Morgunblaðið - 19.01.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.01.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANUAR 1978 23 Minning: Sveinn Jónsson frá Seglbúöum Fæddur 5. september 1895. Dáinn 24. nóvember 1977. Sveinn Jónsson trésmiður var fæddur í Seglbúðum i Landbroti 5. september 1895. Hann andaðist á Landakotsspitala 24. nóvember 1977, eftir erfiða sjúkdómslegu, 82ja ára að aldri. Sveinn var sonur hjónanna Jóns Þorkelssonar og Ölafar Jóns- döttur er bjuggu i Seglbúðum. Jón faðir Sveins var af skaft- fellskum ættum en í móðurætt átti hann ætt að rekja til Jóns Magnússonar á Bakka í öxnadal. Um Jón Magnússon eru til ýmsar sagnir. Hann flytur að norðan eft- ir Skaftárelda, trúlega um 1790, þá rúmlega þrítugur. Er talið að hann hafi verið um stutt skeið skrifari hjá Lýð Guðmundssyni sýslumanni í Vík í Mýrdal. Arið 1792 kvæntist Jón Guðríði Odds- dóttur frá Seglbúðum. Var hún elst 13 barna Odds Bjarnasonar og Guðlaugar Björnsdóttur. Þau Jón og Guðríður bjuggu nokkur ár í Seglbúðum en síðar i Hlíð í Skaftártungu um 13 ára skeið. Þau hefja búskap á Kirkjubæjar- klaustri 1816 og þar verður Jón stórbóndi og héraðshöfðingi. Hann andaðist á Klaustri 1840 áttatiu og tveggja ára. Þeim Jóni og Guðríði var 10 barna auðið og frá þeim er mikill ættleggur kom- inn. Sonurinn Magnús var afi Jóns Þorkelssonar í Seglbúðum. Að því er kunnugir telja var Jón Þorkelsson vinsæll maður og góðgjarn. Hann var atorkusamur bóndi, smiður góður, duglegur sjómaður, en útræði var stundað um nokkurra ára skeið frá Skaft- árósi við erfiðar aðstæður, beint fyrir opnu Atlantshafi. Gísli, bróðir Jóns, bóndi i Hrauni, var formaður á báti, er þeir bræður áttu. Eftir að Gísli flutti úr héraði 1899 tók Jón bróðir hans við for- mennsku. Var talið, að honum færi formennskan vel úr hendi. Skömmu eftir aldamótin lögðust róðrar niður frá Skaftárósi. A búskaparárunum í Seglbúð- um gerði Jón miklar ræktunar- framkvæmdir með þvi að gera áveitur á engjarnar, austan við Seglbúðabæinn. Þá byggði Jón upp og lagfærði bæjarhúsin af myndarskap. Ólöf Jónsdóttir, móðir Sveins, hafði verið heimasæta í Seglbúð- um, áður en hún giftist Jóni Þor- kelssyni árið 1892. Hún var fædd á Höfðabrekku í Mýrdal, en flutt- ist með foreldrum sínum, Jóni Jónssyni og Katrínu Pálsdóttur, að Seglbúðum árið 1866, en þá var Ólöf 6 ára. Hún var elst 7 syst- kina, sem upp komust. Er hún af skaftfellskum ættum, á m.a. ætt að rekja til Salomons Þorsteins- sonar í Arnardrangi en frá hon- um eru fjölmargir niðjar komnir. Börn Ólafar og Jóns Þorkels- sonar i Seglbúðum sem upp kom- ust voru sex talsins: Helgi, bóndi í Seglbúðum, f. 1894, d. 1949, Sveinn trésmiður í Reykjavík, sem hér er minnst f. 1896 d. 1977, Þóranna, húsfrú í Reykjavik og Blönduholti f. 1898, d. 1944, Jón, endurskoðandi í Reykjavík, f. 1902, d. 1948, Guð- ríður, fyrrv. yfirhjúkrunarkona á Kleppsspítala, f. 1903 nú ein á lifi þeirra Seglbúðasystkina og Jónný Ólöf, húsfrú í Reykjavík og Vest- mannaeyjum f. 1906, d. 1975. Arið 1906 varð Ólöf í Seglbúð- um fyrir þvi mikla áfalli að missa mann sinn á besta aldri frá börn- unum sex, það yngsta ófætt en það elsta aðeins 12 ára. Það þurfti áræði og viljastyrk til þess að láta ekki hugfallast og bregða búi við slíkar aðstæður. En slíkt var fjarri í huga Ölafar í Seglbúðum. Hún var ákveðin í því að halda búskap áfram og ala sjálf upp börnin sín. Með Guðs hjálp og góðra manna tókst þetta farsæl- lega. Með ráðdeild og fyrirhyggju tókst Ólöfu að halda gangandi traustum búskap. Ekki er að efa, að þar munaði mestu um dugnað,' atorku og vinnusemi elstu