Morgunblaðið - 29.10.1977, Side 18

Morgunblaðið - 29.10.1977, Side 18
18 MORGUTMBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1977 Ytri-Njarðvík: 1 .. Hitaveituframkvæmd- ir á lokastigi Haustmót TK að hefjast IIAUSTMÓT Taflfélags Kópavogs hefst miðvikudaginn 2. nóvember n.k. Teflt verður að Hamraborg 1. Mótið verður með svipuðu sniði og haustmót TR og verður þátt- takendum skipt í riðla eftir Elo- styrkleika. Tefldar verða 7 um- ferðir og hafa nokkrir þekktir skákmenn skráð sig. Mótinu lýkur 25. nóvember og sunnudaginn 27. nóvember er áformað að halda hraðskákmöt og afhenda verðlaun við það tæki- færi. Taflfélag Kópavogs varð 10 ára snemma á þessu ári. Formaður félagsins er Sigurður Kristjáns- son. þeirra hefðu hafizt í maí s.I. og hefði 5. ferðin verið farin í gær, föstudag. Hingað til hefðu öll flugin verið fullbókuð. Tom Moran sagði að á döfinni hjá sér væri að stofna íslenzkt- írskt félag í Dyflinni til að auka samband þessara tveggja landa og ferðir á milli. ,,Þá er ég að svipast um eftir fólki hér á ís- landi, sem hefur áhuga á að stofna sams konar félag hér. Ferðaskrifstofa okkar í Dyfl- inni er að skipuleggja sjö ferðir hingað til lands á næsta ári. Verða nokkrar þeirra hópferð- ir, til dæmis skólafólk, og einn- ig væri athugandi í framtíðinni að flytja fólk hingað á ráðstefn- ur. En ferðirnar hingað til hafa eingöngu verið einstaklings- ferðir. Við erum einnig að hugsa um að hafa meiri fjöl- breytni í Islandsferðum á næsta ári, t.d. öræfaferðir og útileguferðir. Það er helzt mið- stéttarfólk frskt, sem kæmi til með að ferðast hingað en ég tel fullvíst að ferðamannastraum- ur tij íslands frá írlandi mun aukast á næstu árum. Þótt irar viti lítið um ísland, vita þeir allt um þorskastríðið og þann sigur sem Islendingar unnu þar. Þeir dást einlæglega af is- lendingum fyrir vikið.“ *Dr. GuðlauKur Þorbergsson. 1950. Foreldrar hans eru hjón- in Ólöf Guðmundsdóttir og Þorbergur Guðlaugsson vegg- fóðrarameistari. Frakkastíg 5 hér i bæ. Guðlaugur lauk stúdentsprófi frá M.R. árið 1970, B.Sc. prófi frá Iiáskóla islands 1973 og diplómprófi frá háskólanum í Bonn 1975. Guðlaugur starfar nú við stærðfræðistofnun háskólans í Bonn. á veg, en hún hefur verið mjög mikill fjárhagslegur baggi á okk- ur. — Fréttaritari. Doktor í stærðfræði HINN 29. júní s.l. lauk Guð- laugur Þorbergsson doktors- prófi í stærófræði frá Háskólanum í Bonn. Doktors- ritgerð hans fjallaði uni vandamál f diffurrúmfræði. Guðlaugur Þorbergsson er fæddur á Melgraseyri við ísa- fjarðardjúp 16. desember Kvenfélagið Hrinsurinn heldur sinn árlega handavinnu- og kökuhasar að Hall- veigarstöðum í dag og hefst hann klukka 14. Meðfylgjandi mynd sýnir tvær Ilringskonur með nokkurn hluta þess, sem til sölu verður á hasarnum. Ytri-Njarðvík, 26. október. ÞAÐ ER um það bil verið að lúka við gerð Hitaveitu Njarðvíkur þessa dagana. Eitt í sambandi við þessar framkvæmdir vekur at- hygli, en það er að allar fjárhags- áætlanir hafa staðist algerlega og er það örugglega einsdæmi við svona framkvæmdir. Hér hefur verið mjög mikið malbikað á þessu ári, það mesta frá upphafi, en reiknað er með að lokið verði við að malbika þær götur, sem eftir eru, næsta sumar. Að lokum má geta þess að kirkjubygging er hér komin langt INNLENT Taflfélag stofnað á Seltjarn- arnesi UM SÍÐUSTU helgi var haldinn undirbúningsfundur vegna stofn- unar Taflfélags á Selljarnarnesi. I dag klukkan 14 verður stofn- fundur félagsins haldinn í Val- húsaskóla á Seltjarnarnesi. Kaffidagur Kvenfélags Fríkirkjunnar í Hafnarfirði OÞARFI ætti að vera að fara mörgum orðum um kvenfélag kirkjunnai' og