Morgunblaðið - 22.12.1977, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER J977 .
15
Frá Alþingi:
18% vörugjaldið framlengt
þykkt með 12 samhljóða atkv. í
efri-deild. Aður hafði að tillögu
forsætisráðherra verið bætt við
Skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna samþykkt
A KVÖLD- og næturfundum AI-
þingis í fyrradag voru afgreidd
fjögur lagafrumvörp auk þings-
ályktunartillögu um fiskveiði-
samning tslendinga og Færey-
inga. Var þingsályktunin til með-
ferðar í sameinuðu Alþingi og
mælti Þórarinn Þórarinsson, for-
maður utanrfkisnefndar, fyrir
áliti nefndarinnar þess efnis að
nefndin mælti með samþykkt til-
lögunnar. Fjallar tillagan um
staðfestingu á niðurstöðum við-
ræðna um gagnkvæmar fiskveiði-
heimildir tslendinga og Færey-
inga, sem undirritað var hinn 12.
desember sl. Tillagan var sam-
þykkt samhljóða.
Samþykkt var á kvöldfundi
efrideildar frumvarp til laga um
breytingar á lögum um löndun á
loðnu til bræðslu og gerir breyt-
ingin ráð fyrir að loðnunefnd sé
heimilt að stöðva löndun um tak-
markaðan tíma á ákveðnum svæð-
um eða i einstakar verksmiðjur,
án tillits til móttökugesta þeirra.
Þó er nefndinni skylt að leyfa
löndun í einstakar verksmiðjur á
ákveðnum svæðum, ef öryggi
skips eða skipshafnar krefur.
Frumvarp um framlengingu á
18% vörugjaldi var samþykkt og
skal gjaldið skv. því innheimt til
31. desember 1978. Gjald þetta á
að gefa 7.800 milljónir króna í
tekjur. Þá var frumvarp um heim-
ild til erlendra lántöku, ábyrgðar-
heimildir og aðrar ráðstafanir
vegna lánsfjáráætlunar 1978 san-
Ók á bíl
og stakk af
Á MIÐVIKUDAGSMORGUNINN
var ekið á bifreiðina R-4737, sem
er brún Mazda-bifreið, þar sem
hún stóð á móts við húsið Loka-
s'tíg 26. Gerðist þetta á tímabilinu
milli klukkan 8 og 9. Frambretti
bifreiðarinnar var eyðilagt en
tjónvaldurinn fór af staðnum án
þess að láta vita um ákeyrsluna.
Er hann beðinn að gefa sig fram
svo og vitni að ákeryslunni ef
einhver eru. Það er slysarann-
sóknadeild lögreglunnar, sem
hefur með mál þetta að gera.
Flöskuskortur
veldur fram-
leiðslutregðu
á Coca Cola
UNDANFARNA daga hefur borið
nokkuð á því að Coca Cola hafi
ekki fengist i verzlunum í Reykja-
vík, og að því er Pétur Björnsson,
framkvæmdastjóri verksmiðjunn-
ar Vifilfells, tjáði Morgunblaðinu
í gær, má búast við að svo verði
fram yfir jól, þó ekki í ríkum
mæli. Pétur sagði að ástæðan
fyrir skorti á þessum vinsæla
drykk væri ekki sú að verksmiðj-
an hefði ekki undan, heldur væri
um flöskuskort að ræða, og
vantaði verksmiðjunni nú tvær
tegundir af flöskum. Kvað Pétur
verksmiðjuna hafa átt að fá stóra
flöskusendingu hinn 20.
nóvember s.l.; hún hefði farizt
fyrir en væri nú að koma til lands-
ins, þannig að hægt yrði að hefja
átöppun á flöskurnar milli jóla og
nýárs.
ákvæði 3. greinar frumvarpsins
um kaup lifeyrissjóðanna á
skuldabréfum, að ef sérstakar
fjárhagsástæður einstakra lífeyr-
issjóða krefjist, geti fjármálaráð-
herra lækkað 40% skyldu hlutfall
verðbréfakaupa af ráðstöfunarfé
sjóðanna.
Samþykkt var frumvarp um
breytingar á lögum nr. 118/1976
vörugjald, en það felur i sér
álagningu gjalds á gosdrykki, öl
gert úr malti og ölkelduvatn. í
meðförum þingsins var gjald
þetta lækkað nokkuð að tillögu
fjárhags- og viðskiptanefndar
neðri-deildar. Var gjaldið á öl-
kelduvatn lækkað úr 20 í 17 krón-
ur á hvern litra, gjaldið á gos-
drykkina var lækkað úr 20 í 16
krónur, gjald á maltöl verður 14
krónur á lítra en upphaflega til-
lagan var um 18 krónur og gjald á
annað öl verður 17 krónur í stað
21 krónu. Hluti af þeim tekjum,
sem fást af gjaldi þessu, rennur
til Styrktarsjóðs vangefinna.
W
forðast alla milliliði
panta venjulegt
magn me“ ‘
fyrirv
flyt
beni. ,,a
Japan.
Er
250 þús.
kr. tæki
þetta a
mögulegt? 179.
hljómtæ kja verzlun
landsins
— fullkomin
- hlustunar-
skilyrði.
Tæknilegar
Magnari
6—IC, 33 transistorar
23 dióður, 70 wött
Útvarp
Örbylgja (FM 88-108 megarið
Langbylgja: 1 50-300 kílórið
Miðbylgja: 520-1605 kilórið
Stuttbylgja: 6—18 megarið
Segulband Hraði: 4 75 cm/s
Tiðnisvörun venjulegrar kasettu
(snældu) er 40—8000 rið
Tiðnisvörun Cr 02 kasettu er
40—12.000 rið
Tónflökt og -blakt (wow & flutter)
betra enO 3% RMS
Timi hraðspólunnar á 60 min
spólu er 1 05 sek
Upptökukerfi AC bias, 4 rása stereo
Af þurrkunarkerfi AC afþurrkun
upplýsingar
Plötuspilari
Full stærð, allir hraðar, sjálf-
virkur eða handstýrður. Nákvæm
þyngdarstilling á þunga nálar á
plötu. Mótskautun miðflóttans
sem tryggir lítið slit á nál og
plötum ásamt fullkominni upp-
töku
Magnetískur tónhaus.
Hátalarar
Bassahátalari 20 cm af koniskri
gerð. Mið- og hátíðnihátalari 7.7
cm af kónískri gerð
Tíðnisvið 40—20.000 rið
Alikahfutir Tveir hátalarar
Tveir hljóðnemar %
Ein Cr 02 kasetta
FM loftnet
Stuttbylgju loftnetsvír
BUÐIN
/
Á horni Skipholts og
Nóatúns
simi 29800 ( 5LÍNUR)