drengj- anna, Helga og Sveins. Þótt ungir að árum kom það fljótt í þeirra hlut að standa fyrir störfum utan- dyra, eftir fráfall föðurins. Það bætti úr skák, að drengirnir voru mjög atorkusamir og samhentir. Þeir Helgi og Sveinn kunnu margar sögur af veiðiferðum í Grenlæk, er þeir innan fermingar byrjuðu að fara einir með net í ána. Það var þeirra hlutskipti að afla matar fyrir heimilið og Gren- lækur reyndist góð matarkista. Sveinn Jónsson elst upp i systk- inahópi hjá móður sinni i Segl- búðum. Hann byrjaði ungur að taka þátt í félagsmálum sveitar- innar. Hann var einn af stofnend- um ungmennafélagsins Armanns í Landbroti árið 1909 og tók sæti i fyrstu stjórn félagsins sem gjald- keri. Því starfi gegndi hann óslit- ið þar til hann flutti burt af félagssvæðinu. Sveinn tók þátt í iþróttum innan ungmennafélags- ins; var hann talinn góður glímu- maður enda hraustmenni. Hann fékk orð fyrir dugnað við íþróttir og störf. Sveinn var talinn góður hestamaður, enda átti hann gæð- inga, sem hann sjálfur hafði tam- ið. Sveinn átti heimili i Seglbúðum til ársins 1924 hjá móður sinni og síðar Helga bróður sínum, eftir að hann tók við búsforráðum 1918, þá nýkvæntur Gyðríði Pálsdóttur frá Þykkvabæ. Þá dvaldi Sveinn nokkurn tíma hjá Guðmundi Einarssyni trésmið og rafstöðvar- stjóra í Vík í Mýrdal, við tré- smíðanám. Lauk hann þar tré- smíðanámi og að því loknu vann hann um skeið við smíðar með Guðmundi m.a. við byggingu sjúkraskýlis á Breiðabólstað á Síðu. Arið 1924 flytur Sveinn frá Seglbúðum og á næstu árin heim- ili í Hörgslandskoti á Síðu. Þar kynnist hann ungri glæsilegri stúlku, Lilju, dóttur bóndans þar, Steingríms Steingrímssonar og konu hans Margrétar Unadóttur. Steingrimur i Hörgslandskoti átti í móðurætt Svein Pálsson land- lækni fyrir langafa. Sveinn land- læknir bjó í Vík í Mýrdal á árun- um 1809—1840. Var hann þar læknir til ársins 1833. Frá Sveini Pálssyni eru fjölmargir niðjar í sveitum Vestur-Skaftafellssýslu. Kynni þeirra Sveins og Lilju urðu til þess, að þann 18. júlí 1925, gaf séra Magnús Bjarnarson prófastur á Prestbakka þau sam- an í hjónaband. Þar með var ten- ingnum kastað, grundvöllur lagð- ur að heimili og fjölskyldu. Arið 1927 fæddist þeim dóttir, er fékk nafnið Jóhanna. Er hún einka- barn þeirra Lilju og Sveins. Haustið 1928 flytur Sveinn til Reykjavíkur en hann hafði þá ákveðið, að leita sér þar atvinnu við smíðar. Lilja flytur með dótt- urina i apríl 1929. Heimili er nú sett á stofn í Reykjavík. Fyrstu árin vinnur Sveinn við byggingar með Einar Sveinssyni, múrarameistara Einarssonar, bónda á Heiði á Siðu. Sveinn gerð- ist síðar starfsmaður Timbur- verslunarinnar Völundar, þar sem hann vann í mörg ár. Aftur verða þáttaskil í starfssögu Sveins, er hann, ásamt Gissuri Sveinssyni trésmið, setur á stofn trésmiðaverkstæði að Fjölnisvegi 6. Þar starfaði Sveinn við smíðar, þar til hann vegna aldurs varð að láta af fullum störfum. Eftir það vann Sveinn nokkur sumur við smíðar sæluhúsa Ferðafélags Is- lands, m.a. i Landmannalaugum, Þórsmörk og Nýjadal. Starfaði Sveinn þarna hjá Páli Pálssyni frá Söndum, sem hafði yfirum- sjón með byggingarframkvæmd- um Ferðafélagsins. Jóhanna, einkadóttir Lilju og Sveins, jók mjög á hamingju þeirra hjóna. Var hún mikið uppáhald föðurins, eins og gefur að skilja. Jóhanna lauk námi úr Verslunarskólanum. Síðar lagði hún stund á hjúkrunarnám og er nú starfandi sem sjúkraliði. Jóhanna giftist árið 1948 Guð- mundi Agústssyni glímukappa, nú bifreiðasmiði. Guðmundur er ættaður frá Hróarsholti í Arnes- sýslu. Þau Jóhanna og Guðmund- ur eiga þrjá syni: Svein, f. 1948, vélstjóra