Morgunblaðið - 18.12.1977, Page 21

Morgunblaðið - 18.12.1977, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1977 21 Mikið úrval af dömuúrum Póstsendum. Franch Michelsen, úrsmíðameistari, Laugaveg 39, sími 1 3462. Úrval laga með eftirtöldum listamönnum: Júdas, Ruth Reginalds, Jóhann G. Jóhannsson, Söngflokkur Eiriks Árna, Leikarar úr Saumastofunni, Guðmundur Guðjónsson, Sigfús Halldórsson og Haukar Hljómplötuútgáfan hf., Laugavegi 33, simi 11 508. „Ég hef aldrei kynnst ókvalráðari manni, aldrei jafn hreinskiptnum, aldrei ís- lenzkari manni“, segir höfundurinn um Skálateigs- strákinn, Þorleif Jónsson. Þorleifur hefur víða komið við og kann sæg af skemmti- legum sögum. Hann er fædd- ur og uppalinn á Norðfirði, var um tíma lögregluþjónn í Hafnarfirði, síðan hægri hönd Geirs Zoega, umboðsmanns erlendra skipa á stríðsárun- um, bæjarfulltrúi í Hafnar- firði á þriðja áratug, gler- harður sjálfstæðismaður og ritstjóri bæjarmálablaðs. Fékkst um tíma við málflutn- ingsstörf, var útgerðar- og sveitarstjóri á Eskifirði, framkvæmdastjóri í Stykkis- hólmi og sat átján ár í stjórn Fiskimálasjóðs. — Það heyrir undir brýn þjóðþrif í dag að bóka ævi manna eins og Þorleifs Jónssonar og það er dauður maður, sem lætur sér leiðast undir tungutaki hans og efnistökum Jóhannesar Helga. Nokkrar sögur um bróður Ástvald, Grafarráðskonurnar, stúlkurnar í tjöldunum, guð- ina f Sporðhúsum, fólkið á Kormáksgötunni og kjallar- ann í Hartmannshúsinu. — Jóni Helgasyni lætur flestum höfundum betur sá leikur að lífsmyndum, sem einkennir þessar sögur hans, en höfuð- einkenni þeirra er fagurt mál, stílsnilld og óvenjuleg frá- sagnarlist. Fyrri smásagna- söfn hans, Maðkar í mysunni og Steinar í brauðinu, töldust til tíðinda, er þau komu út, og víst er að eins mun fara um þessa bók hans, svo frábær- lega vel sem þær sögur eru sagðar, sem hún hefur að geyma. Uokkrar síigar uro ' bróíiur Ástvald, Grafarráöskonurnar, stúlkurnar i tjöldunum. jíuöinn í Sporðhúsura. fólkið i Kormáksgötunni og kjallarann í Hart- ntannshúsinu. sxuGsai* Þessi bók spannar 60 — 70 ár af ævi Magnúsar Storms, hins ritsnjalla og glaðbeitta gleði- manns, sem allir er kynnst hafa dá fyrir hreinskilni og hvassan penna. Á fyrri hluta þessa tímabils lifði hann „hinu Ijúfa lífi“ við drykkju og spil, naut samvista við fagrar konur og átti 10 — 12 gangandi víxla í bönkum. Nú hefur hann söðlað um og breytt um lífsstfl. Heims- listarmaðurinn er orðinn lystarlaus á vfn og konur, safnar fé á vaxtaaukabók og hugleiðir ráð Sigurðar Nordals um undirbúning undir ferðina miklu. Friðþæg- ing hans við almættið er fólg- in í þessari bók, en í hana hefur hann valið til birtingar sitthvað af því bezta, sem hann hefur ritað, — og víst er að bókin svíkur engan, sem ann íslenzku máli'eða snjöll- um og tæpitungulausum texta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.