Morgunblaðið - 29.10.1977, Side 15

Morgunblaðið - 29.10.1977, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. OKTÓBEfM977 15 Á myndinni er séra Jón Thorarensen rithöfundur aó gera aó ganini sfnu vió einn ganilan Suóurnesja- mann og ættfræóing, Guómund A. Finnbogason f Innri-Njaróvík. Í flestum bóka sinna sækir séra Jón efniviðinn til Suóurnesjamanna. Sjálfur er séra Jón alinn upp á Suóurnesjum, en segist þó sanit ekki þora aó telja sig ekta Suóurnesjamann. — Og hér bætti hann vió vfsu. Er hún frá þeim tfma er séra Jón var prestur austur í Hruna og gestir f heimsókn hjá honum og Ingibjörgu konu hans. Þegar maddaman hafði gefið þeim steik kom þessi vísa frant hjá þeim. Meóal gestanna var Pálnti Hannesson er þá var rektor Menntaskólans í Reykjavík. — Vísan er svona: Marga gesti hefur hresst, Hrunaprestur slvngur. Á þvf sést þaó allra be/t, er hann Vestfiróingur. „Svalheimamenn” UM DAGINN hitti ég á förnum vegi hér í Mióbænum séra Jón Thorarensen,' fyrrum Nes- sóknarprest hér í Reykjavík. Vió spjölluóunt dálitla stund saman. Sagói hann mér að nú hefói hann betri tíma til að sinna hugóarefnum sfnum. M.a. sagói hann mér aó nú væri ný bók og prentun hennar að Ijúka. Þessi bók er Svalheima- menn. Við löbbuðum sarnan nokkra stund. Sagði Jón nokkuð nánar frá þessari bók sinni. Ég spurði hann um heiti hennar, Sval- heimamenn? Eru það pólfarar, sem þú ert að segja frá? Nei, nei, þetta er ættarsaga og sögu- sviðið í sunnlenzkum verstöðv- um og austur' í Arnessýslu. Sögupersónurnar eru all- margar, svo sem kollegi minn úr prestastétt, stórbændur og útvegsbændur. Þá eru systur sem skipa allmikið rúm i sögunni, og kallaðar Sandgarðs- systur, dönsk ungfrú, Daniel- sen, úr Stakksvík. Ættarsaga — með átökum um glæsimenni. í söguþræðinum er að finna þjóð- háttalýsingar með t.d. lýsingu á skipum hinna fornu útgeróar í sunnlenzkum verstöðvum o.fl. Hverjir eru nú helztu heimildamenn þínir, séra Jón? Þar koma hreint ekki fáir við sögu. Fyrst verð ég að nefna Odd Oddsson, sjómann, fræði- mann, gullsmið og miklu seinna simstöðvarstjóra á Eyrarbakka. Það fer ekki milli mála, sagði séra Jón, að Oddur, sem lézt árið 1938, ber ægishjálm yfir alla, sem ég hefi kynnzt, að fróðleik og minni. Hann var ótæmandi. Þegar ég var prestur austur í Hruna var Oddur þar í nokkra daga hjá okkur hjónunum. Skrifaði ég þá upp eftir Oddi allt þaó, sem ég gat. Mér virtist hann ákaflega fróður þessi merki fræðimaður. Aðrir heimildamenn þessarar ættarsögu minnar eru amma min, Herdís Andrésdóttir, skáldkona, d. 1938, Helgi Ágústsson, tengdasonur Odds, og Einar Jónsson, óðalsbóndi í Reykjadal í Hraunasókn. Loks er mér óhætt að hafa með í þessari upptalningu vinnu- fólkið á æskuheimili mínu, suður i Kotvogi í Höfunum. Ég var nánast sagt i verklegu námi hjá þessu fólki, þar sem það gekk að daglegum störfum sinum. Ég tel að þessi nýja saga mín eigi því það sammerkt með Ét- nesjamönnunum minum frá Ný bók eftir séra Jón fyrrum Nes- sóknarprest Stutt samtal við höfundinn árinu 1949, að vera sprottin upp úr jaróveginum kringum vinnandi fólk til sjávar og sveita, sem hafði ólrúlega verk- ntenningu og verksnilld til að bera. Og sem ofaná þetta hafði á harðbergi ótal orðatillæki og hið hreina mál alvinnulífsins. Þessi nýja bók séra Jóns Thorarensens, er rúmlega 400 bls. Kápumyndina og skreyt- ingar éið upphaf kaflanna fjóra, sem bókin skiptist í, gerði dóttir séra Jöns, Elín, en hún lærði við listahásköla suður í Madrid á Spáni. Svalheima- menn séra Jóns Thorarensens verður fimmta bók hans. Rit- höfundarferill hans nær nú orðið alllangt aftur i límann. Fyrst kvaddi hann sér hljóós árið 1929, en þá fóru að birtast eftir hann þjóðsögur, sagna- þætlir og annálar. Hér var um að ræða Rauðskinnu, sem hann kallaði svo, en R:uóskinna kom út i 12 heftum, hið siðasta þeirra kom út árið 1961. Árið 1945 skrifaði séra Jón endur- minningar Erlends á Breióaból- stað á Aiftanesi Björnssonar. Sögusviðið er Álflanes, mann- lífið þar kringum aldamólin siðustu. Næsl kom úl skáld- verkið Utnesjamenn. Það