Morgunblaðið - 04.11.1977, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. NÖVEMBER 1977
19
— Veruleg aukning
Framhald af bls. 17
leið. Auk þess þarf að gera nýjum atvinnuvegum og
gömlum jafn hátt undir höfði i lánamálum, en að þvi
hafa vaxtaákvarðanir á þessu ári einmitt miðað.
Viðskiptaráðherra hefur falið Seðlabanka íslands að
kanna vandlega leiðir til þess að rýmka rétt manna til
að eiga gjaldeyri og stofna til gjaldeyrisreikninga við
íslenska banka með eðlilegri ávöxtun og yfirfærslueftir-
liti, í þvi skyni að fjölga leiðum til að verðtryggja
sparnað. Gæti slik nýbreytni bæði aukið gjaldeyrisskil
og innlendan sparnað.
Enginn vafi leikur á því, að raunhæf láns- og ávöxtun-
arkjör eru forsenda aukins frjálsræðis á lánamarkaðn-
um, þar sem jafnvægi framboðs og eftirspurnar komi i
stað skömmtunar og forréttindakerfis. En slík breyting
er líka forsenda þess, að hægt sé að auka frelsi í
gjaldeyrisviðskiptum. Sé þetta skref stigið til fulls, svo
að peningaeign á Íslandi væri þannig ávöxtuð, að hún
væri ætíð jafngild erlendri eign, gæti það reynst jafn
afdrifaríkt fyrir efnahagslegt jafnvægi og framfarir og
friverslunarbreytingarnar áður. Þetta er sú grundvall-
arbreyting í peningaviðskiptum í landinu, sem nauðsyn-
legt er, að stefnt sé að.
ATVINNUSTEFNA
_____________NÆSTU ÁRA____________________
Reynsla siðustu ára og áratuga, með miklum sveiflum
í útflutningstekjum og þar af leiðandi tekjuskiptingar-
og verðbólguvanda, sýnir ótvírætt þörfina fyrir tvennt:
Annars vegar, að Íslendingar hafi einir óskoruð yfirráð
auðlinda sjávarins kringum landið, svo að þeir geti nýtt
fiskstofnana skynsamlega og tryggt viðgang þeirra, og
hins vegar að auka þurfi fjölbreytni atvinnuveganna,
ekki síst útflutningsatvinnuveganna. Hið síðara er þeim
mun brýnna sem fiskstofnunum eru meiri takmörk sett.
Það er augljóst að skjóta þarf nýjum stoðum undir
atvinnuvegina til þess að fjölgandi þjóð séu tryggð góð
lífskjör. Þannig er það helsta verkefnið i íslenskum
atvinnumálum að tryggja framfarir annars vegar á
grundvelli sjávarútvegs og annarra hefðbundinna
greina, og hins vegar hvers konar iðnaðar, sem hagnýtir
orkulindir landsins, sérstök hráefni þess og verkþekk-
ingu landsmanna. Þessar leiðir liggja saman, ef rétt er á
haldið. í báðum tilfellum ergreiður aðgangur að heims-
markaði nauðsynlegt skilyrði fyrir framförum.
í sjávarútvegi eru nú tvö verkefni brýnust. Annars
vegar verður að leysa rekstrarvanda fiskvinnslunnar í
landinu, sem nú glímir við rekstrarhalla vegna örrar
kostnaðarhækkunar og breytinga í skiptingu afla milli
landshluta. Hins vegar er framtiðarmálið stjórn fisk-
veiða, einkum sóknar i þorskstofninn, og til fjárfesting-
ar til fiskveiða.
Drög hafa þegar verið lögð að lausn rekstrarvanda
frystihúsanna með því að viðmiðunarverð til fisk-
vinnslustöðva hefur verið hækkað og önnur fyrir-
greiðsla aukin til að bæta nýtingu hráefnis, fjármagns
ög starfskrafta í fiskvinnslufyrirtækjum, sem átt hafa í
rekstrarörðugleikum. Þessar ráðstafanir verða nánar
ákveðnar á næstu vikum, en nú er lokið athugun
Þjóðhagsstofnunar á stöðu fiskvinnslunnar. En við blas-
ir vandi vegna fyrirsjáanlegrar kostnaðarhækkunar.
Stjórn fiskveiða hefur verið mjög til umræðu á þessu
ári. Nú virðast horfur á, að útilokun erlendra veiðiskipa
frá Islandsmiðum og veiðitakmarkanir fyrir islensk
skip muni takmarka þorskaflann á íslandsmiðum við
um það bil 325 þúsund tonn. Þessi afli er verulega yfir
þeim mörkum, sem fiskifræðingar hafa ráðlagt, þ.e. 275
þúsund tonnum, en felur þó i sér 20—25 þúsund tonna
minni heildarafla en 1976. Á næstu árum ríður á að
takmarka sókn í þorskstofninn, en örva til sóknar i aðra
stofna, sem ekki eru ofnýttir. Þetta hefur einmitt tekist
að verulegu marki á þessu ári.
