Morgunblaðið - 29.10.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.10.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÖBER 1977 3 Afköst loðnubræðsl- unnar á Bolungarvík aukast um helming Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan eftir stækkunina Ljósm. Cíunnar Hallsson. Sinfóníuhljómsveit Islands: Hljómsveitarmenn æfír út í frumvarpið MIKIL óánægja ríkir meðal liðsmanna Sinfóníuhljóm- sveitar Islands vegna frumvarps þess til laga, sem nýverið hefur verið lagt fram á Alþingi um starfsemi hljómsveitarinnar. Starfsmannafélag Sinfóníuhljóm- sveitarinnar hélt fund um frumvarpið í gærmorgun, þar sem fram kom mjög mikil óánægja með ýmsa þætti frumvarpsins og af hálfu stjórnar starfsmannafélagsins hefur menntamálanefnd þingsins þegar verið ritað bréf þar sem athugasemdir eru gerðar við efni frumvarpsins. Að sögn Gunnars Egilssonar, frumvarpsins né heldur eftir að formanns Starfsmannafélags Sin- það lá fyrir fullmótað hjá nefnd- fóniuhljómsveitarinnar, hafa inni, sem það samdi," sagði Gunn- hljómsveitarmenn einkum þrennt við frumvarpið að gthuga. Það leggur á herðar þeirra aukna vinnuskyldu og gengur þar með þvert á gerða samninga, engir hljómsveitarmenn voru kallaðir til þess að vera höfundum frum- varpsins til ráðuneytis um samn- ingu þess né leitað álits þeirra sem i hljómsveitinni starfa og loks væri i frumvarpinu gert ráð fyrir að í hljómsveitinni væru allt að 65 hijóðfæraleikarar, og þar með væri með lagaboði verið að koma i veg fyrir á hér yrði nokkru sinni unnt að koma upp fullskip- aðri sinfóniuhljómsveit. „Það var ekkert samráð haft við okkur, hvorki á undirbúningsstigi ar í samtali við Mbl. „Við fengum þannig frumvarpið aldrei til um- sagnar og reyndar sáum við það ekki fyrr en það kom fyrir al- mennings sjónir." I nefndinni sem frumvarpið samdi voru Birgir Thorlacius, for- maður, Andrés Björnsson út- varpsstjori, Ölafur B. Thors, for- seti borgarstjórnar Reykjavíkur, Pálmi Jónsson og Orn Marinós- son, og að sögn Gunnars hafði starfsmannafélagið samband við nefndina áður en það var lagt fram og óskaði eftir því að fá að sjá frumvarpið en því ekki sinnt, enda kæmi á daginn að ýmis atr- iði væru í frumvarpinu, sem liðs- menn Sinfóniuhljómsveitarinnar gætu ekki sætt sig við og mætti jafnvel rekja þessi atriði til Framhald á bls. 22 Bolunfíarvfk. 28. oklóber. NÝLEGA var tekin í notkun við- bót við sildar- og fiskimjölsverk- smiðju Einars Guðfinnssonar h.f. i Bolungarvík, en með því hafa afköst verksmiðjunnar aukist úr 200—250 tonnum á sólarhring i 400—500 tonn á sólarhring. Af þessu tilefni ræddi fréttarit- ari Morgunblaðsins við Jónatan Einarsson framkvæmdastjóra verksmiðjunnar. Jónatan sagði m.a.: „Fram- kvæmdir við stækkun verk- smiðjuhússins hófust i október- mánuði 1976, en hafist var handa við niðursetningu véla s.l. vor. Þá var ennfremur í sumar byggð við- bót við mjölgeymslu verksmiðj- unnar. Viðbyggingin er um 1000 fm. Kostnaður við þessar fram- kvæmdir er nú kominn yfir 300 millj. króna og vega þar þyngst, auk bygginga, kaup á nýjum tækj- um og vélum. Um er að ræða nýtt inntak, sjóðara, mjölskilvindu i stað pressu og hakkavél framan við hana, lýsisskilvindur, gufu- ketil, mjölkvörn, sekkjunarvog og siðast en ekki sist soðeimingar- tæki úr ryðfriu stáli. Viðbótin er Framhald á bls. 22 í eftirleitum í 30. skipti Syðra-Langholli. 28. októher. EFTIRLEITUM er nýlokið i upp- sveitum Aresýslu og gengu þær vel, en ekki fara nema þaulvanir fjallamenn í þriðju og sfðustu leitir um þessi svæði. Ingvar Ingvarsson á Hvítárbakka fór nú i 30. skipti f eftirleitir, en hann er sextugur að aldri. Biskupstungnamenn voru 7 daga i eftirleitum, sex menn alls, og fundu þeir 7 kindur. Fjorir Hrunamenn fóru'í 8 daga á fjöll og fundu 18 kindur. Fjórir bænd- ur úr Gnúpverjahreppi voru 9 daga í eftirleitum og fundu 24 kindur. Fjórir menn leituðu loks Flóa- og Skeiðaafréttir og fundu 13 kindur í leitunum, sem tóku 4 daga. Fróttaritari Hundrað og fimmtíu