Morgunblaðið - 19.01.1978, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.01.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANUAR 1978 17 Nanna Hermannsson: Hvað varð um ,, Aðaltor g’9 ? Nú er að hefjast uppbygging við elstu götur Reykjavíkur samkvæmt tillögum aðalskipu- lags frá 1962 er endurskoðað var 1976—1977. Nú fyrst skil ég hvað tillögur þær sem sýndar vóru á Kjar- valsstöðum í nóvember 1976 þýða í raun. Ég verð hrygg því mér finnst ég vera sek þegar ég sé mynd af hugmyndalíkani af svæðinu austan Aðalstrætis. Þá, 1976, hefði verið rétt að koma með athugasemdir en samt langar mig til að láta skoðun mína í ljós þó seint sé. Miðbærinn er hugtak sem á við starfsemi stofnana og fyrir- tækja sem þjóna á öllum borgarbúum. Hann hefur fyrir löngu teygt sig úr Kvosinni austur Laugaveginn inn Suður- landsbraut. Eins og í öðrum borgum hafa verslanir og skrif- stofur ýtt íbúðarbyggð til hliðar. Eðlileg afleiðing þróunarinnar var, að fundinn var staður undir „nýjan rniðbæ" auk minni verslunar- miðstöðva og samkvæmt aðal- skipulaginu er nú að rísa borgarieikhús, borgarbókasafn o.fl. í Kringlumýrinni. Það er og hefur lengi verið þröngt í Kvosinni og ofhleðslan sést einna mest á bilunum sem kæfa þægilegt borgarumhverfi. Þegar miðbæjarstarfsemin dreifist og þungamiðja borgar- innar með Sundahöfnina og iðnaðarsvæðunum hefur færst í austurátt ætti Kvosin i sinni gömlu umgjörð að geta andað betur. Samt er engin hætta á að hún missi þýðingu sína því hlutverk hennar er að vera miðstöð stjórnsýslu g fjármála fyrir allt landið. Þingið og dóm- kirkjan, stjórnarráðið og borgarskrifstfurnar, póstur og sími, tollur og gjaldheimta auk margra sérverslana, allt frum- þættir i miðbænum, eru þarna á tiltölulega litlu svæði. Nú ætti að vera tækifæri í skipulagi bæði að taka tillit til hins gróna svipmóts bæjarins og hlúa að eðlilegri starfsemi og því bæjarlifi sem svo mikið er talað um að sé að deyja. Ekki veit ég hvernig á að skilgreina það „líf“ sem var. Mér sýnist Austurstrætið og allur Laugavegurinn vera iðandi af lifi á daginn og mér er sagt að á horni Aðalstrætis og Austurstrætis. sé „aðalplejsið" að minnsta kosti sum kvöld. Sumir segja að „lífið" var í bílunum á rúntinum, aðrir að það hafi horfið með sjón- varpinu og svo er talað um að matstofur fyrirtækja séu að út- rýma veitingastöðum. Hér hafa orðið svo miklar þjóðfélags- breytingar síðan um aldamótin að sá bæjarbragur sem til- heyrði gömlu húsunum sem enn standa, kemur ekki aftur. Þá var hér fámennt, allir þekktust, bjuggu þétt og fóru gangandi sinna erinda. Nú er hraðinn annar, enda hefur viða vaknað skilningur á, að á timum breytinga og óöryggis eykst gildi hins óbreytta um- hverfis. Kannski er það til- finningin að eiga rætur i um- hverfinu. Munu ekki flestir Is- lendingar eiga átthagatil- finningar einmitt gagnvart gamla miðbænum? Þó að þeir hafi ekki slitið þar bernsku- skóm, þekkja þeir hann af reynslu annarra og úr bók- menntunum. Aðalforsendan fyrir því að varðveita eldri byggð er þó, að hún getur sagt okkur eitthvað um fortíðina sem við getum ekki lesið okkur til. Það veitir okkur betri skilning á þeirri þróun sem hefur farið fram og þá á stöðu okkar í dag. Menningarsaga landsins er nátengd gömlu byggðinni í Reykjavík og hana ber okkur að varðveita. Enda segir í skipu- lagstillögum um endurnýjun eldri hverfa að þar sé lögð „megináherzla á að viðhalda umhverfisáhrifum og svipmóti gamla bæjarins". (Skipulags- nefnd' 15. 