að mennt. Hann er kvæntur Málfríði Ellertsdóttur. Eiga þau einn son, Jóhannes Svein f. 1975. Kristinn f. 1949, húsasmið og Guðmund f. 1957, við nám í Háskólanum. Dóttursynirnir voru mikið uppáhald afa síns. Þar á milli skapaðist mikil og einlæg vinátta. Var það mikil lífsfylling fyrir Svein á efri árum, að eiga dreng- ina að félögum og góðum vinum. Eftir að Sveinn hætti störfum á trésmíðaverkstæðinu fór hann gjarnan með drengina i óbyggða- ferðir, en Sveinn var mikill náttúruunnandi. Hann naut dval- ar i Ferðafélagshúsunum. Ahrifin af því að dvelja i hinu sérstaka umhverfi óbyggðanna voru heill- andi og magnþrungin. Það glæddi sálina sérstakri tilfinningu að komast i svo náið samband við hina stórfenglegu, óspilltu náttúru. Öbyggðaunnendur þekkja vel þessar sérstöku tilfinn- ingar, þessa sönnu lífsfyllingu, sem erfitt er að lýsa með orðum. Það var gæfa Sveins að geta haft dóttursynina fyrir samferða- menn í sumarferðunum. Trúlega verða þessar ferðir þeim bræðr- um minnisstæðar, — ljúfar minn- ingar, sem endast munu alla ævi. Sveinn Jónsson hafði ætíð Framhald á bls. 19 Sölumannadeild V.R. Sölumenn Árshátíð deildarinnar verður haldin föstudaginn 20. janúar 1978 í Kristalsal, Hótel Loftleiða. Dagskrá verður mjög fjölbreytt að vanda. Húsið verður opnað kl. 1 9 og borðhald hefst stundvís- lega kl. 20. Dansað verðura.m.k. til kl. 2 e.m Tilkynna þarf þátttöku til einhvers eftirtalinna manna í síðasta lagi fimmtudaginn 19. janúar n.k. Guðm. I. Gunnlaugsson S. 84111 Klemenz Hermannsson S. 16666 Árni Sophusson S. 241 20 Jóhann Guðmundsson S. 24333 Stjórnin. 968 1131 1361 1 x 2 — 1 x 2 20. leikvika — leikir 14. janúar 1978 Vinningsröð: 1x2 — 1x1 — 212 — 121 1. vinningur: 11 réttir — kr. 30.500. — 7834+ 30838(1/11.1/10) 41010(1/11,4/10) 40297(1/11.4/10) 30259 32008(1/11,1/10) 40118(1/11.4/10) 40431(1/11,4/10) 30720 33336(2/11) 40152(1/11,4/10) 40813(1/11,4/10) 7494 + 30837 34199 40167(2/11.6/10) 41187(1/11,4/10) 2. vinningur: 10 réttir — kr 1.600.U 227 5648 9212 31103 32596 34222 40347(2/10) 238 5703 9267 31157 32604 34227 40424 270 5733 9361 31158 32621 34232 40453(2/10) 354 6143 9491 31305 32663+34245 40492 506 6158 9504 + 31336 32698 34253+ 40532 510 6159 10141 31353 33002 34305 40575 554 6172 10310(2/10) 31429 33068 34306 40609(2/10) 1014 6203 10442 31588 33095 34398 40896 + 1973 6834 30023 31653+ 33137 34430 40937(2/10) 2063 6967 30191 31832(2/10) 33258 35090+ 40961 2401 7338 30283 31854 33383 40053 41105(2/10) 2672 7954 30347+ 31958 33675 40079(2/10) 3019 8060 30360 31965 33683 40096(2/10) 4661 8421 30388(2/10) 32005 33958 40139 4741+ 8431 30491 32042+ 33960 40140(2/10) 4931 8530 30683 32049 34008+ 40149(2/10) 5029 8564 30839 32123 34018 40155(2/10) 5114 9042 30864 32292+ 34141 40158 5123 9125 30981+ 32293 34207 40166 + nafnlaus 5229 9157 31043 32591 34212 40169 Kærufrestur er til 6 febrúar kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og aðalskrifstof- unni Vinningsupphæðir geta lækkað. ef kærur verða teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla verða að framvísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga. GETRAUNIR — íþróttamiðstöðin — REYKJAVÍK dilkakjöt áhagstæóu. verói Nýtt verð Okkar verð Heilskrokkar I verðflokkur 842 /kg, Heilskrokkar II verðflokkur 779 /kg Súpukjöt 875 /kg, Læri 998 /kg Hryggir 1.021 /kg Lærisneiðar 1.238 /kg Kótelettur 1.121 /kg Saltkjöt lhsq, 1.022 /kg Slög 600 /kg Anmpr iD'PFvnmnA tvt jHLL JnL. JljíTUQj X i. XjHULN VERSLUNAKTÍMA: QPID TTT, KT.S AMNAÐKVÖLD LOKAÐ Á LAUGARDAG. HAGKAUP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.