Morgunblaðið - 16.02.1978, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978
5
Yfirlýsing frá Blaða-
mannafélagi íslands
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Blaðamannafélagi Islands:
Blaðamannafélag íslands hefur
boðað til verkfalls frá og með
föstudeginum 17. febrúar 1978,
en vill af þvi tilefni taka fram, að»
komi til verkfalls þessa þá er það
beint framhald þeirrar kjarabar-
áttu, sem félagið hóf með upp-
sögn samninga á sl. sumri. Þá
gengu öll félög ASl frá samning-
um, en Blaðamannafélagið gekk
aftur á móti frá samkomulagi við
viðsemjendur sína um samræm-
ingu á kjörum fréttamanna ríkis-
útvarpsins og blaðamanna blað-
anna.
Samkomulag þetta var þess efn-
is, að samræming átti að fara
fram á kjörum fréttamanna rikis-
útvarps og blaðamanna eftir að
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja hefði gengið frá kjarasamn-
ingi sinum. Skyldi sérstök nefnd,
sem fjalla átti um málið, komast
að samhljóða niðurstöðu um sam-
ræminguna, en tækist það ekki
gerði samkomulagið ráð fyrir að
hvorum aðila um sig væri heimilt
að segja upp samningum. Atti
samkomulag að hafa tekizt fyrir
20. janúar 1978.
Blaðaútgefendur komust hins
vegar að þeirri niðurstöðu hinn
19. janúar sl., að algjört samræmi
væri orðið þá þegar á kjörum
fréttamanna og blaðamanna. Þeir
rökstuddu ekki frekar þessa
niðurstöðu sína og hafa neitað
fulltrúum blaðamanna um að fá
að sjá forsendur þeirra útreikn-
inga sem þarna liggja að baki, svo
og sáttasemjara ríkisins.
Blaðamenn hafa með rökstuðn-
ingi sýnt fram á að ekki er sam-
ræmi milli þessara kjarahópa og
m.a. bent á að byrjunarlaun í
blaðamennsku samkvæmt taxta
B.I. séu nú 109.990.— kr. en byrj-
unarlaun í fréttamennsku hjá
Ríkisútvarpinu séu 190.911.—
krónur samkvæmt taxta BSRB.
Af hálfu blaðamanna hefur
jafnframt verið óskað eftir því
margsinnis, að Kjararannsóknar-
nefnd yrði sem hlutlaus aðíli
fenginn til að reikna út mismun
kjara fréttamanna ríkisfjölmiðl-
anna og blaðamanna en þeirri
málaleitan hafa útgefendur jafn-
an hafnað. Blaðamannafélagi Is-
lands var því nauðugur einn kost-
ur að segja upp samningum sín-
um og hefja nýja kjarasamnings-
gerð.
Þrátt fyrir að blaðamenn hafi
haft samkomulagið um samræm-
ingu upp á vasann, hafa blaðaút-
gefendur aðeins boðið 4,3% kaup-
hækkun á alla launataxta félags-
ins. Það þýðir í raun, að samræmi
næst með þeim hætti, að blaða-
maður með 8 ára starfsreynslu,
sem annast verkstjórn eða hefur
sambærilega ábyrgð í starfi, fær
laun sem eru 9 krónum hærri en
hjá byrjanda í fréttamennsku hjá
ríkisfjölmiðlunum. Þessu getur
Blaðamannafélag íslands að sjálf-
sögðu ekki unað og þvi stefnir
þessi kjaradeila nú í verkfall.
Blaðamannafélag islands verð-
ur 80 ára á þessu ári. Það hefur
jafnan stýrt kjarabaráttu sinni á
þann veg, að ekki hefur komið til
verkfalls — utan einu sinni. Það
var í ágústmánuði 1963 og stóð þá
í um það bil viku. Nú eru því liðin
15 ár tæplega milli þessa fyrsta og
Formannaráðstefna BSRB:
Skorar á Alþingi
að hætta við sam-
þykkt þeirra
ákvæða sem fela
í sér riftun á
k j arasamningum
formannarAðstefna
BSRB hófst að Hótel Sögu á
þriðjudag. Kristján Thorlacius,
formaður BSRB, hafði framsögu
um viðhorfin i kjaramálum og
viðbrögð samtakanna við aðgerð-
um ríkisstjórnarinnar en að því
loknu urðu miklar umræður með-
al fundarmanna, að sögn
Kristjáns. Niðurstaðan var að
kjósa 9 manna nefnd til að gera
tillögu um aðgerðir eða viðbrögð
BSRB vegna þessa máls.
I níumanna nefndina voru kjör-
in Kristín Tryggvadóttir, frá Sam-
bandi ísL barnakennara, Agúst
Geirsson, Félagi ísl. símamanna,
Bergmundur Guðlaugsson, Toll-
varðafélagi Islands, Einar Olafs-
son, Starfsmannafélagi ríkisstofn-
ana, Eyþór Fannberg, Starfs-
mannafélagi Reykjavíkurborgar,
Jónas Jónsson, Landssambandi
lögreglumanna, Oddur Pétursson,
Félagi opinberra starfsmanna á
ísafirði, Sigurveig Sigurðardóttir,
Hjúkrunarfélagi íslands, og
Snorri Jónsson, Landssambandi
framhaldsskólakennara.
