Morgunblaðið - 01.02.1978, Qupperneq 1
32 SÍÐUR
26. tbl. 65. árg.
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ráðherra
fer frá í
Svíþjóð
Frá fréttaritara .Mbl. Jakohi Jónssyni
frá Stokkhólmi í gær
LEIÐTOGI Frjálslynda flokks-
ins í Svfþjód Per Ahimark, lýsti
þvf óvænt yfir í dag að hann
hefði ákveðið að segja af sér
sem Nokksleiðtogi og aðstoðar-
forsætisráðherra og verkamála-
ráðherra af persónulegum
ástæðum.
Ahlmark neitaði því á blaða-
mannafundi að hann hefði
ákveðið að segja af sér vegna
ágreinings innan stjórnarinnar
um stefnuna i kjarnorkumálum
sem er orðinn svo áreiðanlegur
að stjórnarkreppa virðist
hugsanleg á næstu vikum.
Hann sagði að atburður i
einkalifi sínu fyrir einu ári
Per Ahlmark
hefði gerbreytt lífsafstöðu
sinni, en neitaði að skýra það
nánar. Þó herma áreiðanlegar
heimildir að náinn vinur
Ahlmarks hafi látizt úr krabba-
meini i fyrra.
Nýr leiðtogi Frjálslynda
flokksins verður valinn á sér-
stökum flokksfundi i marz og
Framhald á bfs 18.
Hermálaviðræður
hafnar enn í Kairó
Kairó, 31. janúar. Reuter. AP.
ÍSRAELSMENN hófu hermálaviðræður við Egypta að
nýju í dag og sendu þeim nýjar hugmyndir í því
augnamiði áð koma aftur af stað pólitískum viðræðum
til þess að koma á friði í Miðausturlöndum.
Anwar Sadat forseti kvaðst
hafa gefið hermálaráðherra sin-
um, Mohammed Abdel-Ghani
Gamassi hershöfðingja, fyrirmæli
um að komast að samkomulagi við
israelska landvarnaráðherrann,
Ezer Weizman, i hermálaviðræð-
unum, en án þess að fórna
egypzku landi eða fullveldi.
Krafa IsraelSmanna um áfram-
hahlandi búsetu Gyðinga á Sinai-
skaga var aðalásteytingarsteinn-
inn i fyrstu lotu hermálaviðræðn-
anna sem fóru út um þúfur fyrir
tæpum þremur vikum. Viðræð-
urnar hófust að nýju á laun í dag í
Tehera-höll i einni útborg Kairó.
Sadat forseti sagði bandarisk-
um Gyðingum sem eru í heimsókn
i Egyptalandi að hann væri enn
eindregið mótfallinn kröfu Isra-
elsmanna um búsetu Gyðinga á
Sinai. „Við erum ekki sammála,
heimurinn er ekki sammála og
Carter forseti er ekki sammála,"
sagði Sadat.
Egypzki utanrikisráðherrann.
Mohammed Ibrahim Kamel,
ræddi jafnframt við bandariska
aðstoðarutanrikisráðherrann Al-
fred Atherton og sagði að hann
hefði komið á framfæri nokkrum
nýjum hugmyndum ísraelsmanna
en bætti því við að ísraelsmenn
og Egyptar væru enn ósammála
um margt.
' Weizman landvarnaráðherra
sagði við komuna til Kairó að
hann og Gamassi hershöfðingi
mundu reyna að ná umtalsverð-
um árangri. Seinna var birt sam-
eiginleg fréttatilkynning þar sem
sagði aðeins að viðræðurnar i dag
hefðu staðið i tvo tíma og að þeim
Framhald á bls 18.
FBI tek-
ur tvo fyr-
ir njósnir
Simamynd AP.
NVJAR VIÐRÆÐUR — Landvarnaráðherrarnir Ezer Weizman (til vinstri) og Mohammed Gamassi
þegar hermálaviðræður israelsmanna og Egypta hófust á ný í Kairó í gær eftir þriggja vikna hlé.
EBE viðræðurnar um
fískimál út um þúfur
Washington. 31. janúar.
Reuter.
STARFSMENN FBI hand
tóku í dag starfsmann
handaríska utanríkisráðu-
neytisins og víetnamskan
borgara í Washington og
sökuðu þá um njósnir í
þágu kommúnistastjórnar-
innar í Víetnam.
Hinir handteknu, Ron-
ald Humphrey og Truong
Ding Ilung, eiga það á
hættu að verða dæmdir i
ævilangt fangelsi ef þeir
verða fundnir sekir.
Humphrey er fyrst og fremst
ákærður fyrir að hafa afhent
Hung skeyti send utanrikisráðu-
neytinu frá sendiráðum Banda-
rikjanna i Peking, Hong Kong,
Vientiane, Kuala Lumpur og öðr-
um höfuðborgum Asíu. Sendiboði
fór með þessi opinberu leyndar-
mál til fulltrúa víetnömsku
stjórnarinnar í Paris.
Dinh Ba Thai, yfirmaður sendi-
nefndar Víetnams hjá Sameinuðu
þjóðunum, og Phan Thanh Nam,
starfsmaður víetnamska sendi-
ráðsins í París, eru sakaðir um
þátttöku i samsærinu.
