Morgunblaðið - 29.10.1977, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÖBER 1977
Laugarásbíó: Rooster Cogburn
Rútínuvestri þar sem gamlir góðvinir okkar
af tjaldinu í gegnum tíðina, Katharine Hep-
burn og John Wayne, bjarga sýningunni.
Tónabíó: Imbakassinn
Misgóður gálgahúmor af ekki ósvipuðum
toga og áramótaskaup sjónvarps.
ÁNÆSTUNNI
Nýja Bíó Alex and The
Gipsy
Að ollum líkindum verður það
mjog nýleg, bandarísk mynd
ALEX AND THE GIPSY sem
verður næst tekin til sýninga í
Nýja Biói Með aðalhlutverkin
fara útvalsleikararnir Jack Lemon
og Genevieve Bujold Lemon leik
ur miðaldra kaupsýslumann sem
skilur við sinar fyrri lifsvenjur
þegar hann kynnist ungri og
bráðfallegri sigaunastúlku
(Bujold)
Raímagn-
að, þrnm-
andirokk
AUSTURBÆJAR-
BÍÓ:
LED ZEPPELIN
(„The Song Remains
The Same“)
LED ZEPPELIN eru,
Roberl Plant, söngur;
Jimmy Page, gítar; John
Paul Jones, hljóm-
bord/bassi; John Bonham,
trommur.
í upphafi ber að geta
þess að THE SONG RE-
MAINS THE SAME höfðar
næstum eingöngu til LED
ZEPPELIN aðdáenda og
annarra velunnara kraff-
mikils rokks. i eyrum og
augum annarra getur
myndin sjálfsagt virkað
Ifkt og þrfkrossað eitur. En
ef þú ert svo heppinn að
teljast í hópi hinna fyrr-
nefndu, þá ertu lukkunnar
pamfíll og ættir að drffa
þig hið fyrsta í Austurbæj-
arbfó. Þvf bæði hafa hljóm-
leikamyndir gengið hér
með fádæmum illa (að
WOODSTOCK undanskil-
inni), og eins er á ferðinni
frábær mynd sem sýnir
eina af langbestu rokk-
hljómsveitum á tónleika-
höldum í sannkölluðu
banastuði.
T.S.R.T.S. er tekin
,,live“, á hljómleikum LED
ZEPPELIN í Madison
Square Garden í New York
á árinu 1973. Þeir taka
... jafnvel teikningar af albúmunum
öðlast Iff...
mörg.af sínum gömlu, góðu
lögum líkt og„Dazed and
Confused“, „Black Dog“,
„Whole Lotta Love“, og
lagið sem rís hæst á glæst-
um tónlistarferli þeirra,
perluna „Stairway To
Heaven", auk fjölda-
margra annarra, eins og
titillagið. Og tónlistin er
flutt af slíku kyngimagni
aó hér nýtur maður hennar
á algjörlega nýjan máta.
Á milli atriða beint af
senunni í Madison Square
Garden (sem er langmest-
ur hluti myndarinnar) er
brugðið upp galsafengnum
svipmyndum af hljóm-
listarmönnunum og einS
Shelley Duvall er álitin sigurstrangleg við afhendingu
næstu „Oscarsverðlauna fyrir bestan leik f aðalhlut-
verki f nýjustu mynd Altmans, THREE WOMEN.
VIÐ KYNNUM:
SHELLEY DUVALL
Nafnið og andlitið koma
kunnuglega fyrir, ekki
satt, en hvaðan? Jú, Duvall
er einmitt ein af leikkon-
unum í leiksmiðju Robert
Altman, og nú fer minnið
að skýrast.
Fyrsta myndin sem hún
lék í var mynd Atlmans,
BREWSTER MCCLOUD,
gerð árið 1970. Altman
rakst einfaldlega á stúlk-
una einhvers staðar niðri í
Texas, leist vel á yfirbragð-
ið og bauð henni hlutverk.
Síðan hefur þessi tág-
granna stúlka verið ein af
eftirlætis-skjólstæðingum
hans.
Upp frá því hefur hver
myndin rekið aðra: 1
McCABE AND MRS
MILLER lék hún við-
kvæma eiginkonu, pantaða
í pósti; því næst vinkonu
bankaræningaja f
THIEVES LIKE US; í
NASHVILLE var hún
klunnaleg „groupie“ og í
BUFFALO BILL AND
THE INDIANS lék hún
hafðarfrúna mrs. Grover
Cleveland.
En öðru fremur er
Duvall getið hér vegna
leiks sfns í nýjustu mynd
Altmans, THREE
WOMEN, sem flestir spá
að muni færa henni
Oscarsverðlaunin að vori.
