Morgunblaðið - 19.01.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANUAR 1978
5
[TEISJTÉ]
HÚSGAGNAHJÓL -
VAGNHJÓL
Myndin hér að ofan var tekin er starfsfólk Borgarspltalans afhenti peningana stjórn stjúkrastofnana
Reykjdvíkurborgar.
Borgarspítalinn:
Starfsfólkið safnaði 360
þúsund kr. til sundlaugar-
byggingar yið Grensásdeild
STARFSFÓLK við Borgarspítalann hóf fyrir skötnmu
fjársöfnun til fyrirhugaðrar sundlaugarbyggingar við
Endurhæfingardeild Borgarspítalans við Grensásveg og
söfnuðust strax 360 þús. kr., sem þegar hafa verið
afhentar stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar.
í frétt, sem Morgunblað- kvæði hjúkrunarfræðinga,
inu hefur borizt frá
Borgarspítalanum, segir að
sundlaug við Endurhæf-
ingardeild spítalans hafi
verið mikið til umræðu s.l.
1—2 ár. Borgarstjórn
Reykjavíkur hafi lýst yfir
vilja sínum á að koma upp
laug við deildina og Al-
þingi samþykkt fyrir síð-
ustu jól 20 millj. kr. fjár-
veitingu til stundlaugar-
byggingarinnar. í þessari
viku mun svo fjárframlag
Reykjavíkurborgar verða
ákveðið.
Þá segir, að aö frum-
sjúkraliða og starfsstúlkna
Borgarspítalans hafi fyrir
skömmu verið hafin fjár-
söfnun meðal starfsfólks
spítalans með hina miklu
þörf fyrir sundlaugarbygg-
ingu í huga. Var lagt til að
hver starfsmaður legði
fram kr. 1000 og söfnuðust
kr. 360.000.- samanlagt
frá starfsfólki og fáeinum
sjúklingum. Upphæðin var
afhent stjórn sjúkrastofn-
ana Reykjavíkur 17. janú-
ar s.l. og skal upphæðinni
varið til tækjakaupa.
Að lokum segir, að stjórn
sjúkrastofnana Reykjavík-
urborgar þakki þetta
frjálsa framlag og veki
samtímis athygli á því já-
kvæða hugarfari starfs-
fólks Borgarspítalans, sem
liggi að baki söfnun þess-
ari.
c
Geðheilsa
vangefinna
Könnun sálfræðinema við H.í.
Félagsvlsindadeild Háskóla
tslands hefur nýlega gefið út
bók um rannsókn sem fjórir
némar f sálarfræði við deildina
gerðu á geðheilsu vangefinna.
Rannsóknin er B.A. verkefni
nemanna I sálarfræði og unnin
á tfmabilinu maf 1976 til júlí
1977 og tók til 603 einstaklinga
sem allir eru á stofnunum fyrir
vangefna hér á landi.
I formála bókarinnar segir að
með rannsókn þessari vilji
nemarnir benda á þann mikla
fjölda vengefinna. sem þróar
með sér geðsjúkan persónu-
leika. Þessir einstaklingar
þarfnist sérfræðilegrar með-
ferðar og kennslu og því beri að
stefna að gagngerum endurbót-
um sem hafi í för með sér við-
hlítandi meðferð geðsjúkra.
Rannsóknin er sniðin eftir
danskri rannsókn, sem gerð var
á árunum 1969—1975.
Aðferðin í rannsókninni var
á þá lund að svokallað DIPAB-
matskerfi (skammstöfun á
Diagnose af Psykotisk Adfærd
hos Börn) var þýtt og staðfært
úr dönsku úrtak tekið, atferlis-
athugun gerð á einstaklingun-
um og rætt við þann starfs-
mann, sem þekkti viðkomandi
best og síðan unnið úr upplýs-
ingunum.
DIPAB-matskerfið er gert úr
6 almennum og 18 sérstökum
spurningum. Almennu spurn-
ingarnar eru útbúnar sem
þroskastigar er meta getu ein-
staklingsins á ákveðnum svið-
um, en sérstöku spurningunum
er skipt í tvo flokka. Annars
vegar spurningar sem ætlað er
að meta tjáskipti og tengsl
barnanna við aðra og hins veg-
ar spurningar sem meta undar-
lega eða sérkennilega hegðun.