tann- læknar í starfi hér á landi Prófessor Jón Sigtryggsson kjörinn heiðursfélagi Tannlæknafélags Islands TANNLÆKNAFÉLAG Islands verður 50 ára 30. október n.k., en það var á þeim degi 1927 að félagið var stofnað. I tilefni þcssara tfmamóta verður margt gert til hátfðarbrigða, Hátiðar- fundur haldinn f félagsheimili tannlækna að Sfðumúla 35 s.l. fimmtudagskvöld en þar voru meðal gesta heilbrigðismála- ráðherra, borgarstjóri og borg- arlæknir, erlendur sérfræðing- ur heldur fyrirlestur f.vrir ís- lenzka starfsbræður sína sem og sjálfir munu halda fvrir- lestra, svo og verður sérstök afmælishátíð að Hótel Loftleið- um. Auk þessa verða sjö út- varpserindi flutt fyrir tilstilli fræðslunefndar félagsins, hið f.vrsta var flutt 27. október. Tannlæknafélag Islands var stofnað af þremur tannlækn- um, þeim Brynjúlfi Björnssyni, Framhald á bls. 22 Þriðja bindi íslenzkra úrvalsljóða í norskri þýðingu Ivars Orgland Fer bensínlítrinn í 130 kr. á næsta ári? Kanna þarf aðrar tekjuöflunarleiðir fyrir Vegasjóð Frá hátfðarfundi Tannlæknafélags tslands s.l. fimmtudagskvöld. A fundinum var prófessor Jón Sigtryggsson tannlæknir útnefndur heiðursfélagi Tannlæknafélags tslands. Er hann fimniti frá liægri á þessari mynd. Til hægri við Jón situr Skúli Johnsen borgarlæknir, þá Páll Sigurðsson ráðuneytis- stjóri, Birgir tsleifur Gunnarsson borgarst jóri og Matthfas Bjarnason heilbrigðismálaráðherra. (Ljósm. Frióþjófur) ÞRIDJA bindið af þýðingum Invars Orgland á úrvali fslenzkra Ijóða kemur út hjá Fonna- útgáfunni f Noregi í næsta mán- uði. I þessu úrvali eru Ijóð fram að dögum Bjarna Thorarensen, en í fyrri bindunum tveimur voru þýðingar á Ijóðum frá 18ndu og öörum álögum allt að tutt- ugu króna hækkun. Hækkun bensinverðs, lögum samkvæmt, til samræmis við hækkun byggingarvisitölu, gæti og hækkað bensínlítrann um tugi króna á næsta ári. Enn þyrfti að taka tillit til hugsanlegs gengis- sigs og hugsanlegrar hækkunar á heimsmarkaðsverði. Svo gæti far- ið að bensinlitri færi i allt að 125 til 130 krónur á næsta ár, ef allt þetta væri inni í myndinni. Við slíkar aðstæður mætti búast við verulegum samdrætti i bensin- kaupum og bensínnotkun, sem ekki þjónaði settum markmiðum um tekjuöflun. fyrir Vegasjóð. Auk þess myndi þetta háa bensin- verð kynda undir verðbólgu með keðjuverkandi áhrifum. Hér þyrfti þvi að fara með gát. þótt tilgangurinn, varanleg vegagerð og uppbygging þjóðvega i strjál- býli, væri góður. Huga þyrfti að öðrum tiltækum fjáröflunarleið- um og fullkanna þær, áður en til þessa ráðs yrði gripið. Sjá nánar á þingsiðu blaðsins i dag. 19ndu öld og Ijóð frá þessari öld. Fyrri bindin komu út árin 1975 og 1976. Ingólfur Jónsson, alþingismaður: 1 frétt Fonna-útgáfunnar segir að höfuðljóðin i þessu þriðja bindi séu Sólarljóð, Lilja og úrval Passiusálma Hallgrims Péturs- sonar, en af 28 nafngreindum höfundum eru einnig tilefndir Skálda-Sveinn, Jón Arason, Einar Sigurðsson, Bjarni Jónsson, Bjarni Gissurarson og Eggert Ólafsson. Þess er og getið að i úrvalinu megi finna dæmi um barnagælur, danskvæði, rimur og lausavísur. I UMRÆÐUM á Alþingi í fyrradag er fjallað var um átak í vegagerð og tekju- öflun til slíks átaks, varaöi Ingólfur Jónsson, fyrrver- andi samgönguráðherra, við of mikilli hækkun ben- síngjalds, sem gæti þjónað öfugt við tilgang um tekju- öflun. Fimmtán króna ráð- gerð hækkun bensingjalds (i fjarlagafrumvarpi) þýddi með söluskatti og Slátrun lokið í Laugarási Syðra LanghoKi, 28. okt. SLATRUN er nú lokið i slátur- húsi SS í Laugarási og var alls slátrað 21029 fjár, er það um 600 færra en i fyrra. Sláturtið- in stóð i 24 daga og störfuðu um 50 manns við sauðfjárslátr- unina. Starfsfólk sláturhússins heldur sitt lokaball að Flúðum í kvöld. Vænsta dilkinn að þessu sinni átti Bjarni Jónsson, Skeiðarholti, og vó hann 26.4 kiló. Mest meðalvigt var á dilk- um frá Eyvindi Sigurðssyni, Austurfelli i Gnúpverjahreppi, 17.2 kiló. — Fréltaritari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.