Morgunblaðið - 29.10.1977, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 29.10.1977, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÖBER 1977 19 Samkomulag um umbætur á Spáni Tito ráð- lagt að hvíla sig Bulf’rad. 28. október. Reuter. TITO forseti þjáist af þreytu og læknar hafa ráðlagt honum að hafa hægt um sig að því er júgð- slavneska fréttastofan Tanjug skýrði frá I dag. Flokksleiðtogi I Bosnfu, Branko Mikulic, sagði hins vegar á blaða- mannafundi f Sarajevo að forset- inn væri ekki veikur og að engin ástæða væri til að hafa áhyggjur af heilsufari hans. Tito er 85 ára og hefur nýlega farið til Moskvu, Norður-Kóreu, Peking, Lissabon og Algeirsborg- ar. Egypzka sendiráðið sagði frá þreytu forsetans þegar það til- kynnti í gærkvöldi að fyrirhug- aðri heimsókn Anwar Sadat for- seta hefði verið aflýst, en yfirlýs- ing Tanjug er fyrsta fréttin sem hefur verið birt innanlands um heilsu hans. Tito forseti virtist vera við góða heilsu þegar hann kom heim frá Alsir fyrr í vikunni, en að sögn egypzka sendiráðsins hafa læknar hans ráðlagt honum að hvila sig i þrjár vikur. í september veiktist Tito af lifrarsjúkdómi, en embættismenn sögðu að hann hefði náð sé að fullu og hvílt sig í nokkrar vikur við Suður-Adriahaf. Veikindi hans urðu til þess að fresta varð fyrirhugaðri heimsókn Valery Giscard d’Estaing Frakklandsfor- seta. James M. Cain látinn New York. 28. október. Reuter. BANDARlSKI rithöfundurinn James M.Cain lézt í gærkvöldi, 85 ára að aldri. Meðal kunnustu bóka hans voru „Pósturinn hringir alltaf tvisvar”, „Double Indemnity” og „Mildred Pierce“ sem voru allar kvikmynd- aðar í Hollywood. Albert Camus sagði, að hann hefði lært að skrifa skáldsögur af lestri bóka eftir Cain. Cain hefur verið kallaður fyrirrennari nú- tímahöfunda eins og Ross MacDonalds. Ritstfl hans var líkt við stíl Ernest Hemingways. Madrid. 28. okt. — Reuter. RlKISSTJÓRN Spánar hefur með stuðningi tveggja helztu stjórnarand- stöðuflokkanna — sósía- lista og kommúnista — lagt fram áætlanir, er miða að því að leysa efnahagsvanda landsins og útrýma síðustu minjum Franco-isma. Voru áætlanir þessar samþykkt- ar á spænska þinginu í gær. Sagði Adölfo Suarez forsætisráðherra við það tækifæri, að samkomulag flokkana um efnahagsmál- in, náðun pólitískra fanga, og tilraunir ríkisstjórnar- innar til að sinna óskum minnihlutahópa í landinu mætti teljast góður árang- ur í starfi frá því stjórnin tók við völdum eftir kosn- ingarnar i júní s.l. í efnahagssamkomuíag- inu er meðal annars gert Frakkar hóta hörku París, 27. okt. — Reuter. Suarez Bílasmiðiur hagnast Itnt I-..ÍI •>« nlfi _ Unntnr ” Detroit, 28. okt. — Reuter. BÍLASMIÐJUR Fords og General Motors í Banda- ríkjunum hafa báðar skýrt frá þvi að hagnaður þeirra á þriðja ársfjórð- ungi yfirstandandi árs hafi slegið öll met. Hjá Ford nam hagnaðurinn þrjá mánuðina fram að 30. september 267 millj- ónum dollara, en hjá GM 402 milljónum dollara. ráð fyrir að kauphækkanir verði ekki meiri en 22%, en á móti koma skattalækk- anir og lækkanir á kennslu- og tryggingagjöldum. Felipe Gonzales, leiðtogi sósía- lista, sagði það skyldu flokks síns að biðja flokksmenn að styðja samkomulagið, og Santiago Car- illo leiðtogi kommúnista kvaðst styðja samkomulagið af heilum hug. Skömmu áður en samkomu- lagið var samþykkt birti við- skiptaráðuneytið skýrslu þar sem dregið er í efa að það beri tilætl- aðan árangur. Segir i skýrslunni að allt bendi til þess að verðhækk- anir á næsta ári verði mun meiri en þau 15%, sem rikisstjórnnin gerir ráð fyrir, og að atvinnuleys- ingjum muni fjölga um meir en 100 þúsund, eins og ríkisstjórnin reiknar með. Kínverski kommúnistaleiðtoginn Hua Kuo-feng klappar við setningu skóla kín- verska kommúnistaflokksins sem hefur verið opnaður aftur I Peking. Öryggisaðgerðir á Spáni til að koma í veg fyrir flugrán Beirut Madrid, 28. okt. — Reuter. EFTIRMALA flugránsins á Luft- hansa-þotunni fyrr I þessuni mán- uði er alls ekki lokið. 