Morgunblaðið - 19.01.1978, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.01.1978, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANUAR 1978 LANDSLIÐIÐ KVADDI MEÐ STORSKOTAHRIÐ Axel Axelsson sendir inn á Ifnuna til Björgvins. LANDSLIÐIÐ í handknattleik lék f gærkvöldi sinn síöasta leik áður en liðið heldur f heimsmeistarakeppnina í Dan- mörku. Öhætt er að segja að landsliðið hafi kvatt með stór- skotahrfð þvf lokatölurnar f leiknum gegn pressuliðinu urðu 36:28, landsliðinu í vil, eftir að staðan hafði verið 13:8 í hálfleik. Það voru þvf skoruð 43 mörk á 30 mfnútum f seinni hálfleik og er slíkt markaregn fátftt. Ekki er gott að dæma lands- liðið eftir þessum leik. Það sýndi margt laglegt í sókninni en í vörninni gekk dæmið ekki eins oft upp og markvarzlan verður líklega höfuðverkurinn í heimsmeistarakeppninni ef ekki verður stórbreyting til batnaðar. Bezti markvörður kvöldsins var tvímælalaust Jens Einarsson í liði pressunn- ar en Þorlákur Kjartansson og Kristján Sigmundsson í lands- liðinu vörðu þokkalega. Mörk landsliðsins: Jón H. Karlsson 7 (4v), Axel Axelsson 6 (lv), Björgvin Björgvinsson 5, Gunnar Einarsson 4, Janus Guðlaugsson 3, Ólafur Einars- son 3, Geir Hallstéinsson 3, Þor- bergur Aðalsteinsson 2, Bjarni Guðmundsson 2 og Viggó Sig- urðsson 1 mark. Mörk pressuliðsins: Gísli Blöndal 7 (4v), Páll Björgvins- son 5 (lv), Jens Jensson 4, Þor- geir Haraldsson 3, Gústaf Björnsson 2, Steindór Gunnars- son 2, Birgir Jóhannesson, Jón Pétur Jónsson og Arnar Guð- laugsson 1 mark hver. Það vantaði ekki mikið uppá að Laugardalshöllin væri full í gærkvöldi og áhorfendur skemmtu sér hið bezta. Enda fengu þeir góða skemmtun áð- ur en aðalleikurinn hófst en þá léku lið skemmtikrafta og upp- rennandi stjórnmálamanna í knattspyrnu og sigruðu skemmtikraftarnir 8:6. Mörk þeirra skoruðu Ómar Ragnars- son 3, Bessi Bjarnason 2, Laddi 1 og eitt mark var sjálfsmark Baldurs Óskarssonar. Friðrik Sóphusson skoraði 4 mörk fyrir stjórnmálamennina og Baldur Óskarsson 2 en hann og Eirikur Tómasson misnotuðu herfilega góð marktækifæri, sem Albert Guðmundsson hafði átt heiður af. — SS. Friðrik Sophusson brunar upp völlinn en Ómar Ragnarsson reynir með miklum tilþrifum að stöðva Fririk. í.jósm. rax Enski deildabikarinn: Stórliðin ein eftir LEEDS United sigraði Everton 4:1 í átta liða úrslitum enska deildarbikarins í gærkvöldi og Manchester City og Arsenal gerðu markalaust jafntefli og verða að leika að nýju á velli Arsenal, Highbury 24. janúar. Everton lék til úrslita í þessari keppni í fyrra en varð að sætta sig við tap gegn Aston Villa eftir mikla baráttu. En i gærkvöldi gekk Everton ekkert í haginn á Elland Road í Leeds. Reyndar náði Everton forystunni með marki Dave Thomas eftir aðeins þrjár mínútur en þá gerði liðið þau mistök að leggjast í vörn. Leeds sótti allt hvað að af tók og varnarmenn Everton urðu að beita ýmsum brögðum til þess að verjast marki. Afleiðingin var sú að miðvörðurinn, Higgins, var rekinn af velli rétt fyrir leikhlé eftir að hafa verið bókaður tvisv- ar. Vörn Everton fékk ekki varist sóknarmönnum Leeds, sem voru í ham og Tony Currie, Peter Lorimer og Eddie Gray skoruðu þrjú næstu mörkin. A siðustu mínútum leiksins innsiglaði Lorimer sigur Leeds með marki úr vítaspyrnu eftir að Mike Pejic hafði varið boltann með hendi á línunni. Leikur Manchester City og Arsenal var ákaflega daufur enda aðstæður ekki sem beztar til knattspyrnuiðkana