Morgunblaðið - 16.02.1978, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978
11
sjálfum verkalýðsfélögunum og
þá var allt í lági, því áhafnirnar
sáu um að ekki voru of margar
trossur í sjó. Síðan var þetta
ákveðið með lögum, og þá voru
allir á móti þessu, og enginn til að
framfylgja banninu."
Líst engann
veginn á
vertídina
„Við erum nú að byrja róðra
með net, svo glæsilegt sem það
er,“ sagði Helgi Aðalgeirsson
skipstjóri á Gísla lóðs. ,,Mér líst
engan veginn á vertiðina, enda
steindauður sjór fyrir sunnan
Reykjanes og miðað við það sem
oft hefur aflast á þessum slóðum,
fæst nú lítið. Hverju aflaleysið er
að kenna eru hins vegar ekki allir
sammála um.“
Helgi sagði að aflinn hefði
minnkað ár frá ári, og sérstaklega
væri það áberandi síðustu 3 árum,
hvað allt hefði farið niður á við.
„Auðvitað er höfuðástæðan fyrir
minnkandi fiskgengd aukin sókn.
Eg man það bezt árið 1942, er ég
var að byrja sjósókn, að þá var
fiskur að byrja að ganga aftur á
miðin eftir léleg aflaár fyrir stríð,
og árin 1944 og 45 voru algjör
metár hvað aflabrögð snerti, enda
sást þá vart togari á miðunum.
Fiskurinn var alls staðar, sérstak-
lega á grunnslóð, og af öllum
stærðum." „Notkun gerviefna I
net hefur aukist sífellt frá árinu
1954 að þau komu fyrst á markað-
inn og þessi efni verða sífellt
veiðnari, á sama tíma og fiskun-
um fækkar I sjónum. En hvað sem
öllu fiskleysi llður, þá hefur verið
allsæmilegt að manna bátana I
vetur, og hafa menn ekki þurft að
auglýsa mikið eftir mönnum, það
er frekar að menn komi og spyrju
um pláss.“
— Er þá enginn ljós punktur
framundan?
„Eini ljósi punkturinn er að það
er eftirtektarvert hvað virðist
vera mikið af stórum þorski hjá
línubátum, þannig að maður von-
ar að þegar loðnan kemur, að fisk-
urinn gangi þá I hana og þá ættu
menn að geta kroppað eitthvað.“
Útlitið
ógæfulegt
„Utlitið er frekar ógæfulegt
þessa stundina, og stafar það
kannski fyrst og fremst af þvi,
hve ótíðin hefur verið mikil það
sem af er vetri,“ sagði Erling
Kristjánsson skipstjóri á Þórs-
hamri, en þótt Erling væri I
Grindavík er rætt var við hann,
var Þórshamar löngu farinn til
loðnuveiða norður fyrir land. En
það er víst ekki alitaf hægt að
miða við hvernig var á s.l. ári og
að sjálfsögðu vonar maður að ekki
verði minna af loðnu á ferðinni I
vetur en var I fyrra.“
Erling sagði að Þórshamar
hefði verið keyptur frá Færeyjum
I fyrra I stað annars báts, sem
hann og fleiri áttu. Fram til þessa
hefðu þeir farið á net að loðnu-
vertíð lokinni, en Þórshamar væri
of stór til að fá leyfi til netaveita I
vetur. „Við vitum því ekki enn
hvað gert verður við skipið frá
loðnuvertíðinni fram að sumar-
loðnuvertið, sem hefst ekki fyrr
en 15. júlí, en það er a.m.k. 3
mánaða tímabil. Vissulega væri
möguleiki að senda skipið til kol-
munnaveiða, en því miður er bát-
urinn ekki búinn til þessara veiða
enn og það stæði sennilega á end-
um, að þegar væri búið að útbúa
hann á kolmunnaveiðar, þá væri
sumarloðnuvertíð að hefjast.“
„Hins vegar tel ég að meira
verði sótt I kolmunna á næstunni,
þ.e. ef svipað verð fæst fyrir hann
hér á landi og I öðrum löndum.
