Morgunblaðið - 02.11.1977, Side 7
MORGL'NBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1977
7
NY DAGSBRUN
MÁLGAGN ISLENSKRA SOSlALISTA
8. tölublað
September 1977
9 árgangu
Sjónarspil og
sannfæring
Alþýðubandalagið hefur
tileinkað sér margs konar
skoðanaleg gervi í sýni-
glugga sínum, Þjóðviljan-
um, til að höfða til sem
flestra, eins og hæfir
hentustefnuflokki. Hin
nýja stefnuskrá flokksins
gengur manna á milli und-
ir heitinu lopinn — því
hana má teygja í allar átt-
ir, eftir þvi hvern veg
vindur blæs á skoðana-
markaði vinstri hreyfingar
á íslandi. Flokkskjarninn,
sem að baki felst, horfir
með hryggð á prófkjörs-
þróun i öðrum flokkum,
en öngvu að siður „meir
en trúr og tryggur" hinum
fornu kenningum
Marx/Lenin Stalinis-
mans. Hann hefur engu
gleymt og ekkert lært i
tímans rás. Sértrúarritið
„Ný dagsbrún", sem
kemur út mánaðarlega
(útgefandi Sósialistafélag
Reykjavikur), bergmálar
hina gömlu grafarraust,
sem þykir betur geymd
um sindi i Þjóðviljanum
— til betri tiðar. Þar er
gert góðlátlegt grin að
sýnigluggasjónarmiðum
Þjóðviljans og menn
minntir á, að halda þurfi i
heiðri hin fornu heit. Þótt
goð lýðræðis og þingræð-
is séu blótuð i blekkingar-
skyni um sinn.
Spennitreyja
þingræðisins
í septemberhefti Nýrrar
dagsbrúnar 1977 er ráðizt
hart gegn allri endurskoð-
un hinna fornhelgu trúar-
játninga Stalíntíma bils
ins. Þar er þvi haldið
fram, felulaust, að Marx
hafi „ekki hneppt bylt-
ingarbaráttu verkalýðsins
í spennitreyju lýðræðis-
ins", eins og það er orð-
að. Ennfremur: „Marx var
ekki lýðræðissinni i skiln-
ingi Alþýðubandalagsins
og Evrópukommúnism-
ans, þ.e. ekki þingræðis-
sinni. Marx telur tvimæla-
laust að sigur verkalýðs-
ins og sósialismans þýði
AFNÁM ÞINGRÆÐIS-
SKIPULAGSINS." Þá var
ar blaðið við þvi að taka
hina „islenzku atvinnu-
stefnu" Alþýðubandalags-
ins of hátiðlega. Talað er
um að flokkurinn sé „með
skoffin i burðarliðnum,
sem hlotið hafi nafnið „ís-
lenzk atvinnustefna". Til
gangurinn virðist eiga að
vera alhliða viðreisn auð-
vaidsrekstursins — á
þjóðlegum grunni. Þjóð-
legt arðrán, það er lausn-
in". Ljótt er að heyra um
lopann þeirra i Þjóðviljan-
um. Skoffin, sem atvinnu-
stefna Alþýðubandalags-
ins er kýlluð, er i islenzkri
orðabók skilgreint sem af-
kvæmi refs og kattar.
Þetta kemur heim og
saman við það alþýðumat,
að þeir vóru refir kallaðir,
er vóru eitt i orði og ann-
að á borði.
„Alræði
öreiganna”
í þessu strangtrúarblaði
stendur orðrétt: „Af
þessu leiðir að enginn
sósialisti, sem ber nafn
með réttu, elur með sér
þá FÁSINNU að þvinga
verkalýðsbaráttu i þröng-
ar skorður þingræðisins,
eða að unnt sé að yfirtaka
rikisvald borgaranna með
því einu að setja fulltrúa i
verkalýðsins i ráðherra- '
stöðurnar. Á byltingartim- |
um ER SLÍK ÞINGRÆÐIS .
KRAFA BEINLÍNIS AFT- »
URHALDSKREDDA. Bylt- |
ingarástand brýtur öll ■
form sem fyrir eru. .
