðum við varir við fyrsta
rallarann í baksýnisspeglinum.
Voru þar komnir þeir Sigurður og
Björn. Við negldum í þá og von
bráðar höfðu Ulfar Hinriksson og
Sigurður Sigurðsson dregið okkur
uppi í Escortinum sinum. Það var
því ekinn þrimenningur næstu
kilómetrana, og lengi vel vorum
við blaðamenn á báðum áttum um
hvort harðfylgi okkar gæti verkað
truflandi á hina alvörugefnu
keppnismenn sem voru i bifreið-
unum rétt á undan okkur. Von
bráðar komumst við þó að því að
eftirför okkar skipti rallarana
ekki nokkru máli, því þeir voru á
svonefndri ferjuleið þar sem þeir
höfðu rúman tima til að koma sér
á næstu tímastöð. £rðu þeir að
bíða þar um stund og f jórði bíll á
þessa stöð var Simca Ómars og
Jóns. Þeir höfðu orðið fyrir vélar-
bilun en náðu þó á tímastöðina á
tilsettum tíma.
Við fylgdum Escortunum
tveimur að næstu tímastöð sem
var rétt við Skeggjastaði undir
Esjuhlíðum. Þaðan skyldi ekinn
svonenfdur sérkafli, sem var stutt
leið og skyldi hún ekin á ákveðn-
um tima, sekúndufrávik þýddi
minusstig. Var þessi leið mjög
krókótt og ekið i gegnum margar
lækjarsprænur og þvi gusu-
gangur mikill á þeirri leið. Flest-
um gekk nokkuð vel á þessum
kafla þótt sumir yrðu að stytta sér'
leið yfir hóla þar sem ekki var
hægt að ná beygjunni. En nú
fengu bifreiðarnar að finna
nokkuð fyrir því og tókust sumar
á loft á sumum leitunum og
hlunkuðust svo niður á veginn.
Margt hafði farið úrskeiðis i bif-
reiðunum áður en á þennan kafla
kom og má búast við að hér hafi
endanlega verið gengið frá ýms-
um hálflausum og löskuðum hlut-
um.
Rétt eins og við upphaf nætur-
rallsins var fjölmenni við Hótel
Loftleiðir þegar kapparnir komu i
endamarkið. Var keppendum
fagnað eínum af öðrum af vinum
og vandamönnum og áhugasöm-
um og forvitnum áhugamönnum.
Þökkuðu keppendur hver öðrum
góóa og skemmtilega keppni, en
margir hafa sennilega heitið sjálf-
um sér að gera betur næst.
Múgur og margmenni fylgdist með bifreiðunum er þær komu til
Reykjavfkur.
Úrslitin í nætur-mllinu
Hér á eftir fara úrslit nætur-ralls Bifreiðaíþróttaklúbbs
Reykjavíkur. 1 þessum úrslitum er Fjallabaksleiðin reiknuð sem
ferjuleið, en ekki sérleið, eins og hún átti að vera i upphafi.
Breytingin úr sérleið í ferjuleið hefur engin áhrif í fyrstu tvö
sadin f keppninni, en hefði Fjallabaksleiðin verið reiknuð sem
sérleið í þessum endanlegu úrslitum hefði það raskað röð bifreið-
anna í 3ja—15. sæti.
Stigin eru svonefnd mfnus stig.
Stig.
1. 129 Ómar Ragnarsson, Jón R. Ragnarss. Simca 1508 ‘77
2. 167 Sigurður Grétarss., Björn Olsen Ford Escort 1600‘77
3. 253 Úlfar Hinrikss., Sig. Sigurðsson Ford Escort 1600 ‘77
4. 315 Vilmar Þ. Kristinss., Sig. Ingi Ólafss. VVV' Golf ‘74
5. 329 Birgir Guðmundss., Birgir Halldórss. Ford Escort 1600
‘77
6. 361 Bragi Þór Haraids., Þorst. Friðþjófss. Lada 1500 ‘77
7. 363 Hafsteinn Aðalsteinss., Björn Guðjónss. Datsun 1600
‘77
8. 371 Sverrir Ólafss., Hannys Ólafsson Ford Escort RS 2000
‘74
9. 371 Garðar Eyland, Gunnar Gunnarsson Saab‘96
10. 382 Þórhallur Kristjáns., Ásgeir Þorst. Ford Eseort 1300
‘73
11. 435 Halldór Úlfarss., Hlynur T. Tóniass. Ford Galaxie‘60
12. 655 Ragnar S. Halldórss., Þórarinn Sigþ. Mini 1000 ‘77
13. 685 Magnús K. Helgas., Þorst. Ingim.s.Merc. Ben/. 220D ‘76
14. 1028 Jón R. Sigmundss., Dröfn Björnds. AIfaRomeo‘78
15. 1169 Árni Bjarnason, Sigbjörn Björnss. Saab99‘71