Morgunblaðið - 29.10.1977, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÖBER 1977
3
Afköst loðnubræðsl-
unnar á Bolungarvík
aukast um helming
Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan eftir stækkunina
Ljósm. Cíunnar Hallsson.
Sinfóníuhljómsveit Islands:
Hljómsveitarmenn
æfír út í frumvarpið
MIKIL óánægja ríkir meðal liðsmanna Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands vegna frumvarps þess til laga, sem
nýverið hefur verið lagt fram á Alþingi um starfsemi
hljómsveitarinnar. Starfsmannafélag Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar hélt fund um frumvarpið í gærmorgun, þar
sem fram kom mjög mikil óánægja með ýmsa þætti
frumvarpsins og af hálfu stjórnar starfsmannafélagsins
hefur menntamálanefnd þingsins þegar verið ritað bréf
þar sem athugasemdir eru gerðar við efni frumvarpsins.
Að sögn Gunnars Egilssonar, frumvarpsins né heldur eftir að
formanns Starfsmannafélags Sin- það lá fyrir fullmótað hjá nefnd-
fóniuhljómsveitarinnar, hafa inni, sem það samdi," sagði Gunn-
hljómsveitarmenn einkum þrennt
við frumvarpið að gthuga. Það
leggur á herðar þeirra aukna
vinnuskyldu og gengur þar með
þvert á gerða samninga, engir
hljómsveitarmenn voru kallaðir
til þess að vera höfundum frum-
varpsins til ráðuneytis um samn-
ingu þess né leitað álits þeirra
sem i hljómsveitinni starfa og
loks væri i frumvarpinu gert ráð
fyrir að í hljómsveitinni væru allt
að 65 hijóðfæraleikarar, og þar
með væri með lagaboði verið að
koma i veg fyrir á hér yrði nokkru
sinni unnt að koma upp fullskip-
aðri sinfóniuhljómsveit.
„Það var ekkert samráð haft við
okkur, hvorki á undirbúningsstigi
ar í samtali við Mbl. „Við fengum
þannig frumvarpið aldrei til um-
sagnar og reyndar sáum við það
ekki fyrr en það kom fyrir al-
mennings sjónir."
I nefndinni sem frumvarpið
samdi voru Birgir Thorlacius, for-
maður, Andrés Björnsson út-
varpsstjori, Ölafur B. Thors, for-
seti borgarstjórnar Reykjavíkur,
Pálmi Jónsson og Orn Marinós-
son, og að sögn Gunnars hafði
starfsmannafélagið samband við
nefndina áður en það var lagt
fram og óskaði eftir því að fá að
sjá frumvarpið en því ekki sinnt,
enda kæmi á daginn að ýmis atr-
iði væru í frumvarpinu, sem liðs-
menn Sinfóniuhljómsveitarinnar
gætu ekki sætt sig við og mætti
jafnvel rekja þessi atriði til
Framhald á bls. 22
Bolunfíarvfk. 28. oklóber.
NÝLEGA var tekin í notkun við-
bót við sildar- og fiskimjölsverk-
smiðju Einars Guðfinnssonar h.f.
i Bolungarvík, en með því hafa
afköst verksmiðjunnar aukist úr
200—250 tonnum á sólarhring i
400—500 tonn á sólarhring.
Af þessu tilefni ræddi fréttarit-
ari Morgunblaðsins við Jónatan
Einarsson framkvæmdastjóra
verksmiðjunnar.
Jónatan sagði m.a.: „Fram-
kvæmdir við stækkun verk-
smiðjuhússins hófust i október-
mánuði 1976, en hafist var handa
við niðursetningu véla s.l. vor. Þá
var ennfremur í sumar byggð við-
bót við mjölgeymslu verksmiðj-
unnar. Viðbyggingin er um 1000
fm.
Kostnaður við þessar fram-
kvæmdir er nú kominn yfir 300
millj. króna og vega þar þyngst,
auk bygginga, kaup á nýjum tækj-
um og vélum. Um er að ræða nýtt
inntak, sjóðara, mjölskilvindu i
stað pressu og hakkavél framan
við hana, lýsisskilvindur, gufu-
ketil, mjölkvörn, sekkjunarvog og
siðast en ekki sist soðeimingar-
tæki úr ryðfriu stáli. Viðbótin er
Framhald á bls. 22
í eftirleitum
í 30. skipti
Syðra-Langholli. 28. októher.
EFTIRLEITUM er nýlokið i upp-
sveitum Aresýslu og gengu þær
vel, en ekki fara nema þaulvanir
fjallamenn í þriðju og sfðustu
leitir um þessi svæði. Ingvar
Ingvarsson á Hvítárbakka fór nú i
30. skipti f eftirleitir, en hann er
sextugur að aldri.
Biskupstungnamenn voru 7
daga i eftirleitum, sex menn alls,
og fundu þeir 7 kindur. Fjorir
Hrunamenn fóru'í 8 daga á fjöll
og fundu 18 kindur. Fjórir bænd-
ur úr Gnúpverjahreppi voru 9
daga í eftirleitum og fundu 24
kindur. Fjórir menn leituðu loks
Flóa- og Skeiðaafréttir og fundu
13 kindur í leitunum, sem tóku 4
daga.
