Morgunblaðið - 19.01.1978, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.01.1978, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANÚ.AR J978 25 U lk f fréttum + Arlega er úthlutað i Danmörku styrk til barnflestu fjölskyldunnar sem stundar landbúnaðrstörf. Styrkurinn sem nemur 5 þús. kr. dönskum, er afhentur um jólaléytið. Að þessu sinni voru það hjónin Jenny og Vang Andreasen sem styrkinn hlutu en það er í sjötta skipti sem þau hljóta hann. Þau hjónin eiga 13 börn og af þeim eru 10 á eða undir skólaaldri. + Kviktnvndaleikkonan Ann- Margret sem er sænsk að uppruna en búsett f Bandarfkjunum hefur fengið langt þakkarbréf frá föður Elvis Presleys. Ann-Margret stjórnaði sjðnvarpsþætti sem sýndur var til minningar um Elv- is Presley. >að voru sýndar mynd- ir og fluttar frásagnir um hinn látna söngvara. + „Listin að kyssa“ heitir bók sem er mjög vinsæl í Englandi. Bókin var auglýst á þann hátt að nú væri hægt að læra þessa göfugu list fyrir 200 krónur. Og við sem héldum að svona nokkuð þyrfti maður ekki að læra. Beth ásamt Leylu dóttur sinni. Dóttir mín er ekkert leikfang + Elfsabet Taylor er vön að fá allt það sem hún viil og hægt er að kaupa fyrir peninga. Það eru henni þvf mikil vonbrigði að fyrrverandi tengdadóttir hennar vill ekki leyfa henni að umgang- ast Leylu litlu sonardóttur sína. Astæðarn er sú að Elísabeth vill ekki hitta Beth, tengdadótturina fyrrverandi. Beth og Michael sonur Elísabetar og Michaels Wilding gengu f hjónaband árið 1970. Þau eiga éina dóttur, Leylu. Beth varð fljótt leið á því lífi sem Miehael lifði og fyrir tvéimur árum skildu þau. „Michael flæktist um, hann vann aldrei ærlegt handtak, heldur lifði á peningum sem hann fckk hjá móður sinni, það var eins og hann skildi ekki að hann átti konu og barn, hann hafði enga ábvrgðar- tilfinningu. Eg þoldi ekki þetta innihaldslausa líksuslff," segir Beth. Hún flutti heirn til fjölskyldu sinnar í Portland f Oregon. + Leikkonan Dyan Cannon. fyrrverandi frú Gary Grant, leikur eitt aðalhlutverkiS í kvikmyndinni „Himnaríki getur beðið" sem nú er verið að kvikmynda að nýju. Aðrir leikarar eru meSal annars Julie Criste og James Mason. Leikstjóri er Warren Baatty og leikur hann einnig eitt aSalhlutverkiS. Haft er eftir þeim sem vinna við gerð myndarinnar, aS Warren taki nafn myndarinnar allt of hátiðlega þvi vinnuaðstaðan sé heilt helviti. DALE CARNEGIE mr Námskeiðið mun hjálpa þér að: ★ Öðlast meira hugrekki og sjálfstraust. ★ Tala af ÖRVGGI á fundum. ★ Stækka vinahóp þinn, ávinna þér virðingu og viðurkenningu. ★ Starfa af meiri lífskrafti — heima og á vinnustað. ★ Halda áhyggjum í skefjum og draga úr kvíða. KYNNINGARFUNDUR verður haldinn i fundarsal Rauða krossins Nóa- túni 21, fimmtudagskvöldið 1 9. jan. kl. 20.30. Innritun og upplýsingar í síma 82411 /M/ / < I /{%/ i,ll- /v iu>Ki:mi.\ STJÓRNUNARSKÓLINN Konráð Adolphsson Verð kr 2000.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.