Morgunblaðið - 07.12.1977, Side 17

Morgunblaðið - 07.12.1977, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1977 17 Spassky er örugglega betri... tennisleikari —segir Vlastimil Hort í samtali við fréttaritara Mbl. í Belgrad Beljírad. 5. desember. Fr'á Miroslav Milanovk'h. fréttaritara Mbl. MEÐ^L áhorfenda að sjöttu einvígisskák Kortsnojs og Spasskys var tékkneski stór- meistarinn Vlastimil Hort, sem fyrr á árinu tapaði einvígi vió Spassky á íslandi. en til Belgrad kemur hann sem.ný- bakaður sigurvegari alþjóðlega skákmótsins í Stip í Júgóslavíu. ,,Þetta einvigi er mikið baráttu- einvígi," segir hann, þegar hann er spurður álits á einvígi Spasskys og Kortsnojs. ,,Skákirnar eru mjög áhuga- verðar, jafnvel byrjanafræði- lcga séð. Og mér fellur vel sú listræna sköpun, sem oft hefur brugðið fyrir i skákunum. Hins vegar er í hæsta máta eðlilegt að sjá i svona baráttu- einvígi einhver mistök. Hjá þeim verður ekki komizt, þegar menn láta gamminn geisa." — Hvorn telur þú sterkari skákmann? „Spassky er örugglega betri. . . tennisleikari. En hvor er betri skákmaður? Það veit ég hreint ekki. En úrslit ein- vígisins segja okkur það, þegar þar að kemur." — Snúum okkur þá að þér. sjálfum. Þú ert ntaóur vinsæll meðal skákmanna, en færð samt þinn skammt af gagnrýni, sem gengur út á það að metnað- ur þinn sé ekki til jafns við hæfileikana, þvi þú eigir aö geta meira, en þú gerir. Hvers vegna er þetta svo? „Skákmönnum má skipta í tvo hópa; skákmunka og svo hina. Skákmunkarnir lifa fyrir skákina eina, þeir bragða yfir- leitt ekki vín, reykja ekki, þeir eru ógiftir og einfarar. Slíkir eru Fiseher, Meeking og Karpov svo dæmi séu nefnd." — Og þú sjálfur? ,,Ég er einn af hinum, eins og Larsen, Tal og Vaganjen svo ég nefni þrjú nöfn úr þeim hópi líka. Þaó hefur aldrei verið Vlastimil Hort: Skákmönnum má skipta I tvo hópa: skákmunkana og okkur hina ... ætlun mín að þamba mjólk tú að safna mér smávið.bót af gráum heilafrumum. Því síður að liggja yfir skákborðinu dag- inn út og daginn inn. Kannski væri ég tíu prósent betri skák- rnaður, ef ég hefði valið mjólk- ina og þaulseturnar. Og árangúrinn væri þá sennilega eftir því." Ræður líkams- hreystin úrslitum ? BIÐSKÁKIN úr sjöttu umferð einvígis þeirra Spasskys og Korchnois í Belgrad var tefld í gær. Eins og búist hafði verið við urðu keppendur strax sam- mála um að hvorugur stæði bet- ur og sömdu um jafntefli í 44. leik, fjórum leikjum eftir -að biðskákin hófst. Viktor Korchnoi, sem flýði land frá Sovétríkjunum í ágúst i fyrra, hefur þvi enn örugt forskot, hefur hlotið fjóra vinninga gegn tveim vinningum Spasskys. Alls verða tefldar tuttugu skákir í einviginu, nema ef annar keppenda hefur hlotið lO'/i vinning fyrir þann tíma. Að sögn fréttaritara Morgun- blaðsins í Belgrad, Miroslavs Milanovic, er það almenn skoð- un skákfréttamanna í Belgrad að einvigið sé nú að byrja að fá á sig öllu þyngra form en í upphafi, en þá voru allar skák- irnar mjög léttar og sketnmti- legar. „Nú er taugastríðið hins veg- ar að hefjast fyrir alvöru og þá skiptir miklu máli hvor kepp- endanna er betur undirbúinn líkamlega. Sennilega verða næstu skákir nokkuð þung- lamalegar eins og sú sjötta, en keppendur munu þó vafalaust öðru hverju reyna nýjar hyg- myndir i þeim tilgangi að rugla andstæðinginn i ríminu," sagði Milanovic að lokum. Sjöunda skákin verður tefld i dag. Þá hefur Korchnoi hvítt. Biðskákin úr sjöttu umferð tefldist þannig: Svart: Viktor Korchnoi Hvítt: Boris Spassky 41. Hc3 (Biðleikurinn) Re5 (41 .. . Rd2 kom til greina, en Korchnoi gerir sig ánægðan með jafntefli) 42. Rxe5 — fxe5, 43. Hc5 — Hxb4, 