Morgunblaðið - 02.11.1977, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. NÖVEMBER 1977
25
fclk f
fréttum
ORÐ I EYRA
Hið íslenzka
lúsaverndarfélag
+ Kvikmyndaleikkonan Elisa-
bet Ta.vlor upplýsti nýlega í
sjónvarpsviðtali að milljóna-
mæringurinn Iloward Hughes
hefði boðið sér eina milljón
dollara fyrir 25 árum, ef hún
vildi giftast sér. Hún hafnaði
tilboðinu og tveimur vikum
sfðar giftist hún enska
leikaranum Michael Wilding.
+ Söngvarinn og leikarinn
Bing Crosby var jarðsettur f
Los Angeles 18. þessa mánað-
ar. Það voru synir hans sem
báru kistuna að gröfinni en
þeir eru: (talið frá vinstri)
Nathaniel, Harry, Dennis,
Lindsey og Phillip.
+ Það er gott að láta mömmu mata sig. Þessi lítli
fílsungi á heima í dýragarðinum í Chester á Englandi
og er fyrsti filsunginn sem fæðist í dýragarði þar í
landi.
ÞAÐ eru ekki margir leikarar
sem kunna þá list, eða hafa efni
á að segja: „Þetta hlutverk
hentar mér ekki“. Claudia
Cardinale getur það og hefur
líka gert það ótal sinnum.
„Handritin sem ég hef fengið
Claudia og systir hennar
Blanch
frá frönskum framleiðendum
hafa ekki verið áhugaverð,"
segir hún. En siðastliðið sumar
hefur hún dvalið í París og leik-
ið í franskri mynd, „La Part du
Feu“. Með henni i París var
systir hennar, Blanch
Cardinale, sem nú hefur aftur
tekið upp sitt fyrra starf sem
einkaritari systur sinnar.
Claudia á að baki sér tvö hjóna-
bönd og báðir voru eiginmenn
hennar italskir. Þegar Claudia
dvaldi i Paris í sumar kom það
henni þægilega á óvart að lagið
„Love Affair“ sem hún söng
inn á plötu fyrir löngu sfðan
hafði „slegið i gegn“ og var
vinsælasta lag sumarsins.
Claudia í lilutverki síuu í
myndinni „La Part du Feu“.
Eins og flestum menningar-
vitum er kunnugt var stofnað
til mjög merkilegra samtaka
hér á dögunum. Félagsskapur
sá hefúr hlotið nafnið Hið ís-
lenska lúsaverndunarfélag. —
Fannst stofnendum að tlmi
væri til kominn að sýna dýri
þessu, sem ofsótt hefur verið
og ófrægt allar götur frá því
fyrir aldamót, einhvurn vott
skilnings og samúðar. Enda
mun máia sannast að fá
kykvendi hafa verið jafntrygg-
ir förunautar forfeðra vorra
sem þessar smáu lífverur og er
þá hvorki gleymt hundum né
refum og öðrum dýrbítum.
I sögulega gagnmerku
ávarpi stjórnar samtakanna til
þjóðarinnar segir meðal ann-
ars:
„í tilefni af því að nú eru
liðin 1000 ár, að áliti hinna
fróðustu manna, sfðan Lúsoddi
geispaði golunni, — en hann
er fyrsti sanni lúsablesinn sem
sögur fara af —, höfum við,
nokkrir áhugamenn um lúsa-
vernd, ákveðið að stofna sam-
tök til verndar þessu þjóðlega
dýri.
Á öldinni sem leið en þó
einkum á vorri tfð hafa alls
konar stertimenn, með lækna
og hjúkrunarfræðinga ■ broddi
fylkingar, unnið skipulega og
kerfisbundið að aflúsun þjóð-
arinnar. Er nú svo komið að
fjölmiðlafóður þykir ef ein og
Innbrot í
Hveragerði
Hveragerdi 31. október
UM HELGINA var brotizt inn í
bifreiðaverkstæði Aage Michel-
sen að Austurmörk 4 og stolið
þaðan öllum lauslegum verkfær-
um, og er tjónið lilfinnanlegt.
Einnig var stolió bensíni af bílum
sem voru til viðgerðar á verk-
stæðinu. Að sögn Aages þá var
með naumindum að hann gat
haldið áfram viðgerð á bílum, sem
voru á verkstæðinu í dag, sökum
verkfæraskorts.
Lögreglan á Selfossi er með
málið til rannsóknar. tirorx
AFL I
FRAM- 1
FARA
MANNHEIM
4-gengis Diesel-vólar fyrir
hjálparsett
33 hesta viB 1500 sn.
39 hesta viS 1800 sn.
43 hesta vi5 2000 sn.
44 hesta viS 1 500 sn.
52 hesta við 1800 sn.
57 hesta við 2000 sn.
66 hesta viS 1 500 sn.
78 hesta viS 1800 sn.
86 hesta viS 2000 sn.
100 hesta viS 1 500 sn.
112 hesta við 1800 sn.
119 hesta viS 2000 sn
meS rafræsingu og sjólfvirkri
stöðvun.
StaiMwgwir <Jibinse(asi &
vcsnnGOru » - sImai i«ao • nnao — ros us~
ein títla finnst á barnkorni í
skóium landsins. — Er þó vit-
að mál fátt er hcilsusamlegra
fyrir Ifkama og sál en að halda
nokkrum pedikúlum til haga í
hársverði sínum eður hvar
annars staðar sem tök eru á.
Þessari síðustu staðhæfingu
til sönnunar iná geta þess að
ekki er vitað til að einn einasti
lúsablesi hafi andast úr
lungnakrabba eða sálast úr
kransæðastíflu. Hins vegar
hrynja lúsleysingjar niður úr
þessum kvillum. Þá er ekki til
þess vitað að nokkur grálúsug-
ur táningur hafi orðið fyrir bfl
eða öðru vélknúnu ökutæki þó
svo allverulegur fjöldi lúsa-
lausra hafi blásið út í umferð-
arslysum.
Samtökin hafa ákveðið að
setja á laggirnar lúsaræktun-
arstöð. Mun þar lögð sérstök
áhersla á að leggja rækt við
sérkenni íslenska stofnsins,
nitsemi hans og gagnsemi fyr-
ir íslenskt þjóðlíf fyrr og síð-
ar.“
Svo mörg eru þau orð og
mega nú samtök áhugamanna
um ditten-og-datten fara að
vara sig.
Hitamælar
Vesturgötu 16,
sími 13280.
Dömur á öllum aldri í Keflavík
og nágrenni ath.
Frá „Toppi til táar"
er námskeið fyrir konur á öllum aldrei eða frá 1 6 ára til sextugs
Þið lærið:
rétt og betra göngulag, almenna framkomu, snyrtingu, rétt
mataræði, likamsrækt o fl
Frá „Toppi til táar"
er námskeið sem hver kona ætti að notfæra sér, það hjálpar meðal
annars til að auka sjálfsöryggið og er til ánægju
Uppl. og innritun er í síma 8443
Kennsla hefst 7. nóv. Skóli Guðmundu