Morgunblaðið - 16.02.1978, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978
Frá snjóflóðunum á Norður-Italfu: Slökkviliðsmaður heldur á dreng
sem var bjargað undan snjóskriðu f Agordina-dalnum nálægt Belluno í
Dólómíta-ölpunum. Sex biðu bana.
Kambódía-Thailand:
Enn vidburdir á
landamærunum
Bankok, !5. feb. AP.
UM TVÖ hundruð Kambódíuher-
menn réðust á afskekkta landa-
mærastöð í Thailandi og réðu af
dögum landamæralögregluþjón
og brenndu til grunna skóla og 15
íbúðarhús, að því er skýrt var frá
i aðalstöðvum lögreglu landsins í
dag. Forscætisráðherra Thailands
telur að n.k. þriðji her hafi verið
hér að verki.
Síðustu atburðir á landamærum
Kambódíu og Thailands eru þeir
fimmtu i röðinni á tveimur vik-
um, eða frá því Upadit Pachar-
iyangkun utanríkisráðherra Thai-
lands lýsti því yfir að góð tengsl á
milii landanna hefðu verið endur-
reist. Fáleikar hafði verið milli
ríkjanna frá því kommúnistaherir
tóku völdin í Kambódíu í apríl
1975.
Arásin á landamærastöðina stóð
yfir í 20 mínútur og notuðu K:m-
bódíumenn handsprengjur og
kinverska riffla í átökúm við
heimamenn. Lögreglumaður beið
bana og enn er fjögurra manna
saknað.
Kriangsak Chomanan forsætis-
ráðherra Thailands sagði frétta-
mönnum á þriðjudag að hann
teldi hersveit uppreisnarmanna
vera ábyrga fyrir síðustu atburð-
um á landamærum K.módíu og
Thailands. Sagði hann stjórn sína
álíta að hér væri ekki á ferðinní
hersveit sem fengi tilskipanir frá
stjórninni í Phnom Penh. I báð-
um löndunum eru uppreisnar-
sveitir, hryðjuverkasveitir, sem
hafa það eitt að markmiði að lama
tengsl og vináttu landanna," sagði
ráðherrann.
Þrátt fyrir yfirlýsingar um bætt
tengsl landanna tveggja eru sam-
eiginleg landamæri þeirra, um
800 km að lengd, enn lokuð. Eng-
in samskipti hafa átt sér stað við
helztu landamærastöðvarnar.
Sovétmenn taka
á sig ábyrgðina
S.Þ., Ottawa, 15. feb. AP. Reut-
er.
VIRTUR sovéskur vísindamaður
tók í dag afstöðu gegn því að sett
yrði á stofn sérstök starfsnefnd í
því skyni að koma I veg fyrir
óhöpp viðvíkjandi kjarnorku-
knúnum gervihnöttum. Hann
játti því þó að Sovétmenn bæru
ábyrgð á er sovéskt gervitungl
féll til jarðar í Kanada hinn 24.
jan. sl. Varnarmálaráðherra Kan-
anda Barney Danson hefur sagt
að kostnaðurinn af því að finna
leifarnar nemi nú meira en 450
milljónum fsl. króna.
I ávarpi, sem Evgeni Fedorov,
háskólamaður og æðstaráðsfull-
trúi, flutti í vísindalegri undir-
nefnd geimnefndar Sameinuðu
þjóðanna, andmælti hann tillögu
Japana, Belga, Itala og Kanada-
manna þess efnis að setja hömlur
við tilraunum með kjarnorku-
knúna gervihnetti í geimnum.
Hann sagði að notkun hvers kyns
vélaútbúnaðar hefði i för með sér
vissa áhættu og þótt hugsanlegt
væri að eitthvað færi aflaga væri
það ekki eitt tilefni til að reisa
skorður vió visindalegum fram-
förum. Fedorov sagði að í gildi
væru sérstakar reglugerðir varð-
andi meðferð kjarnorkuknúinna
gervihnatta og væri þar kveðið á
um að þeim aðila, sem ábyrgur
væri ef tjón yrði af völdum gervi-
hnattar í öðru landi, væri skylt að
bæta það upp. Samkvæmt kana-
dískum heimildum gekk ávarp
Fedorovs lengra en nokkur opin-
ber yfirlýsing sovéskra yfirvalda
fram til þessa í þá átt að taka
ábyrgðina og fallast á bætur
vegna óhappsins. Hann sagði þó
ekki berum orðum að Sovétmenn
myndu greiða hinn mikla kostnað
af leitinni.
Þegar Sovétmenn misstu stjórn
á gervihnettinum og hann féll til
jarðar í Kanada, sagði Federov,
buðust þeir til að senda flugvél og
sérfræðinga til að finna flak hans,
ef eitthvert væri. Þessu tilboði
höfðu kanadfsk stjórnvöld þó
hafnað sagði hann.
Kolaframleiðendur
hafna bón Carters
Washington, 15. feb. AP. Reut-
er.