Fróttaritari
Hundrað og fimmtíu tann-
læknar í starfi hér á landi
Prófessor Jón Sigtryggsson kjörinn
heiðursfélagi Tannlæknafélags Islands
TANNLÆKNAFÉLAG Islands
verður 50 ára 30. október n.k.,
en það var á þeim degi 1927 að
félagið var stofnað. I tilefni
þcssara tfmamóta verður margt
gert til hátfðarbrigða, Hátiðar-
fundur haldinn f félagsheimili
tannlækna að Sfðumúla 35 s.l.
fimmtudagskvöld en þar voru
meðal gesta heilbrigðismála-
ráðherra, borgarstjóri og borg-
arlæknir, erlendur sérfræðing-
ur heldur fyrirlestur f.vrir ís-
lenzka starfsbræður sína sem
og sjálfir munu halda fvrir-
lestra, svo og verður sérstök
afmælishátíð að Hótel Loftleið-
um. Auk þessa verða sjö út-
varpserindi flutt fyrir tilstilli
fræðslunefndar félagsins, hið
f.vrsta var flutt 27. október.
Tannlæknafélag Islands var
stofnað af þremur tannlækn-
um, þeim Brynjúlfi Björnssyni,
Framhald á bls. 22
Þriðja bindi íslenzkra
úrvalsljóða í norskri
þýðingu Ivars Orgland
Fer bensínlítrinn í
130 kr. á næsta ári?
Kanna þarf aðrar tekjuöflunarleiðir fyrir Vegasjóð
Frá hátfðarfundi Tannlæknafélags tslands s.l. fimmtudagskvöld. A fundinum var prófessor Jón
Sigtryggsson tannlæknir útnefndur heiðursfélagi Tannlæknafélags tslands. Er hann fimniti frá liægri
á þessari mynd. Til hægri við Jón situr Skúli Johnsen borgarlæknir, þá Páll Sigurðsson ráðuneytis-
stjóri, Birgir tsleifur Gunnarsson borgarst jóri og Matthfas Bjarnason heilbrigðismálaráðherra.
(Ljósm. Frióþjófur)
ÞRIDJA bindið af þýðingum
Invars Orgland á úrvali fslenzkra
Ijóða kemur út hjá Fonna-
útgáfunni f Noregi í næsta mán-
uði.
I þessu úrvali eru Ijóð fram að
dögum Bjarna Thorarensen, en í
fyrri bindunum tveimur voru
þýðingar á Ijóðum frá 18ndu og
öörum álögum allt að tutt-
ugu króna hækkun.
Hækkun bensinverðs, lögum
samkvæmt, til samræmis við
hækkun byggingarvisitölu, gæti
og hækkað bensínlítrann um tugi
króna á næsta ári. Enn þyrfti að
taka tillit til hugsanlegs gengis-
sigs og hugsanlegrar hækkunar á
heimsmarkaðsverði. Svo gæti far-
ið að bensinlitri færi i allt að 125
til 130 krónur á næsta ár, ef allt
þetta væri inni í myndinni. Við
slíkar aðstæður mætti búast við
verulegum samdrætti i bensin-
kaupum og bensínnotkun, sem
ekki þjónaði settum markmiðum
um tekjuöflun. fyrir Vegasjóð.
Auk þess myndi þetta háa bensin-
verð kynda undir verðbólgu með
keðjuverkandi áhrifum. Hér
þyrfti þvi að fara með gát. þótt
tilgangurinn, varanleg vegagerð
og uppbygging þjóðvega i strjál-
býli, væri góður. Huga þyrfti að
öðrum tiltækum fjáröflunarleið-
um og fullkanna þær, áður en til
þessa ráðs yrði gripið. Sjá nánar á
þingsiðu blaðsins i dag.
19ndu öld og Ijóð frá þessari öld.
Fyrri bindin komu út árin 1975
og 1976.
Ingólfur Jónsson, alþingismaður:
1 frétt Fonna-útgáfunnar segir
að höfuðljóðin i þessu þriðja
bindi séu Sólarljóð, Lilja og úrval
Passiusálma Hallgrims Péturs-
sonar, en af 28 nafngreindum
höfundum eru einnig tilefndir
Skálda-Sveinn, Jón Arason, Einar
Sigurðsson, Bjarni Jónsson,
Bjarni Gissurarson og Eggert
Ólafsson. Þess er og getið að i
úrvalinu megi finna dæmi um
barnagælur, danskvæði, rimur og
lausavísur.
I UMRÆÐUM á Alþingi í
fyrradag er fjallað var um
átak í vegagerð og tekju-
öflun til slíks átaks, varaöi
Ingólfur Jónsson, fyrrver-
andi samgönguráðherra,
við of mikilli hækkun ben-
síngjalds, sem gæti þjónað
öfugt við tilgang um tekju-
öflun. Fimmtán króna ráð-
gerð hækkun bensingjalds
(i fjarlagafrumvarpi)
þýddi með söluskatti og
Slátrun
lokið í
Laugarási
Syðra LanghoKi, 28. okt.
SLATRUN er nú lokið i slátur-
húsi SS í Laugarási og var alls
slátrað 21029 fjár, er það um
600 færra en i fyrra. Sláturtið-
in stóð i 24 daga og störfuðu
um 50 manns við sauðfjárslátr-
unina. Starfsfólk sláturhússins
heldur sitt lokaball að Flúðum
í kvöld.
Vænsta dilkinn að þessu
sinni átti Bjarni Jónsson,
Skeiðarholti, og vó hann 26.4
kiló. Mest meðalvigt var á dilk-
um frá Eyvindi Sigurðssyni,
Austurfelli i Gnúpverjahreppi,
17.2 kiló. — Fréltaritari