Humphrey var handtekinn þar
sem hann var við störf i upplýs-
ingaþjónustu Bandarikjanna sem
heyrir undir utanrikisráðuneytið.
Hann hóf störf hjá upplýsinga-
þjónustunni 1966 og starfaði í eitt
og hálft ár i Saigon frá og með
ársbyrjun 1969. Hann hefur einn-
ig starfað í Vestur-Þýzkalandi.
London, 31. janúar. Reuter.
BRETAR, Norðmenn, Danir og
Svfar náðu í dag málamiðlunar-
samkomulagi um nýjar áadlunar-
flugferðir brezkra flugfélaga fil
Danmerkur og Noregs og f stað-
inn aflétta Rretar banni sfnu við
flugferöum SAS milli Kaup-
mannahafnar og Ahhotsineh-
flugvallar við Glasgow.
Sendinefnd frá Skandinavíu
Briissol. 31. janúar. Router.
VIÐRÆÐUR sjávarútvegsráð-
herra Efnahagsbandalagsland-
anna fóru út um þúfur f dag þar
sem Bretar neituðu að falla frá
andstöðu sinni við tillögum sem
hin aðildarlöndin hafa náð sam-
komulagi um og þar með hafa
undir forsæti Norðmannsins Tore
Bogh samþykkti að Danair yrði
heimilað að halda uppi ferðum
milli Gatwick við London til
Björgvinjar og að Air Anglia'
fengi að taka upp ferðir milli
Edinborgar og Stafangurs að sögn
talsmanns brezka viðskiptaráðu-
neytisins.
British Caledonian fær að hefja
að nýju ferðir frá Edinborg og
siglt f strand tilraunir til að móta
sameiginlega fiskimálastefnu.
John Silkin, landbúnaðarráð-
herra Breta, sagði í viðræðum að
tillögurnar næðu ekki til atriöa
sem Bretar teldu skipta mestu
máli f sameiginlegri fiskimála-
stefnu bandalagsins. Aðalásteyt-
Newcastle til Kaupmannahafnar
sem hafa legið niðri i fjögur ár.
Hins vegar neita Skandinavar
sem fyrr að flugfélagið Midland
Airways fái að halda uppi ferðum
milli Birmingham og Kaup-
mannahafnar. Vegna þeirrar neit-
unar ákváðu Bretar i nóvember i
fyrra að banna ferðir SAS til
Glasgow og Manchester. Bannið
Framhald á bls 18.
ingarsteinninn f viðræðunum er
krafa Breta um St) mflna einka-
lögsögu.
I.andbúnaðarráðherra Dana,
Paul Dalsager, sem er i forsæti
fundarins, samdi tillögur EBE i
dag að höfðu samráði við fram-
kvæmdanefndina. Samkvæmt
þeim skal taka upp kvótakerfi og
gera verndunarráðstafarnir að
miklu leyti á grundvelli fyrri til-
lagna nefndarinnar.
Bretar segjast ekki vera á móti
kvótatillögunum, enda er gert ráð
fyrir að þeir fái þriðjung af afla
EBE, en vilja ekki falla frá kröf-
unni um einkalögsögu.
Silkin sagði að hann væri á móti
hráðabirgðaráðstöfunum þar sem
þær yrðu oft varanlegar.
irski sjávarútvegsráðherrann.
Brian Lenihan, sagði að aðildar-
lönd önnur en Bretland gætu
Framhald á bls 18.
Muzorewa
aftur til
viðræðna
Salisbury. 31. jan. Huulor — .\P.
VIÐRÆÐUR ríkisst jórnar lan
Smiths forsætisráðherra og
blökkumannaleiðtoga i Rhódesíu
komust út úr ógöngum í dag þar
sem blökkumannaleiðtoginn Ahel
Muzorewa hiskup féllst á að hefja
að nýju þátttöku f þeim, en leið-
togar rhódesfskra skæruliða settu
fram harðar kröfur í viðræðum við
Breta og Bandaríkjamenn á
Möltu.
Innbyrðis ágreiningur blökku-
mannaleiðtoganna, sem taka þátt í
viðræðunum við Smith-stjórnina,
var leystur á lokuðum fundi sem
David Smith varaforsætisráðherra
hélt með Muzorewa biskupi og
staðgengli hans, James
Chikerema, sem Muzorewa hafði
sakað um að hafa móðgað sig.
Framhald á bls 18.
Leijon
Svíar dæma 14
fyrir samsæri
Stokkhólmi, 31. janúar. AP.
FJÓRTAN hryðjuverkamenn
sem voru sakaðir um samsæri
um að ræna fyrrverandi ráð-
herra voru dæmdir f Stokk-
hólmi f dag en tveir voru sýkn-
aðir.
Aðalsakborningurinn var
dæmdur i fjögurra ára fangelsi
fyrir að undirbúa rán ráðherr-
ans, en niu voru sektaðir og
hinir fengu tveggja og sex
mánaða fangelsi eða skilorðs-
bundna dóma.
Borgardómstóllinn i Stokk-
hólmi komst að þeirri niður-
stöðu, að höfuðpaur samsæris-
Framhald á bls 18.
Aflétta banni á SAS