Enn segir: „Á hinn bóg- |
inn er það á allra vitorði ■
að hvarvetna i heiminum >
þar sem alþýðunni hefur |
orðið sigurs auðið yfir .
auðvaldi og imperialisma •
hefur það gerst undir i
merkjum og með leiðsögn '
byltingarkenninga marx- |
ismans. Sósialisminn hef- ■
ur hvergi sigrað með þing- '
ræðisbaráttu. Ekkert |
sósialískt riki er þing- .
ræðisriki. Öll sósialisk riki I
eru i einu eða öðru formi |
alræði öreiganna. Þetta er .
heimssöguleg staðreynd, I
sem ekki verður fram hjá |
komist."
Hér er tæpitungulaust I
talað um afnám þingræðis I
og lýðræðis. Hvatt til
þjóðfélagshátta sem nú |
rikjá i A-Evrópu og hafa I
skert almenn þegnrétt-
indi, bæði félagsleg og |
efnahagsleg Það er gert I
litið úr tilraunum Alþýðu-
bandalagsins til að felast |
að baki sósialdemókratís- I
ins, þykjast jafnaðar- '
mannaf lokkur, þegar |
markmiðið sé bylting og j
kommúniskt þjóðskipu- '
lag.
MÓNUSTAN
Búið bílinn undir veturinn
Við bjóðum eftirtalda þjónustu í því skyni fyrir lágt verð,
kr. 8.800 fyrir 4 cyl bíl og kr. 10.300 fyrir 6 eða 8 cyl
1. Mótorstilling
Stilltir ventlar
Head hert
Blöndungur hreinsaður
Bensínkerfið athugað
Bensíndæla hreinsuð
Kerti athuguð
Þjöppun mæld
Platínur stilltar
Kveikjuþétti athuguð
Kveikjuþræðir athugaðir
Kveikjulok og hamar athugað
Kveikja smurð
Viftureim athuguð
Loftsía athuguð
Frostlögur mældur
2. Undirvagn
Púströr athugað
Höggdeyfar athugaðir
Athugað hvort leki úr mótor,
gírkassa eða drifi
3. Tengsli stillt
4. Þurrkuarmar
og rúðusprautur
athugaðar
5. Stýrisgangur
Slit í stýrisupphengju athuguð
Slit í spindlum athugað
Slit í miðstýrisstöng athugað
Slit í stýrisvél athugað
6. Hemlar
Vökvamagn athugað
Hemlaátak jafnað
Handhemill athugaður
7. Ljós athuguð
Vatnsþéttur
krossvióur
Mótakrossviður,
Combi krossviður,
harðviðarkrossviður
í ýmsum þykktum.
Timburverzlunin
Vöiundur hf.
KLAPPARSTÍG 1. SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244
HJÓLHÚSAKLÚBBURÍSLANDS
AÐALFUNDUR 1977
verður haldinn í Skíðaskálanum Hveradölum, sunnudag-
inn 13 nóv n.k. kl 1 4 30. Venjuleg aðalfundarstörf
Fjölmennið og mætið stundvislega. STJÓRNIN.
Ekki bara talstöð
heldur Effect 512S
ny
sending
komin
BENC0
Bolholti 4,
sími 91-21945, Reykjavík
Símaskráin 1978
Símnotendur í Reykjavík, Seltjarnarnesi,
Kópavogi, Garða- og Bessastaðahreppi
og Hafnarfirði.
Vegna útgáfu nýrrar simaskrár er naúðsynlegt
að senda skriflegar breytingar, ef einhverjar
eru, fyrir 15. nóv. n.k. til Skrifstofu símaskrár-
innar, Landssímahúsinu við Austurvöll.
Nauðsynlegt er að viðkomandi rétthafi síma-
númers tilkynni skriflega um breytingar, ef
einhverjar eru. Athugið að skrifa greinilega.
Athygli skal nánar vakin á auglýsingu um
breytingar í símaskrána á baksíðu kápu síma-
skrár 1977, innanverðri.
Atvinnu- og viðskiptaskráin verður prentuð í
gulum lit og geta símnotendur birt smá-
auglýsingar þar, sem eru ódýrari en aug-
lýsingar í nafnaskrá, enda takmarkaður fjöldi
auglýsinga sem hægt er að birta í nafnaskránni.
Nánari upplýsingar í símum 22356 og 26000
og á skrifstofu símaskrárinnar.
Ritstjóri simaskrárinnar.