Morgunblaðið - 07.01.1978, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1978
Eftir dvölina í Jóhannesarborg,
sem lýst var í fyrstu grein þessar-
ar ferðasögu, var hún kvödd með
söknuði og flogið frá Ian Smuit
flugvelli rakleiðis til Nairobi í
Kenya. Lent var á flugvellinum
þar, skömmu eftir hádegi og ekið
inn í borgina, að Hótel Serena,
þar sem við áttum pöntuð her-
bergi. Eftir að við höfðum komið
okkur fyrir á hótelinu, fóru flest-
ir að skoða borgina. Hitinn í
Nairobi var svipaður og í
Jóhannesarborg, eða tæplega 30
gráður á eelsíus, enda stendur
borgin á hásléttu, ekki langt frá
fjallinu Kilimanjaru, sem margir
Islendingar þekkja af spurn.
Kenya er eins og flestum mun
kunnugt stjórnað af forseta lands-
ins Mzee Jomo Kenyatta og stjórn
hans, en öll stjórnin er þar skipuð
svörtum frumbyggjum landsins
og hvíti minnihlutinn á þar engan
fulltrua. En ástæðan mun vera sú
að mjög fáir hvftir menn búa í
landínu og heyrði það til undan-
tekninga að við sæjum hvítt fólk
þar.
Nairobi bar það með sér, að hún
tilheyrði vanþróuðu ríki. Þar vat;
míkill fjöldi betlara hvar sem við
fórum og lifnaðarhættir inn-
fæddra voru vægast sagt mjög
frumstæðir. Vegakerfi landsins
var einna likast því, sem við
búum við hér heima, úti á lands-
byggðinni. Holóttir vegir og ryk-
mettaðir, og jafnvel þeir vegir
sem voru malbikaðir voru með
stórum holum, sem virtust hafa
verið þar um áraraðir án þess að
hirt væri um að fylla í þær.
I miðborg Nairobi voru þó
nokkrar glæsilegar byggingar, en
þar bar mest á alþjóðaráðstefnu-
höllinni og byggingum sem henni
tilheyrðu. Stungu þær mjög í stúf
við umhverfið og hafa vafalaust
verið rándýrar í byggingu. En all-
ar höfuðborgir verða víst að geta
státað af einhverju fallegu, sama
hversu fátækar þær eru. bá var
þar einnig mjög faileg og skraut-
leg moska, en Múhameðstrúar-
menn munu vera allmargir í land-
inu. Kom það okkur nokkuð
spánskt fyrir sjónir, að sjá svert-
ingjana ganga að moskunni, fara
úr skóm og sokkum utangarðs.
Ganga síðan að laug í miðjum
garði moskunnar, þvo sér þar um
fæturnar og krjúpa siðan á kné í
garðinum. Þar ákölluðu þeir guð
sinn og féllu fram á hendur sínar
þannig að enni þeirra snerti
jörðina. En sinn er siður í Iandi
hverju og Kenya var engin und-
antekning.
GRÁIR fyrir
_________JARNUM_____________
Það vakti athygli okkar hversu
mikið var af lögreglumönnum og
hermönnum í Nairobi. Þeim
nægði ekki að bera skammbyssur,
heldur voru þeir allflestir einnig
með í höndunum hinar þekktu
ísraelsku hríðskotabyssur ,,U.Z.“
og virtust til alls visir.
Eftir hádegi næsta dag var
áformað að fara til Mombasa við
Indlandshaf og dvelja þar f eina
viku. Er við komum út á flugvöll-
inn beið okkar þar Fokker flug-
vél, eins og notuð er hér heima í
innanlandsfluginu. Þegar við
gengum um borð, stóð fáklæddur
villimaður við innganginn í
stjórnklefa vélarinnar og gerði
sitt bezta til að telja kjark i tilvon-
andi farþega. FuIIyrti hann að
hann væri mjög fær flugmaður,
enda þótt hann væri ný útskrifað-
ur sem slfkur og sagðist ábyrgjast
að hann gæti komið okkur heilum
til Mombasa. Við settumst inn
með hálfum huga og spenntum
beltin. Akfeit flugfreyja (og að
sjálfsögðu biksvört) sem átti fullt
i fangi með að smeygja sér á milli
sætaraðanna, bauð okkur dagblöð
á arabísku, enda heyrði hún að
Með Junior
Chamberá
Afríkuslóðum
GREIN
konar skorkvikindum, sem ég bar
ekki kennsl á. Þeim fækkaði þó
fljótlega, þvf að stór, græn eðfa
settist að f herbergi minu og borð-
aði nægju sina af þeim, áður en
hún yfirgaf mig aftur, mér til
sárra vonbrigða. Enginn sími var
f herberginu né heldur útvarp en
hins vegar var þar ágæt loftkæl-
ing, sem á fullri ferð gat haldið
hitanum niðri f 28 gráðum á
celsíus.
VOPNAÐIR
HÓTELVERÐIR
Hótelsins var vandlega gætt
allan sólarhringinn af 40 vopnuð-
um vörðum, sem hleyptu engum
óviðkomandi inn á svæðið. Var
mér tjáð af starfsmönnum hótels-
ins, að ástæðan væri sú, að á
þessu ágæta hóteli byggju allir
ráðherrar Kenya sem erindi ættu
til Mombasa. A þriðja kvöldi
dvalarinnar í Mombasa var ég i
óðaönn að berjast við nokkrar
ógeðslegar þúsundfætlur, sem
höfðu skyndilega fengið áhuga á
því að deila mqþ mér herberginu,
trúlega vegna úrhellisrigningar
og eldingaveðurs sem geisaði úti.
