Morgunblaðið - 01.02.1978, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1978
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulitrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjöm Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. stmi 10100.
Aðalstræti 6, sími 22480.
Áskriftargjald 1 700.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 90 kr. eintakið.
Borgin, höfnin, út-
gerðin og fískvinnsfan
Re’ykjavík var vagga togaraútgerðar í landirtu Hún
hefur um langan aldur verið mikilvæg islenzkum sjávarút-
vegi: veiðum, vinnslu og skipaiðnaði Engu að síður hafa þessar
mikilvægu framleiðslugreinar dregizt saman hlutfallslega, þ.e.a.s.
ekki vaxið að sama marki og þjónustugreinar vinnumarkaðarins i
höfuðborginni Til þessa liggja ýmsar ástæður, sumar lítt við-
ráðanlegar, eins og lokun Faxaflóa; aðrar, sem hamla má gegn
með réttum viðbrögðum
Reykjavíkurhöfn er eina fiskihöfnin í landinu, sem rikisvaldið
setur algjörlega til hliðar varðandi stofnkostnaðarþátttöku Rikis-
sjóður greíðir 75% stofnkostnaðar annarra fiskihafna i landinu og
allan stofnkostnað svokallaðra landshafna Sjávarútvegur, veiðar
og vinnsla, þróast hvarvetna innan þess ramma sem þessum
framleiðslugreinum er settur, m a með tiltækri starfsaðstöðu i
viðkomandi höfnum Miðað við aðstæður gegnir raunar furðu,
hve vel hefur verið haldið á málum við Reykjavikurhöfn Abentur
fjárhagslegur aðstöðumunur hefur hins vegar óhjákvaemilega sett
sitt neikvæða mark á þróun þessara mála i Reykjavík
Helztu opinberir fjárfestingarsjóðir, sem fjármagna að hluta
uppbyggingu atvinnugreina, hafa siður en svo sett reykvískan
sjávarútveg í öndvegið Þannig hafa fískveiðasjóður. byggða-
sjóður og iðnlánasjóður lánað samtals 19 7 milljarða króna til
atvinnuveganna i landinu á árabilinu 1973 — 1976 Þar af hafa
aðeins 2 3 milljarðir eða 11.9% verið ráðstafað til Reykjavíkur —
þangað sem yfir40% þjóðarinnar býr
Með hliðsjón af samdrætti í tilteknum framleiðslugreinum á
höfuðborgarsvæðinu, sem og stöðnun í ibúafjölgun borgarinn-
ar, hlýtur að teljast sanngjarnt, að Reykjavik verði sett við sama
borð og önnur sveitarfélög, bæði varðandi lánsfjárfyrirgreiðslu
opinberra fjárfestíngasjóða og stofnkostnað Reykjavíkurhafnar
Reykvikingar bera uppi hinn sameiginlega kostnað rikisbúsins
ekki siður en aðrir landsmenn Reykjavikurhöfn þjónar fjölmenn-
um hafnlausum nágrannabyggðum til jafns við höfuðborgina
Hún þjónar raunar landinu öllu sem helzta vöruhöfn þess Svipað
má raunar segja um fjölmargar þjónustustofnanir, sem Reykjavík
rekur, er sinna þörfum nágrannabyggða Þetta er raunar nauð-
synlegt að hafa í huga þegar borin er saman tekjuþörf og
útgjaldakostnaður Reykjavikur annars vegar og nágrannabyggða
hins vegar
Atvinnustefna sú, sem Birgir ísleifur Gunnarsson, borgarstjóri,
hefur fram sett, miðar fyrst og fremst að því að efla framleiðslu-
greinar í höfuðborginni, bæði i iðnaði’ og sjávarútvegi. Þessi
stefna er byggð á niðurstöðum úttektar, sem gerð var að
frumkvæði borgarstjóra, á stöðu atvinnulífs i borginni og liklegri
framþróun þess. Þessi atvinnustefna miðar fyrst og fremst að því
að tryggja til frambúðar það atvinnuöryggi, sem Reykvíkingar
hafa búið við og búa við í dag Kjarni hennar er að búa þann veg i
haginn fyrir framtak borgaranna, að það megi bera sem rikuleg-
astan ávöxt í tílurð nýrra atvinnutækifæra á komandi árum og
áratugum.
Nauðsynlegt er að stefna að stórbættri aðstöðu fyrir sjávarút-
veg í Reykjavíkurhöfn. Ekki einvörðungu i þágu útgerðar og
fiskvinnslu, heldur ekki siður margvislegrar þjónustu við þessar
atvinnugreinar Má þar m a. nefna skipaiðnað, sem lengi hefur
verið nokkur í Reykjavík, og nú er unnið að að skapa betri
vaxtarskilyrði. Skipaiðnaður í höfuðborginni þarf að þróast að því
marki, að hann geti sinnt í ríkara mæli en nú er bæði nýsmiði og
viðgerðarþjónustu i þágu fiskiskipa og farmskipa okkar sem við
höfum um of sótt til annarra þjóða
Margvíslegar framkvæmdir eru á döfinni hjá Bæjarútgerð
Reykjavikur, til að tæknivæða veiðiskip og vinnslustöð og styrkja
rekstrarstöðu fyrirtækisins Afstaða borgarbúa til bæjarrekstrar
fellur ekkí í einn farveg. En með hliðsjón af samdrætti i þessari
atvinnugrein i höfuðborginni, eru viðbrögð borgaryfirvalda á
þessum vettvangi rétt. Tekið skal undir þau orð Ragnars Július-
sonar, stjórnarformanns BÚR, að meðan borgin annast slíkan
rekstur og ber ábyrgð á honum, verður að stefna að því marki, að
reksturinn skili arði og þurfi ekki að þiggja rekstrarlegan stuðning
i borgarsjóð
Öll landbúnaðarhéruð og öll sjávarpláss á íslandi eru hlekkir í
verðmætasköpun þjóðarbúsins. Velferð þeirra og viðgangur er í
senn fagnaðarefni og þjóðarhagur Sama máli gegnir að sjálf-
sögðu um höfuðborgina, sem í senn er stjórnsýslumíðstöð
landsins og afkomuvettvangur fjörutiu hundraðshluta þjóðarinn-
ar. Það er orðíð tímabært að eyða héraða- og landshlutaríg, sem
alið hefur verið á um langan aldur Byggðir landsins eiga að búa
við sem líkastan kost varðandi opinbera fyrirgreiðslu, sem
kostnaðarlega er deílt á landsmenn alla
Stjórn Skáksambands tslands á blaðamannafundinum f gær í hinu nýja húsnæði sambandsins við
Laugaveg71.