Loks er ein spurning sem met-
ur hvort barnið hefur ein-
hverja sérgáfu. Spurningarnar
um undarlega hegðun eru unn-
ar út frá þeirri forsendu að
undarleg hegðun sé afleiðing
einangrunar barnsins.
í inngangi bókarinnar segir
að kostir vel afmarkaðrar sjúk-
dómsgreiningar séu þeir að
auknar líkur séu fyrir þvi að
einstaklingurinn sé vistaður á
stofnun við sitt hæfi; að for-
stöðumenn geti skipulagt stofn-
unina þannig að hver ein-
staklingur fái meðferð við sitt
hæfi, og að slík greining auki
þekkingu á þessu sviði og geti
komið að gagni við skipulagn-
ingu á meðferð og þjálfun.
Niðurstaða rannsóknarinnar
varðandi hversu margir þeirra
einstaklinga sem hún tók til
þurfa á sérmeðferð að halda
vegna geðveiki var sú að um
29% þeirra sem dveljast á
stofnunum fyrir vangefna hér á
landi þarfnist sérstakrar með
Framhaid á bls. 18
Fegurðarsamkeppni
íslands af stað aftur
UNDANKEPPNI fyrir fegurðar-
samkeppni tslands mun á næst-
unni hefjast, en ferðaskrifstofan
Sunna hefur veg og vanda af
henni. A vegum fegurðarsam-
keppni Islands verður f vetur
keppt um eftirfarandi titla:
fegurðardrottning Islands, ung-
frú tsland, Fegurðardrottning
Reykjavíkur og bezta Ijósmynda-
fyrirsætan, en hún er valin af
fréttaljósmyndurum.
Þegar er hafin leit af væntan-
legum keppendum og eru ábend-
ingar í þeim efnum vel þegnar og
skulu þær berast ferðaskrifstof-
unni. Það skal þó tekið fram að
stúlkurnar þurfa að vera á aldrin-
um 17—25 ára og mega ekki vera
eða hafa verið giftar og keppend-
ur mega ekki hafa alið börn.
Fulltrúar landsbyggðarinnar
verða valdir á ferðakvöldum
Sunnu víðsvegar um Iandið.
Sigurvegarar í fegurðarsam-
keppni Islands mun síðar taka
þátt í eftirfarandi fegurðarsam-
keppnum: Miss Universe 1979,
Miss Europe 1979, Miss World
1978, Miss Scandinavia 1978 og
Miss International 1979.
Ólafsvík:
Frystihúsið tilbú-
ið innan skamms
Ólafsvfk, 18. janúar.
BÁTAR eru farnir að róa eftir
áramótin og eru tveir bátar að
undirbúa sig undir netaveiðar,
en afli hefur verið fremur treg-
ur. Frystihúsið er enn ekki til-
búið til starfsrækslu eftir ára-
mót og er þess vegna frekar
dauft yfir atvinnulífinu hér, en
vonir standa nú til að úr rætist
og húsið verði tilbúið innan tíð-
ar. Togarinn okkar Lárus
Sveinsson er nýfarinn til
Reykjavíkur í radaraðgerð en
hann fer þaðan á veiðar.
Nýverið lauk sýningum leik-
félagsins á verkinu Frænka
Charles, sem hófust fyrir jólin.
Þá eru hin árlegu þorrablót að
hefjast en annars má segja að
frekar rólegt hafi verið yfir
menningarlifinu hér hjá okkur
að undanförnu. — Heigi.
Eigutrt jafnan fyrirliggjandi ntikið úrval hjóla undir húsgögn og vagna,
hvers konar, bceði til heimilis- og iðnaðarnota. Einnig getum við út-
vegað með stuttum fyrirvara hjól til sérhcefðra nota, svo sem til efna-
iðnaðar o.fl.
Stcerzta sérverzlun landsins með vagnhjól.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670