Morgunblaðið - 27.11.1977, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1977
— Sigríður J.
Magnússon
Framhald af bls. 26
Margs er að minnast við andlát
Sigríðar Jónsdóttur Magnússon
þó fátt eitt verði fest hér á blað. i
hugann kemur fram mynd af
glæsilegri röggsamri konu,
formanni og fundarstjóra á
félagsfundi Kvenréttindafélags
íslands. Það voru fyrstu kynnin.
Síðan urðu þeir margir stjórnar
og félagsfundirnir í K.R.F.Í. sem
við sátum báðar i fyrstu í skrif-
stofu félagsins að Laufásvegi 7 og
síðan að Hallveigarstöðunr, eða þá
að hún hélt stjórnarfundi heima
hjá sér, þar sem við stjórnarkon-
ur nutum hinnar notalegu gest-
risni hennar.
Baráttumál K.R.F.Í. í þá daga
sem og endranær m.a. launajafn-
réttið og tryggingarlöggjöfin kost-
uðu mörg og mikil bréfaskrif,
ályktanir og áskoranir og undir
ötulli forystu S.J.M. stefndi þetta
allt f rétta átt. í ópólitísku félagi,
þar sem samankomnar voru kon-
ur úr öllum stjórnmálaflokkum
eins og var í K.R.F.Í., var nokkur
vandi að veita formennsku, um-
ræður urðu oft miklar og margar,
en Sigríði tókst að beina þessum
ólfku skoðunum félagskvenna að
settu marki.
Ósk Sigríðar um að K.R.F.Í.
gæfi út sitt eigið blað kvenrétt-
indamálum til framdráttar,
rættist að hennar tilstuðlan og
átti hún sæti í útgáfustjórn eða
var þá ritstjóri 19. júní, ársriti
K.R.F.l. nær óslitið í ein fimmtán
ár. Þetta var alit tímafrekt starf.
Þegar saga K.R.F.l. verður
skrifuð verður það öðrum þræði
óbrotgjarn minnisvarði um fyrstu
formenn félagsins, sem með
dugnaði og kjarki hrundu rétt-
lætismálum af stað og þar á
Sigrfður J. Magnússon vissulega
sinn hluta. Bjartsýni og kjarkur
auðkenndu vinnubrögð hennar,
það var ánægjulegt að starfa með
henni.
Ánægjulegar voru ferðir
K.R.F.Í. f Heiðmörk um Jóns-
messuleytið, þegar félagskonur
gróðursettu tré í reit sinn þar og
lét Sigríður ekki sitt eftir liggja
enda hvatamaður að þátttöku í að
klæða landið, í gróðursetningar-
starfinu þar.
í þau sautján ár sem hún var
formaður K.R.F.Í. sótti hún fundi
alþjóða kvenréttindafélagsins,
sem haldnir eru þriðja hvert ár
víðsvegar um heim. Avallt
skrifaði hún glöggar og skemmti-
legar greinar um fundi þessa og
ferðir sínar. Kemur þar glöggt í
ljós hve vel hún var lesin og
minnug á gamlan og nýjan
fróðleik.
Oft lá leið Sigríðar til sólar-
landa, þá hún sótti fundi þessa og
til sólarlands dreif hún sig í
október s.l. ekki bilaði kjarkurinn
þrátt fyrir háan aldur. Með þeim
fyrstu kom hún á morgnana í
borðsalinn, hress að vanda en
studd af samfylgdarkonu sinni
Önnu Reiners hjúkrunarkonu,
sem af alúð var hennar stoð og
stytta. Sigríður var Önnu afar
þakklát, án Önnu minnar hefði ég
ekki komist með, sagði hún en til
sólarlands þráði Sigríður að kom-
ast.
Þar syðra rifjuðum við upp
gömul kynni. Það var svo notalegt
að sjá Sigrfði sitja eftir kvöldmat
í glöðum hópi í setustofunni,
reyndar með vindil en það minnti
einmitt á gamla daga, setjast svo
hjá henni og ræða við hana og láta
margt fjúka rétt eins og áður fyrr.
Sinnið var hin sama, þó fæturnir
væru farnir að gefa sig.
Til sólarlanda er hún enn farin,
bjartar minningar geymast um
drenglundaða konu, sem vildi
bættan hag þeirra, sem minna
mega sfn, landi og þjóð til far-
sældar. Á þann veg er gott að lifa
og deyja.
Lára Sigurbjörnsdóttir.
Kveðja frá Kvenréttindafélagi Is-
lands
Leiðir Sigríðar Jónsdóttur
Magnússon og Kvenréttindafé-
lags íslands lágu fyrst saman, er
hún sem fulltrúi Lestrarfélags
kvenna sat landsfund KRFÍ á
Þingvöllum 1944.
