Morgunblaðið - 29.10.1977, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.10.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. OKTOBER 1977 23 Brldge Umsjón: ARNÓR RAGNARSSON Bridgesamband Austurlands Eins og fram hefir komið hélt Bridgesamband Austurlands barometerkeppni um slðustu helgi með þátttöku 28 para og var einu pari boðið frá Reykja- vik. Voru það Hjalti Eliasson og Einar Þorfinnsson sem fóru og kepptu við heimamenn. Röð efstu para varð þessi: Ásgeir Methúsalemsson — Þorsteinn Ölafsson 229 Hjalti Eliasson — Einar Þorfinnsson 224 Steinþór Magnússon — Sigurjón Jónasson 204 Þorleifur Kristmundsson — Olafur Bergþórsson 199 Aðalsteinn Jónsson — Sölvi Sigurðssin 191 Mótið fór hið besta fram en alls voru spiluð 108 spil eða 6 spil við hvert par. Forseti BSt, Hjalti Elíasson, kom með um 40 bókatitla sem sambandið hefir til sölu, til að sýna heimamönnum og gerði Reyðarfjarðarhreppur sér lítið ^ fyrir og keypti allan bunkann og gaf Bridgesambandi Austur- lands. Var vel'að þvi staðið og á hreppurinn miklar þakkir skildar fyrir velvildina. Bridgefélag Suðurnesja Þriggja kvölda hraðsveita- keppni félagsins lauk nýlega. 7 sveitir tóku þátt í keppninni. Sveit Marons Björnssonar frá Sandgerði sigraði örugglega með 686 stig. Keppnin var mjög jöfn og til marks um það má nefna að sveit Gísla Torfasonar hafnaði i öðru sæti en var i næst neðsta sæti eftir tvö kvöld. Röð efstu sveita: Sveit Marons Björnssonar Sandgerði 686 Sveit Gisla Torfasonar Keflavik • 653 Sveit Sveinbjörns Berentss. Sandgerði 651 Sveit Haralds Brynjólfss. Keflavik 641 Aðalsveitakeppni félagsins hófst sl. þriðjudag. 8 sveitir taka þátt i keppninni og er staða efstu sveita eftir eina um- ferð þessi: Sveit Haralds Brynjólfss. Keflavík 20 Sveit Jóhannesar Sigurðss. Keflavík 18 . Sveit Gunnars Sigurgeirss. Grindavík 16 Fram til áramóta verður spil- að á fimmtudögum i Stapa og verður önnur umferðin spiluð á fimmtudaginn kemur. Barðstrendinga- félagið í Reykjavík 4 kvöldum af fimm er nú lok- ið i Bridgekeppni félagsins. 8 efstu eru þessir: Birgir Magnússon — Viðar Guðmundsson 931 Einar Bjarnason — Kristinn Öskarsson 916 Eggert Kjartansson — Ragnar Þorsteinsson 899 Finnbogi Finnbogason — Þórarinn Arnason 887 Haukur Zophoniasson — Viðar Guðmundsson 880 Einar Jónsson — Gisli Benjamínsson 856 Hermann Olafsson — Sigurður Kristjánsdson 846 Edda Thorlacius — Sigurður Isaksson 835 Hraðsveitarkeppni félagsins hefst 7. nóv. í Domus Medica kl. 19.45 stundvislega. Af Göflurum Að loknum þremur umferð- um af fjórum í tvimmennings- keppni BH. er staða efstu manna þessi: Björn Eysteinsson — Magnús Jóhannsson 593 Kristján Ölafsson — Ölafur Gislason 591 Jón Gislason — Þórir Sigursteinss. 550 Einar Árnason — Þorsteinn Þorsteinss. 545 Albert Þorsteinsson — Sigurður Emilsson 545 Bjarni Jóhannsson — Vilhjálmur Einarss. 529 Árni Þorvaldsson — Sævar Magnússon 525 Dröfn Guðmundsd. — Einar Sigurðsson 518 Þeir Björn — Magnús og Kristján — Ölafur hafa sem sjá má illu heilli tekið þá ákvörðun að hle.vpa hinu fólkinu ekkert að í toppbaráttuna. Öllu fleiri berjast um 3. sætið og er það vei. Siðasta umferðin verður spiluð n.k. mánudag. Bridgefélag Akraness Firmakeppni félagsins sem jafnframt var einmenningskeppni vetrarins er fyrir nokkru lokið og urðu úrslit þessi: Tveggja kvölda einmenningur: Kjartan Guðmundsson 213 Jón Z. Sigriksson 213 Alfreð Viktorsson 210 Þorvaldur Guðmundsson 206 Andrés Ölafsson 202 Jón Alfreðsson 199 Valur Sigurðsson 198 Björgvin Bjarnason 197 GuðniJónsson 196 Karl Alfreðsson 193 Guðjón Guðmundsson 192 Alfreð Kristjánsson 189 Firmakeppnin: Fyrirtæki: 1. Skagaver h.f. 2. Sildar & Fiskimjölsv. 