Morgunblaðið - 16.02.1978, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978
21
r
Islenzk hugmynd að tunnu-
verksmiðju í Portúgal
„Möguleikar á stórauknum innflutningi frá
Portúgal”, segir Hans Kristján Árnason
ISLENZKT fyrirtæki, Hans Eide
h.f., hefur að undanförnu kynnt í
Portúgal og á lslandi hugmynd
sfna að byggingu tunnuverk-
smiðju I Portúgal sem stofnsett
yrði að tilhlutan hollcnzks fyrir-
tækis sem Hans Eide h.f. er um-
boðsaðili fyrir, en í hugmyndinni
er gert ráð fyrir að verksmiðjan
seldi tunnur til Islands. Miðað er
við verksmiðju sem gæti fram-
leitt 200—300 þús. tunnur, hefði
um 100 manns f vinnu og fram-
leiðsluverðmæti um 1000 millj.
ísl. kr. Rætt hefur verið um
Oporto sem hugsanlegan stað fyr-
ir þessa verksmiðju.
Mbl. hafði samband við Hans
Krustján Arnason, framkvæmda-
stjóra Hans Eide H.F., en hann er
nýkominn heim úr viðskiptaferð
til Portúgals ásamt Arna Krist-
jánsson aðalræðismanni Hollands
á tslandi.
Aðspurður um aðdraganda og
tilgang ferðarinnar sagði Hans
Kristján blaðinu að ferð þessi
hefði verið farin til að kanna und-
irtektir portúgalskra stjórnvalda
við því að sett yrði á stofn og
starfrækt tunnuverksmiðja í
Portúgal með útflutning til ís-
lands í huga og yrði verksmiðjan í
eigu hollenska fyrirtækisins Hou-
tindustrie van Toor B.V. með að-
ild þarlendra hgasmunaaðila og
etv. fleiri.
„Eins og flestum Islendingum
er kunnugt," sagði Hans, „af
fréttum nú undanfarið hafa við-
skipti okkar við Portúgal verið
ofarlega á baugi. Portúgal er
stærsti kaupandi Islands á salt-
fiski og hefur sá markaður geysi-
lega þýðingu í útflutningsmálum
okkar. Viðskiptin við Portúgal
eru hins vegar þannig að við selj-
um þangað fyrir marga milljarða
á ári hverju, en kaupum sáralítið
þaðan í staðinn. Geysimikiil halli
er því á þessum viðskiptum land-
anna, Portúgölum í óhag. Hafa
þeir lýst því margsinnis yfir við
íslenzk stjórnvöld og saltfiskselj-
endur að viðskipti þessi séu í
hættu þar sem erlend gjaldeyris-
eign þeirra er nú í algjöru lág-
marki og þeir eiga við óhemju
greiðsluörðugleika útávið að
stríða. Hafa Portúgalar óskað eft-
ir því við okkur Islendinga að við
gerum allt sem í okkar valdi
stendur til að koma meira til móts
við þá og auka innflutning frá
þeim til muna frá því sem nú er.
Af Islands hálfu hefur verið
reynt að gera ýmislegt í málinu,
og hefur m.a. verið rætt um að
beina í framtíðinni t.d. hluta af
skipasmíðum, olíukaupum o.fl.,
eftir því sem tök eru á, til Portú-
gals. I þessu sambandi gerðum
við þá tillögu til umbjóðenda okk-
ar í Hollandi á síðasta ári hvort
þeir væru reiðubúnir til að kanna
þann möguleika að setja á stofn
verksmiðju í Portúgal i þeim til-
gangi að flytja framleiðsiuna
(síldartunnur) til íslands og þar
með bæta veruléga þann halla
sem nú ríkir í viðskiptum land-
anna. I janúarmánuði var málið
komið á það stig að við fórum til
Hollands og áttum þar ýtarlegar
viðræður við hollenska fyrirtækið
og utanríkisráðuneytið í Haag. Að
viðon og málið kynnt frekar fyrir
portúgölskum stjórnvöldum. Okk-
ur til aðstoðar var sendiráð Hol-
lands í Portúgal og deildarstjóri í
fjármálaráðuneytinu i Lissabon.
Haldnir voru fundir með öllum
viðkomandi ráðuneytum og stofn-
unum, m.a. i utanríkisráðuneyt-
inu, iðnaðarráðuneytinu, fjár-
málaráðuneytinu, útflutningsráði
Portúgals og stofnun þeirri er
hefur umsjón með erlendri fjár-
festingu í landinu. Auk þeirra var
aðalræðismanni Islands í Portú-
gal kynnt málið í Lissabon, og
sendiráði Islands i Portúgal, (en
sendiráð tslands í París annast
þau mál). Voru undirtektir ofan-
greindra stjórnvalda í Portúgal í
hvívetna vægast sagt hinar já-
kvæðustu og var lýst yfir af öllum
viðmælendum okkar að mál þetta
væri fullkomlega í samræmi við
stefnu Portúgals til aukinnar at-
vinnu og gjaldeyristekna, en
óþarft má vera að lýsa þörfum
Portúgals í þessum efnum, svo
brýnar sem þær eru í dag. Tekið
var sérstaklega fram af hálfu
Portúgalanna og lögð á það rík
áherzla, að hér væri um mál að
ræða sem hefði sérstaklega já-
kvæð og heillavænleg áhrif á við-
skiptastöðu Portúgala við Islend-
inga, en á því sviði sögðu þeir
stöðuna vera sér algjörlega óvið-
unandi.
