Morgunblaðið - 27.11.1977, Síða 20

Morgunblaðið - 27.11.1977, Síða 20
20 MOKCíUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. NÖVEMBEK 1977 SENDUM UM ALiAN HE1M Rammagerðin pakkar og sendir. Allar sendingar eru fulltryggðar. RAMflAGERÐtN Hafnarstræti 19 fesm skakkur stafur íjerir ekki svo mikid til, ef pú notar T) UD kúluritvcl med leidréttingarbúnadi i___________ JLL . ' JLL Leipf’étt ' Sé ritarfur skakkur stafur------ er sleginn þ.t.g. leiáréttingar- lykill. Ritkúlan faerist yfir skakka stafinn sem er sleginn ö ný, og sogast þö af blaáinu svo leiáréttingin sést ekki Réttur stafur er sleginn.. og haldiá öfram þar sem frö var horfid aukin afköst — minna erfidi -fsa ■V SUIFSTIFIIELU I.F. cA Hverfisgötu 33 Sími 20560 hn ? íaí t i -■ tttltllM• # i t s' Iflitmj íSlltlfMSf Hlf Ul: 11 (. CIA þagði um kjarnorkuslys Washington, 26. nóvember. AP. LEYNIÞJONUSTAN CIA hélt ieyndri í um 20 ár vitneskju sem hún hafði um kjarnorkuspreng- ingu sem talið er að hafi átt sér stað f Sovétríkjunum, orðið tug- um manna að bana og breytt um 90 ferkílómetra landsvæði i auðn. Bandarísk borgarasamtök halda þessu fram á grundvelli skjala frá CIA er þau fengu aðgang að sam- kvæmt nýjum lögum um upplýs- ingaskyldu stjórnvalda. Þau segja að í skjölunum se að finna nýja staðfestingu á kjarnorkuslysi sem talið er að hafi orðið í Ural- fjöllum 1958. Litið hefur komið fram um þetta hugsanlega slys í bænum Kyshtym Asiumegin fjallanria, en sagt er að hundruð bæjarbúa hafi orðið fyrir geislun. 1 skjali sem samtökin segja frá segir meðal annars: „Um 100 km frá Sverdlovsk (um 160 km norð- ur af Kysthym) fórum við yfir einkennilegt, óbyggt og óræktað svæði. Á umferðarskiltum með- fram veginum voru ökumenn var- aðir við því að stanza næstu 20—30 km vegna geislunar. Svæð- ið var autt. Þar voru engin þorp, engir bæir, ekkert fólk, ekkert ræktað land aðeins reykháfar eyðilagðra húsa stóðu eftir." Þessi skýrsla er sögð síðan í marz. CIA birti 14 af skjölum sinum um þetta mál en neitaði að birta 15 önnur af þjóðaröryggis- ástæðum. I skjölunum er ekki sagt hvers eðlis hið meinta slys 1958 hafi verið, en ýmislegt bend- ir til að sprenging hafi orðið i kjarnorkuveri í Kyshtym eða á stað þar sem kjarnorkuúrgangur var geymdur. — Hugsjónahiti Framhald af bls. 1 evs sérstaka athygli. Minevs, sem er tæplega þrítugur að aldri, sat í fangelsi á annað ár og afplánaði dóm fyrir að ,,að- hyllast vestræna hugmynda- fræði". Sjö mánuðir liðu frá því að hann var fyrst handtekinn og þar til hann kom fyrir rétt, en hann kvaðst aldrei hafa komist í tæri við lögfræðing fyrr en við sjálf réttarhöldin. Þá var hann kynntur fyrir „verjanda" sínum en sá hafði ekki annað til málanna að leggja en uppástungur við skjólstæðinginn að hann léti skynsemina ráða og bæði rétt- inn fyrirgefningar á glæpun sinum. „Það gat ég alls ekki gert, því að ég vissi að ég var saklaus," sagði hann. Minevs var að því spurður hversu margir pólitískir fangar væru i Búlgaríu. Hann kvaðst ekkert vilja fuilyrða um það, en flest benti til þess að þeir væru ekki undir tiu þúsundum. I fangels- inu í Sotin sem hann hefði sjálfur verið vistaður í, hefði pólitískir fangar verið milli 200 og 250. Eftir að Minevs var sleppt úr fangelsinu 1975 tókst honum að verða sér úti um at- vinnu en brátt fréttist að hann hefði verið í fangelsi þannig að honum var ekki lengur vært á vinnustað. Honum var borið á brýn að hafa falsað vinnu- skýrslur í því skyni að auka yfirvinnugreiðslur. í júní 1976 bárust honum njósnir af þvl að lögreglan væri á leið til að handtaka hann, en honum tókst að komast undan í tæka tíð. Siðan flúði hann yfir landa- mærin til Júgóslavíu og þaðan til Austurríkis en frá því í sum- ar hefur hann verið búsettur í Munchen. — Listahátíð Framhald af bls. 32. hann varð heimsfrægur, og lék þá m.a. á tónleikum með Páli ísólfssyni. Páll sagði þá að sér væri alveg sama hvað gagnrýn- endur segðu, Rostropovich væri einn mesti sellisti heimsins ásamt Pablo Casals. Þá er lista- maðurinn ekki síður frægur fyrir hljómsveitarstjórn. Luciano Pavarotti, italski tenorsöngvarinn, er í hópi yngri tenórsöngvara sem eru heimskunnir. Pavarotti varð frægur fyrir fáum árum og er hann ýmist kallaður prins tenóranna eða konungur háu C-anna. Þykir hann með allra glæsilegustu óperutenórum sem uppi eru í heiminum í dag og keppast öll óperuhús um að njóta hæfileika hans. Ballettdansarinn Baryshnikov er rússneskur flóttamaður, en á síöustu árum hefur hann haslað sér völl sem einn bezti sólodansari heims- ins. Hann þykir jafn vígur á klassískan ballett og nútíma- ballett, en ekki mun ákveðið hvaða verkefni hann tekur fyr- ir á Listahátíðinni. Þegar Helgi Tómasson vann silfurverðlaun- in á sínum tíma í alþjóðlegri ballettkeppni í Moskvu þá fékk Baryshnikov fyrstu verðlaun. Baryshnikov er nú ráðinn hjá American Ballett Theater i New York, en hann dansar einnig sem gestadansari viða um heim. Lífshættuleg eftirför — Ný bók eftir Gavin Lyan Hörpuútgáfan á Akranesi hefur sent frá sér nýja bók, Lifshættu- leg eftirför, eftir enska höfund- inn Gavin Lyall. — í bókinni seg- ir frá er norskt flutningaskip ferst í árekstri. Glötuð skipsdag- bók orsakar röð spennandi og ógnvekjandi atburða og liggja þærðirnir víða. Lyall er vinsæll höfundur spennusagna eöa æsisagna. Teflt á tæpasta vað eftir hann seldist upp þegar hún kom út fyrir síð- ustu jól Gavin Lyall starfaði um skeið sem flugstjóri í breska flughern- um og var lengi flugmálafréttarit- ari við Sunday Times og fleiri blöð. Fyrsta skáldsaga hans kom út 1961. Hann hefur hlotið „Silf- urrýtinginn," sem eru verðlaun sambands breskra spennusagna- höfunda. Bókin er 188 bls. Skúli Jensson þýddí. Hún er prentuö og bundin EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU mif inmmnmii'ienn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.