BV ./
W ámr ■w' M
Reykjavíkurskákmót
ið hefst á f östudag
Skáksambandid flytur formlega í nýtt húsnædi
' Reykjavíkurskákmótið hefst
næstkomandi föstudag er dreg-
ið verður um töfluröð kepp-
enda f Kristalsal Hótel Loft-
leiða. Umferðir mótsins verða
13 og hefst sú fyrsta á laugar-
dag eftir að mótsetning hefur
farið fram, en Birgir tsleifur
Gunnarsson borgarstjóri leikur
f.vrsta leik mótsins. A mótinu
verður tefit í fyrsta sinn eftir
nýju fslenzku kerfi en í því
felst, að tími keppenda er tak-
markaður meir en áður hefur
tfðkazt. Fvrstu 30 leikina
verður að leika á 90 mínútum,
þá næstu 20 á 60 mínútum eða
alls 50 leikir á 2!4 tfma fyrir
bið. Þetta kom fram á blaða-
mannafundi sem Skáksam-
bandið hélt í gær í tilefni þess,
að sambandið flutti formlega í
nýtt húsnæði við Laugaveg 71
og vegna Reykjavíkurskák-
mótsins svo og til að kynna
útgáfu nýs skákpenings f til-
efni góðrar frammistöðu Jóns
L. Arnasonar á sl. ári.
Skákmót þetta er eitt hið
allra sterkasta sem haldið hef-
ur verið hér á landi og er það í
styrkleikaflokki 11, sem merkir
að meðalstigatala keppenda er
yfir 1500 stig, en á mótinu er
þessi tala 2522,3 stig svo aðeins
vantar 2,7 stig upp á að mótið
fari í 12. styrkleikaflokk. Kepp-
endur verða alls 14 eða Hort,
Larsen, Polugaevsky, Miles,
Smejkal, Browne, Lombardy,
Kuzmin, Friðrik Ólafsson og
Margeir Pétursson.
Verðlaunagreiðslur á mótinu
eru taldar nema á milli 2.2—2.5
milljónir króna eftir genginu
og eru þau verðlaun hærri en
gengur og gerist að því er Einar
S. Einarsson sagði á blaða-
mannafundinum í gær. Heild-
arkostnaður vegna mótsins er
hins vegar áætlaur 7.5—9.0
milljónir þegar upp verður
staðið og vonast Skáksambands-
menn til þess, að hægt verði að
koma hallalaust út úr þessu
móti, en af undanförnum
tveimur mótum hefur verið
nokkur halli.
Aðalskákdómari mótsins
verður Guðmundur Arnlaugs-
sön en honum til aðstoðar verða
Guðbjartur Guðmundsson,
Gunnar Gunnarsson og Þor-
steinn Þorsteinsson. Formaður
skákstjórnar verður Einar S.
Einarsson.
Minnispeningur um af-
rek Jóns L. Árnasonar
Skáksamband Islands hefur í
tilefni af hinu frækilega afreki
hins unga skákmeistara, Jóns
L. Arnasonar, látið slá minnis-
pening tileinkaðan þessum
f.vrsta heimsmeistara okkar Is-
lendinga, segir í frétt Skáksam-
bands Islands.
Er hér um að ræða annan
pening í sérstakri minnispen-
ingaseríu um íslenzka afreks-
menn í skák, en sá fyrsti var
sleginn 1975 og tileinkaður
Friðriki Ölafssyni stórmeistara.
Kaupendur þessa penings eiga
nú forkaupsrétt í einn mánuð
að sömu númerum. Upplag
heimsmeistarapeningsins er
takmarkað við 500 brons, 200
silfur, og 25 gullpeninga, sem
allir verða númeraðir. Aætlað
verð peningsins er 6.500 krónur
fyrir brons, 12.500 fyrir silfur
og gullpeningurinn verður
verðlagður eftir gullverði á
þeim tíma er hann verður sleg-
inn en áætlað verð er um
200.000 krónur. Peninginn hef-
ur hannað Helga B. Sveinbjarn-
ardóttir og er sleginn hjá ís-
spor h.f.
Samkvæmt sérstakri sam-
þykkt stjórnar sambandsins
verður helmingi nettóágóða af
sölu peningsins varið til að
stofna verðtryggðan sjóð til
styrktar Jóni L. Arnasyni á
skákbrautinni.
JJiiJi.
Mynd af hinum nýja minnispeningi um afrek Jóns L. Arnasonar á s.l. ári er hann varð heimsmeistari
unglinga 17 ára og yngri.