Morgunblaðið - 01.02.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 1978
7
Þriðjudagur 31. janúar 1978. scr
alþydu-
blaöiö
l’tRrfandi: Alþvðuflokkurinn.
Rekslur: Re» kjaprent h.f. Rilsljdri og ábvrgBarmaíur ArnUiunoan
von. AfKetur'rilstjdrnar er I SIBumula II. slmi ai»M Kvdldflml frHl
AlþvBuhtlsinu Hverfisgolu 10-flmi 14*0« Askrlfur-og kvarlanaslm:
AskriflaverB ISOOkrdnur 1 manuBi og 8« krdnur I lausasdlu.
o. Frdllastjdri: Éinar Sigurfc
kkUr: 81*7«. Auglýsingadeilt
4*00. Prentun: RlaBaprenth.
Þegar kommar vildu vígbúast og
gáfu lögum og þingræði langt nef
Skilyrðislaus
hlýðni við
Sovétríkin
Alþýðublaðið segir í
leiðara í gær:
„Það er mikil rauna-
saga, hvernig afli islenzkr
ar verkalýðshreyfingar
hefur verið sundrað á sið-
ustu áratugum. Þáttur
kommúnista i pólitiskum
og faglegum klofningi
verkalýðsaflanna verður
seint fyrirgefin og mun
seint gleymast.
Um þessar mundir eru
liðin 40 ár siðan tilraun
var gerð til að sameina
Alþýðuflokkinn og
Kommúnistaflokkinn. Sú
tilraun fór út um þúfur,
þar eð kommúnistar neit-
uðu algjörlega að starfa á
grundvelli lýðræðishug-
sjónarinnar, vildu ekki
sætta sig við landslög og
þingræði og heimtuðu
skilyrðislausa hlýðni við
Sovétrikin.
Vert er að rifja upp
þessa sögu, þar eð fáu
ungu fólki er Ijóst, að um
stjórnvöl Alþýðubanda-
lagsins halda enn nokkrir
af þeim mönnum, sem
stóðu að kröfugerð
kommúnista i samninga-
viðræðunum i árslok
1937. Þá voru skoðana-
bræður þeirra margir i
flokknum og hafa þar
mikil völd".
„Sovétin”
og vopna-
búnaðurinn
Enn segir Alþýðublaðið.
„Ein af kröfum
kommúnista var sú, að
stofnuð yrði svokölluð
þjóðfylking. Hún, eða
stjórn hennar átti svo að
velja i hverri sýslu eða
kaupstað einskonar
„sovót" eða ráð, sem færi
að mestu með vald þjóð-
fylkingarinnar. Þetta
þýddi raunverulega að
taka mikið af valdi því,
sem nú er i höndum
hreppsnefnda, bæjar-
stjórna og sýslunefnda og
leggja það i hendur þess-
ara „sovéta".
Þá kröfðust kommún-
istar þess að gerðar yrðu
ráðstafanir til að taka upp
baráttu gegn uppreisnar-
fyrirætlunum afturhalds-
samasta hluta ihalds-
flokksins, og séð yrði um
að þessari uppreisnar
hættu yrði afstýrt m.a.
með þvi að auka lögreglu-
lið og vopna það með
skotvopnum, og jafnframt
að sjá um, að i landinu
væri nægar birgðir skot-
vopna og annarra her-
gagna, svo i skyndi væri
hægt að vopna mikinn
hluta þjóðarinnar, ef upp-
reisn íhaldsins brytist út".
Njósnir um
andstæðinga—
brottrekstur
blaðamanna
Loks segir Alþýðublað-
ið:
„En auk þess var svo
lagt til, til þess að lif og
„eignir" borgaranna yrðu
sem bezt tryggðar, að
þjóðfylkingin kæmi á við-
tækri njósnastarfsemi um
andstæðingana. Hlutverk
þessara njósna átti fyrst
og fremst að vera það, að
fylgjast sem bezt með og
komast fyrir, ef unnt væri,
hvernig íhaldið hagaði
vopnainnflutningi sínum
og hvað liði uppreisnar-
áformum þess.
Krafa kommúnista var
sú, að Alþýðuflokkurinn
tryggði að þessi mál
kæmust i framkvæmd. —
Kommúnistar kröfðust
þess jafnframt, að stöðv-
uð yrði öll gagnrýni á
Sovétrikin, að ritstjóri og
blaðamenn Alþýðublaðs-
ins yrðu reknir. Þeir neit-
uðu einnig afdráttarlaust,
að inn i stefnuskrá sam-
einaðs flokks kæmu
ákvæði um, að hann virti
landslög og þingræði.
Þessi saga er svo ótrú-
leg, að fáir fengjust til að
trúa henni, nema af þvi að
allt er þetta til skjalfest og
undirritað af leiðtogum
kommúnista. Það þarf þvi
engan að undra þótt
jafnaðarmenn berjist af
hörku gegn kommún-
ismanum. Alþýðubanda-
lagsmenn segja þetta
liðna tið. En staðreyndin
er hins vegar sú, að þess-
ar skoðanir kommúnista
eru ennþá við liði hér á
landi. Kjarninn i stefnu
þeirra er að koma Alþýðu-
flokknum fyrir kattarnef.