Ríkisstjórni telur hins vegar, að ekki sé, af félagsleg-
um og efnahagslegum ástæðum, unnt að beita svo
harkalegri takmörkun sóknar, sem þyrfti til að hald
aflanum í 275 þúsund tonnum á ári á næstunni. En hún
telur jafnframt að á grundvelli fyrirliggjandi athugana
megi byggja þorskstofninn upp hægt og sigandi með því
að miða þorskaflann á næsta ári við 315—325 þúsund
tonn. Þetta mun takmarka sóknina stórlega á næsta ári,
ekki siður en í ár. Með þessum hætti og með því að
hægja á endurnýjun flotans og flýta því að ófullkomin
eldri skip hætti veiðum, mætti ná hagkvæmri nýtingu
þessa mikilvægasta nytjafiskstofns á íslandsmiðum á
næsta áratug. Ríkisstjórnin hefur í samræmi við þetta
takmarkað mjög lánafyrirgreiðslur til fiskiskipakaupa
erlendis.
A undanförnum árum hefur verið unnið stórvirki í
virkjun fallvatna og jarðvarma. Nú kann að véra ástæða
til hægja á ferðinni og undirbúa um leið nýja sókn á
þessu sviði, sókn sem ekki ofbýður fjárfestingarstarf-
seminni í landinu. Skipulagsumbætur i orkuiðnaði eru
einnig í undirbúningi. Almennur iðnaður hefur vaxið
mjög á siðustu árum þrátt fyrir aukna samkeppni við
innflutning. Þótt sú samkeppni sé bæði holl islenskum
iðnaði og þjóðarbúinu, verður að gæta þess að aðstaða
hans sé sem sambærilegust við það, sem erlendis gerist.
Á þessu ári hefur verið unnið að ýmsum endurbótum á
rekstrarskilyrðum iðnaðar og verður þvi starfi haldið
áfram á næstunni og Alþingi gerð grein fyrir þvi.
Nauðsynlegt er að umhverfisvernd sé jafnan höfð í
huga við ákvarðanir um orku- og stóriðju. Á þessu þingi
mun rikisstjórnin leggja fram frumvarp til laga um
umhverfismál, þar sem gerðar eru tillögur um heildar-
stjórn þeirra mála.
Á sviði Iandbúnaðar mun ríkisstjórnin beita sér fyrir
ráðstöfunum til að draga úr offramleiðslu landbúnaðar-
afurða, m.a. með endurskoðun framleiðsluráðslaga og
þ.á m. útflutningsuppbóta. Rétt er að geta þess, að
skilningur á þessu vandamáli kom fram á fundi Stéttar-
sambands bænda í haust.
Un'nið verður að því, að verðmyndunarkerfi verzlunar
og þjónustu sé gert frjálslegra, þannig aó hagsmunir
neytenda séu betur tyggðir en nú er. Jafnframt veróur
stefnt að því að afnema misræmi á milli atvinnuveg-
anna og á milli fyrirtækja i einkaeign og opinberum
rekstri.
Nauðsynlegt er að setja ný lagaákvæði um störf
sáttasamjara rikisins.
Ný heildarlöggjöf um verkaskiptingu ríkis og sveitar-
félaga hefur Iengi verið í undirbúningi. Vonir standa til
þess, að greinargerð nefndar, sem unnið hefur að því
verki, verði lögð fram í vetur.
Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir viðræðum fulltrúa
þingflokka um breytingar á kosningalöggjöfinni. Þess
hefur verið farið á leit við stjórnarskrárnefnd, að hún
geri grein fyrir störfum sínum og tillögum, ekki sist um
kosningalög og kjördæmaskipan.
Að venju fylgir ræðu þessari skrá yfir helstu laga-
frumvörp, sem í undirbúningi eru i einstökum ráðu-
neytum og verða væntanlega lögð fram á þessu þingi.
Er sú skrá þó ekki tæmandi.
LOKAORÐ
Forsenda allra framfara í atvinnumálum er jafnvægi
í þjóðarbúskapnum. Jafnvægi næst ekki nema með
samstilltu átaki allra, sem áhrif hafa á þróun efnahgs-
mála. Stjórnvöld verða að hafa stuðning almennings og
samtaka hans til að tryggja þetta jafnvægi og þar með
framfarir og batnandi lífskjör í landinu á næstu árum.
