Morgunblaðið - 22.12.1977, Síða 5

Morgunblaðið - 22.12.1977, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977 5 ur. staðfest Göngustafur vindsins María Markan fær Sögur eftir Ingimar Erlend Sigurðsson ÚT ER komin ný bók eftir Ingi- mar Erlend, Göngustafur vinds- ins, og hefur að geyma sautján sögur, flestar nýjar af nálinni — samdar á þessu ári. Göngústafur vindsins er tíunda bók Ingimars Erlendar og önnur sagnabók hans. Aður hafa komið út eftir hann þrjár skáldsögur og fimm ljóðabækur, auk safns stuttra sagna. Sögurnar í Göngustaf vindsins eru mislangar, allt frá einni upp i nítján siður. Þær eru ólíkar að efni og stíl, sumar í ævintýra- og dæmisögustil, aðrar i hefðbundn- ari stíl stuttra sagna, sögusvið úr borg og sveit og hugarheimum. í fréttatilkynningu frá útgáfu bókarinnar, Bókaútgáfunni Letri segir: „Bókmenntalesendur hafa iengi beðið nýrrar bókar stuttra sagna, eftir Ingimar Erlend, eða allt frá þvi Almenna Bókafélagið gaf út Hveitibrauðsdaga, safn stuttra sagna, árið 1961. Sú bók hlaut einróma lof bók- menntafólks og gagnrýnenda sem og almennra lesenda og er löngu uppseld. Ingimar Erlendur vakti fyrst verulega athygli sem höfundur stuttra sagna, aðeins fimmtán ára gamall, er bókmenntatímaritið Líf og List birti eftir hann stutta sögu, Þrjár líkkistur, sem þótti Fjárlög: Kaup á Víðishúsi með ólikindum vel samin af svo barnungum manni. Sögur er síðar birtust f bók- menntatímaritum, svo sem Birt- ingi, Tímariti Máls og Menningar, Lesbók Mbl., útvarpi og víðar, staðfestu óvenjulegt vald hans á gerð stuttra sagna. Hann vann til smásagnaverðlauna og saga úr Hveitibrauðsdösum var valin i úr- ingimar erlendur sigurdsson heiðurslaun listamanna valssögur stuttra sagna á Norður- löndum árið 1965. Síðan hafa stuttar sögur, eftir Ingimar Erlend, birst á víð og dreif í safnbókum og tímaritum, heima og erlendis". Göngustafur vindsins er 143 blaðsíður að lengd og höfundur hefur sjálfur teiknað kápumynd bókarinnar, sem vísar til heitis hennar og er sótt í sögu i henni. Sem dæmi um heiti sagna má nefna: Öskrið, Bylting i rikinu, Af holdi og blóði, Geymslurnar, Vængir, Ökunn mynd, I hlaðvarp- anum. . . MENNTAMÁLANEFNDIR beggja þingdeilda, 14 þingmenn úr öllum þingflokkum, fluttu sameiginlega tillögu um skipan i heiðurslaunaflokk listamanna á fjárlögum ársins 1978. Gerð er tillaga um 12 menn, svo sem verið hefur um árabil. í stað Rikharðs Jónssonar myndhöggvara, sem lézt á árinu, kemur Maria Markan óperusöngkona. Samkvæmt til- lögu þessari, sem alþingi sam- þykkti við afgreiðslu fjárlaga í gær, hlýtur hver eftir talinna listamanna kr. 750 þús. heiðurs- Iaun: Asmundur Sveinsson, Finn- ur Jónsson, Guðmundur Daníels- son, Guðmundur G. Hagalín, Hall- dór Laxness, Indriði G. Þorsteins- son, Kristmann Guðmundsson, María Markan, Snorri Hjartarson, Tómas Guðmundsson, Valur Gíslason og Þorvaldur Skúlason. Tvær breytingartillögur komu fram við framangreinda tillögu menntamálanefnda þingsins, sem báðar voru felldar. Önnur var frá Albert Guðmundssyni, og gerði ráð fyrir fjölgun um þrjá lista- menn í heiðurslaunaflokki: