Morgunblaðið - 08.03.1978, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1978
Guðrún ok Ingibjörg.
Ásdís.
Islenzki dansfíokkurinn
með 5 nýja balletta:
„Dansarnir byggjast á nýjum
hreyfingum með líkamanum”
í kvöld, miðvikudagskvöld, frumsýnir íslenzki dansflokkurinn 5
nýja balletta undir stjórn Yuri Chatal ballettmeistara og
Sveinbjargar Alexanders listdansara, sem einnig dansar í sýningunni,
en aukdansaranna í Islenzka dansflokknum dansa nemendur í
listdansskólanum. Sveinbjörg Alekanders hefur um árabil starfað sem
ballettdansari í Þýzkalandi og fékk hún leyfi frá Óperunni í Köln en
þar dansar hún með Tanz Forum-dansflokknum.
Sumarleikir heitir einn ballettinn við tónlist eftir Ravel, en
danshöfundur og stjórnandi er Yuri Chatal. Dansarar í þeim ballett
eru Misti McKee, Birgitta Heide, Nanna Ólafsdóttir, Yuri Chatal og
Einar Sveinn Þórðarson.
Þá er ballettinn Metelitza, sem er rússneskur dans eftir Yuri
Chatal, en þar eru um að ræða sólódans hjá Helgu Bernhard.
Þriðji ballettrnn á dagskránni er Sinfónískar etýður við tónlist
Roberts Schumann, en danshöfundur er Þjóðverjinn Jochen Ulrich.
Stjórnandi þess dans er Sveinbjörg Alexanders, en dansarar eru Asdís
Magnúsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Ingibjörg Pálsdóttir, Helga
Bernhard, Ólafía Bjarnleifsdóttir, Nanna Olafsdóttir og Örn
Guðmundsson.
Etýðurnar er rómantískur dans saminn við ljóð og blandar
höfundurinn þar saman tækni nútímaballetts og sígilds balletts. I
stuttu samtali við Sveinbjörgu Alexanders sagði hún að slík
vinnubrögð tíðkuðust í hennar dansflokki í Köln. Þó kvað hún
Etýðurnar vera með klassískari verkefnum sem Forum-flokkurinn
túlkar, en þessi ballett var frumsaminn fyrir Göthestofnunina í
Múnchen s.l. haust. Ballettinn er gerður fyrir þrjú pör, en Sveinbjörg
hefur hagrætt honum fyrir íslenzka dansflokkinn og í honum dansa
6 stúlkur og einn karldansari.
Þá er ballettinn Angistaróp nætur minnar við tónlist Hindemiths,
en Jochen Ulrich samdi þann ballett sérstaklega fyrir sýningu
Þjóðleikhússins nú og Sveinbjörgu sem dansar sólódans.
Tónlistin er eftir Paul Hindemith opus 9, söngvar fyrir sópran og
hljómsveit við kvæði Else Laske Schuler og Lotz. Viðfangsefni
ballettsins er stemmning og angist stríðsáranna. Aðspurð kvaðst-
Sveinbjörg hafa mikinn áhuga á því að semja sjálf balletta og sinn
fyrsta bailett kvaðst hún ætla að semja í Köln í apríl. Þá kvaðst hún
hafa mikinn áhuga á því að nota íslenzkt efni í ballettsmíði, íslenzk
kvæði og sitthvað fleira úr íslenzkri menningu sem gæfi mikla
möguleika í túlkun fyrir ballett.
F’immti ballettinn á sýningu Þjóðleikhússins í kvöld er I gömlu góðu
Vín við tónlist Jóhanns Strauss yngri. Sá dans er einnig eftir Yuri
Chatal, en dansarar éru Guðrún Pálsdóttir, Ingibjörg Pálsdóttir,
Ilelga Bernhard, Örn Guðmundsson, Yuri Chatal ásamtHelenu
Jóhannsdóttur, Láru Stefánsdóttur, Katrínu Þorbjörnsdóttur og
Sigrúnu Waage.
Isienzki dansflokkurinn mun aðeins sýna tvisvar í Reykjavík en
síðan verður haldið í sýningaferð út á land.
Sveinbjörg Alexanders kvaðst vera mjög ánægð með dansarana í
Dansflokknum. „Það er ekki auðvelt að læra nýjan stíl eins og þeir
hafa þurft að gera í þessum balllettum nú. Dansarnir byggjast sumir
á nýjum hreyfingum með líkamanum, en mér finnast dansarnir mjög
efnilegir og meira en það, því það er gott dæmi um árangur þeirra
að Auður Bjarnadóttir er nú í ársleyfi og hefur komizt að í
ballettdansi í Múnchen. Ég vona þó fyrir hönd Islendinga að
stúlkurnar tapist ekki til útlanda, en til þess að fyrirbyggja það, þarf
að hafa fleiri sýningar oggera meira fyrir Dansflokkinn. Það er
sorglegt að missa góða starfskrafta og listamenn til útlanda, en fyrir
mig hefur það verið mikil ánægja að vinna með stelpunum og þær
hafa svo sannarlega að mínu mati, eflzt við hverja raun. Ég vona
að ég eigi eftir að vinna með þeim síðar." — á.j.
Á æfingu eins ballcttsins.
Rætt irið Sveinbjörgu
Alexanders sem hefur æft fyr'u
sýninguna ásamt
Yuri Chata! baHettmeistara