Slíkt samtarf og stuðningur verður að vera byggt á
sameiginlegu mati á þvi hver sé framleiðslugeta þjóðar-
búsins. Raunsæi verður að ráða þessu mati en ekki
óskhyggja eða gylling á framtíðinni.
Ríkisstjórnin lætur nú vinna að undirbúningi þjóð-
hagsáætlunar til lengri tíma, þannig að ræða megi á
sama grundvelli um tekjuskiptingarvandann í þjóðar-
búinu og svigrúmið til framkvæmda, einkaneyslu og
opinberra umsvifa og þar með skattheimtu. Þetta verk
verður kynnt á þessu þingi.
Sú efnahagsstefna, sem hér er lýst, byggist á forsend-
um, sem geta brugðist. Ef það gerist, verður nauðsyn-
legt að grípa til enn öflugri ráðstafana. Þjóðin öll
verður að vera undir það búin.
II erra forseti,
Þjóðin er vel undir það búin aö leysa viðfangsefni
líðandi stundar og verkefni framtiðarinnar. Öryggi
landsins og sjálfstæði er tryggt svo sein verða má með
varnarsainstarfi og þátttöku i Atlantshafsbandalaginu.
Yfirráð yfir fiskiiniðunum. helztu auðlind landsins. eru
algerlega i okkar hönduiu Jöfnuði hefur verið komið á i
rikisfjármálum. peningamálum og viöskiptum \ iö önn-
ur lönd. Kull atvinna hefur haldist og dregiö úr verö-
bólgunni. Okkur er vorkunnarlaust aö hérða báráttiina
gegn verðþenslunni og búa enn betur i haginn fyrir
framtíöina.
Carla Hanna
Proppé - Minning
Fædd: 18. júlí 1912
Dáin: 31. október 1977
í dag fer fram frá Dóm-
kirkjunni i Reykjavik útför Cörlu
Hönnu Proppé, en svo hét hún
fullu nafni. Hún andaðist í Land-
spítalanum 31. okt. eftir stutta
legu og kom andlát hennar vinum
hennar á óvart, þrátt fyrir að hún
hefði ekki gengið heil til skógar
um nokkurra ára skeið.
Carla var fædd á Þingeyri við
Dýrafjörð 18. júlí 1912. Foreldrar
hennar voru hjónin Jóhanna
Jósafatsdóttir bónda á Kirkjufelli
í Eyrarsveit Samsonarsonar og
Carl Proppé stórkaupmaður. Þeir
Proppé-bræður voru landskunnir
athafnamenn á fyrri tugum aldar-
innar. 1914 fluttust þau hjón til
Reykjavíkur, þar sem börn þeirra
gengu til mennta. Carla stundaði
nám í Verzlunarskóla íslands, svo
og Danmörku og Englandi, og
vann við skrifstofustörf jafn-
framt- því að halda heimili fyrir
yngsta bróður sinn, Jóhannes, er
foreldrar þeirra voru látnir.
Á friðardaginn 5. maí 1945
giftist Carla Þóri Kristinssyni,
vagnasmið, en hann andaðist 31.
maí 1971. í minningargrein er ég
reit um Þóri vin minn, sagði ég að
þau hjón hefðu reist bú sitt um
þjóðbraut þvera, því jafnan var
gestkvæmt á heimili þeirra og
nutu margir góðs af.
Þeim Cörlu og Þóri varð
fjögurra barna auðið. Elst var
telpa, sem dó rétt eftir fæðingu,
en hin eru Hanna Dóra, fóstra,
gift Helga Danielssyni, málara-
meistara, Þorkelssonar. Þau eiga
tvær dætur. Hugo Lárus, sem
stundar sálfræðinám við Arósahá-
skóla og er hans kona Birgette
Povelsen og eiga þau einn son.
Yngstur þeirra systkina er Þórir
Kristinn, útvarps- og sjónvarps-
virki, starfsmaður hjá I.B.M.
Hans kona er Erla Bjartmarz.
Carla var mjög dugleg húsmóð-
ir og helgaði lif sitt heimilinu og
börnunum og var gestrisni þeirra
hjóna alveg frábær, enda vina-
hópur stór, og nú höfðu barna-
börnin og tengdabörn bæst í þann
Framhald á hls 18.
Hef opnað rakarastofu mína að
HÓTEL LOFTLEIÐUM
GÓÐ BÍLASTÆÐI GÓÐ ÞJÓNUSTA
Garóar Sigurgeirsson
PARISARBUÐIN
'Á-
GLÆSILEGUR VELUR FATNAÐUR
SLOPPAR - SAMFESTINGAR - BUXUR
abecitaf/j Sænsk- Islenska