Hann hefur ávallt staðið
sterkur gegn fyrirætlun-
um þeim, sem hér hafa
verið nefndar."
—ÁG
Vattfóðrarðir skíðagallar
Buxur og jakkar
Fullorðins stærðir kr. • 12.300.—
Barna og unglingastærðir kr. 9.600.—
kr. 8.800 -
Einstaklega hagstætt verð
simr. 27211
Austurstræti
39. uppboð Klaustur-
hóla á laugardaginn
Klausturhólar, listmunaupphoð
Guðmundar Axelssonar efna til
39. uppboðs fyrirtækisins næst-
komandi laugardag kl. 14.00.
Verða seldar bækur og handrit.
Að venju er uppboðið f Tjarnar-
búð. Uppboðsskrá greinist í all-
marga flokka: Vmis rit. rit ís-
lenzkra höfunda, saga lands og
lýðs, Grænland, ljóð, rímur, leik-
rit, draumar, sagnaþættir, þjóð-
sögur, trúmálarit, æviminningar,
Styðja
Torfu-
samtökin
MORGUNBLAÐINU barst í gær
fréttatilkynning frá 13 starfs-
mönnum Skipulags rfkisins og
Húsameistara ríkisins, sem er
svohljóðandi: „Undirritaðir 13
starfsmenn hjá Skipulagi rfkisins
og Ilúsameistara ríkisins, lýsa yf-
ir eindregnum stuðningi við
ályktun þá, sem samþykkt var á
aðalfundi Torfusamtakanna, sem
haldinn var f Iðnó 4. desember
1977, þar sem því er beint til
stjórnvalda, ríkisstjórnar og
borgarstjórnar, að endanleg
ákvörðun verði tekin um varð-
veislu Bernhöftstorfunnar og
húsin verði hið fyrsta lagfærð og
tekin til notkunar."
Þeir, sem undirrituðu tilkynn-
inguna, eru: Stefán Thors, Hrafn
Hallgrímsson, Arni Ragnarsson,
Guðrún Steinþórsdóttir, Gunnar
S. Óskarsson, Gunnar Ingibergs-
son, Jakob Jónsson, Baldvin Bald-
vinsson, Magnús K. Sigurjónsson,
Sigurður Gíslason, Guðlaugur
Gauti Jónsson, Bára Bragadóttir
og Hreggviður Stefánsson.
blöð og tímarit, fornritaútgáfur
og fræðirit o.fl.
Segja má, að það sem helst ein-
kennir uppboð þetta séu hinar
fjölmörgu frumútgáfur, en á boð-
stólum verða. Má þar til nefna
m.a.: Uppreisn englanna eftir
Anatole France í þýðingu Magn-
úsar Ásgeirssonar, fjölrituð út-
gáfa frá 1927, Rauða hættan eftir
Þórberg Þórðarson, Rvík. 1935,
-Spor í sandi eftir Stein Steinarr,
Rvík. 1940, hið fágæta leikrit
Bakkaynjurnar eftir Euripides í
þýðingu Sigfúsar Blöndal,
Kaupmh. 1923, María Magdalena
og Flugur eftir Jón Thoroddsen
yngra, Rvík. 1922 og Gjensvar
imod Gjensvar, eller Stud, Bald-
vin Einarsson imod Prof. Rasmus
Rask, Kjöbenkavn 1831.
Nokkur handrit verða boðin
upp, þ.á.m. Rímur af Herraud og
Bósa, skrifað í Eyjafirði 1795,
Rímur af Hervöru og Heiðreki,
1823 og handritun af bænabók
sem prentuð var í Skálholti 1697,
handritað 1704.
Ýmislegt verður boðið upp
merkra safnrita: Landnám Ing-
ólfs I—III, Rvík 1935 — 1939,
Menn og minjar I—IX, Rvík 1946
/ 1960, Gríma I—XXVm Akureyri
1929 — 1950, Biskupasögurnar
yngri, Hver er maðurinn I—II,
Rvík. 1944, ennfremur allur Öð-
inn og ýmis merk tímarit.
Að lokum má geta þess, að ýms-
ar merkar útgáfur norrænna
fræða verða seldar, þ.á.m. verk
virtra fræðimanna eins og Finns
Magnússonar, Andreas Heuslers,
Konráðs Gíslasonar, Vilhjálms
Finsen, Rasmus Rask, Sigurðar
málara og margra fleiri.
Uppboðið hefst í Tjarnarbúð kl.
14.99 laugardaginn 4. febrúar, en
verkin verða til sýnis í verzlun
Klausturhóla allan föstudaginn
frá kl. 9.00 til 22.00 segir að lok-
um i fréttatilkynningu frá Klaust-
urhólum.
Völundar-
innihurðir
eru spónlagðar hurðir með eik, gullálmi, furu,
oregonpine, frönskum álmi, hnotu, teak,
wenge, silkivið o.fl. viðartegundum, eða óspón-
lagðar tilbúnar undir málningu. 70 ára reynsla
tryggir gæðin.
JTTW Timburverzlunin
Volundur hf.
KLAPPARSTÍG 1. SÍMI 18430 — SKEIFAN 19. SIMI 85244
Útsala,
Útsa/a:
Útsalan er byrjuð,
Mikil verðlækkun
Gerið góð kaup
Elízubúðin,
Skipholti 5,