1 Lfbanon hefur nú verið skýrt frá því að flugræningjarnir hafi verið félag- ar f sérstökum skæruliðaflokki, sem klofmað hefði út úr Frelsis- samtökum Palestfnumanna, PFLP, og eru ræningjarnir nafn- greindir. í Madrid skýrði José Llado sam- göngumálaráðherra frá því að eft- irlit yrði mjög aukið á spænskum flugvöllum á næsta ári, og yrði einum milljarði peseta (um 2.500 milljónum króna) varið til að auka flugvallaöryggið þar i landi. Lufthansa-þotunni var rænt á leiðinni frá Mallorca til Frank- furt, og tóku ræningjarnir áhöfn og farþega, alls 86 manns, í gísl- ingu, en ráninu lauk í Mogadishu í fyrri viku, sem kunnugt er, með frelsun gíslanna, allra nema flug- stjórans, sem var myrtur. í fréttinni frá Libanon segir að foringi nýja skæruliðaflokksins sé dr. Wadi Haddad, sem áður var félagi í PFLP, og þá oft viðriðinn flugrán. Er sagt að hann hafi stofnað sín eigin samtök og sagt sig úr PFLP eftir að Frelsissam- tökin lýstu sig fráhverf flugrán- um fyrir fjórum árum. Flugræningjarnir þrír, sem felldir voru við frelsun gislanna í fyrri viku voru þau Nabil Ibra- him, tvítugur Líbani, sem gekk í PFLP árið 1972, Zuhair Yussef Okasha, 23 ára og félagi i PFLP frá 1969, og Nadia Shahada Duai- ber, sem var tvitug og nemandi á þriðja ári i hagfræði. Hún var fædd i Palestínu. Þess er getið að Okasha sé eftirlýstur i Englandi fyrir morðið á Kadi Abdullah al- Hagri fyrrum forsætisráðherra Norður-Yemen í London i apríl s.l. í tilkynningu Llados samgöngu- málaráðherra í Madrid segir m.a. að komið verði fyrir nýjum raf- eindatækjum á spænskum flug- völlum til að leita á farþegum og í farangri, aðsetur fiugstjórna verði lokuð, og unnt verði að loka bæði sérstökum flugvallasvæðum, og samgönguleiðum til flugvalla og frá þeim. Þá sagði ráðherrann einnig að á næsta ári yrði tekinn í notkun nýr flugvöllur á Tenerife í Kanarí- eyja-klasanum, en mesta flugslys sögunnar varð á Los Rodeos flug- vellinum á Tenerife í marz s.l. þegar tvær flugvélar rákust sam- an og nærri 600 manns fórust. Ray dæmd- ur fyrir að flýja úr fangelsinu í Tennessee Wartburg, Tennessee, 28. okt. — AP, Reuter. JAMES Earl Ray var I gær dæmdur fyrir flótta úr Brushy Mountain rfkisfangelsinu I Tennessee, þar sem hann hefur verið að afplána 99 ára fangels- isdðm fyrir morðið á dr. Martin Luther King árið 1968. Ray hlaut eins til tveggja ára fangelsisdóm fyrir flóttann, en honum tókst að strúkja úr fang- elsinu 10. júni s.l., en náðist aftur eftir tvo daga. I yfir- heyrslu vegna flóttans sagði Ray að hann hefði strokið úr fangelsinu til þess að geta lagt meiri áherzlu á kröfu sina um ný réttarhöld vegna morðmáls- ins. Lögmaður Rays í flóttamál- inu er Mark Lane, landskunnur lögfræðingur, sem mikið hefur unnið á eigin vegum að rann- söknum á morðunum á dr. King og John F. Kennedy fyrrum forseta. Þegar Lane spurði Ray James Earl Ray hvers vegna hann hefði strokið, svaraði Ray: „Það var ætiun min, eftir að hafa gengið laus um nokkurt skeið, að reyna að komast að samkomulagi við Griffin Bell dómsmálaráðherra um ný réttarhöld í King- rnálinu.” Taldi Ray að ekki hefði verið um neina aðra leið að verlja til að fá málið tekið fyrir að nýju. 12 vikur á valdi mann- ræningja Sherbrooke, Quebec, 28. okl. — Reuter. CHARLES Marion, 57 ára bankastarfsmaður, sem rænt var 6. ágúst s.I., var látinn laus f gærkvöldi, og lauk þar með 12 vikna fangavist hans I ræn- ingja höndum. Að sögn lög- reglunnar var Marion látinn laus eftir að sonur hans greiddi mannræningjunum 50 þúsund dollara lausnargjald seint I fyrrakvöld. Þrisvar sinnum áður hefur verið reynt að koma lausnar- fénu til mannræningjanna, en í öll þau skipti hafði lögreglan umkringt staðinn, þar sem peningarnir voru skildir eftir. I þetta skiptið virðist lögreglan ekki hafa haft nein afskipti af málinu. Marion fannst á göngu skammt frá flugvelli við Sher- brooke eftir að hringt hafði verið til fjölskyldunnar og til- kynnt hvar bæri að leita hans. YVON Bourges varnarmálaráð- herra sagði í dag að ekki væri útilokað að franska hernum yrði beitt til að leysa úr haldi franska borgara, sem skæruliðar f Norð- ur-Mauritanfu hafa rænt. For- dæmdi hann mannránin, sem tal- ið er að Polisario-skæruliðar, er berjast fyrir sjálfstæði Vestur- Sahara, standi að, og krafðist þess að mennirnir yrðu tafarlaust látn- ir iausir. Tveir franskir járnbrautar- tæknifræðingar hurfu á miðviku- dag, og sex járnbrautarstjórum var rænt fyrr á þessu ári. í bæði skiptin gerðist þetta við námu- bæinn Zouerate. Sagði Bourges i ræðu á fundi brezk-franska blaða- mannasambandsins i Paris að unnið væri að því að fá gislana látna lausa i gegnum opinbera aðila, en bætti þvi við að franski herinn hefði á takteinum áætlan- ir til að mæta alls kyns vandamál- um, „og vil ég ekki útiloka neina þeirra“, sagði ráðherrann. ERLENT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.