á frosthörðum vellinum Nottingham og Liverpool áfram Tveir leikir fóru fram í undan- úrslitunum á þriðjudagskvöld. Nottingham Forest vann Bury úr 3. deild á útivelli 3:0 með mörkum Bowyer, O’NeilI og Bobertsson og Liverpool sigraði Wrexham einn- ig á útivelli 3:1. Kenny Daglish skoraði öll mörk Liverpool en John Lyons eina mark Wrexham. Það er því ljóst að stórlið isika til úrslita í deildarbikarkeppn- inni ensku að þessu sinni, en þessi keppni er fræg fyrir það að lið úr neðri deildunum hafa kom- ið þar á óvart og jafnvel sigrað eins og gerðist . 1969, þegar Swindon úr 3. deild vann Arsenal í úrslitunum. I undanúrslitin eru nú komin liðin Leeds, Liverpool og Nottingham Forest og annað hvort Arsenal eða Manchester City munu bætast i hópinn. — SS. Janusz kemur ekki til Noregs JANUSZ Cerwinsky landsliðs- þjálfari hafði sfmasamband við Birgi Björnsson formann Iandsliðsnefndar HSl í gær- kvöldi og tilkynnti honum að hann gæti ekki verið með landsliðinu f fyrirhuguðum leikjum í Noregi. Að sögn Birgis sagði Janusz ástæðuna vera miklar annir f háskólan- um f Gdansk í Póllandi, þar sem Janusz er háttsettur mað- Landsliðið heldur utan f fyrramálið og mun leika tvo upphitunarleiki f Noregi áður en heimsmeistarakeppnin hefst. Er vissulega slæmt að Janusz geti þá ekki verið með liðinu en hann sagði Birgi það í gærkvöldi að hann kæmi til Danmerkur f tæka tfð. — SS. SUNDMÓT ÆGIS HIÐ árlega sundmót Sundfélagsins Ægis verður haldið þriðjudaginn 31 jauúar og miðvikudaginn 1 febrúar 1978 Dagskrá mótsins verður sem hér segir: ÞriSjudagur 31. janúar kl. 19.30 1 500 m skriðsund kvenna (bikarsund) Timalágmark 23:30 1 500 m skriðsund karla (bikarsund) Timalágmark 22:30 Miðvikudagur 1. febrúar kl. 20.00 Keppt verður i eftirtöldum greinum og i þeirr; röð er hér að neðan greinir: 1 100 m flugsund kvenna 2. 400 m skriðsund karla 3 200 m bringusund kvenna 4 50 m bringusund telpna f 1966 og siðar. 5. 100 m bringusund karla 6 200 m fjórsund kvenna 7. 400 cn fjórsund karla 8 50 ,.i skriðsund sveina f 1 966 og síðar. 9 1 00 .n baksund kvenna 1 0 200 m baksund karla (bikarsund) 1 1 4x100 m skriðsund karla 1 2 4x100 m skriðsund kvenna Einnig verður veittur bikar fyrir besta afrek mótsins miðað við heimsmet i viðkomandi grein Bikar þennan gaf SSÍ Ægí á s.l ári i tilefni af 50 ára Happdrætti DREGIÐ hefur verið í happdrætti handknaftleiksdeildar Víkings og komu vinningarnir á nr. 5573, nr. 3592, nr. 4875, nr. 3659 og nr. 2649. Birt án ábyrgðar. afmaeli félagsins. I 1 500 m skriðsundi karla er keppt um bikar sem Jón Bald- ursson fyrrverandi formaður Ægis gaf í 1 500 m skriðsundi kvenna er keppt um silfurskál er SPEEDO-umboðið gaf og i 200 m baksundi karla er keppt um bikar sem Jón Ingimarsson fyrrverandi formaður Ægis gaf til minningar um Jön D Jónsson. Fyrsti sigur Mittermaier í heimsbikarnum EVA Mittermaier frá Vestur- Þýzkalandi bar sigur úr býtum í bruni heimsbikarkeppninnar í Badgastein f Austurrfki f gær. Mittermaier hafði tölu- verða yfirburði yfir keppi- nauta sfna enda þótt þetta væri hennar fyrsti sigur í heimsbikarnum. önnur í röð- inni var Annemarie Moser- Pröll og frá Austurrfki og Maria- Thereasa Nadig frá Sviss varð þriðja. Staðan f heimsbikarkeppn- inni er nú sú að Moser-Pröll hefur hlotið 98 stig, Hanni Wenzel frá Lieichtenstein hef- ur 89 stig og Lise-marie More- rod frá Sviss hefur 65 stig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.