Formannafundinum var svo
haldið áfram klukkan 14 í gær. I
fundarlok var eftirfarandi sam-
þykkt með 58 atkvæðum gegn 2,
en að sögn Haralds Steinþórsson-
ar, framkvæmdastjóra BSRB,
sátu 2 eða 3 fundarmanna hjá við
atkvæðagreiðsluna. Mótatkvæðin
annars verkfalls í sögu félagsins,
þ.e.a.s. ef af verkallinu nú verður.
Kjör blaðamanna hafa frá 1.
desember 1976 hækkað um 47% á
sama tima og kjör annarra stétta í
þjóðfélaginu hafa hækkað um allt
að 80%. Því miður verður að segj-
ast, að sá lærdómur sem blaða-
menn hafa dregið af þessari þró-
un, er sá að kjarabaráttu hérlend-
is er ekki ufint að reka með
árangri nema með því að beita
verkfallsvopninu.
Viðsemjendur Blaðamannafé-
lags tslands eru nýgengnir í
Vinnuveitendasamband tslands.
Ein af grundvallarreglum þeirra
samtaka er að greidd skulu sömu
laun fyrir samsvarandi vinnu án
tillits til þess hjá hverjum hún sé
unnin. Blaðamannafélag íslands
væntir þess, að viðsemjendum
þess, nýliðunum í Vinnuveitenda-
sambandinu, sé ljóst þetta grund-
vallarsjónarmið þeirra samtaka,
sem þeir hafa gerzt félagar í. Þá
mun þessi kjaradeila þeirra við
blaðamenn hljóta farsælar lyktir.
Kristján Thorlacius
sagði Kristján Thorlacius, for-
maður BSRB, í samtali við Mbl.
eftir að formannaráðstefnu
BSRB lauk-á Hótel Sögu síðdeg-
is í gær.
„Hverjar þær aðgerðir eru,
get ég ekk,ert sagt um á þessu
stigi, en í samþykkt formanna-
ráðstefnunnar segir að stjórn
BSRB skuli gangast fyrir víð-
tækri þátttöku félagsmanna í
þeim aðgerðum, sem samkomu-
lag næst um, og að komi til
vinnustöðvunar, skuli stjórnin
taka þátt i stjórnun hennar af
þess hálfu." Þegar Mbl. spurði,
hvort þetta þýddi að stjórn
BSRB myndi hvetja félags-
í samþykktinni felst að um
geti orðið að ræða vinnu-
stöðvanir í einhverri mynd
- segir Kristján Thorlacius, form. BSRB
„ÞESSI ályktun formannaráð-
stefnu BSRB þýðir það að við
bíðum eftir niðurstöðu for-
mannaráðstefnu ASl og síðan
munum við taka upp viðræður
við önnur samtök launafólks
um hugsanlegar aðgerðir,"
menn til verkfallsaðgerða, enda
þótt þeir hefðu ekki verkfalls-
rétt, svaraði Kristján: „Það er
rétt að við höfum ekki verk-
fallsréttinn, en við munum ekki
skorast undan þeim aðgerðum,
Framhald á bls. 26
éjörfo
'*HVy?£ "W&W#®7*
-V - Hf j&***
\
fmSm/ÆÉí
- i V
0 >
Vfj&R ■<. >•••
sagði Kristján Thorlacius hafa
komið til vegna óánægju viðkom-
andi með það „hversu lin ályktun-
in væri“:
„Með kjarasamningum samtaka
launafólks á s.l. ári var réttur
hlutur launamanna eftir langvar-
andi stórfellda kjaraskerðingu, er
leiddi af riftun kjarasamninga
vorið 1974, þegar hætt var að
greiða umsamdar vísitöluuppbæt-
ur á laun.
Með frumvarpi því, sem rikis-
stjórnin hefur nú lagt fyrir Al-
þingi um ráðstafanir í efnahags-
málum, er enn á ný rift nýlega
gerðum kjarasamningum. A
þennan hátt er komið í veg fyrir
að launafólk geti í frjálsum samn-
ingum samið um launakjör sín
eins og lög um stéttarfélög og
vinnudeilur frá 1938 og lög um
kjarasamninga Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja frá 1976 gera
ráð fyrir.
Formannaráðstefna BSRB 1978
ályktar að ekki verði lengur við
það unað, að fjárskuldbindingar
þær er felast í kjarasamningum,
séu að engu hafðar af ríkisstjórn
ogAlþingi.
Því ákveður formannaráðstefn-
an að stjórn Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja leiti sam-
starfs við önnur samtök launa-
fólks, sérstaklega Alþýðusam-
Framhald á bls. 26
W' fc" -f,.
Björk Guðmundsdóttir er aðeins 11 ára Reykvíkingur.
Hún syngur, hún spilar og hún semur lög.
Nú hefur hún sungið
á plötu tneð aðstoð nokkurra af þekktustu
popptónlistarmönnum landsins.
Þetta er einstök plata sem á án efa eftir að veita
æskufólki á hvaða aldri sem er mikla ánægju.
GÓÐA SKEMMTUN!
FALKIN N