FORSTÖÐUMENN bandaríska
kolaiðnaðarins neituðu í dag að
verða við tilmælum Carters for-
seta um að taka upp samningavið-
ræður þegar í stað og binda þar
með enda á kolanámuverkfallið,
sem nú hefur verið um gervöll
Bandaríkin í 72 daga. Mjög ólán-
lega horfir f þessum efnum f
mörgum ríkjum. Birgðir eru víða
af skornum skammti. Þúsundir
verkamanna í öðrum atvinnu-
greinum eiga það á hættu að
verða atvinnulausar. Fari svo
fram sem horfir eru einnig líkur
á að skammta verði eldsneyti til
kyndingar hjá milljónum Banda-
ríkjamanna á hörðum vetri.
Carter fór fram á það við sam-
band kolaframleiðanda, BCOA, og
einingarsamtök námuverka-
manna, UMWA, á þriðjudag að
þau sendu fulltrúa til viðræðna í
Hvíta húsið tafarlaust. Forsetinn
lét jafnframt á sér skilja að hann
hefði í bakhöndinni „áhrifaríkari
ráðstafanir" ef úrlausn fengist
ekki bráðlega. Verkfallið hefur
þegar dregið um helming úr fram-
leiðslu á kolum.
I bréfi, sem forseti BCOA, E.B.
Leisenring, skrifaði vinnumála-
ráðherranum Ray Marshall, sagði
að það væri misráðið að hefja
samningaviðræður að nýju. „Að
okkar dómi ætti forsetinn fyrst að
kalla á sinn fund höfuðpaurana í
verkfallinu, forystumenn UMWA
og samninganefnd þeirra," sagði
Leisenring. Hann bætti við: „Það
væru mistök að auðvelda þeim að
gera óhóflegar kröfur með þvi að
koma í kring nýjum umræðum."
Kom fram hjá Leisenring að
framleiðendur töpuðu milljónum
dollara daglega af völdum verk-
VEÐUR
víða um heim
stig. Amsterdam 2 skýjað
Aþena 15 skýjað
Berlin 1 skýjað
Briissel 0 snjökoma
Chicago + 2 skýjað
Frankfurt 0 snjókoma
Genf O sólskin
Helsinki + 17 bjart
Jöh.b. 24 sólskin
Kaupm.h. 0 skýjað
Lissabon 2 rigning
London 4 skýjaS
Los Angeles 18 bjart
Madrid 10 rigníng
Malaga 19 skýjaS
Miami 29 bjart
Moskva 1 skýjaS
New York 0 bjart
Ósló + 13 sólskin
Palma. Majorca 14 bjart
Paris 2 skýjaS
Róm 9 bjart
Stokkh. + 5 sólskin
Tel Aviv 28 bjart
Tokyó S bjart
Vancouver 9 rigning
Vln 0 bjart.
fallsins, sem brýn þörf væri fyrir
til að koma á fót nýjum eldsneyt-
isvinnslustöðvum. Hann kvað þá
engu síður vera staðráðna í að
láta ekki deigan síga og væru þeir
því neyddir til að hafna tilmælum
um samningaviðræður.
Forstjóri UMWA, Arnold Mill-
er, kvaðst á hinn bóginn ánægður
með frumkvæði Carters forseta
og sagði samtök námuverka-
manna reiðubúin til að setjast aft-
ur að samningaborðinu.
Þau málefni, sem umræðurnar
hafa fram til þessa strandað á eru
ákvæði samnings til þriggja ára.
Telja námuverkamenn eitt atriðið
t.d. vera lækkaðar heilsuuppbæt-
ur og eftirlaun og fella sig heldur
ekki við ákvæði, sem kveður á um
harkaleg viðbrögð af hálfu at-
vinnurekenda við óleyfilegum
verkföllum. Hins vegar höfðu hin-
ir síðarnefndu tekið vel í beiðni
um 37% launahækkun, sem gæfi
verkamönnum 10.15 dollara á tím-
ann.
Alls hafa um 160.000 námu-
verkamenn hætt störfum til árétt-
ingar kröfum sínum. Samkvæmt
bandarískum lögum hefur Banda-
ríkjaforseti vald til að skipa þeim
að taka upp störf að nýju í 80
daga. Hefur Carter sagt að þetta
sé einn af valkostum þeim, er
hann hugleiði nú.
Stöðvun i ýmsum iðngreinum
ásamt almennri orkuskömmtun
vofir nú yfir i nokkrum ríkjum.
Ohio, Indiana, Vestur-
Pennsylvanía og Vestur-Virginía
eru meðal þeirra ríkja, sem verst
hafa orðið fyrir barðinu á verk-
fallinu. I Ohio munu nú aðeins
um 30 daga birgðir af kolum vera
Framhald á bls. 26
Fjarskiptabann í
írska lýdveldinu
London 15. febr. AP.