44. Hxe5 — Hh4. Skák eftir MARGEIR PÉTURSSON Raymond Keene Mike Stean Skædasti óvinur Kortsnojs er maður ad naf ni Viktor Kortsnoj -segja aðstoðarmenn hans í Belgrad Belgrad, 5. desember. Frá Miroslav Milanovich, fréttaritara Mbl. VIKTOR Kortsnoj hefur sótt að sér aðstoðarmenn til Eng- lands. Raymond Keene, sem er 29 ára gamall, var einnig aðstoðarmaður Kortsnojs i einvíginu við Polugaevsky. Keene hefur samið bók um Nimzowitsch, sem hinn kröfuharði Fischer lét þau orð | falla um, að væri „óvenjulega | góð skákbók '. Keene segist hafa þekkt Kortsnoj i ellefu ár. „Við kynntumst fyrst við skák- borðið á Ólympiuskákmótinu á Kúbu og þá tókst með okkur kunningsskapur, sem siðar þróaðist upp i vináttu. Samvinnan i einviginu við Polugaevsky fyrr á þessu ári treysti svo enn samband okk- ar". — Hvaða eiginleikar eru ríkastir í fari Kortsnojs? „Hann er geysilega vilja- sterkur maður og metnaður hans á sér litil takmörk Þann dag, sem hann verð- — í hvorn hópinn skipar þú Spassky og Kortsnoj? „Ég tel þá báða með okkur hinum." — Þú tefldir í sumar í móti með Karpov heimsmeistara. Hvað hefurðu um hann að segja? Minnti hann þig ein- hvern tíma á Fischer, þegar hann var upp á sitt bezta? „Karpov tefldi frábærlega vel siðari helming Interpolis- mótsins og í sumum skákanna minnti hann í hvívetna á Fischer, þegar hann var hvað beztur. Ég nefndi sem dæmi skák Karpov á móti íslenzka stórmeistaranum Friðriki Olafssyni. Þar stýrði heims- meistarinn svörtu mönnunum og vann skákina á mjög snilldarlegan og sannfærandi hátt." — Þú nefndir áðan að þú værir ekki í hópi skákmunk- anna. Hvers konar maður er Vlastimil Hort? „Ég hef gaman af tennis. Það er annars ath.vglisvert. hversu margir skákmenn eru farnir að leggja stund á tennis og sund. Tennisinn spila ég. en á kiirfu- bolta og ísknattleik horfi ég i sjónvar-pinu. — Svo hef ég gaman af að lesa. Góðar bækur eru mér að skapi og gott vín kann ég lika að meta. Og svo skulum við fylla upp i myndina nieð skák og fögrum konum. Ég tel ntig vera fullkomlega eðliiegan mann og mín krafa er. að þannig eigi allir skák- menn að vera. Ég hata menn þegar þeir fara að haga sér eins og Mecking." ur heimsmeistari í skák, mun hann tafarlaust setja markið hærra og stefna að því að verða sterkasti skákmaður, sem heimurinn hefur nokkru sinni augum litið.” — Hvert er þitt viðhorf til skákarinnar? „Skákin býður upp á sjálf- stæði einstaklingsins. Með tafli getur maðurinn fengið listræna útrás fyrir með- fædda baráttuþörf sína." — 0 — Yngstr maðurinn í Kortsnoj-hópnum er Mike Stean, 24 ára, nýbakaður stórmeistari. Hann brosir breitt, að minnsta kosti þessa dagana, og hann er ófeiminn við að viðurkenna það, að honum sé talsverður álitsauki að því að vera annar aðstoðarmaður Viktors Kortsnojs. Þeir hittust í Frakklandi og samvinna þeirra hófst í einvíginu við Polugaevsky. Og þegar ég spyr hann, hver sé draumur hans nú, svarar hann hik- laust: „Að vera aðstoðarmað- ur Kortsnojs i einvígi hans við Karpov". Og um eigin metnað segir hann: „Ég veit alla vega, hversu langt minn metnaður nær ekki. Mig dreymir ekki um að verða heimmeistari i skák." — Hvernig er andinn i Kortsnoj-hópnum hér í Bel- grad? „Við erum eins og ein fjöl- skylda, þar sem Viktor Kortsnoj er faðirinn " — Óttizt þið andstæðing- inn? „Skæðasti óvinur Kortsn- ojs er maður að nafni Viktor Kortsnoj Sá er fullur metnaðar, sjálfsöruggur og glóandi af bjartsýni." — En þetta ætti nú bara að koma skákmanninum vel „Það gerir það því aðeins að honum takist að halda þessum bjartsýna náunga niðri á jörðinni."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.