Skrímslí þessi voru nokkru stærri
en digrasti Churchill-vindill, kol-
svört og slímug. Þegar ég var rétt
nýbyrjaður að tortíma kvikindun-
um, með kústi, og sópa þeim út
söríiu leið og þau komu inn, þ.e.
undir hurðina, sem sneri að
garðinum, skeði það versta sem
fyrir gat komið í hita bardagans.
Öll ljós slokknuðu og það^ leyndi
sér ekki að rafmagnið var farið af.
Og annað eins svarta myrkur og
er í Afríku þekkist varla annars
staðar. An þess að hugsa hentist
ég að dyrunum og fann að ég
slátraði nokkrum slímugum þús-
undfætlum, undir skósólum mín-
um, á leiðinni. Skrikaði mér fótur
i hvert sinn er mér varð á að stíga
á einhverja þeirra pg Iá mér oft
við falli í blóðpollunum. Ekki er
mér kunnugt um hvað kvikindi
þessi heita, en þau líktust einna
helst blóðsugum, nema hvað þau
voru miklum mun stærri. Ég tók
síðan á rás gegn um skóginn í átt
að hótelbyggingunni og reyndi að
rata í gegnum myrkrið eftir beztu
getu, þrátt fyrir aðvaranir við
komuna á hótelið um að eitur-
slöngur gætu alltaf leynzt í
skóginum eftir að dimma tæki. Ég
linnti ekki hlaupunum fyrr en á
afgreiðslu hótelsins. Þar hafði
verið kveikt á kerti og í skini frá
ljósi þess sagði ég svörtum af-
greiðslumönnunum (sem varla
sáust í rökkrinu) frá ástandinu í
herbergi mínu og bað þá jafn-
framt um að vísa mér á betra
hótel, þar sem ég gæti fengið að
vera í einrúmi. Varð nú uppi fót-
ur og fit og mér ítrekað tjáð að ég
byggi á bezta hóteli í allri Kenya.
Eftir nokkrar umræður tókust
samningar og var mér vísað til
herbergis á annarri hæð aðal-
byggingar hótelsins, en starfs-
menn hótelsins fullyrtu að ekkert
skorkvikindi kæmist upp stigana
né nennti að príla þangað upp.
Ekki vildu starfsmennirnir sækja
farangur minn í myrkrinu, en
sögðust mundu koma með hann
morguninn eftir. Nýja herbergið
var all þokkalegt með svölum á
móti suðri og þar reyndist vara
simi, en skordýr sáust þar ekki
utan nokkurra marglitra fiðrilda
við töluðum eitthvert annarlegt
tungumál og sá að við vorum út-
lendingar. Vélin rann nú af stað
eftir flugbrautinni, sem er með
þeim lengri sem ég hef séð. Flug-
stjórinn ógnvekjandi jók hraðann
meira og meira og sjálfsagt verið
á góðri leið með að komast gegn
um hljóðmúrinn, en vélin hélt sig
sem fastast við flugbrautina og
virtist ekki vilja yfirgefa fóstur-
jörð sína. Við sáum nú að brátt
mundi þessi langa flugbraut vera
á enda, og hvað tæki þá við, ef
villimanninum tækist ekki að
koma okkur á loft áður. Jæja,
kraftaverkin ske yfirleitt þegar
þeirra er þörf, og þegar við kom-
um á ógnarhraða út á bláenda
brautarinnar hóf vélin sig lóðrétt
í loft upp. Ögleymanlegt flugtak,
sem ó sér fáar hliðstæður í flug-
sögunni var nú að baki.
EINSKONAR
MAGALENDING
Moska múhamðestrúarmanna í höfnðhoreinni.
FJugið til Mombasa tók okkur
aðeins eina klukkustund . . . enda
flogið niður á við, ofan af háslétt-
unni eins og einum farþeganna
varð að orði. Við lentum sfðan i
Mombasa og var lendingin svo
harkalcg að hún Ifktist helst
magalendingu. En öll stigum við
heil út úr flugvélinni, fegin að
vera nú lent þó að ekki tæki betra
við þegar við stigum út. 40 stiga
hiti var í skugga og töluvert meira
undir sólinni, en verstur var þó
rakinn í loftinu. Var lfkast því að
við gengjum inn í gufubaðstofu,
enda urðu allir gegnblautir á
svipstundu. Við skiptum okkur
nú í þrjá höpa, þar sem ætlun
okkar var að búa á þremur hótel-
um. A einu hótelinu átti að búa
hópur sem fyrirhugað hafði að
fara I safariferð á bifreiðum frá
Mombasa til Nairobi en sú ferð
Ráðstefnuhöllin í Nairobi.
Menn baða fætur sfna áður en gengið er til hænagerðar.
átti að taka þrjá daga og áætlaði
sá hópur að leggja af stað eftir
fjögurra daga dvöl í Mombasa, en
síðan ætluðum við öll að hittast
aftur að viku liðinni í Nairobi. I
safariferðina fóru 11 manns og
þar á meðal var landsforseti
Junior Chamber Islands, Fylkir
Ágústsson, þannig að eftir í
Mombasa var höfuðlaus her
Junior Chamber manna. Eg
þóttist meira en lítið heppinn þeg-
ar mér var tjáð að hótelið sem ég
ætlaði að dvelja á, Hótel Nialy
Beach, væri það bezta í allri
Kenya. Hótelið var staðsett við
ströndina sex kilómetra austur af
Mombasa í skógarþykkni. Ut frá
hótelinu var lengja af
„bungalow" byggingum, sem
náðu langt inn í skóginn. Ég lenti
I endanum, sem var að þvf er mér
virtist langt frá hótelbyggingunni
og inni í myrkviðnum. Herbergið
var mjög fábrotið og iðaði af alls
Hríðskotabyssnr
og þúsnndfætlnr
Sigurður S. Bjarnason:
ÖNNUR