Vert er í þessu sambandi að
benda á að háttsettir embættis-
menn i iðnaðarráðuneytinu og
fjármálaráðuneytinu, sem ekki
bera beina ábyrgð á utanríkisvið-
skiptamálum Portúgala, tóku
mjög sterkt til orða um brýn'a
nauðsyn þess að Islendingar ykju
vörukaup sin frá Portúgal, svo
ekki sé minnst á þá áherslu sem
lögð var á málið í utanríkisráðu-
neytinu. Fer því ekki á milli mála
að þessi afstaða Portúgals er i
senn mjög ákveðin og almenn.
Tillögur Hollendinganna fengu
auk þess sérstakan hljómgrunn
vegna þess að hér er um að ræða
framleiðslu til útflutnings sem
stendur undir sér, bókstaflega tal-
Hans Kristján Arnason
að, svo til án nokkurs erlends
tilkostnaðar, að undanskildum
hluta stofnkostnaðarins.
Atvinnuleysi í Portúgal er að
auki mjög mikið, eða um 15% og
myndu við þetta skapast ný at-
vinnutækifæri. 1 tilboði hollenska
fyrirtækisins felst að stofnsett
verði tunnuverksmiðja sem fram-
leiða mun u.þ.b. 200—300 þús
tunnur, að útflutningsverðmæti
nálægt eitt þúsund milljónum
króna. Ef framleiðslan yrði öll
flutt til Islands myndi innflutn-
ingur frá Portúgal vegna þessarar
einu vörutegundar margfaldast
miðað við viðskiptln síðustu árin.
Ef um semst er rétt að undir-
strika að hér er um að ræða árviss
viðskipti, að því gefnu að síldar-
söltun á Islandi haldi áfram eins
og nú horfir. Houtindustrie Van
TOOR B.V. í Hollandi hefur ein-
mitt keypt allt sitt hráefni í
tunnuframleiðsluna frá Portúgal
(úr portúgalskri furu) í áratugi
og hefur gömul og trygg sambönd
þar í landi. Hollenska fyrirtækið
er hið stærsta sinnar tegundar í
Hollandi og er að sjálfsögðu vel
að sér í öllu er varðar sildar-
tunnuframleiðslu enda á Holland
líklega lengri sögu en nokkur
önnur þjóð í heiminum í síldar-
neyslu og síldarviðskiptum, eins
og við þekkjum úr landafræðinni.
Til gamans má geta þess að
Houtindustrie Van Toor B.V. var
valið úr hópi margra tunnufram-
leiðenda fyrir skömmu til að
framleiða bjórtunnur fyrir
Heineken á stórafmæli brugg-
verksmiðjunnar heimsþekktu.
Það skilyrði var m.a. sett af hálfu
hollenska fyrirtækisins i tilboð-
inu til portúgölsku stjórnarinnar
fyrir þessari fjárfestingu og
áhættu að því yrði tryggður
markaður á Islandi fyrir tunnu-
þörf Islendinga i a.m.k. 5 ár eftir
að rekstur verksmiðjunfær að
verði og gæðum við það sem Is-
lendingar hefðu notað.
Þegar heim var komið var málið
siðan lagt fyrir viðskiptaráðu-
neytið, og skýrsla um gang við-
ræðnanna afhent. Þá var málið
einnig kynnt Sölusambandi ís-
lenskra fiskframleiðenda, sem
annast útflutning á öllum salt-
fiski okkar. Málið var að sjálf-
sögðu einnig kynnt Sildarútvegs-
nefnd, sem annast hefur kaup og
dreifingu á síldartunnum hér-
lendis og er málið þar til umfjöll-
Hér er óneitanlega um það stórt
hagsmunamál að ræða bæði fyrir
Portúgal og íslendinga að það er
von mín að málið fái fullan stuðn-
ing hérlendra aðila og tryggi
þannig frekar viðskiptatengsl
þjóðanna, sagði Hans Kristján að
lokum, er blaðamaður Mbl.
kvaddi hann.
HARP0
ásamt 5 manna hljómsveit.
í Sigtúni
sunnudaginn 19. feb. kl.
aldurstakmark 18 ár.
f Sigtúni
21
mánudaginn 20. feb. kl. 20. 30
aldurstakmark 13 ár.
Aðeins 2
hljómleikar
MISSIÐ EKKI AF
STÓRKOSTLEGUMff
....... H
V
T0NLEIKUM
Hafnarfirði og
A.A. .