Morgunblaðið - 14.12.1977, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977
19
Góð loðnu-
veiði í gær
MJÖG góð loðnuveið var síðari
hluta nætur í fyrrinótt, og í gær-
morgun tilkynntu 8 skip um afla,
samtals 3300 lestir. Loðnan sem
veiddist i fyrrinótt fékkst vestur
af Kolbeinsey. Rannsóknaskipið
Bjarni Sæmundsson, sem nú er
við loðnuleit, fann í gærmorgun
nokkra loðnu a svæðinu milli
Víkuráls og Hala, ekkert skip var
á þessum slóðum er Bjarni
Sæmundsson fann loðnuna, en
skömmu áður en birti kom ísleif-
ur VE á staðinn.
Náði skipið að
kasta einu sinni og fékk þá 40
tonn. Annars hefur loðnan hagað
sér þannig að undanförnu, að hún
hefur aðeins veiðzt eftir að dimmt
er orðið á daginn og yfir nóttina
þar til birtir.
Skipin, sem fengu loðnu vestur
af Kolbeinsey, eru þessi: Skírnir
AK 350 lestir, Gisli Arni RE 600,
Jón Finnsson GK 500, Pétur Jóns-
son RE 670, Örn KR 500, Öskar
Halldórsson RE 400, Grindvíking-
ur GK 160 og Helga RE 100 lestir.
Kona slasast
alvarlega
FJÖRUTÍU og sex ára kona slas-
aðist á höfði, er hún varð fyrir bíl
í Bólstaðarhlíð í fyrrakvöld. Kon-
an liggur í gjörgæzludeild Borgar-
spítalans og er Mbl. spurðist fyrir
um líðan hennar í gærkvöldi var
hún enn meðvitundarlaus og í
lifshættu.
Slysið varð um klukkan sjö á
mánudagskvöld, i Bólstaðarhlíð
rétt við Háteigsveg. Konan gekk
út á götuna framan við kyrrstæða
langferðabifreið og lenti þá fyrir
bílnum.
Landsbankinn hafnar öllum tilboðunum
„ÞETTA hefur allt farið út um
þúfur,“ sagði Davið Kristjánsson
á Akure.vri, er Mbl. spurði hann í
gær um viðræður hans og for-
svarsmanna Arnarnesshrepps
varðandi samræmingu á tilboðum
í Hjalteyrareignirnar. Lands-
bankinn hefur nú hafnað öllum
tilboðum í Hjalteyrareignirnar,
en verið er að ganga frá samning-
um við ábúendur þriggja jarða,
sem fylgdu Hjalteyrinni, en af
bankans hálfu hefur aldrei annað
komið til álita en að selja þær
ábúendunum. Jónas Haralz
bankastjóri sagði Mbl., að engin
ákvörðun hefði verið tekin um
framhald málsins.
Eins og Mbl. skýrði frá var af
hálfu Landsbankans lögð á það
áherzla fyrst eftir að tilboðin
höfðu verið opnuð, að reynt yrði
að samræma tilboð Arnarness-
hrepps og tilboð Davíðs Kristjáns-
sonar. Oddviti Arnarnesshrepps
lýsti því yfir i samtali við Mbl. að
hreppurinn treysti sér ekki til að
ganga inn í tilboð Davíðs, sem
aftur á móti kvaðst þeirrar skoð-
unar, að hreppurinn ætti að eign-
ast landið, en Davíð bauð í allt
saman; land og eignir. Sagði
Davíð, að hann hefði auk landsins
verið búinn að gefa hreppnum
eftir nokkuð af eignum, þegar
viðræðurnar fóru út um þúfur.
„Þetta hefur allt verið mjög
einkennilegt," sagði Davíð, „og
nú var ég um helgina að fá bréf
frá Landsbankanum, þar sem
segir aö 2. desember hafi verið
ákveðið að hafna öllum tilboðum í
Hjalteyri og eignirnar þar. Ég
hyggst nú kanna málið og reyna
að finna út, hvað þarna hefur
raunverulega gerzt.“
Holló krokkor!
Hver haldiði að sé að svamla í jólabókaflóðinu?
Já, það er ég, PÁLL VILHJÁLMSSON. Algjörlega
ósyndur maðurinn. Maður getur ekki einu sinni
hrokkið í — nei, haldið sér í kút.
Ef ykkur er ekki alveg sama um mig, verðiði að
kaupa mig í hvelli. Annars bara sekk ég. Globb . . .
globb.....bb.
Sko, þið farið í næstu bókabúð og segið: Er til
bókin PÁLL VILHJÁLMSSON eftir Guðrúnu Helga-
dóttur? Þá segir búðarfólkið kannski: Er það sú
sem skrifaði JÓN ODD OG JÓN BJARNA og í AFA-
HÚSI? Einmitt, segið þið.
Þið getið líka gert annað:
Biðjið mömmu ykkar eða pabba, afa eða ömmur,
frænkur og frændur að gefa ykkur bókina í jóla-
gjöf. Krafan er: harðan pakka í ár.
Éq rígheld mér í bakkann á meðan . . . globb.
Ykkar
P.s. Munið að þakka fyrir ykkur.
1 Bræóraborgarstíg 16, Sími 12923-19156
SKINN A BILS/ETIÐ
Það er notalegt að setjast 1
hlýtt bílsæti á köldum vetrarmorgni.
Oll þekkjum við hið gagnstæða.
Islenska gceruáklceðið er snöggklippt
og meðhöndlað með betri
einangrunareiginleika í huga. Það er
hlýtt að vetri en svalt að sumri.
Islenska gceruáklceðið fæst í sauða-
litunum og er auðvelt í ásetningu.
Islensk sktnn a bilscetið, gjöf setnyljar
jafnt innra setn ytra.
Sölustaðir: Framtíðm Laugavegi 45 og
Sútunarverksmiðja SS Grensásvegi 14
Skákmótið
í New York:
Guðmundur í
öðru sæti með
6 vinninga
„ÞETTA hefur gengið ágæt-
lega hjá okkur Helga nú síð-
ustu umferðirnar og tvær síð-
ustu skákirnar höfum við háð-
ir unnið,“ sagði Guðmundur
Sigurjónsson stórmeistari, er
Mbl. talaði við hann í gær og
spurði um frammistöðu hans
og Helga Olafssonar á skák-
mótinu i New York. „Ég er nú
með sex vinninga eftir níu um-
ferðir og Helgi fimm,“ sagði
Guðmundur, „og er ég í öðru
sæti, hálfum vinningi á eftir
Eaine.“
í áttundu umferð vann Guð-
mundur stórmeistarann Laine
og Diesen, fyrrverandi heims-
meistara unglinga, í þeirri ni-
undu. Helgi vann þá Kaimo frá
Filippseyjum og Valvo frá
Bandarikjunum.
Guðmundur Sigurjónsson
hefur unnið fjórar skákir, gert
fjögur jafntefli og tapað einni,
fyrir Vesterinen. Ajls verða
tefldar 17 umferðir.
Hjalteyrareignir:
Viðræðurnar nyrðra
farnar út um þúfur