ÖLL viðskipti lágu niðri í
írska lýðveldinu í dag,
vegna fjarskiptabanns við
útlönd, fimmta daginn í
röð. Viðskiptamenn segja
að landið tapi mörgum
milljónum punda á dag, því
engir útflutningssamning-
ar eru gerðir og öll önnur
viðskipti eru í lágmarki.
Bannið er til komið vegna níu
mánaðar gamallar deilu tækni-
manna hjá pósti og síma við ráða-
menn, út af endurskipulagningu
pósts og síma.
Viðskiptamenn hafa sagt að
verði banninu fram haldið geti
svo farið að mörg fyrirtæki verði
gjaldþrota. Bannið hefur einnig
áhrif á viðskipti innanlands, og til
að bæta gráu ofan á svart hefur
bylur mikill gengið yfir Irland og
undanförnu og valdið rafmagns-
leysi víða um landið.
Forsætisráðherrann Jack
Lynch boðaði til fundar i stjórn
landsins í dag, til að ræða um
ástandið, sem fer sífellt versn-
andi. Lynch sagði i gær að hann
ætlaði sér ekki að blanda sér í
deiluna.
Methalli
hjáDönum
Kaupmannahöfn,
14. febrúar. Reuter.
GREIÐSLUHALLI Dana við út-
lönd varð 12,4 milljarðar danskra
króna eða um 549 milljarðar ís-
lenskra króna á síðasta ári, en það
er mesti halli sem nokkurn tíma
hefur orðið hjá Dönum.
Endanlegar tölur liggja enn
ekki fyrir, en búast má við að
hallinn verði heldur minni þegar
allt dæmið hefur verið gert upp.
Danska stjórnin hét því í upphafi
siðasta árs, að hún ætlaði að reyna
að minnka greiðsluhallann um
tvo milljarða danskra króna á ár-
inu, en þó fór sem fór.
Forráðamenn flugfélaga í
London sögðu að mörg hundruð
viðskiptamenn hefðu flogið til
London og annarra borga í Vest-
ur-Evrópu til að geta notað síma
þar. Dæmi eru til þess að við-
skiptamenn hafi leigt flugvélar til
að fljúga til Norður-írlands til að
komast í nothæfan síma. Aðrir
létu sér nægja að aka yfir landa-
mærin, og öll hótel i borginni
Newry i Norður-Irlandi eru að
fyllast af viðskiptamönnum frá
Dýflini.
Fréttir herma að helztu borgir
Irlands, Cork, Limerick og
Galway, séu sambandslausar við
höfuðborgina. Viðskiptamaður
einn sagði að í síðustu viku hefði
ástandið verið orðið svo slæmt að
það hefði tekið allt að átta daga að
hringja frá Dýflinni til Cork.
Deilurnar hófust í mai síðast-
liðnum þegar tæknisérfræðingar
hjá pósti og síma kröfðust hærri
launa, vegna þess að stjórnvöld
hefðu í hyggju að taka upp nýjar
vinnuaðferðir án þess að hafa
samráð við verkalýðsfélög fyrst.
Þetta gerðist 16. febrúar
Þetta gerðist 16.
febrúar.
1977 — Erkibiskup í
Uganda og tveir ráð-
herrar í stjórn Idi
Amins eru handtekn-
ir, sakaðir um að hafa
ætlað að steypa Amin
forseta af stóli.
1961 — Kýpur stjórn
ákveður að sækja um
aðild að brezka sam-
veldinu.
1959 — Fidel Castro
verður forsætisráð-
herra Kúbu.
1945 — Bandaríski
flugherinn hefur stór-
felldar sprengjuárásir
á Tokyó.
1943 — Rússneski her-
inn nær Karkóv aftur
af Þjóðverjum.
1936 — Manuel Azana
verður forsætisráð-
herra Spánar og
stjórnarskráin frá
1931 tekur aftur gildi.
1918 — Þýzkur kafbát-
ur skýtur af fallbyss-
um sínum á ensku
hafnarborgina Dover.
1916 — Rússar taka
borgina Erzurum í
Tyrklandi. — Banda-
ríkjastjórn mótmælir
ákvörðun Þjóðverja
um að ætla að sökkva
vopnuðum kaupskip-
um án viðvörunar.
1871 — Stríðinu milli
Prússa og Frakka lýk-
ur með sigri hinna
fyrrnefndu.
1808 — Frakkar ráð-
ast inn í Spán.
1804 — Komið er upp
um samsæri gegn
Napoleon. — Banda-
riskir sjóliðar laumast
inn í Tripoli-höfn og
brenna bandaríska
freigátu sem sjó-
rærtingjar höfðu náð á
sitt vald.
I dag eiga afmæli:
G.M. Travelyan, brezk-
ur sagnfræðingur
(1876 — 1964) og |
John Schlesinger,
brezkur kvikmynda-
leikstjóri (1926 — )
Hugleiðing dagsins:
Þótt náttúran sé lamin
með lurk, leitar hún út
um síðir.