Morgunblaðið - 07.12.1977, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1977
5
Sjónvarp í dag klukkan 18.00:
Teiknimyndir fyrir bömin
t DAG hefst teiknimyndaspyrpa um björninn Jóka og ævintýri
hans í Yellowstoneþjóðgarðinum í Bandaríkjunum. Joka björn
kannast eflaust mörg börn við úr sjónvarpi, því íslenska sjón-
varpið hefur oft áður sýnt teiknimyndir um hann, auk þess sem
margar litabækur f jalla um hann.
Á undan Jóka og félögum eru tvær stuttar tékkneskar teikni-
myndir um litla sótarann, en á eftir er teiknimyndasagan um
Cook skipstjóra og ferðir hans. 1 dag verður sýndur 5. og 6.
þáttur.
Bandaríska sjónvarpskvikmyndin „Undarleg heimsókn" er í
sjónvarpi í kvöld klukkan 22.10. I aðalhlutverkum eru Robert
Culp og Glen Campbell en Glen þessi er einnig kunnur söngvari.
Myndin fjallar um glæpamann sem kemur til bróður síns, sem er
lögreglustjóri f smábæ, og hyggst fela sig hjá honum. „Undarleg
heimsókn" er tæplega eins og hálfs sklukkutfma löng mynd.
Hvað er að heyra:
Ný útvarpssaga bamanna
KLUKKAN 17.30 í dag er f útvarpi „Utvarpssaga barnanna".
Sagan sem nú er verið að lesa nefnist „Rottabyck“ eftir Lagfn
Lazar Jósifovitsj, en Oddný Thorsteinsson hefur þýtt söguna og
les hún sjálf þýðingu sína. 1 dag er lesinn annar lestur, en sagan
hófst á sunnudag.
Mokka
með hettu
Kr. 53.440.
S 1111:27211
Austurstræti 10
Jazzkvöld
í Glæsibæ
JAZZKLUBBURINN Jazzvakn-
ing efnir til jazzkvölds í Glæsibæ
í kvöld, miðvikudaginn 7. desem-
ber klukkan 21.00.
I kvöld kemur fram hljómsveit
skipuð þeim Karli Möller, Guð-
mundi Ingólfssyni, Helga
Kristjánssyni, Guðmundi Stein-
grírrtssyni og Lindu Walker söng-
konu. Ennfremur leikur og syng-
ur Karl Ezrason trúbador, trió
Jóns Möller kemur fram og loks
verður jam-session.
Leiðrétting
t UMSÖGN Jóhanns Hjálmars-
sonar um skáldsögu Gunnar
Gunnarssonar, Jakob og ég, i
Morgunblaðinu 6. desember
stendurmeðal annars:
„Mér er næst að haida að Gunn-
ari Gunnarssyni láti best að Segja
skipulega frá og velja sér æski-
legt efni.“
A að vera æsilegt efni.
Leiðréttingar
ÞAÐ skal tekið fram að Otto
Erdland kaupsýslumaður í Ham-
borg, er ekki ræðismaður tslands
þar í borg, eins og stóð i fyrirsögn
í afmæliskveðju til hans, í blaðinu
í gær.
í MINNINGARGREIN um Helga
Kjartansson f Hvammi hér í blað-
inu 2. des. ’77 hafði eitt orð misrit-
ast, þar sem minnst var á búskap-
inn í Hruna. Þar stóð 100 ær á
fóðrum, en átti að vera 100 ær i
kvium.
KodakEKó
mstant
Litmyndir
ásvipstundu
úr Instant myndavélinni frá Kodak
HANS PETERSEN HF
J VIÐ SELJUM l
Kodak
l vonun r
BANKASTRÆTI
S: 20313
AUSTURVER
S: 36161
GLÆSIBÆR
S:82590