Morgunblaðið - 16.02.1978, Síða 1

Morgunblaðið - 16.02.1978, Síða 1
48 SIÐUR 39. tbl. 65. árg. FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Samkomulag tilkyrint um lausn Rhódesíudeilunnar Þeir náðu samkomulagi í Rhódesíudeilunni (talið frá vinstri): Abel Muzorewa biskup. dr. Elliot Gabellah (stað- gengill séra Sithole), Jeremiah Chirau ættar- höfðingi og Ian Smith forsætisráðherra. Salishury. 15. febrúar. Reuter. AP. LEIÐTOGAR blökkumanna og hvltra manna I Rhódesfu tilkynntu í dag að þeir hefðu náð samkomulagi i meginatriðum um nýja stjórnar- skrá og myndun meirihlutastjórnar blökkumanna í Rhódesfu þannig að öryggi hvítra manna yrði tryggt og kváðust gera ráð fyrir þvf að bráðabirgðastjórn yrði mynduð bráðlega. lan Smith forsætisráðherra og leiðtogar blökkumanna skýrðu frétta- mönnum frá samkomulaginu að loknum 37. fundi sfnum síðan viðræð- urnar hófust 2. desember og feku á als oddi, hlógu og gerðu að gamni sfnu. Þetta er f fyrsta skipti sem Smith hefur rætt við blaðamenn f návist leiðtoga blökkumanna sem berjast fyrir endalokum 90 ára yfirráða hvftra manna og þessi eindrægni þeirra á sér enga hliðstæðu. „Við erum mjög hamingjusam- ir,“ sagði Abel Muzorewa biskup, leiðtogi Sameinaða afriska þjóð- arráðsins (UANC) sem olii þriggja vikna þráskák í viðræðun- um vegna þess að hann var ósam- mála viðsemjendum sinum um fjölda hvítra fulltrúa á þingi sem verður komið á laggirnar er meirihlutastjórn blökkumanna tekur við völdum í Rhódesiu sem þeir kalla Zimbabwe. Smith kallaði samkomulagið „sigur fyrir hófsemi“ og kvað það hafa náðst vegna mikillar þraut- seigju samningsaðila sem hefðu verið staðráðnir i að gefast ekki upp. Föðurlandsfylkingin, sem skæruliðar þeir er bækistöðvar hafa í Mozambique og Zambiu og heyja harða styrjöld gegn öryggis- Bretar deila á Færeyinga London, 15. febrúar. AP. EFNAHGSBANDALAGIÐ hefur verið beðið að leiðrétta misskiln- ing sem virðist hafa risið milli Breta og Færeyinga út af nýjum fiskveiðisamningi sem kann að verða rift aðeins einni viku eftir að samkomulag náðist um hann. Gengið var frá samningnum i síðustu viku að loknum erfiðum viðræðum og samkvæmt honum mega Færeyingar veiða í brezkri lögsögu og Bretar i færeyskri, en brezkur embættismaður sagði í dag að samningurinn jaðraði við að vera óviðunandi. Bruce Millan Skotlandsráð- herra kvaðst vera að reyna að ganga úr skugga um hvað hæft væri í frétt um að færeyska lands- stjórnin vildi meina Bretum veið- ar á miðum sínum fram í maí af „verndunarástæðum." Hann sagði reiðum þingheimi að brezka stjórnin mundi ekki sætta sig við slíkt skilyrði og Framhald á bls. 26 sveitum Rhódesiustjórnar til- heyra, tók ekki þátt í viðræðunum og er þvi ekki aðili að samkomu- laginu. Rúmlega 600 menn hafa Framhald á bls. 26 Sex böm fórust í eldsvoða Noyelles Godault, 15. feb. AP. SEX börn á aldrinum fimm til 17 ára fórust í eldi sem kom frá olíuhitunartæki á heimili þeirra í Noyelles Godault í Frakklandi í morgun. Móðir þeirra og tveir gestir á heimilinu fórust einnig í elds- voðanum. Þau voru öll í fasta- svefni. Olíuhitunartækið var á jarð- hæð hússins og sprakk í loft upp. Eldurinn læsti sig um tvö herbergi á efri hæð þar sem fólkið svaf. 1 Boulogne-Billancourt, út- borg Parísar, létust tvö börn, eins og tveggja ára gömul, í Framhald á bls. 26 Begin segir þotusölu ógna friðartilraunum Jerúsalem, 15. febrúar. AP. Reuter. MENACHEM Begin forsætisráð- herra mótmælti harðlega í dag Sprengjuþotu sagt að lenda Nairobi, 15. febr. Reuter. KENVSKAR þotur neyddu f dag egypzka flugvél af gerðinni Boeing 707 hlaðna sprengjum, sem hún ætlaði að flytja til Sóma- líu, til þess að lenda á flugvellin- um í Nairobi að sögn stjórnar landsins. Talsmaður stjórnarinnar sagði að Kenyastjórn hefði lýst áhyggj- um vegna vopnasendinga Egypta til Sómalíu, að