Danir borguðu i fyrra 60 aura
danska fyrir hvert kg af skítfiski
og hærra verð fyrir kolmunnann
og þeir sem hafa möguleika á að
fara strax til kolmunnaveiða að
loðnuvertíð lokinni gera það ugg-
laust. Gallinn er sá að hér á landi
er sifellt bætt við loðnuflotann
ófullkomnum skipum, sem eru
ekki nógu vel útbúin tæknilega
séð,“ sagði Erling að lokum.
þurfti að skipa ófaglærða menn I
Sauð^jársjúkdómanefnd. Þó ég
segi „þurfi að skipa" er ég ekki á
nokkurn hátt að tala illa um þá
menn sem hafa gegnt störfum I
Sauðfjársjúkdómanefnd.
5. Um sparnað má það segja að
hver kílómetri girðingar sem
hægt er að leggja niður hlýtur
a.m.k. að gefa möguleika á betra
viðhaldi þeirra girðinga sem eiga
að standa.
í sjónvarpsviðtalinu tók ég það
fram að það sem ég segði væru
mlnar skoðanir en ekki skoðanir
annarra dýralækna. Eg hefi hing-
að til reynt i mínu lífi og starfi að
koma til dyranna eins og ég er
klæddur. Þess vegna hvarflaði
það ekki að mér að mótmæla
kynningu sjónvarpsins þegar ég
var kynntur sem héraðsdýralækn-
ir á Egilsstöðum og formaður D.í.
Líklegast hefði verið einfaldara
að biðja um kynningu eitthvað á
þetta leið: „Ómar Ragnarsson tal-
ar við Jón Pétursson frá Egils-
stöðum".
Mér er ljúft og skylt að biðjast
afsökunar á mismælum I sjón-
varpsviðtalinu þar sem ég tala um
að taka blóðprufur af 30 þúsund
kindum á Snæfellsnesi. Ég hafði
ekki tök á að sjá viðtalið og gerði
mér ekki grein fyrir þessum mis-
tökum fyrr en ég sá „leiðrétt-
ingu“ Sauðfjárveikivarna I sjón-
varpinu.
Þá hafði Ómar Ragnarsson
fréttamaður óskað eftir að ég
kæmi fram I „Kastljósi" og ræddi
um þessi mál við fulltrúa Sauð-
fjárveikivarna, hvað ég svo gjarn-
an vildi þó ekki vtéri til annars en
að leiðrétta þessa missögn mína.
Er til kom gafst ekkert tækifæri
þar eð enginn fulltrúi frá Sauð-
fjárveikivörnum gaf kost á sér i
„Kastljós“. (Líklega er ég ein-
hver ný sauðf járpest).
Er útséð varð um að ekkert yrði
úr „Kastljósinu'* óskaði ég eftir
því við Emil Björnsson frétta-
stjóra sjónvarps að fá að koma
með leiðréttingu orða minna. Var
mér neitað um það vegna
strangra reglna sjónvarpsins, þótt
fréttastjóri hefði fullan skilning á
málaleitan minni.
En það sem ég meinti var þetta:
„Það þjónar engum tilgangi að
fara um allt Snæfellsnes og skoða
30 þúsund fjár og taka síðan blóp-
prufur af 7—800 kindum, það á
bara að bólusetja þær kindur sem
eru óbólusettar".
Ég get á engan hátt skilið hvað
Jón frá Kjörseyri meinar með
skrifum sínum um árás mína á
Sigurð Sigurðarson dýralækni
sem ég nefndi ekki á nafn i viðtal-
inu. Ef til vill er þetta bara aðferð
Jóns frá Kjörseyri til að lofsyngja
einhvern dýralækni, að gerðri til-
raun til að draga formann D.I.,
D.I. og dýralækna almennt niður I
skítinn.
Var ekki nóg að draga mig ein-
an niður I svaðið, ég gaf ekki
tilefni til annars samanber viðtal-
ið: „Eg mundi nú kannski frekar
segja min skoðun, ég þori ekkert
að segja fyrir hina.“ Að endingu
spyr ég Jón frá Kjörseyri, sér-
hæfðan aðstoðarmann Sauðfjár-
veikivarna, hvaða leyfi hann hafi
til að tala fyrir munn bænda þeg-
ar hann endar grein sína á þenn-
an veg: „Bændur landsins ætlast
til þess af þjóni sinum, J.P., að
hann hugsi betur mál sitt áður en
hann kemur I sjónvarpið næst.“
Ekki er Jón frá Kjörseyri bóndi.