telur séra Jön vera fyrstu tilraun sina til að skrifa skáldverk. Sögusvið Utnesjamanna eru Suðurnesin, aðallega Hafna- hreppur og Miðnes — við get- um lika notað annaö heiti yfir hinn landfræðilega ramma Út- nesjamanna og sagt Kirkju- vogs- og Hvalsnéssókn. Eitt áhrifamesta atriði sögunnar er þegar stórflóð eyðilagði Bás- endakaupstað árið 1799. Út- nesjamenn hafa nú komið út i þriðju útgáfu sagði séra Jón, reyndar fyrir fjórum árum. Annað skáldverk séra Jóns kom út árið 1960. Það er skáldsagan Marina. Söguhetjuna i bókinni, Marinu, lælur Jón eiga heima á Gulltjörn í Hafnahreppi Önnur útgáfa af þessari bók séra Jöns kom-út fyrir 8 árum. Verk á undan Svalheima- mönnum var lika heildarúlgáfa á Rauðskinnu-heftunum tólf, í þremur bindum, en bætt við þjóðháttaþáttum. Þeir eru m.a. Odds Oddssonar, fræðimanns á Eyrarbakka. Bækur Jöns Thorarensens, sem hér hafa verið upptaldar, komu út á vegum ýmissa bóka- forlaga. Svalheimamenn gefur höfundur sjálfur út. Er bókin prenluö og unnin hjá Prenl- smiðjunni Odda hf. Sv.Þ. • • Gunnar Orn Gunnarsson sýnir á Kjarvalsstöðum GUNNAR Örn Gunnarsson held- ur málverkasýningu á Kjarvals- stöðum dagana 29. október til 6. nóvember nk. Á sýningunni eru 68 verk, sem listamaðurinn hefur að mestu unnið tvö síðustu ár. Gunnar, sem er algerlega sjálf- menntaður listamaður, lieldur þarna sína 9. einkasýningu, en áður hefur hann haldið sex sýn- ingar hér heima og tvær í Kaup- mannahöfn. Mannslíkaminn er viðfangsefni listamannsins í flestum verkanna. Gunnar Örn hefur málað meira og ntinna síðast liðin 13 ár, en hann hefur nú aðstöðu uppi á Korpúlfs- stöðum tU að /vinna að verkum sínum. Sagði listamaðurinn í við- tali við Morgunblaðið, að það hefði gjörbreytt allri aðstöðu sinni til að mála þegar hann fékk inni á Korpúlfsstöðum. T.d. gefur það tækifæri til að vinna mun stærri -verk en áður. Einnig er þar mun meira næði en inni í borg- inni. Sýning Gunnars Arnar er opin daglega frá 16.00—20.00 nema um helgar klukkan 14.00—22.00. Seðlasafn afhent Orðabók Háskólans til rannsóknar TVÖ af börnum sr. Jóhannesar L. L. Jóhannssonar, Guðný og Ingvi, hafa í samráði við Vilhjálm Hjálmarsson menntamálaráð- herra ákveðið, að seðlasafn úr orðabókarverki sr. Jóhannesar skuli afhent Orðabók Háskólans til nákvæmrar rannsóknar, en safnið var á sinum tíma falið Landsbókasafni til geymslu án nánari ákvörðunar að því er virð- ist um framtíðarráðstöfun þess. Þegar sr. Jóhannes lét af prest- skap 1918, tók hann að vinna að samningu visindalegrar orðabók- ar íslenzkrar tungu sem sam- starfsmaður dr. Björns Bjarna- sonar frá Viðfirði (er lést siðla árs 1918), en til þess verks hafði verið stofnað á Alþingi 1917. Árið 1920 var birt á prenti álit og til- lögur um vísindalega íslenzka orðabók ásamt sýnishorni. Höfðu þeir feðgar, sr. Jóhannes og Jakob Smári magister, samið álit- ið og tillögurnar árinu áður, en að sýnishorninu, er tekið var saman sumarið 1920, stóð ásamt^ þeim Þórbergur Þórðarson. Áætlunin um þetta orðabókar- verk var mjög víðtæk, skyldi ná til fornmáls, miðaldamáls og ný- máls — og áhersla lögð á, að safn- að skyldi sem mestu úr talmáli viðs vegar að af landinu. Sr. Jóhannes naut styrks úr ríkissjóði um árabil til verksins, en ýmsir lögðu honum jafnframt lið, og má lesa um það í Fréttum af orðabókarmálinu eftir sr. Jóhannes, er hann birti í Verði, er jafnframt komu út sérprentaðar 1928. Við fráfall sr. Jóhannesar 6. mars 1929 féll þetta orðabókar- verk niður, en þráðurinn siðan tekinn upp að nýju með Orðaljók Háskólans. (Frétt frá menntamálaráðuneytinu) Ferming FERMING í Garðakirkju á niorg- un, sunnudag, kl. 10 árdegis. Prestur séra Sigurður H. Guð mundsson. Fernul verða: Benedikt Ingþórsson, Hjallabraut ll.Hafnarf. Ingibjörg Oddný Karlsdóttir, Laufási l.Gaióabæ. Sigurbjörg Hlif Karlsdóttir, Laufási 1, Garðabæ. ívar Örn Arnarson, Miðvangi 157, Hafnarfirði. Oddur Ingólfsson, Lindarflöí 10, Garðabæ. Viglundur Magnússon, Smáraflöt 39, Garðabæ. andunnið sett K frá GJOF

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.