Morgunblaðið - 19.01.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANUAR 1978
31
Bandarfski hlauparinn Dick Buerkle hefur ástæðu til að fagna að
þessu sinni. Hann er hér nýbúinn að setja heimsmet í míluhlaupi
innanhúss, hljðp vegalengdina á 3:54,8 mfnútum. Þetta hlaup hljóp
hann á móti í fþróttahúsi Maryland-háskólans í Bandaríkjunum.
Buerkle hefur verið einn fremsti 5 km hlaupari Bandarfkjanna í
nokkur ár, keppti m.a. á Olympfuleikunum í Montreal f þeirri grein.
Buerkle er nauðasköllóttur eins og myndin ber með sér, hlaut sjúk-
dóm í æsku sem leiddi til hárlossins.
AÐEINS GERPLU-
STÚLKUR KEPPTU í
NÚTÍMAFIMLEIKUM
KEPPNII nútfmafimleikum var f
fyrsta skipti haldin hér á landi
laugardaginn 7. janúar s.I. og var
keppt f Iþróttahúsi Kennarahá-
skólans. Keppt var samkvæmt
sænsku æfingakerfi sem nefnist
„Pá vág upp“ og tfðkast það á
öllum Norðurlöndum fyrir byrj-
endur. Fimleikakerfi þetta er f 5
stigum allra áhalda nútíma fim-
leika, en f öllum atriðum eru æf-
ingarnar gerðar eftir tónlist. Æf-
ingarnar eru stigþyngjandi og
samdar af fremstu þjálfurum,
alþjóðlegum dómara og meistara
Svía f nútíma fimleikum.
Aðeins eitt félag, Iþróttafélagið
Gerpla i Kópavogi, tilkynnti þátt-
töku að þessu sinni. Tóku þátt í
keppninni 25 stúlkur á aldrinum
9—16 ára. Keppt var í 4 aldurs-
flokkum og urðu úrslit þessi:
I. fl.
1. Berglind Pétursd. 45.49
2. Asta ísberg 43.05
3. Elín Viðarsdóttir 42.89
Meistaramót
hinna yngstu
í frjálsum
MEISTARAMÓT fslands ■ frjálsum
íþróttum fyrir pilta og stúlkur (f.
1964 og 65), stráka og stelpur (f.
1967 og siðar), fer fram í fþróttahúsi
Kársnesskóla sunnudaginn 29. janú-
ar klukkan 14. Keppnisgreinar eru
langstökk án atrennu og hástökk
með atrennu. Skráningar þurfa a8
berast til Hafsteins Jóhannessonar í
sima 41271 eða 41570 fyrir 15.
janúar. Skráningargjald er kr. 50
fyrir hverja skráningu. Ungmennafá-
lagið Breiðablik sér um framkvæmd
mótsins.
Keppa í
Bretlandi
FRJÁLStÞRÓTTAMENNIRNIR
Jón Diðriksson UMSB og Agúst
Asgeirsson lR munu keppa á
brezka meistaramótinu innan-
húss sem fram fer f Cosford 27. og
28. janúar n.k. Keppir Jón f 800
metrum og Agúst í 1500 metrum.
II. fl.
1. Björk Ölafsdóttir 42.97
2. Jódís Pétursdóttir 42.93
3. Vilborg Nielsen 42.72
III. fl.
1. Aslaug Óskarsd. 41.18
2. Gunnlaug Ingvad. 31.54
3. Guðrún Isberg 16.13
IV. fl.
1. Halldóra Ingþórsd. 16.69
2. Hlíf Þorgeirsdóttir 16.65
3. Katrín Guðmundsd. 16.18
Meistaramót
Reykjavíkur
innanhúss
Innanhússmeistaramót Reykja-
víkur í frjálsíþróttum fer fram í
Laugardalshöllinni og Baldurs-
haga dagana 21. og 22. janúar nk.
Hefst keppni í Laugardalshöll kl.
13 á laugardaginn og verður þá
keppt f 1500 m hlaupi, kúluvarpi
og hástökki karla, og kúluvarpi,
hástökki og 800 m hlaupi kvenna.
Sama dag kl. 15.30 hefst keppni í
Baldurshaga og verður þá keppt i
50 m hlaupi og þrístökki karla og
50 m grindarhlaupi kvenna. A
sunnudeginum hefst keppni kl.
15.30 í Baldurshaga með keppni i
50 m grindahlaupi og langstökki
karla og 50 m hlaupi og lang-
stökki kvenna.
ES
MARKMIÐ FRANSKA
LANDSLIÐSINS AÐ
VERÐA OFAR EN f
ÞRIÐJA SÆTI í HM
FRÖKKUM virtist ómögulegt að liði þeirra tækist að komast í úrslit Heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu í Argentfnu í sumar. Of mörg ljón í veginum til að þeim
yrði öllum rutt þaðan. En þrátt fyrir hrakspár og litla bjartsýni er það eigi að síðar
staðreynd í dag, að Frakkar eru meðal 16 liða, sem leika í úrslitum HM. Það þakka
Frakkar fyrst og fremst einum manni, fyrirliða franska landsliðsins og íþrótta-
manni ársins þar fyrir síð :sta ár, MICHEL PLATINI.
