Morgunblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977 Þetta er G.M.-settið, glæsilegt og stílhreint. Grind í hvítu eða dökkbrúnu. Við höfum margar aðrar gerðir af sófasettum á mjög hagstæðu verði. Athugið okkar verð og okkar kjör. Það borgar sig. Daglega koma jólasveinar og aðstoða viðskiptavini Blómavals við að velja jólatrén en vinsælastir eru þeir þó hjá ungu kynslóðinni. NYKOMIÐ Grófrifflaðar flauelsbuxur á dömur og herra. Stærðir 24—40. Verð kr. 4.995. — Sléttflauelsbuxur með þröngum skálmum. Stærðir 26—33. Verð kr. 9.495 - Flauelsbuxur barna. Stærðir 98 —146. Verð frá kr. 1.995. — Náttföt drengja og herra. Verð frá kr. 1.795 - Síðar nærbuxur drengja og herra. Aliar stærðir. Herrapeysur í miklu úrvali. HAGKAUP Dómur í máli um rádningarlok: Vottorð ráðherra dugði ekki sem sönnun fyrir æviráðningu BJARNI K. Bjarnason borgardómari kvað nýlega upp dóm í skaðabótamáli, er Einar Valur Ingimundarson verkfræðingur, höfðaði gegn heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs vegna deilu um ráðning- arlok Einars Vals hjá Heilbrigðiseftirliti ríkisins. Taldi Einar Valur, að hann hefði verið ráðinn svonefndri æviráðningu, er hann réðst þangað til starfa í ársbyrjun 1974, og var m.a. lagt fram vottorð frá Magnúsi Kjartans- syni þáv. heilbrigðisráðherra, þar sem þetta sjónarmið var stutt. Af hálfu stefndu var því haldið fram, að ráðningar- samningur, sem aðilar undirrituðu væri gildandi um kjör aðila, og hefði Einar Valur ekki haft rétt til frekari ráðningar en samkvæmt þeim samningi. Málið fluttu þeir Ragnar Aðalsteinsson hrl. af hálfu stefnanda en Gunnlaugur Claessen hdl. af hálfu stefndu. Dómsorðið var: „Stefndu, heilbrigðisráðherra og fjár- málaráðherra f.h. ríkissjóðs skulu vera sýknir af kröfum stefnanda Einars Vals Ingimundarsonar f máli þessu. Málskostnaður fellur niður.“ Mikil blaðaskrif urðu vegna þessa máls í desember 1974, er Einari Val var tilkynnt um að hann yrði ekki endurráðinn til Heilbrigðiseftirlits ríkisins. Gerði Magnús Kjartansson þetta að umræðuefni á Alþingi og taldi að hér væri um að ræða ólögmæta uppsögn. Einar Valur var ráðinn til starfa hjá Heilbrigðiseftirliti ríkisins um áramótin 1973 til 1974. Með samkomulagi við þáver- andi heilbrigðisráðherra var hann ráðinn til Heilbrigðiseftir- litsins og átti hann að starfa þar hluta úr ári en vinna að doktors- ritgerð í London hluta úr ári. Samkvæmt vottorði Magnúsar Kjartanssonar var ákvörðunin um skipan Einars Vals til framtíðar, „þ.e. svonefnd „æviráðning" og var það hlutverk viðeigandi embættismanna að ganga form- lega frá skipuninni," eins og segir orðrétt í vottorðinu. I ársbyrjun 1974 undirritaði Einar Valur ráðningarsamning til eins árs. 1 desember sama ár var honum tilkynnt að hann yrði ekki endurráðinn. Einar Valur mótmælti þessari ákvörðun og taldi sig hafa fengið bindandi loforð á fyrrnefndum fundi með heilbrigðisráðherra um æviráðningu. A þeim fundi hafi hann verið fastráðinn hjá Heilbrigðiseftirliti ríkisins og skyldi hann starfa hluta ársins hjá eftirlitinu, en vinna að doktorsritgerð hluta ársins í London í þrjú ár. Halda skyldi hann fullum launum allt árið, enda ljóst, að hann yrði að af- þakka veittan styrk, þar sem hann skyldi velja verkefni miðað við íslenskar aðstæður og þarfir fs- lenskra stjórnvalda, þ.e. heil- brigðiseftirlitsins. 1 forsendum dómsins segir m.a.: „Þegar það er virt, að forstöðu- maður Heilbrigðiseftirlits ríkis- ins óskaði þess með bréfi sínu 8.1. 1974, að stefnandi yrði ráðinn til starfans fyrst um sinn til eins árs, og að ráðningarsamningur við stefnanda var gerður til eins árs, svo og það, að staðan var ekki auglýst, þykir þrátt fyrir skýrslu stefnanda og vottorð Magnúsar Kjartanssonar ósannað, að stefn- andi hafi hlotið skipun í stöðuna með æviráðningu. Verður hinn skriflegi ráðningarsamningur, sem var tímabundinn, því lagður til grundvallar um lögskipti aðil- anna, enda er ósannað, að um málamyndagjörning hafi verið að ræða til þess eins að koma stefn- anda á launaskrá." Þá segir ennfremur: „1 málinu liggja frammi bréfa- skipti stefnanda og Baldurs John- sen á meðan stefnandi dvaldi í London á árinu 1974. Af þeim bréfaskiptum og skýrslum Bald- urs hér fyrir dómi má ráða, að Baldri hafi sem forstöðumanni Heilbrigðiseftirlits ríkisins engan veginn verið ljóst, hvernig til háttaði með framhaldsnám stefn- anda. Þá virðist forstöðumaður- inn heldur ekki hafa vitað, þegar stefnandi var ráðinn, að stefnandi ætlaði sér að dvelja svo lengi er- lendis, svo sem raun varð á, en stefnandi dvaldi erlendis á árinu 1974 7% mánuð eins og áður greinir, sbr. og skýrslu Jóns Ingi- marssonar' skrifstofustjóra um þetta efni. Þegar stefnandi kom heim var hann hættur við loft- mengunarrannsóknir sinar á veg- um Imperial Collage, en um fram- tíðarnám virtist allt á huldu. Þrátt fyrir hina löngu dvöl er- lendis hafði hann ekki svo séð verði valið íslenskt rannsóknar- verkefni en loftmengunarrann- sóknir hans á Heathrowflugvelli töldust I þessu sambandi vera breskt rannsóknarverkefni. Stefnanda gat ekki dulist óánægja forstöðumanns Heil- brigðiseftirlits rikisins með hina löngu fjarvist stefnanda erlendis við breskt rannsóknarverkefni. Þrátt fyrir þetta virðist stefnandi eftir að hann kom heim frá London, ekki hafa gert forstöðu- manninum glögga grein fyrir fyrirætlunum sínum um fram- haldsnám og störf sín hjá Heil- brigðiseftirlitinu. Að svo vöxnu máli var þess vart að vænta, að forstöðumaður Heilbrigðiseftir- litsins mælti með endurráðningu stefnanda.“ Eins og fyrr segir var niður- staða dómarans sú, að stefndu voru sýknaðir af kröfum stefn- anda, en talið var rétt að máls- kostnaður félli niður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.