Morgunblaðið - 18.12.1977, Page 13

Morgunblaðið - 18.12.1977, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1977 13 Hvar er öll gamla myntin? Islenzkir myntsafnarar hafa velt þvi töluvert fyrir sér hvaða mynt hefir verið notuð hér á landi á árunum frá um 1000 til um 1800. Landnámsmennirnir komu með hingað eitthvað af silfri, bæði peningum og öðru silfri sem notað var við verzlun. Silfrið var þá vegið en ekki talið í peningum, sem höfðu eitthvað gildi, eins og nú í dag. A þrettándu öld breytist þetta víðast hvar í Evrópu og farið er að slá peninga sem höfðu visst gildi. Mér dettur í hug í þessu sambandi kafli úr Njálu í hug. Þar er Kári að hefna sín á brennumönnum og er staddur á Bretlandi. „Þenna myrgin gekk Kolur Þorsteinsson (einn brennumanna) í borg að kaupa silfur. Hann hafði mest hæði- yrði um brennuna. Kolur hafði talað margt við frú eina rika, og var mjög i gadda slegið, að hann tnyndi fá hennar og setj- ast þar. Þenna hinn sama morg- un gekk Kári í borgina. Hann kom þar að, er Kolur taldi silfr- ið. Kári kenndi hann og hljóp að honum með sverð brugðið og hjó á hálsinn, en hann taldi silfrið, og nefndi tiu höfuðið, er það fauk af bolnum“. Samkvæmt því, er ég hefi les- ið um víkingaaldarmynt og verzlunarhætti þeirra tíma, var allt silfur vegið, eins og tekið er fram í byrjun þessarar greinar. A hinn bóginn mun Njáls saga ekki hafa verið rituð fyrr en á 13. öldinni og þá er farið að telja peningana. Sögnin að telja getur auðvitað hafa þýtt annað þá en hún þýðir i dag, en ef við gerum ráð fyrir að hún hafi þýtt það sama í þann tima er Njála var rituð og nú, er greini- legt að höfundur Njáls sögu hefir ekki alveg gert sér grein fyrir því á hvern hátt greiðslur voru inntar af hendi á þeim tíma er Njáls saga gerist. Þessi misskilningur er ekki bara i Njálu heldur og í fleiri íslend- ingasögum. Pétur Hoffmann Salómonsson, sem ég held kunni þær allar utanað ennþá, hefir sagt mér af svipuð atviki i Laxdælu. Auðvitað er ekki ger- andi veður útaf svona smámun- um heldur að nota þessi atriði til að komast á sporið i leitinni að því hvers konar mynt var í notkun hér á landi á undan- förnum öldum. Ekki hefir mér orðið neitt ágengt í leit minni að upplýs- ingum um notkun peninga hér á landi, nema frá því um 1800 eða svo. Sjálfsagt væri hægt að komast að því með því að fara í gegnum stjórnartilskipanir danskar, hvernig þessu hefir verið varið, en ég held að þann- ig sé ekki auðvelt að komast lengra aftur en til um 1700. Þá vakna spurningarnar. Til dæm- is: Hvernig var sýslumönnum greitt fyrir störf þeirra en sýsl- urnar eru frá þvi á 13. öldinni? Hvernig greiddu Islendingar tí- und til páfans (um Niðarós)? Hvernig greiddu Hansakaup- menn fyrir vörur er þeir létu af hendi við Islendinga? Hvernig var varið viðskiptum Englend- inga og íslendinga? Sjálfsagt hefir megnið af þessum við- skiptum verið vöruskiptaverzl- un og tiundargreiðslur einnig i fríðu. Um 1400 var Island mjög mikilvægt fyrir Evrópubúa þvi við seldum þeim lýsi, sem notað var til að lýsa upp borgirnar, sem voru að rísa við strendur Norðursjávar. Brennisteinninn var Iíka mikilvæg útflutnings- afurð á þeim tima þvi hann var notaðuri sprengipúður. Ég á erfitt með að trúa því að þarna hafi eingöngu verið um vöru- skipti að ræða. Það hljóta ein- herjir peningar að hafa flotið með. En hvar eru þá þessir pen- ingar? Hvaðan getum við feng- ið heimildir um þessi viðskipti? Hefir orðið eftir eitthvað af mynt frá þessum tima, þó ekki sé nema einn og einn peningur á stangli? Er hægt að fá upplýs- ingar úm þessa peninga. Þeir gætu hafa verið í eigu einhverr- ar fjölskyldu og það í mörg hundruð ár. Þetta hafa að öll- um likindum verið silfurpen- ingar. Ef einhverjir lesara minna eiga eða vita um mjög gamla peninga sem gætu verið hingað komnir vegna viðskipta við Hansakaupmenn, Englend- inga eða aðrar þjóðir, eða vita um gamla peninga, sem notaðir hafa verið sem greiðsla fyrir störf eða þjónustu hér á landi, væri mikill fengur að þvi að fá þá til athugunar. Það þarf ekki að senda peningana. Bara setja blað yfir þá og rissa yfir með blýanti svo það komi sem bezt fram á pappirnum mynstur peningsins bæði á fram- og bak- hlið. Helzt þarf að fylgja með eftir RAGNAR BORG saga hvers penings, hve lengi hann hefir verið hér á landi og hverjir hafa átt hann, svo langt sem rakið verður. Stjórn Myntsafnarafélags Is- lands vill beita sér fyrir ráð- stefnuhaldi á komanda vori, þar sem fjallað verður um það hvaða peningar muni hafa ver- ið notaðir hér á landf á undan- förnum öldum. Munu fræði- menn verða fengnir til fyrir- lestrahalds. En þetta er ekki nóg. Vil ég þvi biðja alla, sem eitthvað vita um sögur af mynt frá því fyrir 1700 að láta til sín heyra. Þetta mega vera múnn- mælasögur, úr annálum, úr bókum eða kvæðum eða nærri hvað sem er sem getur orðið til að upplýsa um notkun peninga hér á landi. . . Skrifið mér eða hringið til mín eða hittið mig og hjálpið mér til að koma sem mestum upplýsingum saman á einn stað. Mikið af gömlu pen- ingunum var innkallað og skil- uðu menn þá sínum peningum og fengu nýja, oft verri, pen- inga i staðinn. Silfrið var einnig oft notað til smíða og eru á Þjóðminjasafninu margir hlut- ir, skeiðar, gafflar, skrautmun- ir og fleira, sem smiðað hefir verið úr gömlum silfurpening- um. Samt er kannske eitthvað eftir. Af þeim peningum langar mig að frétta til að reyna að varpa ljósi á myntsögu Islands. Ég heiti þvi á alla, leika sem lærða, að leggja hönd á plóginn með þvi að veita okkur upplýs- ingar um mynt á Islandi fyrr á öldum. Þetta á við bæði Reyk- víkinga sem fólk úti á lands- byggðinni. Hversu smátt, sem það kann að virðast, gæti, þegar safnast saman, orðið til þess að varpa ljósi á myntsögu landsins okkar. tveggja skildinga peningur frá 1711 sleginn af Friörik 4. Danskur peningur, 1 mark frá dögum Kristjáns 5. Sleginn 1676.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.