flugvélin hefði rof- ið lofthelgi Kenya og að yfirvöld landsins hefðu ekki átt um annað að velja en neyða flugvélina til að lenda. Hann sagði að í flugvélinni hefðu verið 170 kassar af sprengi- kúlum og sprengiefni. Hann sagði að farmurinn hefði verið gerður upptækur og sjö menn sem flugu Framhald á bls. 26 fyrirhugaðri sölu á bandarfskum herþotum til Egyptalands og Saudi-Arabíu og kvað samning- inn um söluna stofna friðartil- raunum f hættu. Begin skýrði einnig frá því f þingræðu að hann ætlaði að fara til Washington í næsta mánuði til þriggja daga viðræðna við Carter forseta og freista þess að gera út um þann ágreining sem er risinn með Israelsmönnum og Banda- rikjamönnum. Hann sagði að sala herflugvél- anna yrði til þess að styrkja það sem hann kallaði úrslitakosti er Anwar Sadat forseti hefði sett fram og ýta undir vopnaskak Egypta. En hann sagði að hótanir um stríð og árás gætu ekki fengið ísraelsmenn til að taka ákvarðan- ir sem yrðu hættulegar stöðu þeirra, réttindum og framtíðar- öryggi. Hann bað Carter forseta að end- 200 manns bjargað úr log- andi farþegaþotu á Tenerife Santa (’ruz de Tenerife, 15. febrúar AP. Reuter. BOEING 707 þota belgíska flugfélagsins Sabena eyðilagð- ist f eldsvoða skömmu eftir lendingu á flugvellinum i Santa Cruz de Tenerife á Kana- rfeyjum f dag, en 189 farþegar og sjö manna áhöfn flugvélar- innar sluppu við alvarleg meiðsli. Orsök slyssins var bilun í lendingarbúnaði flugvélarinn- ar sem var nýlent á Los Rodeos- flugvelli þegar eldur kom upp f henni. Fiugvélin fuðraði upp en flugvallarslökkviliðið brá skjótt við og bjargaði öllum úr flugvélinni út um neyðarút- ganga. Tiu manns meiddust lítils háttar og voru flutt í sjúkrahús- ið í Tenerife, þar á meðal Belgi sem mun hafa fengið hjarta- áfall. Farþegarnir voru allir skemmtiferðamenn sem komu frá Brtissel. Sabena hafði leigt flugvélina belgíska félaginu Sobelair. Farþegunum var bjargað úr flugvélinni á átta mínútum en þrír þjóðvarðliðar fengu smá- vegis brunasár þegar þeir klifr- uðu um borð í flugvélina til að bjarga áhöfninni sem fékk vatnsgusu frá slökkviliðs- mönnunum sem sprautuðu á vélina. Eftir slysið var flugvellinum á Tenerife lokað og flugvélum sem ætluðu að lenda var beint til annarra flugvalla á Kanarí- eyjum eins og í Las Palmas, Arrecife og Fuerteventura. í marz í fyrra fórust rúmlega 570 i árekstri Boeing 747 flug- véla Pan American og KLM á Los Rodeos. Það er mesta flug- slys sem um getur. urskoða ákvörðun sína þar sem í henni fælist „alvarleg hætta fyrir tilraunir til að koma á friði og fyrir öryggi Israels." I Kairó er ákvörðun Carters tal- in fyrsti áþreifanlegi stuðningur- inn sem friðartilraunir Sadats hafi fengið frá Bandarikjamönn- um, þótt egypzki forsetinn telji flugvélarnar lítils virði. Egyptar fá alls 50 orrustuflug- vélar af gerðinni F-5 og Sadat hefur kallað þær „10. flokks“. Framhald á bls. 26 Sómalskir stúdentar heimleiðis Moskvu, 15. febrúar. AP. ÞRJATÍU sómalskir stúdentar fóru heimleiðis frá Moskvu í dag með áætlunarflugvél, fyrstir um 370 stúdenta sem Sómaliustjórn hefur kallað heim. Stúdentarnir fóru með flugvél japanska flugfélagsins til Rómar þar sem þeir halda áfram ferð sinni til Mogadishu, höfuðborgar Sómalfu. Stúdentarnir sögðu fyrir brott- förina að gagnstætt því sem Sómalíustjórn hefði sagt hefðu þeir ekki verið teknir fastir eða reknir frá stúdentagörðum. Hins vegar sögðust nokkrir stúdentar hafa fengið þær upplýs- ingar i sómalska sendiráöinu í Moskvu að sovézk yfirvöld hefðu neitað að leyfa sómalskri flugvél, sem átti að koma frá Róm til að sækja þá, að lenda í Moskvu. Sómalíustjórn ákvað að kalla stúdentana heim vegna hrið- versnandi sambúðar Sómalíu og Sovétríkjanna út af stuðningi Rússa við Eþíópíumenn í Ogaden- stríðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.