störf þess. Helztu áhugamálin eru kirkjan og safnaðarstarfið. Ber þar hæst krislilega barnastarfið, sem er eins konar óskabarn félagsins. Eru barnasamkomur í kirkjunni á hverjum sunnu- degi allan velurinn kl. 10.30 árdegis, og er þar ekkert til sparað af kvenfélagsi-ns hálfu, hvorki tími né peningar. En ekkert vínnst án peninga, hvorki hér né annars. staðar. Kvénfélagið aflar sér fjár með ýmsu móti. Á morgun, 30. október, er kaffidagur félagsins. Hefst hann að venju með barnasam- komu kl. 10.30 árdegis. Al- menn guðsþjónusta er kl. 2 síð- degis. Þar predikar sr. Ingólf- ur Guðmundsson lektor við Kennaraháskóia íslands. Eftir messu eða frá kl. 3 sfðdegis liggur leiðin í Góðtemplara- húsíð, þar sem kaffi og hvers konar kræsingar eru á borð- um, allt framreitt af kvenfé- lagskonum. Vil ég hvelja alla, sem fá því við komið, að líta þar inn með fjölskyldu eða vinum, rabba saman yfir kaffi og kökum, og styðja um leiðgott málefni. Maj'iiiis (iudjónsson safnaóarprostur. Ljóðabók frá Letri Letur hefur gefið út ljóðabókina Hanafætur í regnboganum eftir Bjarna Bernhárð, en þetta er önn- ur bók hans. í bókinni eru tólf ljóð og fjórar teikningar, sem Bjarni hefur einnig gert. Finnskt listafólk sýnir verk sín á Borgarspítalanum ÞRÍR finnskir listamenn sýna þessa dagana list sína í anddyri og á þriðju hæð Borgarspítalans. Listamennirnir eru Elina O. Sandström, Juhani Taivaljarvi og Liisa Taivaljárvi. Sýna þau 40 myndir og eru myndirnar til sölu. Juhani hefur sýnt nokkrum sinnum hér á landi og er mörgum kunnur fyrir rissmyndir sínar, eu Liisa kona hans sýnir nú í fyrsta sinn hér á Iandi. Elina Sandström hefur haldið sýningar hér áður og fengið góða dóma. Bæði Juhani og Elina hafa sýnt myndir á einka- og samsýningum í heimalandi sínu og víða í Evrópu. Vitni vantar að ákeyrslu MIÐVIKUDAGINN' 19. október var ekið á þessa bifreið, þar sem hún stóð í bifreiðastæði i Banka- stræti. Atburðurinn gerðist laus eftir klukkan 16 og var það strætisvagn, sem ók á bílinn, sem er rauður Fiat 128, coupé, R-897. Tilfinnanlega vantar vitni að ákeyrslunni og eru vitni, ef ein- hver finnast, vinsamlegast beðin að hafa samband við íögregluna í Reykjavík. (FrétlatilkynninK) Liisa Taivaljárni við eitt verka sinna, sem nú er á sýningunni á Borgarsjúkrahúsinu. Selur eingöngu ferðir til íslands TOM MORAN veitir forstöðu ferðaskrifstofunni Travel Holi- day í Dyflinni. Það væri i sjálfu sér engin frétt ef ekki vildi svo til, að hann einbeitir sér ein- göngu að því að selja ferðir tii íslands í samvinnu við Sam- vinnuferðir. Mbl. hitti IVIoran að máli í gær en hann er nú staddur í Reykjavík og undir- býr komu hundrað farþega frá Dyflinni hingað um helgina. Er þetta önnur ferðin, sem farin er til Islands á hans vegum. i Tom Moran (t.h.) ásamt Sigurði Haraldssyni sölustjóra hjá Samvinnuferðum. Ljðsm : Rax. þeirri fyrri, sem farin var i júlí s.l., voru einnig rúmlega hundrað farþegar frá Írlandi. „Ég hef alltaf haft geysilegan áhuga á Íslandi og langað til að ferðast hingað sjálfur. Ég veit að irar eru einnig forvitnir um land og þjóð, þótt almenningur þar viti Iítið um island. Þá eru þessar ferðir mjög ódýrar vegna samvinnu okkar við Sam- vinnuferðir, sem selja íslend- ingum ferðir til irlands. Þriggja daga ferð til islands kostar 78 pund og er gisting á Hótel Holti eða Hótel Hekiu innifalin. Mér er kunnugt um aðrar írskar ferðaskrifstofur, sem hafa íslandsferðir á dag- skrá hjá sér en þær ferðir eru miklu dýrari". Sigurður Haraldsson sölu- stjóri hjá Samvinnuferðum tjáði Mbl., að irlandsferðir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.