11. 1976). Uppbygg- ingunni er skipt í þrenns konar svæði, f stuttu máli: 1. fram- kvæmdasvæði þar sem má reikna með miklum breyting- um; 2. endurnýjunarsvæði þar sem eldri hús verði endurbætt og ný taki sérstakt mið af því umhverfi sem fyrir er; 3. verndunarsvæði þar sem gömul hús og umhverfi þeirra verði bætt, en haldi gömlu útliti. Kvosinni eða svæðinu milli Aðalstrætis og Lækjargötu, Tjarnarinnar og sjávar er i meginatriðum skipt þannig að verndunarsvæði er Austurvöll- ur með dómkirkjunni og Alþingishúsinu, Hótel Borg og húsunum á hornum Pósthús- strætis og Austurstrætis. Fálka- húsið (Hafnarstræti 1,3) er talið verndað eíns og Iðnó og Iðnaðarmannafélagshúsið. Reiturinn norðan við Iðnó að Kirkjutorgi og Skólabrú er nefndur endurnýjunarsvæði, en önnur byggð talin innan framvkæmdasvæða. (Svæða- skipting mars ’76, Teiknistofan Garðastræti 17). Byggðin 1 Kvosinni er fjöl- breytt og slitrótt eins og saga hennar, en menn hafa stefnt að þvi að mynda þar heilleg stór- borgarhverfi og er Eimskipafé- lagshúsið glæsilegt dæmi þess. Þó éru timburhúsin sum orðin hátt á annað hundrað ára og eru enn í notkun. Viða standa hús með auða eldvarnargafla sem bíða eftir háreistum nábúum og viða eru skörð sem ætti að fylla. En Kvosin er nátengd umhverfi sinu, Arnar- hólnum, Stjórnarráðinu, Bern- höftstorfunni. Menntaskólan- um, Tjarnarsvæðinu og Grjóta- þorpinu, og það heillar með gróðri og léttara yfirbragði og þannig myndast heild sem gef- ur gamla miðbænum sérstæðan „karakter". Nú á borgarstjórn að fjalla um drög að deiliskipulagi fyrir 'svæðið austan Aðalstrætis sem samþykkt hefur verið í skipu- lagsnefnd og borgarráði. Skipu- lagið er unnið i samráði við eigendur lóða. Eftir hugmynda- líkani að dæma kemur þetta svæði til með að brjóta mjög í bága við umhverfi sitt og verða yfirgnæfandi. En hvað er þarna fyrir?. Þar mætast elstu götur Reykjavíkur. Þar er „Stein- dórsplan" þar sem hafa verið verslunarhús. Eitt þeirra var verslunarfélag (Hlutaveltu- félagið) sem Veltusund dregur nafn af. Fyrir sunnan Austur- stræti er „Hallærisplan” en þar var Hótel Island sem brann 1942. Þetta opna svæði er nefnt „Aðaltorg“ 1 greinargerð Harðar Agústssonar og Þor- steins Gunnarssonar, „Reykja- vik. Gamli Borgarhlutinn. Varðveisla", 18.3. 1969. í sínu mati á Kvosinni gengu þeir út frá heillegu yfirbragði stein- húsanna sem æskilegu, en við „Aðaltorg” sáu þeir að þar væri hægt áð snúa dæminu við, þá „væri aðeins eitt hús við torgið andstætt ríkjandi yfirbragði, nefnilega Morgunblaðshúsið". Við „Aðaltorg" eru mörg eldri hús, þar eru gömlu versl- unarhúsin við Aðalstræti og Fálkahúsið við Hafnarstræti. Við Veltusund er timburhús reist 1898 en þar var upphaf- lega stór lóð og á henni hófst fyrsta einkaverslunin um 1790 og þar hefur verið verslað síðan. (SjáÁrna Öla, „Skuggsjá Reykjavíkur". Hann skrifar einnig um svæðið í „Horft á Reykjavík" og „Gamla Reykja- vík“). A suðurhluta lóðarinnar var garður þangað til að Jón Bryn- jólfsson og Reinh. Andersson létu reisa þar sviphreint hús. Þar er ennþá ein sérstæðasta sérverslun bæjarins. A horni Veltusunds og Austurstrætis er sölubúð Thorvaldsensfélagsins siðan um aldamótin og við hlið hennar var úrsmiðavinnustofa Magnúsar Benjamínssonar allt frá 1881 til 1976. Timburhús þessi eru kannski ekki mjög merkileg í sjálfu sér. Skraut- mesta húsið er Hótel Vík við Vallarstræti. Það var byggt 1884 og breytt í áföngum. I þvi starfar enn Björnsbakarí. A Horni Vallarstrætis og Aðalstrætis var verslun B.H. Bjarnason stofnuð 1886 og seinna voru þar skrifstofur Tímans. Mér finnst „Aðaltorg" bera einkenni liðins tíma sem ætti frekar að ýta undir í stað þess að strika út. Eg á þá ekki við að það megi ekki hrófla við göml- um húsum, þar sem það er eðli- legt að byggð sé í sifelldri breytingu. Nýbyggingar geta þó fallið vel að eldra umhverfi þó að þær séu alls ekki í hefð- bundnum stil en þar ræður geta arkitektsins úrslitum. Ég gæti hugsað mér „Aðal- torg“ sem torg i beinum tengsl- um við göngugötuna Austur- stræti. Við torgiO kæmu verslanir og smábúðir og vestan við torgið, væri Grjótaþorpið endurbætt með margs konar starfsemi. Vantar ekki einmitt torg i Kvosinni? Lækjartorg er svo opið við umferðaræð og Austurvöllur sérstakur hátíðar- völlur. I endurskoðun aðalskipulags komu( fram verndunarsjónar- mið sem ég fagna. Stefnan þarf svo að mótast betur, verndunar- mál eru hægfara og þróast með tímanum, það er þeirra eðli. Þau þurfa að fá rými i deili- skipulagi og það þarf að finna leiðir til útfærslu. Vandamálið er þá eins og í öðru skipulagsstarfi að maður áttar sig ekki á hvað tillögur koma að þýða fyrr en maður sér líkan eða nýbyggingu, þá fyrst skilur maður hvað hefur gerst. Mér þykir miður að ég sé fyrst nú, að forsendur við skipulag „Aðaltorgs“ hefðu átt að vera aðrar. Þetta svæði hefði átt að vera endurnýjunarsvæði þar sem nýbyggingar taka tillit til þess umhverfis sem fyrir er. 17.1.1977 Nanna Hermansson Helgi Þorláksson sagnfræðingur: „Hallærisplan” í tilefni borgarstiórnarfundar Um 1850 var Reykjavík j „danskur" bær. Við Hafnarstræti, Austurstræti og Aðalstræti stóðu lágreist, tjörguð timburhús í eigu borgara af dönskum ættum. Um 1900 höfðu orðið umskipti; f stað lágreistra húsa voru komin tvflyft og þrílyft timburhús, bárujárns- klædd í ýmsum litum. Þessi önn- ur „kynslóð" timburhúsa f Reykjavfk reis á uppgangstfmum skútualdar og var f eigu fslenzkra borgara. Reykjavfk var orðin alís- lenzk. Arið 1915 brunnu 10 hús í Aust- urstræti og grennd, þar af 8 timb- urhús. 1 stað þeirra komu háreist steinhús. Er jafnan vitnað til brunans sem eins mesta breyt- ingavalds í byggðarsögu miðbæj- arins og þótti vágestur hinn mesti. Hús skútualdar Mörg hús frá lokum 19. aldar hafa verið jöfnuð við jörðu í mið- bænum síðan 1915, en þó má enn finna þar nokkur af stoltum hús- um skútualdar. A svæðinu frá Miðbæjarmarkaði í Aðalstræti að Búnaðarbanka í Hafnarstræti blasir enn við önnur kynslóð reykviskra timburhúsa og mynd- ar sú fjölskylda samstæða heild með sterkum svip. Eru sum