Hall- grím Helgason, Sigurjón Ölafsson og Stefán íslandi. Hin var frá Magnúsi Kjartanssyni, sem gerði ráð fyrir fjölgun um tvo: Ólaf Jóhann Sigurðsson og Sigurjón Ólafsson. Fjárlög: Kaup á dagblödum aukin Ein breytingartillaga við frumvarp til fjárlaga, sem meirihluti fjárveitinga- nefndar stóð ekki að, náði samþykki á Alþingi í gær, er fjárlög voru endan- lega afgreidd fyrir komandi ár Hér er um að ræða tillögu frá Þórarni Þórar- inssyni (F), Benedikt Gröndal (A) og Ragnari Arnalds (Abl). Lögðu þeir til að nýr liður bættist við 6. gr fjárlaga, svohljóðandi: „Að kaupa dagblöð fyrir stofnanir ríkisins, allt að 250 eintök af hverju blaði, umfram það sem veitt er til blaðanna í 4. gr. fjárlaga Tillaga þessi var samþykkt með 38 atkvæðum gegn 1 2. Vinsælar erlendarjólaplötur FÁLKINN Suðurlandsbraut 8 Laugavegi 24 Vesturveri 84670 18670 12110 Roger Whittaker syngur á sinn skemmtiiega og persónulega hátt 12 jólalög. Verð kr. 3.200,- Heintje syngur með sinni eín- stöku drengjarödd 12 þekkt jólalög. Falleg plata. Verð kr. 2 950 - Hinn vinsæli söngvari Engelbert Humperdinck með splunkunýja, sérstaklega skemmtilega jólaplötu. Verð kr. 3.200. — The Greatest Hits of Christmas ýmsir heimsfrægir listamenn. þ.á m. Anna Moffo, Mormona Tabernacle kórinn, Pablo Casals og fl. flytja 14 jólalög. Verð aðeins kr. 1.980,— Hér syngur ein fremsta sópran- söngkona heims, Leontyne Price, þekkt jólalög. Falleg og hátíðleg plata. Verð kr. 3.200. — Hér eru öll þekktustu jólalögin spiluð i disco stíl. Verð kr. 3 300. — STiRiOi»»,. CHRISTMAS WfTH LEONTYNÍ PRICE ALÞINGI staöfesti í gær, viö af- greiðslu fjárlaga, kaup á 3., 4 og 5. hæð húseignarinnar Laugavegur 166, svonefnds Viðishúss. Fram kom tillaga frá Lúðvík Jósepssyni og Ragnari Arnalds þess efnis, að viðkomandi gjaldaliður þ.e. til kaupa á húsinu yrði felldur niður. Tillagan var felld með 30 atkvæð- um gegn 17, 10 sátu hjá en 3 þingmenn voru fjarverandi. Með tillögunni greiddu atkvæði 11 þingmenn Alþýðubandalags, 5 þingmenn Alþýðuflokks og einn þingmaður Samtakanna (MTÓ). Hjá sátu 9 þingmenn stjórnar- flokka: fimm úr Sjálfstæðisflokki og f jórir úr Framsóknarflokki. Fjölskyldu- hátíð á Akranesi KNATTSPYRNURÁÐ Iþrótta- bandalags Akraness gengst fyrir fjölskvlduhátíð í Iþrótta- húsinu á annan í jólum og hefst hún klukkan 15. IVIeðal dagskrárliða verða bingó, Halli og Laddi koma fram og skemmta og einnig Jörundur. Þá munu Islands- meistarar 5, flokks syngja nokkur lög. Veski stolið af ungum manni UNGUR maður varð fyrir því óláni í gær, að veski hans var stolið þegar hann var að verzla i verzluninni Faco á Laugavegi. Hann lagði frá sér veskið eitt augnablik á afgreiðsluborðið og sneri sér frá og skipti það engum togum að veskið var horfið, er hann sneri að borðinu aftur. Þetta er mjög bagalegt fyrir hann þar sem i veskinu var mikið að persónuskilríkjum, sem mjög slæmt er að missa. Það eru því eindregin tilmæli hans að sá sem tók veskið skili því í póstkassann á Meistaravöllum 31, en í veskinu er merkt heimilisfangið Hagamel-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.