Morgunblaðið - 29.10.1977, Síða 2

Morgunblaðið - 29.10.1977, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1977 I NÆSTU viku mun verktaki Oddsgarðsganganna Ijúka sfnum verkþætti og að þvf er Björn Ölafsson verkfræðingur hjá Vegagerðinni tjáði Morgunblaðinu í gær, er gert ráð fyrir að göngin verði formlega opnuð til umferðar kringum 20. nóvember, en að sögn Björns mun veður ráða mestu um hvenær göngin verða vígð. í samtalinu við Mbl. sagði Björn, að starfsmenn Vegagerðarinnar væru nú að ganga frá rafmagni, hurðabúnaði og fleiru og væri gert ráð fyrir, að því verki lyki fyrir 20. nóvember. Ekki verður þó fyllilega lokið við göngin f vetur, heldur verður beðið með að steypa eða malbika gangnabotninn þar til næsta sumar og í- vetur mun koma í Ijós, hvort þörf er á að lengja gangnamunnana beggja vegna við göngin. Slippstöðin kaupir skrokk í Svíþjóð: Lengdur á Akranesi - innréttaður á Akureyri SLIPPSTÖÐIN á Akureyri keypti fyrir skömmu stóran skipsskrokk af sænskum aðila og kom hjörg- unarskipið Goðinn með skrokk- inn til landsins fyrir skömmu. Skrokkurinn verður nú lengdur um 6 metra hjá Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi og ennfremur verður byggt yfir þil- farið þar og smfðuð brú á skipið. Sfðan verður skrokkurinn dreg- inn til Akureyrar, þar sem hann verður innréttaður á næsta ári, en skipið á að búa til nóta- og flut- vörpuveiða. Stefán Reykjalín hjá Slippstöð- inni á Akureyri sagði í samtali við Morgunblaðið f gær, að skrokkur- inn væri 40 metra langur og 8 metra breiður, og eftir lengingu og yfirbyggingu ætti skipið að bera 800—840 lestir af loðnu eða kolmunna. Stefán kvað ástæðuna fyrir þvi að Slippstöðin hefði keypt þenn- an skipsskrokk vera þá, að yfir vetrartimann hefðu viðgerðar- deildir fyrirtækisins ekki alltaf næg verkefni, og mætti þar nefna rafvirkja, trésmiði og vélvirkja. Hins vegar hefðu plötusmiðir fyr- irtækisins ekki undan i skrokka- smíði. „Við keyptum á símum tima togaraskrokk frá Noregi, og reyndist það mjög vel, og það má segja, að þetta sé framhaldið á því.“ Framhald á bls. 22 Forustumenn 9 bæiarstarfs- mannafélaga: Gagnrýni BSRB- forustunnar óréttmæt MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi yfirlýsing frá for- svarsmönnum starfsmannafélaga f nfu kaupstöðum, þar sem þeir telja gagnrýni forustumanna inn- an Bandalags starfsmanna rfkis og bæja á tiltekin bæjarstarfs- mannafélög óréttmæta og óskyn- samlega. Yfirlýsingin er svohljóð- andi: í tilefni af yfirlýsingu nokkurra forustumanna í Bandalagi starfs- manna rikis og bæja vegna samn- inga tiltekinna bæjarstarfs- mannafélaga, þar sem þau hafa verið sökuð um svik við bandalag- ið, viljum við undirrituð taka fram eftirfarandi: 1. Samkvæmt gildandi lögum hefur hvert bæjarstarfsmannafél- ag sjálfstæðan samningsrétt gagn- vart viðkomandi sveitarfélagi. 2. Reynsla undanfarinna ára hefur sýnt fram á, að hinir mis- munandi aðalkjarasamningar bæjarstarfsmannafélaga hafa opnað leiðir fyrir aðra opinbera starfsmenn hvað viðvíkur mörg- um þýðingarmiklum kjaraat- riðum. Við áteljum framkomna gjgnrýni sem óréttmæta og jafn- framt óskynsamlega: Reykjavík, 28. okt. 1977. Helgi Andrésson, Starfsmanna- félag Akraness sign. Albert Kristinsson, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar, sign. Sigurður J. Sigurðsson, Starfsmannafélag Keflavlkur, sign. Haukur Ó. Ar- sælsson, Félag opinb. starfsm. Suðurlandi, sign. Þórhallur Hall- dórsson, Starfsmannafélagi Reykjavfkurborgar, sign. Einar Norðfjörð, Starfsmannafélagi Seltjarnarness, sign. Agnar Arna- son, Starfsmannafélagi Akureyr- ar, sign. Frlða Hjálmarsdóttir, Starfsmannafélagi Vestmanna- eyja, sign. Einar Kristjánsson, Félag starfsmanna Mosfells- hrepps. sign. Albert undir feldi YMSIR hafa spurt Morgun- blaðið að þvi hvers vegna blað- ið hafi ekki flutt fréttir af því að Albert Guðmundsson hygg- ist hætta þingmennsku og störfum i borgarstjórn eftir næstu kosningar og skírskota til frétta af ummælum hans á fundum þess efnis. Morgunblaðið hefur gert ítrekaðar tilraunir til þess að fá Albert Guðrnundsson til að skýra lesendum blaðsins frá áformum sínum í þessum efn- um, en svör hans hafa verið þau að hann vilji ekkert láta hafa eftir sér um það á þessu stigi. K-dagurinn í dag: Kiwanismenn selja