Lýðveldishátíðin var nýlega um
garð gengin, vor í lofti og hugir
manna tendraðir glóð frelsis og
framfara. Andrúmsloft lands-
fundarins var þrungið þessum
hugblæ, þar voru gerðar veiga-
miklar breytingar á uppbyggingu
félagsins, ályktað um þjóðmál og
umræður um réttindi og skyldur
kvenna voru i algleymingi.
Sigríður hreyfst með á fundin-
um, og þegar næsta haust gerðist
hún félagi í KRFl. Hún hóf að
starfa fyrir félagið af alúð og
áhuga, og á aðalfundi 1946 var
hún valin varaformaður. Ari
seinna varð hún formaður og
gegndi því starfi til ársins 1964
eða alls i 17 ár.
Um árabil átti Sigríður sæti í
ritnefnd ársrits KRFÍ, ,,19 júni“,
og var ritstjóri þess um skeið.
Hún átti sæti f framkvæmda-
stjórn Hallveigarstaða og var for-
maður byggingarnefndar hússins
seinustu árin, sem sú nefnd starf-
aði. í hennar hlut kom að afhenda
húseignina núverandi eigendum,
Kvenfélagasambandi íslands,
Bandalagi kvenna i Reykjavík og
Kvenréttindafélagi islands.
Sigríður J. Magnússon var iðu-
lega fulltrúi KRFÍ á mótum og
þingum erlendis, bæði á Norður-
löndum og hjá Alþjóðasamtökum
kvenréttindafélaga — Int-
ernational Alliance of Women.
Hún sótti fjölmörg þing alþjóða-
samtakanna, en þau eru haldin
þriðja hvert ár víðs vegar um
heim, einnig átti hún um tíma
sæti í stjórn samtakanna. Sigriður
var að upplagi heimsborgari og
var virtur og glæsilegur fulltrúi
félagsins á erlendum vettvangi og
minnisstæð þeim er henni kynnt-
ust.
Þau 17 ár, sem Sigrfður var
formaður Kvenréttindafélagsins
voru ár mikilla breytinga f is-
lensku þjóðlífi, og því fjöldamörg
málefni, sem félagið þurfti að tak-
ast á við. Nefna má umfjöllun um
stjórnarskrá lýðveldisins, en kon-
ur voru mjög áfram um, að
ákvæði um jafnan rétt karla og
kvenna yrði stjórnarskrárbundið.
Enn fremur voru menntamál, at-
vinnu- og skattamál stöðugt á
verkefnaskrá félagsins. Síðast en
ekki síst ber að nefna lög um
almannatryggingar, en í upphaf-
legri gerð þeirra laga var mikill
mismunur gerður á körlum og
konum. Konur er skipuðu forystu-
sveit kvennasamtaka landsins
lögðu árum saman ómælda vinnu
i að knýja fram endurbætur á
tryggingalöggjöfinni. Var hlutur
Sigrfðar í því starfi ekki smár.
Henni var kappsmál að konur
væru virkar á vettvangi þjóðmála
og vildi bæta svo hag kvenna, að
þær hefðu aðstöðu til að taka á sig
skyldur og nýta réttindi til jafns
við karla á öllum sviðum þjóðlífs-
ins. Þótt á móti blési um stund i
hita baráttunnar, gætti Sigriður
þess að missa ekki sjónar á þessu
meginmarkmiði. Henni var
öðrum fremur ljóst, að þrátt fyrir
lagalegt jafnrétti karla og kvenna
yrði þyngri róður að koma á jafn-
rétti í reynd.
Til hinsta dags hafði Sigriður
brennandi áhuga fyrir málefnum
KRFÍ og húrt sótti fundi félagsins
meira og minna til sfðustu stund-
ar. Á iandsfundi KRFÍ í júní 1976
ítrekaði hún fyrri áskorun sina til
póstmálayfirvalda um að gefa út
flokk frimerkja með konum.
Sigríður J. Magnússon var
heiðursfélagi Kvenréttindafélags
íslands. Hún var augljóslega til
forystu fallin — það er hverju
félagi farsæld að eignast slfkan
foringja. Heiður sé henni og
þökk.
F.h. stjórnar Kvenréttindafé-
lags Íslands
Sólveig Ólafsdóttir.
Sigriður J. Magnússon er horfin
sjónum okkar.
Mikill persónuleiki og heil-
steypt kona er horfin af leiksviði
þessa lffs. Öll orð verða fátækleg
er við stöndum gagnvart gátunni
miklu — dauðanum. Minningar
koma og fara — minningar um
samstarf, sameiginlegar gleði-
stundir og vonbrigði, en þó fyrst
og fremst minningar um tryggð
góðrar konu og vináttu, sem
aldrei brást. Sigríður J. Magnús-
son var aldrei gestur í lífi vina
sinna, hún var hluti af þeim sjálf-
um. Sigríði var ljúft að miðla öðr-
um af ótæmandi sjóði lífsreynzlu
sinnar — trú sinni á lifið, glað-
værð og hjálpsemi.