húsin þó hart leikin eftir ýmsar breyt- ingar og lélegt viðhald. Röðin er óslitin frá Aðalstræti 7, sem þeir systkinasynir Jón Vidalín og Páll Eggerz, ungir og efnilegir kaup- menn, munu hafa reist um 1880. Þarna verzlaði síðar Brynjólfur H. Bjarnason og var allt á einum stað: íbúð, verzlun og pakkhús. Við pakkhúsið gamla standa Björnsbakarí og Hótel Vik. Hótel- húsið er líklega að stofni frá 1884, en hækkun var leyfð árið 1905 og kom þá kvistur. Næst Vík við Veltusund reisti Magnús Benja- mínsson úrsmiður hús um 1887—1888, nú Austurstræti 4. Arið 1898 reisti Jón Brynjólfsson leðursali og skósmiður mikið timburhús í Austurstræti 3. Allt voru þetta valinkunnir borgarar, Brynjólfur, Magnús og Jón. Þeir fluttust ungir til Reykjavikur á uppgangsárum og gerðust for- ystumenn hver í sinni stétt. Við Veltusund 1 reis timburhús árið 1907, stórt og mikið (þar er nú Verzlunin Eros), en næst því við Hafnarstræti 4 (þar sem er Bókaverzlun Snæbjarnar) er hús, sem talið hefur verið elzta verzl- unarhús í Reykjavík (reist 1796?). 1915 að nýju? I dag, fimmtudag, mun borgar- stjórn fjalla um tillögu þess efnis, að öll þau hús, sem nú voru nefnd og fleiri verði rifin, en í staðinn reist ein stórbygging, fimm hæða, á öllu svæðinu frá Miðbæjarmark- aði um lóð Hótels Islands („Hall- ærisplan“) og yfir á svæði Bif- reiðastöðvar Steindórs. Nái tillag- an fram að ganga mun verða um að ræða mestu röskun í bygging- arsögu miðbæjarins allt frá dög- um brunans mikla árið 1915. Helgi Þorláksson Hér er um að ræða stórmál, sem farið hefur framhjá mörgum. E.t.v. hefur það ekki verið kynnt öllum almenningi nógu rækilega enda hafa baráttumenn fyrir varðveizlu Bernhöftstorfu og Grjótaþorps verið sem höggdofa í vandlætingu og undrun, síðan til- lagan varð fyrst kunn i grófum dráttum fyrir rúmu ári. Ný vidhorf A sinum tíma tóku Þorsteinn Gunnarsson og Hörður Agústsson saman skýrslu um gömul hús, sem hefðu varðveizlugildi. Síðan það var hafa forsendur og viðhorf gjörbreytzt í varðveizlumálum. Menn skútualdar rifu gömul, lág- reist hús og reistu ný á sama stað, miklu stærri. 1 óðagoti tæknialdar hafa menn viljað halda áfram á sömu braut, smíða stærra, meira, án þess að gefa nægan gaum að nauðsyn og afleiðingum. Forsend- ur hafa breytzt frá skútuöld, allri viðhaldstækni hefur fleygt fram og samgöngutækni gerir kleift að færa til borgarkjarna, reisa þá á nýjum stöðum í samræmi við út- þenslu borga. Það sem meira er, fólk velmegunartíma eftirstríðs- ára hefur efni á því, frekar en menn skútualdar að hyggja að menningarsögulegum rökum. Fyrir hvort skyldu íbúar Reykja- vikur, sem uppi verða árið 2100 verða þakklátari borgarstjórn þeirri, sem nú situr, að láta ofan- greind hús standa eða reisa stein- bákn í þeirra stað? A allra seinustu árum hafa opn- azt augu sumra þeirra sem fjárráð hafa t.d. í Noregi og Danmörku fyrir því að snjallt geti verið að fjárfesta í gömlu húsi á góðum stað, færa það í gamalt horf og reka þar verzlun og önnur fyrir- tæki. Viðskiptavinir laðast að hlý- legum, snotrum timburhúsum. Því miður er enn lítið um þetta í Reykjavík, en þó má finna góð Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.