lykla Gleymum ekki geðsjúkum MtJMSfMK teWöVt imi/m- nm Lim á nTomi VA EftJ yw \ m- -^7- wrn Heilsugæzlustöðin á Homafirði opnuð geósjúkum OCr NÆSTBR'flMAST ER AP KOMA URp NÓ6(J 5NA66ARALEGUM 5EPLABANKA Höfn. Hurnafirði. — 28. oklóber. VlGSLA heilsugæzlustöðvarinnar á Höfn I Hornafirði fór fram I dag að viðstöddum heilbrigðisráð- herra og öllum þingmönnum Austurlandskjördæmis og fjölda annarra gesta. Herman.n Hansson kaupfélagsstjóri, formáður bygg- ingarnefndar, bauð gesti vel- komna og lýsti hann framkvæmd- um. Fyrsta fjárveitingin til stöðv- arinnar var veitt á fjárlögum 1972 og 1973 og þá aðeins 500 þúsund kr. hvort ár. Jón Haralds- son arkitekt var ráðinn til að teikna húsið, Davíð Arnljótsson verkfræðingur sá um burðarþols- teikningu og Kristján Flygenring allar lagnir aðrar en raflagnir sem Sigurður Halldórsson verkfr. teiknaði. Framkvæmdir við byggingu hússins hófst á hausti 1974 og var fyrsti hluti verksins boðinn út. Nafn litla drengsins LITLI drengurinn, sem beið bana í umferðinni á Selfossi á fimmtu- daginn, hét Eiður Sævarsson. Hann var 6 ára gamall, fæddur 2. febrúar 1971, sonur hjónanna Valgerðar Kristínar Fried og Sævars Sigurðssonar, Hjarðar- holti 6, Selfossi. Verktaki var Guðmundur JOns- son, byggingarmeistari á Höfn, og skilaði hann húsinu fokheldu. Næsti verktaki var Byggingarfé- lagið Höfn hf. Hafa þessir verk- takar hvor um sig skilað verkefn- um sínum með prýði. Húsið er 725 fermetrar að grunnfleti. I húsinu er starfsað- staða fyrir tvo lækna og sömuleið- is sérfræðing. Þar er einnig rann- sóknarstofa, röntgenstofa og fl. I annarri álmu hússins sem enn er ekki alveg fullgerð er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir tannlækni, sjúkraþjálfara o.fl. Heildarkostn- aður þeirra framkvæmda, sem lokið er, mun vera um 100 millj- ónir kr. 1 tengslum við stöðina er gert ráð fyrir hjúkrunarheimili, sem rúma mundi 20 sjúklinga sam- kvæmt tillögu arkitekts. Að lokinni ræðu Hermanns tók heilbrigðisráðherra, Matthias Bjarnason, til máls. 1 lok ræðu sinnar lýsti hann yfir að stöðin væri opnuð til afnota og færði héraðsmönnum hamingjuóskir með þann áfanga sem þegar hefði náðst. Því næst talaði Öskar Helgason, rekstrarformaður stöðvarinnar, en að ræðu hans lokinni gengu gestir í húsið og var síðan öllum viðstöddum boðið til kaffiveitinga á Hótel Höfn. Þar voru margar ræður og árnaðar- óskir fluttar. Veizlustjóri var Öskar Helga- SOn. bunnar. I DAG er K-dagurinn og er kjör- orð hans: Gleymum ekki geðsjúk- um. Kiwanis-hreyfingin hér á landi stendur fyrir þessum degi og er þetta í annað sinn sem Kiwanis- menn helga málefnum geðsjúkra dag með þessum hætti. Verkefni dagsins er að afla pen- inga til hjálpar geðsjúkum og ennfremur kynning á vandamál- um þeirra. Fjársöfnunin fpr fram með sölu á lyklinum, sem er merki líknarstarfs Kiwanishreyf- ingarinnar hér á landi og verður lyiillinn seldur um allt land. Siðasta K-dag árið 1974 seldust yfir 40 þúsund lyklar og var sölu- ágóðinn liðlega sex milljónir króna, sem allar runnu til mál- efna geðsjúkra. Hált á vegum FÆRÐ á helztu þjóðvegum er með mjög þokkalegu móti að sögn Fékk frysti- húsaskýrsl- una í gær MATTHlAS Bjarnason sjávarút- vegsráðherra fékk í gærmorgun skýrslu þá sem Þjóðhagsstofnun hefur unnið um rekstrarafkomu hraðfrystiiðnaðarins i landinu. I gær hafði sjávarútvegsráðherra ekki kynnt sér skýrsluna og að því er Morgunblaðinu var tjáð i gær verður innihald hennar lík- lega ekki birt fyrr en búið er að leggja skýrsluna fyrir rikisstjórn- arfund í næstu viku. vegaeftirlitsmanna, en vfða er þó mikil hálka á f jallvcgum. A Vestfjörðum var t.d. Þorska- fjarðarheiði ófær í gær en ráðgert er að moka veginn þar í dag. Auk þess er talsverð hálka á öðrum fjallvegum þar vestra. Sömu sögu er raunar að segja frá Norður- landi, vegir eru yfirleitt vel færir en hálka á fjallvegum og t.d. var ófært um tima til Siglufjarðar en þar var rutt aftur i gær; Lágheiði er aðeins fær jeppum og stórum bílum. A Norðurausturlandi eru vegir góðir nema hvað Hólssandur er orðinn þungfær og Axarfjarðar- heiði er ófær. Einnig er Vopna- fjarðarheiði ófær. A Austfjörðum er ágæt færð en þó er aðeins fært jeppum, og stórum bílum yfir i Borgarfjörð eystri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.