3—4. Verzl. Valfell 3— 4. Fiskiðjan Arctic 5. Nötastöðin h.f. 6— 7. Landsbankinn 6— 7. Fatagerðin h.f. 8. Ura & Skartgr.v. H.J. 9—10. Þorgeir & Ellert h.f. 9—10. Skagaprjón 11. Verzl. Einar Ölafss. 12. Bifr. Brautin 13. Prentv. Akraness 14. Hótel Akraness 15. Akraneskaupstaður Keppandi: Stig: Kjartan Guðmundss. 111 Aifreð Kristjánss. 110 Jón Alfreðss. 109 Alfreð Viktorss 109 Jón Z. Sigríksson 107 Andrés Ölafsson 106 Jón Z. Sigríksson 106 Guðni Jónsson 103 Guðjón Guðmundss. 102 Kjai tan Guðmundss. 102 Alfreð Viktorsson 101 Valur Sigurðsson 100 Eirfkur Jónsson 99 Valur Sigurðsson 98 Björgvin Bjai nason 97 Einar H. Ásgrímsson: I NY KOSNINGASKIPAN Stóru kjör- dæmin hafa rofið per- sónnlegu tengslin milli þingmanna og kjósenda Alþingismenn eru kosnar af landsmönnum til að stjórna þjóófélaginu i þágu lands- manna. Til að vita vilja lands- manna er þingmönnum nauð- syn á nánum persónulegum tengslum við fólkið í kjördæm- unum. Þar nægir ekki að neinu leyti milliganga sjónvarps eða flokksbláða. Þjónustustarf Sem betur fer veljst sjaldan aðrir i framboð en menn, sem bera í brjósti svo sterka þrá eftir völdum, að þeir eru reiðu- búnir að leggja dag við nott til þess að inna þetta vandasama þjónustustarf af hendi, að stjórna rikinu í þágu lands- manna. Það kostar mikla elju að bæta þvi við fullan vinnudag að kanna sjálfur hugsunarhátt almennings í hverju aðsteðj- andi úrlausnarefni. Hverjum eiga svo þingmenn að veita forystu og að stjórna? Að sjálfsögðu þessum sömu landsmönnum sinum. Af þeirri ástæðu er þingmönnum enn meiri nauðsyn á traustum persónulegum tengslum við fólkið i kjördæminu. Misbrestur Því þingmaðurinn verður fyrst að ganga úr skugga um, að hann geti unnið fylgi þess fólks sem hann þekkir við hugmynd, sem hann hyggst fá alla lands- menn til að tileinka sér. Til þess þarf þingmaðurinn að þekkja kjósendur í kjör- dæminu sinu svo vel, aó honum sé ljóst, hyenær þaó er ytri skel kjósandans, sem endurómar sleggjudóma flokksblaða, út- varps eða sjónvarps, og hvenær orð kjósandans koma frá hans innra manni og mótast af hugs- un hans einni og Iífsviðhorfi. Einungis þá eru orð kjósandans gild sem skoðun hans sjálfs og vísbending um líkleg viðbrögð annarra landsmanna. Á svo nánum tengsium þing- manna við kjósendur hefur því miður viljað verða misbrestur síðan kjördæmin voru stækkuð. Framsóknarmenn vöruðu réttilega, fyrirfram við þessum alvarlega galla á kosningar- skipaninni frá 1959, að stóru kjördæmin myndu rjúfa persónuleg tengsl þingmanna við kjósendur. Samt hefur þess- 3. grein um galla verið skammarlega lít- ill gaumur gefinn, þangað til þetta er nú orðió alvarlegt vandamál. Vágestur Sannarlega er þaö kald- hæðnislegt, að stóru kjördæmin hafa getið af sér vágest, sem alls ekki á heima hér á landi i voru fámenna og tiltölulega fábrotna þjóðfélagi. Hér er átt við það háskalega fyrirbæri, hve mjög þingmönnum og sér- staklega ráðherrum hættir til að slitna úr tengslum við kjös- endur og lífsviðhorf þeirra, en þess í stað lokast inni i hugs- unarheimi þrýstihópanna. í einræðisrikjum er þessi vandi valdhafans óleysanlegur. 