Leggið þvf nafn hennar á
hiinnið.
eru leiknir kaflar sem
byggðir eru á textum við
lög þeirra félaganna. Jafn-
vel teikningar á albúmum
öðlast líf.
Að venju, á hljómleikum
sem þessum, er gengið frá
því sem visu að áhorfendur
yfir höfuð séu á
sýru,,trippi“ eða vel reykt-
ir. Ýmsir effektar í mynda-
tökunni/gerðinni benda og
til þess að reiknað sé með
því að sjáendur myndar-
innar njóti hennar einnig
betur hálfskakkir. En það
er svo önnur saga.
Ekki þarf að tíunda
ágæti þessarar heims-
þekktu hljómsveitar, hún
hefur meira að segja hald-
ið minnisstæða hljómleika
hér í Laugardalshöllinni.
En L.Z. er fyrst og fremst
„hljómleikagrúppa",
þ.e.a.s. hún byggir vinsæld-
ir sfnar eingöngu á tón-
leikahaldi og L.P. plötum
sem fylgja í kjölfar hinna
stórkostlegu hljómleika-
ferða þeirra. Tveggja laga
,,hit“-plötur þekkjast ekki
á bænum þeim. Það skyldi
því engum bregða yfir
kunnáttusemi þeirra á
sviðinu; hér kunna allir
tökin á sfnu hlutverki og
vita hvers er af þeim
krafist. Hver hreyfing fell-
ur hnitmiðuð inn í þennan
brjálæðislega rythma sem
hefur gert hljómleika LED
ZEPPELIN aó stór-
viðburði 'í „poppheimin-
um“ (fáránlegt orð).
Þeir félagar Jimmy Page
og Robert Plant fara á
kostum að venju. Snilli og
tækni Page er slík að engin
orð fá lýst þeim tökum sem
hann nær stundum á
áheyrendum. Plant
stendur honum lítt að baki
í galdrinum; þau hljóð sem
hann nær að framkalla eru
með miklum ólíkindum.
Allt frá mildum, blíðum,
næstum kvenlegum tónum
upp í hráslagaleg, sargandi
vítisorg demónsins sem
þrumar yfir stjörfum
áheyrendum. Minnir oft á
Janis Joplin.
Bonham og Jones eru
engu minni listamenn á
sínu sviði, og Bonham á
eitt svo þrælmagnað
trommusóló í myndinni að
það skekur áhorfandann
fram á stólbrúnina.
Að mínu viti eru hljóm-
gæði hússins hin ákjósan-
legustu, altént á þeirri
sýningu sem undirr. sá,
eftir gagngerðar breyting-
ar á hljómburðartækjum
hússins, sem voru endur-
nýjuð auk annarra gagn-
gerra breytinga á hús-
næóinu f tilefni þrítugs-
afmælisins.
... And if you listen
very hard
The time will comti to
you at last.
When all are one and
one is all
To be a rock and not
to roll.
LED ZEPPELIN!
„Stairway to Heaven“.
Fimm
anra
brand-
arar
NÝJA BÍÓ:
HR. BILLJÓN
LEIKSTJÓRI og handrits-
höfundur HR. BILLJÓN er
einn af þeim lánlitlu leik-
stjórum sem fær mann til
að brosa — þegar best læt-
ur, en sjaldan að hlæja.
Kaplan og hans nótar ættu
að snúa sér að öllu öðru en
gerð gamanmynda.
Miklar vonir voru
bundnar við HR. BILLJÓN
í upphafi. Henni var stillt
upp í vor sem páska-
aðdráttarafli í stærsta
kvikmyndahúsi veraldar,
Radio City Music Hall í
N.Y. Þar gekk hún aðeins í
hálfan mánuð, tæpan, sem
er ömurlegt skipbrot, að
maður tali nú ekki um að
um páskamynd var að
ræða.
Aðalgallinn við HR.
BILLJÓN er sá að hvergi
örlar á umtalsverðum
frumlegheitum, maður
hefur séð obbann af þessu
einhvers staðar áður. Og
brandararnir eru fæStir
meira en fimm aura virði.
Eina ástæðan til þess að
sjá HR. B. er Terrence
Hill, þar er leikari á ferð
sem á eftir að auka hróður
sinn til muna áður en langt
um líður. En vafasamt
verður að teljast að HR. B.
eigi þar nokkurn hlut að
máli.
Margir ágætisleikarar
koma fram í myndinni,
eins og Valerie Perrine,
(LENNY), Jackie Gleason
og Slim Pickens. Hæfileik-
um þeirra er einfaldlega
sóaó.
iLLLiJJLLimiIAT
(Whrre Th« Nicc Guy* Flni*h Fir»t For A ChangtJ
TERENCE HILL VALERIE PERRINF
"MR.BILLION"