Morgunblaðið - 22.12.1977, Síða 20

Morgunblaðið - 22.12.1977, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Keflavík Vantar blaðbera í vesturbæ. Uppl. á afgreiðslu sími 1 1 64, Keflavík Fóstra eða annar starfskraftur óskast til starfa á barnaheimilið Tjarnarsel, Keflavík, Upp- lýsingar veitir forstöðukona sími 2670. 2670. Vanur matsveinn óskar eftir plássi á góðum loðnubát. Til- boð sendist Mbl. merkt: „matsveinn — 4043", sem fyrst. Ólafsvík Umboðsmaður óskast til að annast dreif- ingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið. Upplýsingar á afgreiðslu í Reykjavík. Sími 10100. JMfagtmliffttoife Húsvörður óskast Heild h.f. Sundaborg óskar að ráða hús- vörð. Verður að hafa eigin bíl til umráða. Vinnu- tími frá kl. 8.00 — 1 8.00 alla virka daga. Starfið er laust nú þegar. Uppl. um aldur og fyrri störf sendist augl.deild Mbl. fyrir 29. des. n.k. merkt: „Húsvörður — 4472". Lagerstarf Starfsmaður óskast sem fyrst til lager- starfa hjá fyrirtæki í Kópavogi. Umsóknir sendist Mbl. merkt: „Lagerstarf — 4048." Sölustarf Innflutningsfyrirtæki sem verzlar með vél- ar og tæki til iðnaðar óskar að ráða sölumann sem fyrst. Verzlunarskóla- eða hliðstæð menntun æskileg. Umsóknir sendist til Morgunblaðsins fyrir 27. des- ember '77 merkt: „Sölustarf — 4050." Pípulagningamaður Viljum nú þegar ráða pípulagningamann til lengri eða skemmri tíma. Mötuneyti á staðnum. Bátalón h. f., Hafnarfirði símar 50520 og 52015. Iðnfyrirtæki óskar að ráða sem fyrst starfskraft til skrifstofustarfa. Verzlunarskóla- eða hlið- stæð menntun æskileg Til greina kemur hálfdagsstarf. Umsóknir sendist til afgr. Mbl. fyrir 27. desember '77 merkt: „Iðn- fyrirtæki — 4047". Ræstingakonur Óskum eftir að ráða konu til ræstinga alla virka daga frá kl. 17 til 18. Upplýsingar veittar á skrifstofutíma 9 —12 oq 14 — 1 7. Franska Sendiráðið. Túngötu 22, Reykjavík. Vanur matsveinn óskar eftir að komast á góðan loðnubát. Tilboð sendist Mbl. sem fyrst merkt: „L — 4473". Hjúkrunar- fræðingar Sjúkrahús Akraness óskar að ráða tvo hjúkrunarfræðinga á lyflækningadeild, einn hjúkrunarfræðing á handlækninga- deild, tvo hjúkrunarfræðinga á hjúkrunar- og endurhæfingardeild. Húsnæði fyrir hendi. Nánari upplýsingar gefur hjúkrun- arforstjóri í síma 93-23 1 1 . Skrifstofustarf Starfskraftur óskast sem fyrst til bók- halds-, vélritunar og annarra skrifstofu- starfa hjá litlu verzlunarfyrirtæki. Um- sóknir með upplýsingum um menntun og reynslu sé skilað á afgreiðslu blaðsins fyrir 27. desember merkt. „Skrifstofustarf — 4049". Skrifstofustarf Starfskraftur óskast sem fyrst til vélritun- ar, afgreiðslu og annarra almennra skrif- stofustarfa. Umsóknir með upplýsingum um mennt- un og reynslu sé skilað á afgreiðslu Mbl. fyrir 28 des. 1977 merkt: „Á — 4052". ^ Kjötafgreiðsla Sláturfélag Suðurlands óskar eftir að ráða starfsmann til afgreiðslustarfa í kjötdeild, í eina af matvöruverzlunum félagsins. Nauðsynlegt er að umsækjandi, hafi ein- hverja starfsreynslu. — Hér er um fram- tíðarstarf að ræða. Allar nánari upplýsingar veitir starfs- mannastjóri á skrifstofu félagsins, að Skúlagötu 20. Sláturfélag Suður/ands. Járniðnaðarmaður óskast Oskum að ráða vélvirkja eða mann vanan rafsuðu og logsuðu. Gott kaup fyrir réttan mann. Vélvirkinn s. f. Vélaverkstæði Bolungarvík. Sími 94-7348. Skrifstofustarf Fyrirtæki í Sundaborg óskar að ráða starfsmann til almennra skrifstofustarfa. Reynsla og þekking á innflutningi nauð- synleg. Starfið er laust nú þegar. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist augld. Mbl. fyrir 30. des. n.k. merkt. „Traust(ur) — 5307". — Heimur versnandi fer Framhald af bls. 11. Steinarr. Þegar þar var komið sögu (á sjötta. áratugnum) að atómskáldin voru orðin að tiltölu- lega samstæðum hóp, höfðu ung skáld og menntamenn ofurtrú á Steini, tilbáðu skáldskap hans næstum. Jón Óskar kynntist hon- um persónulega og lýsir honum vafalaust nákvæmlega eins og Steinn kom honum fyrir sjónir. Athugasemdir hans um styrk og veikleika Steins i skáldskapar- fræðum og tungumálum eru líka vafalaust hárréttar. KaffihúsaJif þeirra og annarra slíkra er líka menningarsögulegur kapítuli. Ég tek líka sem dæmi um mannlýs- ingar Jóns Óskars Iýsing hans á Jónannesi Helga, en þeir voru fyrst samstarfsmenn á Alþingi, síðan saman í París. Birtings- mönnum þykir mér Jón Óskar lýsa dauflegar, þeir standa hon- um nær en svo að honum þyki tjóa að segja kost og löst á þeim. Það sem hann segir frá þeim er þó sögulega minnisvert. Hins vegar tel ég Jón Óskar oft draga rangar eða að minnsta kosti hæpnar ályktanir af kynnum sín- um við menn, orðum þeirra, skrif- um og athöfnum þegar það varðar að einhverju leyti sjálfan hann eða ritstörf hans. Af frásögn hans að ráða hefur honum jafnan verið illa tekið, raunar einnig atóm- skáldunum öllum, einkum hefur verið bægt frá honum (og þeim að nokkru leyti) þeirri viðurkenn- ingu sem hann átti skilið. Þar á móti hlutu önnur skáld ómælda viðurkenning og sum allt of ríf- lega. Ég held að Jón Óskar geri sér ekki grein fyrir í hverju viður- kenning er raunverulega fólgin. Þá fyrst hefur skáld haft erindi sem erfiði þegar dómbært fólk tekur að lesa verk þess og fylgjast með hverju einu sem frá þvi kem- ur. Verðlaunaveitingar og glamur í fjölmiðlum ásamt þeim með- fylgjandi áhrifum að almenning- ur kannast við nafn skáldsins og þekkir það af myndum er annar handleggur, óskylt mál! Slíkur fyrirgangur þýðir oft hið gagn- stæða, að skáldið er búið að hljóta sína viðurkenningu og enginn væntir neins af því framar, það fær að njóta þess um sinn að vera dautt. I þeim skilningi hlutu bæði atómskáldin og Birtingur verðuga viðurkenning. Hins vegar þótti ekki taka þvi að svipta Davíð heiðri sínum þó hann væri á gam- als aldri tekinn að yrkja kvæði sem voru ekki einu sinni svipur hjá sjón miðað við það sem hann hafði ort ungur, en Jón Óskar getur þess að sér hafi blöskrað sá leirburður. Davið var keyptur til jólagjafa til hinstu bókar. En hann stóð aldrei i vegi fyrir Birt- ingi. Þeir sem vöfðu síðustu bæk- ur hans i bjölluskreyttan jóla- pappír til að gefa vinum og ætt- ingjum hefðu ekki lesið Birting hvort eð var og réðu örugglega engu um viðurkenningu til handa ungum og upprennandi skáldum í þann tið. Slíka hluti gerir Jón Óskar sér ekki ljósa — eða horfið framhjá þeim. En um ljóð Jóns Óskars og mat á þeim sem honum verður sjálf- um svo tíðrætt um, er það að segja að ég tel þessa ævisögu hans betri — og er þó margt gott um þau að segja. Erlendur Jónsson — Skyldu- sparnaður Framhald af bls. 2 un samkv. ákvæðunr. 52. grein skattalaga. Einnig gætu verið afbrigði frá þessu, ef mismun- urinn af vergum tekjum og skattgjaldstekjum væri hærri en ákveðin gefin fjárhæð, þá hækkuðu skattyfirvöld grunnin til skyldusparnaðar. Einnig væri þegar um væri að ræða atvinnurekanda eða mann með sjálfstæðan atvinnurekstur, sem væri að mati skattyfirvalda með lægri tekjur en ætla mætti ef hann hefði verið launþegi hjá öðrum, þá væri grunnurinn hækkaður og skattgjaldstekj- urnar sem kæmu út úr mismuni hinna þriggja liða sem áður eru taldir, væri þá orðnar grunnur þessa aðila. Hér fer á eftir tafla sem sýnir hvernig skyldusparnaður reiknast. — Ríkisbankar Framhald af bls. 3. Hjá Utvegsbankanum fékk Mbl. þær upplýsingar að þegar ekki væri tekið tillit til Fiskveiðasjóðs hefði starfsmannafjöldinn 1. okt. sl. verið alls 255 og væru þá 10 starfsmenn i hálfu starfi, en t.d. árið 1970 hefði starfsmannatalan verið 218 og þá 6 starfsmenn i hálfu starfi. Morgunblaðinu tókst ekki að fá upplýsingar um starfsmanna- fjölda Framkvæmdastofnunar. Starfsmenn þar vísuðu á Tómas Arnason forstjóra, sem hafði hins vegar tölurnar ekki handbærar þegar Mbl. náði tali af honum mitt í önnum siðustu daga þings- ins, en sagði að hjá stofnuninni hefði svonefndum sérfræðingum fremur fækkað upp á síðkastið en erfiðara væri að meta þróunina varðandi fjölda skrifstofuliðs, því að þar væri meiri hreyfing á starfsliðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.