1 stóru lýðræðisríkjunum er glíman við þennan vanda höfuðviðfangsefni ráóherr- anna. I voru fámenna landi ætti þetta ekki að vera neitt vanda- mál, en hefur orðið allskeinu- hætt ráðherrum úr öllum flokk- um, eftir að kjördæmin urðu óviðráöanlega stór. Stellingar Það hefur gert illt verra* að sjónvarpió virðist hafa séð sér þann leik á borði til að bæta úr tilfinnanlegum skorti sínum á innlendu efni, áð setja sig í þær stellingar i hverju einu póli- tísku máli, sem upp kemur, að þykjast túlka vilja fólksins í landinu fyrir valdhöfunum. Svo ömurlegir sem þeir til- burðir sjónvarpsins eru, þá eru þeir stórhættulegir lýðræðinu i landinu, og er það sárgrætilegt, hve ráðþrota þingmenn og ráð- herrar standa gagnvart þeim, en þar er engu um að kenna nema því, að tengsl þeirra við kjósendur eru slitin. Ógæfuhlið Að sumu leyti hefur kosn- ingaskipanin frá 1959 reynst þokkaleg. Hún náði að jafna til muna kosningarétt landsmanna þött aftur sé farið að síga á ógæfuhliðina í því efni, nú að nær tveimur áratugum liðnum. Fyrri áratuginn sá kosninga- skipanin frá 1959 lýðveldinu fyrir bezta stjórnarfari, sem ís- lendingar höfum kynnst. Og sú spá Framsóknarmanna, aö hún myndi orsaka landauðn i dreif- býliskjördæmum landsins, reyndist ekki á rökum reist. Varamenn Hvimleiður gallí á núverandi kosningaskipan er, að litió skuli á landskjörna þingmenn sem séu þeir hálf utanveltu við þau völd og áhrif sem þeim ber til jafns við kjördæmakosna þing- menn, því þetta eru einmitt þróttmestu þingmennirnir, sem standa í baráttusætunum. En hvimleiðari galli er, hve stríður straumur varamanna er inn á Alþingi allt þinghaldk). Þeir eru ekki búnir að heilsa öllum þingmönnum, þegar þeir mega fara að kveðja aftur, og fá þvi aldrei tíma til að setja sig inn í þingstörfin. Samt er það svo, að oftsinnis heyrist ekki af Alþingi dögum saman nema fréttir af varaþingmönnum. Þær sannfæra landsmenn um, að tengsl þeirra við Alþingi séu svo gjörsamlega slitin, að þeir viti ekki einu sinni hvað þing- menn heiti. Eins bráðnauðsynlegir og varamenn eru til að tryggja starfhæfan stjórnafmeirihluta milli kosninga, þá er þetta fyr- irkomulag meingallað, hve margir þeir eru og hve fáa daga hver og einn situr þingið. Benedikt Gunn- arsson sýnir 100 málverk á Kjarvalsstöðum BENEDIKT Gunnarsson heldur mál- verkasýningu á Kjarvalsstöðum dagana 29. október til 6. nóvember n.k. Er þetta 14. einkasýning Benedikts, en þær hefur hann verið með víðs vegar um landið og eina í París. Benedikt stundaði nám á árunum 1945—1953 við Myndlista- og handíðaskóla íslands. Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn og listaskóla R. P. Böyesens i Rikislislasafninu i Kaupmannahöfn. Ennfremur listnám í Frakklandi og Spáni. Mynd- listakennarapróf frá Myndlista- og handiðaskóla íslands og Kennaraskóla islands. Hann var kennari við Myndlista-og handíðaskóla Íslands 1959—1968 og Kennaraskóla Islands siðan 1965. Benedikt er nú lektor við Kennarahásköla islands. Eins og áður sagði hefur Benedikt verið með 14 einkasýningar, en þar að auki hefur hann lekið þátt i fjölda samsýninga viðs vegar, bæði hér á landi og erlendis. Málverk eftir Benedikt eru m.a. í Lislasafni islands, Listasafni A.S.Í., Listasafni Kópavogs, Listasafni Keflavíkur og mörgum einkasöfnum er- lendis. Einnig hefur Benedikt gert ljölda vegg- mynda og skre.vtinga viðs vegar um land. Sýning Benedikts verður opin daglega lrá 14.00—22.00, nema mánudaga en þá eru Kjarvals- staöir lokaðir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.