Morgunblaðið - 14.01.1978, Qupperneq 5
MOKGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 14. JANUAR 1977
5
Þetta var stór-
kostlegt en það er
gott að því er lokið
— segir Bozidar Kasic, aðal-
dómari einvígisins í Belgrad
„ÞETTA voru mjög skjót enda-
lok. Eg opnaði umslagið með
biðleik Spasskys, lék hann og
setti klukku Kortsnojs af stað.
Þá stöðvaði Spassky klukkuna
og undirritaði leikjablaðið og
þegar Kortsnoj sá það, undirrit-
aði hann sitt blað lika og yfir-
gaf sviðið. Spassky fór svo lfka
burtu án þess að kveðja okkur
dómarana, en hann tók í hönd-
ina á þeim, sem stjórnaði sýn-
ingarborðinu,** sagði Bozidar
Kasic, aðaldómari einvígisins f
Belgrad í samtali við Mbl. að
loknu einvfgi þeirra Kortsnojs
og Spasskys.
„Ég hitti svo Kortsnoj aftur
og spurði hann þá, hvers vegna
hann hefði þotið i burtu og
sagði sem svo, að ef til vill hefði
Spassky komið á staðinn til að
óska honum tii hamingju. En
Kortsnoj sagði, að hann hefði
ekki haft áhuga á slíku, og það
er út af fyrir sig skiljanlegt
eftir það sem á undan er geng-
ið,“ sagði Kasic. „Þeir hættu jú
að takast í hendur eftir tíundu
skákina, nema hvað Kortsnoj
óskaði Spassky til hamingju
með sigurinn í 14. skákinni, en
svo varð það ekki meir með
handabönd þeirra i milli."
Kasic sagðist telja úrslit ein-
vígisins mjög sanngjörn.
„Kortsnoj var sterkari á öllum
sviðum skákarinnar og hann
verðskuldaði þennan sigur.
Gæði skákanna voru yfirleitt
mjög mikil, það var hart barizt,
en á tímabili báru skákirnar
líka merki harðra sálfræðilegra
sviptinga utan skákborðsins.
Þeir erfiðleikar, sem komu
upp í þessu einvigi, voru mjög
miklir. Það voru ýmis tilþrif á
báða bóga og hvorugur skák-
mannanna var beint samvinnu-
fús. En þó held ég að notkun
Spasskys á sýningarborðinu
hafi komið mest á óvart. Ég
mun nú senda FIDE skýrslu
um einvígið og ég sé ekki ann-
að, en Alþjóðaskáksambandið
verði að setjast niður og setja
nákvæmar og strangar reglur
um aðbúnað, útbúnað og hegð-
an keppenda í svona einvígjum.
Og ég er þeirrar skoðunar að
notkun Spasskys á sýningar-
borðinu hafi verið röng; eins og
minn upphaflegi úrskurður um
að fjarlægja borðið bar með
sér.“
„Það sýnir bezt hörkp þessa
einvígis á skákborðinu, að að-
eins sjö skákum lauk með jafn-
tefli. Og allar voru þær hörku-
skákir, sú stytzta var 33 leikir.
Baráttuþrek beggja keppenda
var með ólikindum, en einnig
þar reyndist Kortsnoj sterkari,
þvi í raun má segja, að hann
hafi unnið einvígið tvisvar;
fyrri helming þess og síðasta
kaflann.
Þannig er ekki hægt að segja
annað en að þetta einvigi hafi
boðið upp á tilþrif í tafl-
mennsku, spennu og alls kyns
erfiðleika, en við urðum að
fresta einviginu tvisvar sinnum
af tæknilegum ástæðum. Ég ef-
ast ekki um að keppendur séu
út af fyrir sig fegnir að þessari
viðureign er nú lokið, og vissu-
lega má segja það sama um
okkur dómarana og aðra þá,
sem að einvíginu stóðu. Þetta
var stórkostlegt, en það er gott
að því er lokið.“
Þegar Mbl. spurði Kasic,
hvorn hann teldi hafa meiri
möguleika í heimsmeistaraein-
víginu, Karpov eða Kortsnoj,
svaraði hann: „Flestir virðast
telja Karpov sigurstranglegri.
En á það er að líta, að áskorend-
unum hefur alltaf á siðari tím-
um vegnað betur og reyndar
hefur engum tekizt að sigrast á
áskoranda sinum, nema
Petrosjan, þegar hann vann
Spassky.
Karpov er ungur og sterkur
og ég hallast að því að hann fari
með sigur af hólmi. En hins
vegar skyldi enginn gera litið
úr Kortsnoj bara vegna aldurs
hans. Hann hefur sýnt ódrep-
andi vilja og hann er öflugur
skákmaður, sem ekki lætur
hlut sinn lausan.“
Við upphaf einvfgisins f Belgrad. Bozidar Kasic, aðaldómari
einvfgisins, með keppendunum Kortsnoj og Spassky.
74,093 atvinnuleys-
isdagar á síðasta ári
Atvinnuleysisdagar á
síðasta ári urðu 74.093 tals-
ins. Á tðlf stöðum á land-
inu kom aldrei neinn á at-
vinnuleysisskrá; Bolung-
arvík, Garðakaupstað,
Borgarnesi, Patreksfirði,
Hafnarhreppi, Sandgerði,
Hellissandi, Þingeyri, Suð-
ureyri, Súðavík, Hvamms-
hreppi og Gerðahreppi. At-
vinnuleysisdagar í Reykja-
vík urðu 15.130 og i Hafn-
arfirði 5.191.
A Húsavík urðu atvinnuleysis-
dagar 4.601, á Þórshöfn 3.843,
Eyrarbakka 3.391, Selfossi 3.380,
Sauðárkróki 3.326, Akranesi
2.723, Vopnafirði 2.520 og Bakka-
gerði 2.381.
A sjö stöðum eru skráðir innan
við 100 atvinnuleysisdagar á ár-
inu 1977; 45 í Grindavík, 50 á
Djúpavogi, 57 í Mosfellshreppi, 60
f Grundarfirði, 64 á Flateyri, 67 á
Seyðisfirði og 86 á Isafirði.
Verzlunarhúsið á
Torginu samþykkt
BYGGINGANEFND Reykjavíkurborgar hefur endanlega samþykkt teikningar að
nýja verzlunarhúsinu, sem rísa skal við norðurenda Lækjartorgs, á mótum
Hafnarstrætis og Lækjargötu. Byggingin verður á þremur hæðum, um 5 þúsund
rúmmetrar eða tæplega 1500 fermetrar. Arkitekt er Bjarni Marteinsson en
tillögur að skiptingu 1. og 2. hæðar á Finnur Fróðason, innanhússarkitekt.
Á stærstu myndinni má sjá hvernig Finnur hefur skipulagt ,?almenninginn“
svonefnda á næstu hæð hússins, þar sem t.d. þeir sem bíða eftir strætisvögnum
geta haft afdrep, fengið t.d. kaffisopa. Aðeins grófar tillögur liggja fyrir um aðra
hæðina og er ekki búið að ráðstafa neinu enn sem komið er, en efsta hæðin verður
væntanlega leigð út. Minni myndin sýnir þá hlið hússins sem snýr út að
Lækjartorgi.
Vorum
að fá mikið
magn
af glæsilegum
pottaplöntum
m.a.;
BURKNAR
PÁLMAR
RÚSSNESKUR VÍNVIÐUR
ÁRELÍA
KAKTUSAR
Velkomin
í gróðurhúsið
blómoool
Gróðurhúsið v/Sigtún sími 36770