Sigríður J. Magnússon var full-
trúi þeirrar kynslóðar, sem hafði í
heiðri fornar dyggðir, jafnframt
því sem hún af smekkvísi og ein-
urð tileinkaði sér það bezta í fari
samtíðarinnar.
Sigriður var virðulegur fulltrúi
lands síns á fjölmörgum mótum á
erlendri grund, við margvísleg
tækifæri og vakti hvarvetna eftir-
tekt sem stórbrotinn persónu-
leiki.
Þrátt fyrir fjölþætt störf í
félags- og líknarmálum, fór Sig-
rfður J. Magnússon ekki varhluta
af mótlæti, frekar en aðrir, sem
langt líf eiga að baki. Sigrfður
kvartaði ekki undan því hlut-
skipti sínu — það var með það
sem annað, að hún sigraðist á því
„með ástundun góðvildarinnar“
— því sagt er að ekkert bindi
manninn fastar við heiminn, en
gremja og óvild — en útrýmdi
þeim kenndum „með þvf að tefla
gagnstæðum hugsunum gegn
þeim".
Kveðjuorð eiga þetta ekki að
vera — þvf áður en varir liggja
leiðir saman á ný, bak vð móðuna
miklu sem skilur vini að I bili.
Þegar ein hurðin lokast opnast
önnur — og þar veit ég að minnar
kæru vinkonu bíður það hlutverk,
sem hún undirbjó með lífi sínu á
meðan hún dvaldist á þessu til-
verustigi.
Sigríður J. Magnússon var einn
af stofnendum Félagasamtakanna
Verndar og átti sæti í stjórn sam-
takanna til dauðadags. Tíu fyrstu
árin var hún formaður jólanefnd-
ar Verndar og stóð fyrir fagnaði
samtakanna á jólanóttina. Verður
henni seint þakkað það mikla
fórnarstarf. Sæti hennar var
aldrei autt. Húg gekk að hverju
sem hún tók sér fyrir hendur heil
og óskipt.
Félagasamtökin Vernd eiga
henni mikið að þakka, svo og allir
þeir, sem hún hlúði að og gladdi
með starfi sinu þar.
Guð launi henni og blessi ást-
vini hennar.
Þóra Einarsdóttir.
Akureyri:
Harður
árekstur
á föstu-
dagskvöld
Akureyri, 25. nóvember.
HARÐUR árekstur varð milli
tveggja fólksbila klukkan 19.30 i
kvöld á vegamótunum, þar sem
Dagverðareyrarvegur liggur útaf
þjóðveginum í Kræklingahlíð. í
bílnum sem ók norður þjóðveginn
voru fjórir farþegar auk öku-
manns og sluppu þeir ómeiddir,
en í hinum bílnum, sem kom neð-
an frá Skjaldarvík voru hjón og
meiddust þau bæði nokkuð. Kon-
an þó meira að þvi er taiið var.
Hún hlaut mikið höfuðhögg og
var flutt i sjúkrahús rænulitil.
Maður hennar hlaut minni háttar
meiðsl. Báðir bílarnir voru óöku-
færir og mjög skemmdir.
Tveir minniháttar árekstrar
urðu á götum Akureyrar í kvöld;
þar mun enginn hafa meiðst að
ráði. Hálka fer vaxandi á götun-
um með hlýnandi veðri. Snjór er
mikill og sums staðar varhuga-
verð færð á götum.
Sv.P.
Mm
Avaxtatilboð:
TEG: LAND: 1 :KG. 2. KG. 3. KG. 1. KASSI
Epli, rauð Delicious U.S.A. 288 - 700 - 3877 ca. 18.5 kg.
Appelsínur Outspan Suður-Afríka 220 - 525 - 2572 ca. 17.0 kg.
Grape aldin Jaffa ísrael 427 - 900 - 3486 ca. 15.0 kg.
Sítrónur „Maja" Spánn 388 - 800 -
Ananas Dole U.S.A. 584. -
Græn vínber Rio Rosa Spánn 579 - 1000.-I
Melónur Rio Rosa Spánn 398 - 900 -
Bananar Chiquita, Dole| Honduras 213- 550 - 1650 10.0 kg.
Blá vínber Spánn 1066 - 1700 - 3560 4.8 kg.
Perur D.W. Holland 296 - 750 -
Klementínur Marokkó 450.-! 650. - 2946 ca. 10.0 kg.
Epli, rauð Delicious Frakkland 270 - 600 - 1775 ca. 9 kg.
UamA Wls.
velkomin
CS^DCfijTjTMXSeTfÍSteOM
Kjötmiðstöðin, Laugalæk, sími 35020.