Morgunblaðið - 27.11.1977, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1977
5
I slundinni okkar I dag verður sýnd stutt teiknimynd eftir tíu ára
gamlan dreng, Hlyn örn Þórisson. Teiknimyndin fjallar um Brelli og
Skellu, sem eru verur er lifa í grasinu. Fylgst er með Iffi þeirra og
ævintýrum, en einkunnarorð teiknimyndarinnar eru: „Hvers vegna
eigum við að keppast við að vera stór, ef við erum hamingjusöm sem
Iftil." Teiknimyndin sem sýnd verður í dag heitir „Svifbáturinn“, en
önnur teiknimynd verður sýnd sfðar. Framtak sem þetta er vissulega
virðingarvert, og er ekki að efa að mörg börn munu hafa gaman af
teiknimyndinni.
O Ö
„Herra Heilabrjótur" f „svifbát" sfnum.
Það leynast margar hættur f Iffi grasveranna.
MALLORKA
Vitið þér að Mallorca er eftirsótt vetrarparadís fyrir milljónir
norður EvrApubúa. Þar er sólríkt og yndislegt vetrarveður, dags-
hitinn oftasr 20-28°, enda falla appelsínurnar af trjánum á
Mallorca í janúarmánuði, og sítrónuuppskeran er í febrúar.
JÓLAFERÐ MALLORCA
18. des. - 4. jan. Beint dagílug. Dvalið á eftirsóttum íbúðum og
hótelum, s.s. Royal Magaluf, Portonova, Hótel Barbadon,
Guadalupe og Helios.
LANGTÍMA VETRARDVÖL
Tilvaldar ferðir fyrir þá sem eyða vilja vetrinum í sumarhita, sér til skemmtunar,
hressingar og hvíldar.
Hægt að velja um dvöl í 6 — 8 — 10 — 12 vikur í Royal Magaluf íbúðunum eða
hóteli með fullu fæði.
Verð frá kr. 129.000 (6 vikur) og kr. 169.000 (dvöl í hóteli með fullu fæði í 12 vikur)
fERBASKRIFSTOMN SUNNA UEKJARGÍfU 2 SÍMAR 1B40U 12070
i lístaverk
0(k OflCafD ^R°2Ga)®(°!(7QJ3GT)(áMo
Ný plata meó vísum
úr Vísnabókinni
Bræóraborgarstíg 16, Sími 12923-19156
Frábært framlag Gunnars Þórðarsonar, Björgvins Halldðrssonar
og Tómasar Tómassonar. Vísurnar, þulurnar og þjóðkvæðin,
sem Visnabókin geymir, eru löngu orðin alþjóðareign. Fyrri
platan með vísum úr Vísnabókinni, EINU SINNI VAR, naut
meiri vinsælda en dæmi eru til um íslenska hljómplötu. Öhætt
er að fullyrða, að nýja platan, ÚT UM GRÆNA GRUNDU, er
ekki síður líkleg til vinsælda og langlífis en hin fyrri.
VÍSNABÓKIN er nýkomin út í 6. útgáfu og hafa
þá verið prentuð af henni yfir fjörutíu þúsund
eintök, enda er þessi afar vinsæla bók löngu
orðin sjálfsögð eign á heimilum landsins.