Platini er 22 ára og kominn af
ítalskri verkamannafjölskyldu,
sem flutti til Frakklands. Hann
skoraði flest mörk franska liðsins
í undankeppninni og það er hann
öðrum fremur sem ber vonir allra
franskra knattspyrnuunnenda á
grönnum öxlum sínum. Franski
landsliðseinvaldurinn, Michel
Hidalgo, litur á Platini sem sinn
bezta mann. Platini er eina raun-
verulega stjarnan í franska lands-
liðinu og hið virta blað L’Equipe
reið á vaðið með að velja hann
íþróttamann ársins.
Það mark, sem fær blóð
franskra unnenda knattspyrnu-
manna til að ólga, skoraði Platini
á móti Búlgörum í sumar. Þrumu-
skot hans af löngu færi smaug
undir þverslána og tryggði Frökk-
um endanlega farseðilinn til Arg-
entinu. Það er ekki að undra að
stórlið utan Frakklands sýni þess-
um lykilmenni franska landsliðs-
ins vaxandi athygli og nýlega
komust knattspyrnufréttamenn
að þeirri niðurstöðu að Platini
væri þriðji bezti leikmaður
Evrópu. A undan hontim komu
kapparnir Allan Simonsen og
Kevin Keegan. Hingað til hefur
Platini þó ekki sýnt neinn áhuga
á að yfirgefa félaga sína í franska
liðinu AS Nancy.
Spænska knattspyrnufélögin
Valencia og Barcelona buðu ný-
lega miklar upphæðir í Platini og
voru reiðubúin að gefa nærri eina
milljón dollara fyrir kappann.
Platini er ánægður þar sem hann
er og hefur látið þau orð falla að
hann verði með Nancy í a.m.k. tvö
ár í viðbót, en þá rennur samning-
ur hans út hjá félaginu. Þar fær
hann sæmileg laun eða 1200 doll-
ara á mánuði, en gæti eflaust
fengið mun meira annars staðar.
Frakkar segja að Platini sé
sterkasti knattspyrnumaður
þeirra slðan Raymond Kopa var
og hét á árunum upp úr 1950.
Markmið Platinis er að Frakkland
standi sig betur i Argentínu í
sumar, en í HM í Svíþjóó 1958. Þá
Argentina'78
HM
oa JðSE
urðu Frakkar þó i þriðja sæti.
Hlutverk Platinis I HM verður
fyrst og fremst á miðjunni, þar
sem hann þarf að bera hita og
þunga dagsins og tengja saman
sókn og vörn með Marius Tresor
sem bezta mann. Platini hefur þó
einnfg gott auga fyrir markaskor-
un og þá sérstaklega með hnitmið-
uðum langskotum sínum.
Platini byrjaði að leika knatt-
spyrnu 9 ára gamall í Joeuf, smá-
borg í austurhluta 'Frakklands.
Sex árum síðar hafnaði félagið
Metz því að gera samning við
hann þar sem læknir félagsins
taldi að Platini þjáðist af sjúk-
dómi í öndunarfærum. Siðar kom
þó í ljós að Platini var alheilbrigð-
ur, en kunni einfaldlega ekki að
blása eða anda rétt í tæki þau sem
notuð voru í læknisrannsókninni.
Hann fékk fljótlega samning við
Nancy sem unglingur og ekki leið
á löngu þar til hann fór að vekja
verulega athygli. Arið 1975 varð
hann itrekað forsiðuefni dagblaða
vegna góðra frammistöðu sinnar á
knattspyrnuvellinum.
Um það að vera nú skyndilega
orðinn aðalmaðurinn í franska
landsliðinu og viðurkenndur sem
einn bezti íþróttamaður Frakk-
lands segir Platini aðeins: — Mér
er sama um þennan frama svo
fremi sem hann kemur ekki niður
á einkalifi mínu og frammistöðu á |
knattspyrnuvellinum.
Platini er gamansamur mjög og j
setur blaðamenn gjarnan úr jafn-
vægi með gáskafullum tilsvörum
sínum. Nýlega var hann spurður I
hvort það væri rétt að þýzka liðió
Hamborg SV hefði gert honum
tilboð. — Já, sagði Platini. — Þeir
tilkynntu að þeir vildu skipta á |
Kevin Keegan og mér, að auki átti
Nancy að fá þrjá aðra sterkustu |
leikmenn Hamborg i kaupbæti.
Þegar dregið hafði verið um
hvaða lið leika Saman i riðlum i
Argentinu sagði Platini að Frakk-
land hefði lent í þeim riðli keppn-
innar, sem væri opnastur, þar
sem allar þjóðirnar ættu svipaða
möguleika. Eiga Frakkar að leika
í riðli með Argentinu, Italíu og
Ungverjalandi. — Þetta verður
erfitt, en við göngum til leiks án
þess að gera okkur neinar gylli-
vonir, sagði Platini. — Argentínu-
menn eru alls ekki ósigrandi, eins
og við sýndum á síðasta ári þegar
við gerðum jafntefli við þá á
þeirra eigin heimavelli. Ég held
að allar eigi þjóðirnar fjórar jafna
möguleika, sagði Platini, stjarna
franska landsliðsins.
— áij.
ee Áheiþa-
g>lá(-Mtí fání-
HÍNNS ÚT1_A
'L'r'föv/et.DÍi EK-
OlAetriHN A&
I.
5TDLtil2. íouAU.
"KÁ-ejA see vAe.y
TVliilíe. KA-T'. OCr
12ÍI/CIK. MAfc. 6-Le©l
t-EAM e.erÍR. UÖTTV