Jón frá Kjörseyri mætti gjarnan
fylgja fordæmi mínu þar sem ég
lét mér nægja að tala fyrir mig
einan.
Þess vegna er spurning hver sé
meiningin með þvi að margnudda
íslenskri dýralæknastétt og Dýra-
læknafélagi Islands upp úr per-
sónulegum skoðunum og mismæl-
um mínum.
Frá fundinum um æskulýðsmál
Fundur um æskulýðs-
starf sveitarfélaga
ÆSKULÝUSRÁÐ rlkisins bauð
æskulýðsfulltrúum sveitarfélaga
og öðrum þeim sem annast æsku-
lýðsmálefni af hálfu sveitarfélag-
anna til fundar á Hótel Esju
laugardaginn 4. febrúar s.I.
Á dagskrá fundarins voru fyrst
og fremst tvö mál, þ.e. annars
vegar félagsstarf i skólum og sam-
starf skólanna og aðila utan
þeirra um félagsstarf og aðstöðu
til þess; og hins vegar umræður
um æskulýðsstarf sveitarfélag-
anna þar sem sérstök áhersla var
lögð á helstu nýjungar I starfinu,
samstarf æskulýðsráða, skóla og
félaga, helstu vandamál sem upp
koma I æskulýðsstarfi og skipu-
lagsmál. Þá lögðu fulltrúarnir
fram skýrslur og frásagnir af
starfinu I viðkomandi sveitarfé-
lögum, sem gert er ráð fyrir að
dreift verði til æskulýðs- og tóm-
stundaráða.
A fundinn mættu 28 fulltrúar
flestra stærstu bæjar- og sveitar-
félaga landsins. Fundarstjóri var
Unnar Stefánsson fulltrúi sveitar-
félaganna i Æskulýðsráði rikis-
ins.
Framsögu um samstarf skóla,
félaga og æskulýðsráða hafði
Reynir G. Karlsson, æskulýðsfull-
trúi, og kynnti hann nýja reglu-
gerð um félagsstörf og félags-
málafræðslu I grunnskóla og
niðurstöður nefndar er nýlega
hafði lagt fram álit sitt við
menntamálaráðherra varðandi
aðstöðu til félagsstarfsemi I hús-
næði skólanna.
Að loknum umræðum störfuðu
fundarmenn I þremur starfshóp-
um og lögðu síðan fram niður-
stöður sínar. Kom þar m.a. fram
að flestir telja nauðsynlegt að
tómstundamálefni verði ekki ein-
göngu einskorðuð við ákveðna
aldursflokka heldur fái við-
komandi ráð og nefndir víðari
starfsgrundvöll. Efla þarf sam-
starf með tómstunda- og æsku-
lýðsráðum og foreldrum; og sam-
starfið við skólana verður einnig
að auka. Þá verða sveitaffélög
óhjákvæmilega að auka stuðning
sinn við tómstunda- og æskulýðs-
málefni.
Fundarmenn voru a& lokum
sammála um að óska eftir því við
Æskulýðsráð ríkisins að ráðið
boðaði framvegis slíka fundi um
æskulýðsstarf sveitarfélaga ár-
lega eða jafnvel tvisvar á ári þar
sem þeir væru eini sameiginlegi
vettvangur þessara aðila, sem þó
þyrftu að hafa meira samstarf sin
á milli, en raunin hefði orðið á til
þessa.
(Frétt frá Æskulýðsráði).
Miles tapaði
3 skákum
Enski stórmeistarinn Anthony
Miles tefldi 22 hraðskákir við
bankamenn sl. mánudag. Hann
vann 13, gerði 6 jafntefli og tap-
aði þremur skákum, fyrir þeim
Jóhanni Hjartarsyni, Gunnari
Gunnarssyni og Birni Þorsteins-
syni.
Hver er mest seldi
bfll í Evrópu?